Morgunblaðið - 03.09.1985, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 03.09.1985, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1985 IZUMI STÝRIROFAR SNERLAR LYKILROFAR HNAPPAROFAR GAUMUÓS Hagstætt verð • vönduð vara = HÉÐINN = VÉLAVERZLUN-SlMI: 24260 LAGER-SÉRFANTANIR-WÓNUSTA Um fordóma og fleira HITASTILLT BAÐBLÖNDUNARTÆKI Það er auðvelt að láta hita- stillt Danfoss baðblöndun- artæki leysagamla tækið af hólmi. Spurðu pípulagn- ingarmanninn, hann þekkir Danfoss. = HÉÐINN = SEUAVEGI 2.SÍMI 24260 — eftir Bárð R. Jónsson Fyrir nokkrum árum varð uppi fótur og fit meðal íbúa í Laugar- áshverfi þegar geðheilbrigðisþjón- ustan festi þar kaup á húsnæði við Laugarásveg fyrir sjúklinga sína. Haldnir voru fundir og lang- hundar skrifaðir í blöðin. ófáir opinberuðu þröngsýni, fordóma og skort á þeirri mannúð sem kristi- legt samfélag leggur svo ríka áherslu á að við sýnum hvert öðru. Fleiri urðu samt til að rísa upp og kveða niður fordómana í garð verðandi íbúa húsnæðisins, og heimilið hefur verið þarna vand- ræðalaust hverfinu til sóma. Svo gerðist það um daginn að mál þessu líkt skaut upp kollinum, og hefði maður ætlað að slíkt ætti ekki eftir að endurtaka sig að und- angenginni fyrri reynslu. Eg á hér við húseignina sem fé- lagasamtökin Vernd keyptu fyrir skjólstæðinga sína og undir starfsemina. íbúar hverfisins ráku upp rama- kvein sem barst í fjölmiðla og földu sig þar á bak við eigin- hagsmunina sem þeir sögðu komna í hættu. Fasteignaverð félli ef „svona" fólk flytti í hverfið, að ekki sé minnst á hættuna og „stressið" samfara því að hafa „svona“ fólk fyrir nágranna. Sem betur fer eru viðbrögðin ekki öll á þennan veg, en því miður virðist meirihluti íbúa hverfisins áfjáður í að dæma án þess að þekkja forsendurnar. Sorglegt er þó, að einn af forystumönnum þjóðarinnar skuli ganga framfyrir skjöldu í liði með þeim sem hæst veina um hættuna sem að sér- hagsmununum steðjar. Að sá hinn sami beiti valdi sínu sem kjörinn maður fólksins til að A ENDIMORKLIM JARÐAR Tfjf Msr ISy. PLAre XHE LAST PLACE ON EARTH % Q\ m m ^ E £ £ H O- m xj r pí > ifi C- O §5 Á ENDIMÖRKUM JARÐAR * °N tTH lf °V'Ó}^ .4 1 VHS MAKTTN SHAW SVHRRT A.NKKR OUSHAI STEPHEN MOORE SUSAN WOOl.DRIDGF, muI MAX VON SVIXW “FrMtJof Nmnttn ’ t fry Vrcnptayftv I-('ftNhot' Pr*4«<*4K I ftPWM TWf VOW M»l»tTHH P ( MmW TIM VAA' HHlU: tbt Wfcby IMU ANl» tH'NTHHIO ÍSLENSKUR TEXTI 2 3 „The last place on earth“ heitir nýr myndaflokkur sem frumsýndur var i Bretlandi sl. vetur. Myndin sem byggð er á bók eftir Roland Huntfords, fjallar um keppni þeirra Scott og Amundsen um hvor verði fyrri til ad komast á Suðurpólinn og hljóta bæði frægð og frama auk þess að brjóta blað i sögu landkönnunar. Þegar bók Huntfords „Scott og Amundsen“ kom út hófust miklar ritdeilur sem siðan blossuðu upp aftur i vetur er þátturinn var tekinn til sýninga. Tilefni þessara deilna er lýsing bókar og myndar á Scott sem hégómlegum og misheppnuðum ævintýramanni. Nú er svo komið að ættingjar Scotts annars vegar og framleiðendur þáttana, Central productions hins vegar standa i harðvítugum málaferlum um réttmæti þess er fram kemur i myndaflokknum. „Á endimörkum jarðar" eins og myndaflokkurinn heitir á íslensku er í 7 þáttum á 3 spólum með islenskum texta. FYRSTA PLOKKS MYNDAFLOKKUR MEÐ ÚRVALSLEIKURUM 0G FÆST Á ÖLLUM BETRI MYNDBANDALEIGUM LANDSINS. DRFIFING ÍEFLI ME S: 6862S0 Báróur R. Jónsson „Af þessum heimilum hafa fleiri notið góðs en fyrrverandi fangar og það er brýnt fyrir ís- lenskt þjóðfélag í Ijósi þeirrar þróunar sem á sér stað í fíkniefna- neyslu og afbrotum tengdum henni, að styrkja þessa starfsemi og efla með öllum ráð- um.“ kynda undir fordómunum og fá- fræðinni, í stað þess að hella vatni á eldinn og auka á skilning er mér óskiljanlegt. Nær væri að upplýsa almenning um þá starfsemi er þarna verður. Ég trúi því ekki, að jafn greindur maður og Davíð Oddsson borgar- stjóri, geri sér ekki grein fyrir gildi starfsemi Verndar og því gagni sem félagsskapurinn vinnur og hefur unnið fyrir samfélagið og þá einstaklinga sem lakast hafa veganestið. Það er satt að segja furðulegt að viðhorf lík þeim er hér hafa heyrst skuli koma fram í dagsljósið. Ég hélt að jafn vel menntuð þjóð og við stærum okkur af að vera væri komin út úr myrkviði fordómanna fram i ljósið sem upplýsingin væntanlega er þegnunum. Nei, það er öðru nær, fordóm- arnir vaða enn uppi þrátt fyrir víðtæka umfjöllun í ræðu og riti um málefni fanga og atriði skyld þeim. Eitthvað hefur okkur samt miðað áleiðis, þótt erfitt sé að trúa því á stundum. Má það meðal annars þakka þeirri umræðu sem orðið hefur um áfengis- og fíkniefnaneyslu, en málefni fanga eru því nátengd. Þar hefur Vernd unnið ómetan- legt starf með rekstri áfangahús- anna við Skólavörðustíg og Rán- argötu (ekki kvörtuðu íbúar þar). Af þessum heimilum hafa fleiri notið góðs en fyrrverandi fangar og það er brýnt fyrir islenskt þjóð- félag í ljósi þeirrar þróunar sem á sér stað í fíkniefnaneyslu og af- brotum tengdum henni að styrkja þessa starfsemi og efla með öllum ráðum. Það verður ekki gert með ráða- menn í fararbroddi fyrir fordóma- fylkingunni. Höfundur er nimsmaAur. V^terkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamiöill! JII#ir0i!mM&foí§>
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.