Morgunblaðið - 15.03.1986, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 15.03.1986, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR15. MARZ1986 4 ÞórhaJlur Guðjónsson frá Þúfu — Minning Fæddur 30. október 1913 Dáinn 5. mars 1986 Lækkarlífdagasól. Löngerorðinmínferð. Faukífarandaskjól, fegin hvíldinni verð. Guð minn, gefðu þinn frið, gleddu’ og blessaðu þá, semaðlögðumérlið. Ljósið kveiktu mér hjá. (H. Andrésd.) í dag verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju móðurbróðir minn, Þórhallur Guð|jónsson frá Þúfu í Vestur-Landeyjum. Hann var sonur hjónanna Einhildar Sveinsdóttur og Guðjóns Magnússonar er þar bjuggu. Halli, eins og við frænd- fólkið kölluðum hann, var elstur fjögurra systkina. Hann hóf ungur búskapð í Þúfu í félagsbúi við for- eldra sfna. Ávallt ríkti mikill kærleikur á milli Halla og foreldra hans og ekki var hann síðri milli þeirra systkina Halla, Veigu, Gunnu og Sveinu. Heim í Þúfu undi Halli sér vel. Hann var foreldrum sínum sérlega tryggur og ekki skorti hann hjálpar- hug til móður sinnar sem vafði veika fótinn sinn með slæðunni sinni. Umönnun og tillitsemi Halla í garð foreldra sinna var einstök, og ekki skorti heldur slíkt til þeirra sem að Þúfu komu. Hann hafði ekki einungis á höndum umsjá bús- ins, heldur sinnti hann oft einnig störfum innanhúss. Ekki ætla ég að fara að rifja upp æviferil Halla, þar sem skortir mig þekkingu til, en þann mann sem Halli geymdi þekkti ég vel. Mat hans á mönnum og málefnum var oftast yfírvegað og hlutlægt. Hann var sterkur persónuleiki, traustur og réttsýnn. Hann var ekki af- skiptasamur um annarra hagi, held- ur hlýr og mildur, hafði næma kímnigáfu, var bamgóður með afbrigðum, hjálpsamur og mátti ekkert aumt sjá. Þegar ég hugsa til baka til þeirra ára sem ég dvaldi í Þúfu hjá ömmu, afa og Halla koma upp í huga minn Heilræðavís- ur Hallgríms Péturssonar, sem amma lagði svo fast að mér að læra. Ekki þarf að efa það, að Halli hefur lært þær vísur vel af móður sinni og geymt þær með sjálfum sér. í einni vísunni segir svo: Foreldrum þínum þéna af dyggð, þaðmágæfuveita. Varast þeim að veita styggð, viljirðugottbamheita. Halli sýndi það bæði í orði og í verki að þessar vísur kunni hann vel. Hjá ömmu, afa og Halla leið gestum vel og þar var gott að koma. Hér áður fyrr var það hápunktur jólanna að fara niður að Þúfu og hitta þau. Þar voru böm ekki fyrir og aldrei af mikið af þeim. Þau þurftu heldur ekki að bíða lengi eftir súkkulaðimolanum frá ömmu og þá stóð heldur ekki á gosinu hjá Halla, því hann taldi ekki verra að hafa eitthvað til að væta munn- inn. Eftir nær 55 ára búskap í Þúfu fluttu afí og amma til foreldra minna, en Halli fékk inni hjá Sól- veigu systur sinni á Hellu og bjó hann þar allt til loka. Fljótlega eftir að Halli kom að Heliu hóf hann störf hjá Glerverksmiðjunni Sam- verk og eignaðist hann þar marga góða vini. Allir þeir sem fæðast inn í þennan heim geta ekki svikist undan því að dauðinn kemur í heimsókn fyrr eða síðar. Það er eins víst og að nóttin kemur á eftir deginum. Það er svo óráðin gáta hversu lengi hver og einn fær að lifa í þessum heimi. Dauðinn getur verið velkom- inn þeim sem lifað hafa langan dag, eiga við heilsuleysi að stríða og eru þrotnar að kröftum og heilsu. En þegar dauðinn kemur svo snögg- lega skiljum við ekki. 011 vissum við að Halli var ávallt heilsuhraustur, og þó svo að hann hefði fundið fyrir einhveijum óþæg- indum í maganum í nóvember sl. óraði engan fyrir því að svo stutt væri eftir. Ef til vill hefur hann fundið fyrir einhveijum aðdraganda en vegna tiilitssemi hans við aðra er erfitt að vita hvort svo hafí verið. Halli andaðist á Landakotsspítalanum 5. mars eftir skamma legu þar. Vertu dyggur, trúr og tiyggur, tungugeymduþína, við engan styggur né í orðum hryggur, athugaræðumína Þessi vísa úr Heilræðavísunum átti vel við Halla. Á meðan hann lá á Landakotsspítalanum hafði starfsfólkið á orði að öðrum eins manni hefði það aldrei kynnst. Mér er ljúft að minnast frænda míns og ég veit að þeir eru margir sem hugsa til hans nú. Hann var virtur sökum mann- kosta sinna og dugnaðar jafnt af vinum sem samstarfsfólki. Skarðið sem nú hefur myndast er stórt og það verður ekki fyllt. Halli var gull af manni og hans er nú sárt saknað. í hjörtum okkar lifír björt og fögur minning um góðan og flekklausan frænda. Við systkinin og allt okkar fólk kveðjum hann nú með þakklæti í huga. t Systir mín og föðursystir okkar, GUÐRÚN SIGURGEIRSDÓTTIR, Selfossi, er lóst hinn 6. mars, verður jarösungin frá Selfosskirkju í dag laugardaginn 15. mars kl. 13.30. Ferð verður frá Umferðarmiö- stöðinni sama dag kl. 12.00. Blóm vinsamlegast afþökkuö, en þeir sem vildu minnast hennar láti Selfosskirkju njóta þess. Bjarni Sigurgeirsson, Sigurgeir Höskuldsson, Sigrún Arnbjarnardóttir. t INGIBJÖRG STEINÞÓRSDÓTTIR, Laugavegi 133, Reykjavfk, andaðist í Landakotsspítalanum 6. mars sl. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 17. mars kl. 15.00. Birgir Jóhannsson, Erlendur S. Birgisson, Jórunn Rothenborg, Haila H. Birgisdóttir, Gunnar P. Pétursson, Birgir J. Birgisson og barnabörn. Aldrei er svo bjart yfir öðlingsmanni, að eigi geti syrt jafii sviplega og nú. Aldrei er svo svart yfir sorgarranni, að eigi geti birt fyrir eilífa trú. (MJ.) Þráinn Ársælsson Sællersá maður, er eigi fer að ráðum óguðlegra eigi gengur á vegi syndaranna og eigi situr í hópi þeirra, er hafa guð að háði, heldur hefir yndi af lögmáli drottins og hugleiðir lögmál hans dag og nótt. Hann er sem tré, gróðursett hjá rennandi lælgum, er ber ávöxt sinn á réttum tíma ogblöðþessvisnaekki. Allt er hann gjörir lánast honum. (Sálmamir) Þórhallur Guðjónsson frá Þúfu í V-Landeyjum, lést á Landakotsspít- ala að kvöidi miðvikudagsins 5. mars, síðastliðinn og fer útfor hans fram í dag frá Akureyjakirkju kl. 13.30. Þórhallur, eða Halli í Þúfu, var sonur hjónanna Einhildar Sveins- dóttur frá Efri-Fljótum í Meðallandi og Guðjóns Magnússonar frá Fagradal, Mýrdal. Halli var elstur fyögurra systkina, þeirra Sólveigar, búsettri á Hellu, Guðrúnar, er bjó í Reykjavík en hún lést 1962 og Sveinbjargar, er bjó í Hákoti Þykkvabæ, en hún lést 1985. Halli fæddist á Stóra-Hofí Rang- árvöllum, 30. október 1913, en foreldrar hans voru í vinnumennsku hjá Guðmundi bónda þar, en til hans réðust þau er Guðmundur bjó á Suður-Hvoli í Mýrdal og fluttust með honum að Stóra Hofí. 1915 festu foreldrar Halla kaup á jörðinni Þúfu f V-Landeyjum, en hún hafði verið í eyði síðan 1904, í Þúfu var lélegur sem enginn húsakostur því tók það Guðjón tvö sumur að byggja upp þannig húsakost að þau hjónin etu sest þar að og hafið búskap. þeim árum var Halli með móður sinni í vist á Stóra-Hofí, Efra-Hvoli og Garðauka í Hvolhreppi eða þar til 1917 að Einhildur og Guðjón settust að í Þúfu og hófu þar búskap og þar bjuggu þau til fardaga 1973 er þau brugðu búi. Halli bjó hjá foreldrum sínum alla þá tíð, en stundaði mörg ár vinnu með búverkum, nokkrar vetr- arvertíðir var hann til sjós í Vest- mannaeyjum og eins vann hann 2 vetur hjá breska setuliðinu á stríðs- árunum. 1947 keypti Halli sér vöru- bifreið sem hann síðan stundaði vinnu með í um 20 ár, ásamt því að vinna á búi foreldra sinna. 1973 fluttist Halli til Sólveigar systur sinnar og móður minnar á Hellu, en afí og amma fluttust að Hákoti Þykkvabæ til Sveinbjargar dóttur þeirra, en þá hafði amma verið í nokkur ár í Hákoti. Fljótlega eftir að Halli fluttist heim til okkar, þá hóf hann störf hjá Glerverksmiðj- unni Samverk á Hellu og vann þar æ síðan. Þegar ég hugsa til þeirra mörgu samverustunda allt frá bamæsku til dagsins í dag, sem ég átti með Halla er margs að minnast og vil ég færa Halla mínar bestu þakkir fyrir allar þær stundir. Ávallt var gott að leita ráða og hjálpar hjá honum og eins var hann glettinn og glaður í ættingja- og vinahópi, þó ekki væri hann margmáll. Eitt af höfuðeinkennum Halla var vinnusemi og reglusemi með alla hluti. Fyrst eftir að Halli kom að Hellu, voru helgamar lengi að líða hjá honum, enda var þá ekki um mjaltir og gegningar að ræða, held- ur í staðinn reglubundna 5 daga vinnuviku, þá var Halli oft eirðalaus og vantaði eitthvað að starfa. Halli fann sér þó fljótlega ýmislegt að starfa við, hvort heldur smíðar ýmissa hluta, viðhald á húsi eða garðurinn heima og væri þar margt öðruvísi í dag hefði hans ekki notið við í þeim efnum. Það átti ekki við Halla að láta verk úr hendi falla. Einnig las hann nú síðustu árin nokkuð af bókum þá einkum um íslenska atvinnuhætti og starfs- og ævilýsingar. í minningunum um Halla ber þó hæst sá mikli kærleikur og vinátta sem frá honum stafaði, það kom fram í öllu hans fari og gerðum og ekki hvað síst ást hans og virðing til foreldra sinna, en hjá þeim var hugurinn flestum stundum á meðan þau lifðu. Ég vil fyrir hönd konu minnar og bama hennar færa Halla sér- stakar þakkir fyrir þá vináttu og hlýhug sem þau hafa orðið aðnjót- andi frá honum það rúma ár sem þau fengu tækifæri til að vera í samvistum við Halla, og þá ekki. sfst nú síðastliðið sumar á ferðalagi okkar um Danmörku, þau kynni fylla stórt rúm í hjörtum okkar. Vissan um að Halli sé nú farinn til nýrra og betri heimkynna og sé þar í samfylgd sinna bestu vina, léttir sárasta söknuðinn. Að lokum vill móðir mín, ég og fjölskylda mín, færa Sigurði Bjöms- syni og starfsfólki deildar la á Landakotsspítala okkar bestu þakk- ir fyrir þá miklu og hlýju umönnun er þau auðsýndu Halla í hvívetna í sjúkdómslegu hans. Þegar Halli er nú kvaddur og minningar hlaðast að þá kemur í hugann kvöldvers úr ljóðabókinni Móðurarfurinn: Endar dagur, en nótt er nær, náðþinnilofégsegi, að þú hefir mér, herra kær, hjáip veitt á þessum degi. Herra minn, lát mig hægt og rótt hvílast í nafni þínu, + Þökkum innilega samúð og vináttu við jarðarför HALLBERU BJÖRNSDÓTTUR, Borgarnesi, hinn 8. mars sl. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Akra- ness. Hermann Búason, Georg Hermannsson, Helga Helgadóttir, Björn Hermannsson, Þóra Þorkelsdóttir, Brandur Hermannsson, Sigri'Aur Sverrisdóttir og barnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, STEFANÍA ÓSK JÓSAFATSDÓTTIR, Grenimel 17, andaðist í Borgarspítalanum aðfaranótt 14. þessa mánaðar. Synir, tengdadætur og barnabörn. hyljimigJesúshérínótt helgu réttlæti sínu. Lát þína engla um mig slá öruggri skjaldborg sinni, vélum satans mig vemda frá með voldugri hjástoð þinni. Hilmar Jónasson og fjölskylda, Hellu. Þann 5. mars sl. lést á Landa- kotsspítala Þórhallur Guðjónsson frá Þúfu V-Landeyjahreppi eftir stutta en erfíða sjúkdómslegu að okkar áliti sem eftir lifum, en Halli, eins og vinir og kunningjar hans kölluðu hann, kvartaði ekki frekar en fyrri daginn, alltaf þegar maður spurði hann hvemig hann hefði það var svarið ætíð á einn veg: Mér líður ágætlega og vantar ekki neitt. þannig var Halli í hinu daglega lífi, kvartaði aldrei á hveiju sem gekk, tók flestu með brosi á vör og lét lífsgæðakapphlaupið sem flesta hefur gripið, ekkert á sigfá. Þórhallur fæddist á Stóra-Hofí í Rangárvallahreppi, sonur þeirra sæmdarhjóna Einhildar Sveinsdótt- ur og Guðjóns Magnússonar frá Fagradal í Mýrdal. Alls eignuðust þau hjón fyögur böm sem voru auk Halla, þær Sólveig, Guðrún og Sveinbjörg, Guðrún og Sveinbjörg em báðar látnar. Er foreldrar Halla keyptu eyði- býlið Þúfu í V-Landeyjum, fluttist Halli með þeim þangað og bjó með þeim þar allt til ársins 1973 er þeir feðgar brugðu búi og seldu jörðina. Þá hafði Einhildur móðir hans verið farin fyrir nokkru til Sveinbjargar dóttur sinnar í Þykkvabænum. Ásamt hinum hefðbundna búskap, stundaði Halli hin ýmsu störf fram- an af m.a. sjómennsku og einnig vörubílaakstur en hann keypti lítinn vörubíl árið 1947. Ók hann hinum ýmsu vörum bæði tii og frá Reykjavík fyrir ein- staklinga og fyrirtæki í þorpum í Rangárþingi. Ékki er að efa það að þetta framtak Halla hafi komið sér mjög vel í þá daga þegar lítið var um farartæki og allar samgöng- ur mun erfíðari en þær em í dag. Er þeir feðgar bmgðu búi eins og ég minntist á áðan árið 1973, flutti Halli til systur sinnar Sólveig- ar að Freyvangi 9 á Hellu og bjó hann á heimili hennar þar til yfír lauk. Fyrsta júní 1973 hóf Halli vinnu í Glerverksmiðjunni Samverk, og var það þá sem ég og fyölskylda mín kynntumst honum og héldust þau kynni fram á síðasta dag. Við vinnufélagamir í Samverk getum með góðri samvisku fullyrt það, að öllum öðmm ólöstuðum, að við hefðum ekki getað fengið betri né traustari félaga bæði í leik og í starfí. Halli bjó jrfir miklum hæfíleika til að umgangast fólk, og átti hið létta yfírbragð og góða skap hans þar eflaust sinn stóra þátt, enda veit ég ekki til að hann hafi nokkum tíma aflað sér óvinsældar, þvert á móti var hann elskaður og dáður hvar sem hann kom. Ógleymanleg- ar stundir áttum við saman félag- amir, ég, Gunnar og Halii, við veiði- skap. Mér blöskraði oft hvað Halli gat sýnt mikla stillingu og þolin- mæði, þótt veiðin sýndi sig ekki. Þama gat hann staðið svo tímunum skipti við sama hylinn og beðið eftir þeim stóra, sem sjaldan sást. Þama var á ferðinni sama þolin- mæðin og rólegheitin sem einkenndi Halla öllum stundum. Halli safnaði ekki veraldlegum auðæfum, en því meira af þeim andlegu auðæfum, sem ekki fínnast almennt hjá okkur. Við vinnufélagamir í Samverk kveðjum Halla með miklum trega og eftirsjá og þökkum honum ógleymanlegar stundir. Einnig vilj- um við hjónin og bömin okkar færa honum sérstakar þakkir fyrir þá birtu og þann yl sem hann kom með er hann kom í heimsókn á heimili okkar. í hjörtum okkar allra hefur myndast tomarúm sem erfitt verður að fylla. Sólveigu systur hans, sem hefur séð á eftir tveim systkinum og mági sínum á nokkmm mánuðum, vott- um við okkar dýpstu samúð. Hvíli í friði, minn kæri vinur. Ólafur Hróbjartsson I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.