Morgunblaðið - 15.01.1986, Síða 15

Morgunblaðið - 15.01.1986, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR15. JANÚAR 1986 15 Þegar þú velur sparifé þínu sparnaðarleið er fleira sem skiptir máli en háir vextir. SPARISKIRTEINI RÍKISSJÓÐS BJÓÐAST NÚ MEÐ ALIT AD 9% ARSVOXTUM FULLRI VERDTRYGGINGU MISLÖNGUM BINDITÍMA OG / / ORYGGI SEM ENGINN ANNAR GETUR ST&EAÐAF £ J axtahækkun. Vextir af verðtryggðum spariskírteinum ríkis- sjóðs hafa nú verið hækkaðir verulega. Skír- teinin eru því áfram einhver arðbærasta sparn- aðarleið og öruggasta fjárfesting sem völ er á. Hefðbundin spariskírteini. Hefðbundin spariskírteini ríkissjóðs hafa notið mikilla vinsælda á liðnum árum, og nú hafa skilmálar þeirra og kjör enn verið bætt til muna. Lánstíminn er lengst 14 ár, en þú getur valið milli þriggja, fjögurra eða sex ára binditíma, og hækka vextirnir eftir því sem binditíminn er lengri. Veljir þú þriggja ára binditíma eru ársvextir 7,0%, fjögurra ára bréf bera 8,5% vexti og sex ára bréf 9,0% vexti. Að binditíma liðnum er þér heimilt að innleysa skírteinin og þá getur ríkissjóður einnig sagt þeim upp. Segi hvorugur aðilinn skírteinunum upp, bera þau áfram ofangreinda vexti til loka lánstímans. Verðbætur, vexti og vaxtavexti færðu greidda í einu lagi við innlausn. Vaxtahækkunin kemur bæði þér og ríkissjóði til góða. Pað er ótvíræður hagur allra landsmanna að sameiginlegt framkvæmdafé okkar íslendinga komi frá okkur sjálfum fremur en erlendum lánardrottnum - jafnvel þótt vextir á þessum lánum okkar á milli séu háir. Þess vegna getur ríkissjóður boðið landsmönnum ofangreind úrvalskjör á spariskírteinum sínum. Með kaupum á spariskírteinum ríkissjóðs færðu því í senn mjög góða ávöxtun á fé þitt - án allrar áhættu, og um leið kemur sparnaður þinn þjóðarbúinu öllu til góða. Sölustaðir spariskírteina ríkissjóðs eru: Seðlabanki Islands, viðskiptabankarnir, spari- sjóðir, nokkrir verðbréfasalar og pósthús um land allt. RIKISSJOÐUR ISLANDS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.