Morgunblaðið - 22.02.1986, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 22.02.1986, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR1986 15 Útilegiisag-a Bókmenntir JennaJensdóttir Magnea frá Kleifum: Tóbías trítillinn minn. Myndir eftir Sigrúnu Eldjárn. Iðunn — Reykjavík 1985. „Vandamálabækumar" um drenginn Tóbías eru nú orðnar þrjár. Fyrir nokkru barst mér í hendur sú síðasta, sem kom út rétt fýrirjólin. Tóbías, sem nú er bráðum sex ára, hefur verið undir handaijaðri Sighvats listmálara síðan móðir hans fór til náms erlendis. Kona Sighvats er einnig erlendis að læra. Sighvatur er kominn í útilegu, með Tóbías og Tinnu dóttur sína, sem er lítið eitt eldri en Tóbías. Þau hafa tjald og bíl og eyða dögunum í dásemd náttúrunnar með heiðar og fjöll á aðra hönd, en sjó og fjöru á hina. Hér er Sighvatur frjáls með pensilinn sinn og strigann. Hann nýtur þess að hafa bömin að félög- um og tekur þátt í undmn daganna með þeim. Tóbías sem er bijóstgóður og meyr í lund hefur býsna ákveðnar skoðanir á því að láta ekki aðra ráða lífsferli sínum. Hann leitar eftir ástúð og vemd hjá Sighvati, sem reynist honum hlýr og skilningsrík- ur. Tuskubrúðumar Jóka og Trölli em enn góðir félagar Tóbíasar og í samræðum sínum við þær getur hannjafnvel tárast. Tinna er hetjan í atburðum dag- anna í mætti góðrar nasagreindar, sem blómstrar í agalausu uppeldi föðurins. Að eðlisfari er hún hjarta- hlý. Hún er uppfræðari Tóbíasar og byggir fræðslu sína oft á hugar- flugi, sem á sér rætur í þeirri for- sendu að hún geti hiklaust sagt öllum til syndanna af því að hún viti allt og að hennar skoðanir séu þær einu réttu. Páll kennari, faðir Tóbísar kemur í heimsókn á afmælisdegi sonar síns. Öðmm þræði er hann í lax- veiðiferð með félögum sínum úr boiginni. Lýsingin á honum er nöturleg. Samband hans við Tóbías lýsir skilningsleysi og hræðslu við að nálgast drenginn. Hann ásakar Tóbías fyrir fötlun hans. Þótt hann finni mistök sín hefur hann ekki vit til að bæta-úr þeim. Hann öskrar af skelfingu þegar Tóbías setur kettlingskríli á hné hans. Andúð hans á kennslu og bömum er með eindæmum. Tinna tekur kennarann í karphúsið og Sighvatur gefur honum ákveðin fyrirmæli um upp- eldi Tóbíasar, á vissan hátt innan sinna hóflegu marka. Kennarinn hefur orð á því að Tinna sé óstýrilát, en Sighvatur vísar því á bug og trúir fortakslaust á dóttur áina. Kennarinn og félagar hans sýnast fremur koma til að stunda drykkjuskap, en veiða lax. En sú skemmtun verður að engu fyrir tilstilli Tinnu. Sighvatur fær bréf, sem gerir hann sagnafáan og sorgbitinn. ímyndunarafl Tinnu fær byr undir báða vængi. Hún veit að mamma hennar er dáin. Sorg hennar verður mikil og Tóbías reynir að hugga hana. En mamma hefur þá bara tekið saman við annan mann og eignast bam með honum. Reiði Tinnu á sér engin takmörk og orð- bragð hennar markast af haturs- fullum heitingum. Af eðlislægri ástúð reynist Tóbías vinkonu sinni eins vel og honum er unnt í sorg hennar. Að lokum ganga þeir Sighvatur og Tóbías niður í fjöru til að hlusta á hafið. Þetta er góð útilegusaga. Fjör- lega og vel sögð á köflum. Höfundur lýsir af næmi þeirri kyrrlátu gleði og lífsfyllingu sem mannssálir geta öðlast í nánu sambandi við náttúm landsins. í því felst ágæti sögunnar. Skemmtilegar myndir árétta texta. Frágangur á bókinni er góður. Vinningshafar í afmælis- þraut Verslunarbankans 10. febrúar sl. vom aðalvinningar í afmælisþraut Verslunarbankans afhentir vinningshöfum. Á mynd- inni em þeir með skáktölvur sínar, ásamt Geir Þórðarsyni þjónustu- stjóra Verslunarbankans. Talið frá vinstri: Ólafur B. Þórsson, Geir Þórðarson, Guðbjörg Óskarsdóttir og Ólafía Siguijónsdóttir. TOYOTA COROLLA GT er gott dœmi um nútíma hönnun, þar sem | saman fara mikil þœgindi og afburða aksturseiginleikar. Framhjóladrifinn, með sannkallað orkuver undir húddinu er þessi bíll búinn fjölhœfni skutbílsins og snöggum og skemmtilegum eiginleikum v sportbílsins. COROLLA GT SPECIAL SERIES er sérbúinn c bíll, þar sem saman fara aukin þœg- a indi og útlit sem vekur aðdöun. ^ Renndu við í reynsluakstur og þú sannfœrist um að COROLLA GT SPECIAL SERIES er hverrar krónu virði TOYOTA^r

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.