Morgunblaðið - 15.03.1986, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 15.03.1986, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1986 11 Útsölustaöir: Hagkaup Skeifunni ESSO-stöövarnar Veldu íslenskt... Ma^lFtaS ef það er betra! Iþróttahús á Kleppjáms- reykjum næsta stórátak segir Kristján Benediktsson oddviti Reykholtsdalshrepp Kleppiámsreykjum í febrúar. NÚ LIÐUR senn að því að kjör- tímabili sveitarstjórna rennur út. Þvi fylgir gjarnan innræða um sveitarstjómarmál. Fréttaritari Morgunblaðsins hitti Kristján Benediktsson oddvita, Reyk- holtsdalshreppi, að máli i skrif- stofu hreppsins á Kleppjáms- reykjum og ræddi við hann um störf hreppsnefndarinnar. Kristján sagði að verkefni sveit- arstjómarinnar á kjörtímabilinu hefðu mest verið hefðbundin, svo sem við skóla og heilsugæslu. Mestur hluti ráðstöfunarijárins hefði farið í þessa tvo málaflokka. Auk þess hefði mikil vinna farið í tilraunir til að koma fótunum undir atvinnufyrirtæki sem hreppurinn á aðild að, bifreiða- og vélaverkstæðið Breiðverk hf., en það hefði ekki tekist sem skyldi. Afréttar- og veiði- mál hefðu einnig tekið nokkum tíma. Um aðrar framkvæmdir væri ekki að ræða. — Hvað er framundan hjá hreppsnefndinni? „Það er oft sagt að hreppurinn eigi að gera hitt og þetta, og er gott eitt um það að segja. Hrepps- nefndin vill hins vegar frekar styðja við bakið á þeim sem vilja hefla framleiðslu eða rekstur af einhveiju tagi, en standa að slíku sjálf sem framkvæmdaraðili. Næsta stórátak er að koma upp íþróttahúsi og búningsaðstöðu við Kleppjámsreykjaskóla. Fyrirhugað er að byija að reisa húsið í apríl- mánuði. Það verður úr forsteyptum einingum, 580 fermetrar og 3.363 rúmmetrar að stærð. Verkið var boðið út og var samið við Þóri Jóns- son byggingameistara í Reykholti um verkið fyrir um það bil 7 milljón- ir kr., sem er svipuð upphæð og kostnaðaráætlun. A flárlögum al- þingis er aðeins veitt 830 þúsund krónum til byggingarinnar og verð- ur því erfítt fyrir hreppana sem standa að skólanum að kljúfa þetta, ekki síst með tilliti til þess að ríkið skuldar þeim nú 3,6 milljónir kr. Mikið er rætt um eignir heilsu- gæslustöðvarinnar á Kleppjáms- reykjum. Ég tel að bæta þurfi stór- lega aðstöðuna þar. Mikill áhugi er á því að koma héma á fót ein- hverskonar þjónustustofnun á heilsugæslusviðinu, endurhæfíng- arstöð eða heilsuhæli. Hreppurinn hefur 3 hektara land á Kleppjáms- reykjum og 3 sekúndulítra af 100 gráðu heitu vatni og mætti nýta þá aðstöðu. Ríkið hefur einnig land aflögu sem hægt væri að reisa á garðyrkju- býli. Nokkur nýbýli hafa risið á undanfömum ámm og er þeirri uppbyggingu ekki lokið. Við mun- um reyna að skapa aðstöðu fyrir þjónustu við nýjar búgreinar, eins og þegar hefur verið gerð með skinnaverkun fyrir refabændur í sveitinni. Þá hefur Gæsaræktarfé- lag Vesturlands rekið hér sláturhús á haustin. Hreppurinn getur boðið uppá lóð- ir með holræsakerfi og hitaveitu á taxta Hitaveitu Reykjavíkur. Einnig er töluvert umframvatn hjá Hita- veitu Akraness og Borgaifyarðar sem hægt væri að nýta í hreppnum. Reykholtsdalshreppur er mjög vel í sveit settur hvað allar sam- göngur snertir. Héðan eru áætlun- arferðir á hveijum degi til og frá Reykjavík og vömflutningaferðir þrisvar í viku yfir sumartimann. Ekki má heldur gleyma flugvellin- um sem er nýlega endurbyggður með 800 metra braut, sem er fær allt árið. Fyrsta bundna slitlagið verður lagt hér á veg í sumar. Símamálin em komin í mjög gott lag en póstdreifinguna verður að Kristján Benediktsson oddviti Reykholtsdalshrepps í gróðurhúsi sínu, en hann er garðyrkjubóndi í Víðigerði. taka til endurskoðunar. Við teljum æskilegt að póstinum verði dreift frá Reykholti. Það er okkar póststöð og gætu fallið undir hana nærliggj- andi hreppar, svo sem Hálsahreppur og Hvítársíðuhreppur," sagði Krislján Benediktsson. — Bemhard Cross gullsjálfblekungurinn er verðmœtasti Crosspenni sem fœst á íslandi. Oddurinn og penninn sjálfur eru húðaðir með 14 karata gulli. Penninn kostar 10.238 krónur út úr búð. Síríus Gullið er verðmesta rjómasúkkulaði sem steypt er hjá Nóa Síríus. Uppskriftin er gamalreynd, hráefnin fyrsta flokks og Gullið fcest bceði sem hreint rjómasúkkulaði og með hnetum, rúsínum, rice crispies eða hnetum og rúsínum. Gullið kostar innan við 60 krónur út úr búð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.