Morgunblaðið - 19.08.1986, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 1986
39
Höfuðborg er ekki
til án samstarfs allra
sem landið byggja
— Ávarp forseta Islands á afmælis
hátíð Reykjavíkur á Arnarhóli
Reykvíkingar og góðir íslending-
ar um land allt.
Ég óska ykkur öllum hjartanlega
til hamingju á merkum afmælisdegi
þegar þess er minnst að 200 ár eru
liðin síðan Reykjavík fékk þau rétt-
indi sem gerðu hana að höfuðstað
íslands.
Öllum er okkur ljóst að það er
hverri þjóð afar mikils virði að eiga
sameiginlegar minningar og muna
vel sögu sína. Og til þess eru af-
mælin góð að rifja þá sögu upp enn
og aftur, með ýmsum blæbrigðum
sínum, svo nýjar kynslóðir eignist
hana með sér eldra fólki og geti
komið henni áfram þegar stundir
líða til enn nýrra kynslóða.
Saga Reykjavíkur, afmælis-
bamsins hér á Amarhóli á þessum
hátíðardegi er samofin þeirri sér-
stöðu íslendinga meðal Evrópu-
þjóða að við munum hvenær við
hófum göngu okkar í mannkyns-
sögunni. Þeir vom engir aukvisar
forfeður okkar, sem gengu fram
fyrir skjöldu og tóku að rita sögu
okkar á íslensku, eins og hún væri
heimsmál, sem allir skildu, meðan
aðrar þjóðir treystu sér ekki til að
skrifa niður neinar upplýsingar um
sjálfar sig öðru vfsi en á latínu sem
var að sjálfsögðu aðeins fyrir lærða
menn og sérfræðinga, en ekki fólk-
ið sjálft sem þó átti söguna og hafði
skapað hana. Það væri líkt og allar
bókmenntir þyrfti nú að skrifa á
ensku eða kínversku eða rússnesku
til þess að þær eignuðust hljóm-
grunn en það er einmitt það sem
við með þjóðarstolt og eigin tungu
viljum varðveita okkur fyrir.
Með þessum sérstæðu sagnarit-
um um uppruna okkar og skáldskap
á íslensku eignuðumst við gersemar
sem til þessa dags hafa verið mik-
ilsvirt framlag okkar til alþjóða-
menningar og skapað okkur
íslendingum aðdáun annarra þjóða.
Ari nefndur fróði Þorgilsson tók
af skarið vestur á Stað á Snæfells-
nesi fyrir 900 árum, eða um 1100,
og sendi út gagnmerkt rit, íslend-
ingabók til að tilkynna veröldinni
að ný þjóð væri orðin til á eyju
norður í Atlantshafí, sjálfstæð í
ágætu lagi, með fullvalda kirkju og
menntastofnanir. Hann varð fyrstur
okkar manna til að skrásetja ár-
setningar og afmæli, sem æ síðan
hefur verið í hávegum haft á ís-
landi á þeirri sömu tungu og hann
notaði, íslensku. Ari er að sjálf-
sögðu sú upplýsingalind sem segir
okkur að Ingólfur Amarson hafi
sest að í Reykjavík.
En af hveiju Reykjavík, sem fyr-
ir einkennilega fléttu sögunnar
verður 9 öldum síðar höfuðstaður
Islands.
Sú góða bók Landnáma skýrir
frá því að Ingólfur hafi valið
Reykjavík vegna þess að öndvegis-
súlur hans hafi rekið í þeirri vík
og þær séu enn rúmum 200 árum
síðar í eldaskála í gamla bæ Ing-
ólfs í Vík. Það er falleg og táknræn
saga sem hefur enst okkur til þessa
dags enda emm við hér með önd-
vegissúlur á báða bóga, tákn
Reykjavíkurborgar.
Það má vera ljóst af langri sögu
um Ingólf Amarson, að Reykjavík
er hinn útvaldi staður þess sem
fyrst sest að á íslandi, hvort sem
það er fyrir ráðstöfun guðanna að
stýra hingað upp í fjörur öndvegis-
súlum eða hagræðingu sögumanns.
En einmitt þess vegna er freistandi
að gera sér í hugarlund hver land-
gæði voru hér á nesinu þar sem
nú stendur á Reykjavík, þegar Ing-
ólfur leit það fyrst augum. Á
fyrirmyndarlíkani á afar merkilegri
Reykjavíkursýningu á Kjarvalsstöð-
um um þessar mundir er hægt að
sjá hvemig hér var umhorfs áður
en víðfeðm borg og byggð lagðist
ofaná landið — og ímyndum okkur
Ingólf Amarson skynsaman mann
þar sem haftn stendur og horfir út
yfír nesið. Hann hefur komið
ríðandi niður Ártúnshöfðann og
horfir út yfir Breiðholtið og við
honum hefur þá blasað langur og
grösugur skagi með öllum þeim
hlunnindum sem á íslandi hafa ver-
ið taldar dásemdir um aldir. Um
það bera fjöldi ömefni vitni sem
vísast er að Ingólfur hafi í skjótu
bragði áttað sig á að hér gæti hann
nýtt ómældar náttúruauðlindir og
snúið þeim til lífsgæða fyrir sig og
sitt fólk. Sjórinn umhverfis nesið
hefur verið fullur af fiski, laxinn
stökkvandi í Elliðaánum, selir við
Seltjöm og í Kópavogi. Viðey og
Eskihlíð með gnægð brennis, gras
fyrir grasbíta á völlum vestur af
Tjörninni, grösugar Engey, Akurey
og Þemey iðandi af fugli og mjúkir
gufustrókar upp af laugunum — en
heitt hveravatn hefur í þá daga
mýkt líkamann og vöðvabólgur eins
og nú. Ströndin þakin rekaviði.
Hver myndi hika við að setjast að
á slikum stað? Kryddlausar eru þó
allar sögur nema í þeim birtist and-
stæða í einhverri mynd enda segir
Karli, annar þrælanna er fundu
öndvegissúlumar reknar á land:
„Til ills fóram vér um góð hérað,
er vér skulum byggja útnes þetta"
og hélt snúðugur á brott.
Aldrei síðan fyrr en á dögum
okkar, sem nú lifum 200 ára af-
mæli í blómlegri höfuðborg, hefur
verið svo gott undir bú í Reykjavík,
en með öðram hætti nú en á land-
námstíð. Á löngum öldum eymdar
og fátæktar eftir sjálfstæðismissi
nýttust ekki dásemdir landsins því
þeir áttu ekki tæki né kunnáttu til
að beijast gegn óáran og færa sér
í nyt góðærin. Nú höfum við snúið
landinu til vina á ný með þekkingu
og tækni. Þá sögu rekjum við til
Morgunblaðið/Börkur
Á afmælishátíðinni á Arnarhóii í gærkvöldi, frá vinstri Davíð Oddsson, borgarstjóri, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, forseti íslands, Ástríður Thorarensen, Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, og
Edda Guðmundsdóttir.
Morgunblaðið/Þorkcll
Vigdís Finnbogadóttir flytur ávarp sitt á Amarhóli í gærkvöld.
annars sögufrægs Reykvíkings sem
við minnumst öll hér á afmælis-
hátíð, sem átti sinn dijúga þátt í
að Reykjavík varð höfuðborg ís-
lands, Skúla Magnússonar. Þar sem
Reykjavík lá í eymd, klemmd milli
konungsvalds á Bessastöðum á
Álftanesi og kirkju í Viðey, reisti
Skúli Magnússon af hugsjón og eld-
móði staðinn úr kör. Hann er
fyrstur manna til að gera tilraun
til að miðla þekkingu og tækni frá
Reykjavík, sem síðar hefur orðið
svo ríkt hlutskipti höfuðstaðarins
þar sem rannsóknir á landi, lífríki
og iðnaðarframleiðslu fara fram í
svo ríkum mæli. Með innréttingun-
um er hann í raun og vera að koma
upp fyrsta tækniskólanum í þjóðar-
sögunni fyrir landsmenn. Hann vil
gefa og miðla frá Reykjavík til
hagsældar og það er fyrsta skref
djörfungar sem íslendingur stígur
eftir 150 ára verslunareinokun og
niðurlægingu sem dregið hefur all-
an mátt úr þjóðinni. — Og með
eldmóði sínum og metnaði fyrir
samtíðarmenn varð hann forvígis-
maður þess að Reykjavík varð
varanlegur höfuðstaður íslands.
Engin er þjóð meðal þjóða sem t
ekki á sér höfuðborg. Samspil þjóð-
ar og höfuðborgar er að gefa af
auðlegð og sameiginlegri sóma-
kennd. Höfuðborg er ekki til án
samstarfs allra sem landið byggja.
Hagur annars er hagur beggja.
Höfuðborg er sameiningartákn, ein-
att fulltrúi þeirrar menningar hugar
og handar, sem rikir í landinu, ör-
yggishöfn þegnanna sem þangað
eiga að geta sótt einungis það
besta. Hún er talsmaður og mynd
af okkur sjálfum eins og við eram
hveiju sinni.
Traust sjálfsmynd þjóðar táknar
stöðugleika í tíma og rúmi. Sú
sjálfsmynd notast í samskiptum við
aðrar þjóðir og getur aldrei orðið
annað en sómarík.
Ég þakka Reykjavíkurborg
ógleymanlegt boð til höfuðstaðarins
f dag á 200 ára afmæli. í sólskini
með Reykvíkingum, brosmildum og
hlýjum, hefur verið hátíð í höfuð-
staðnum.
Ég óska Reykjavíkurborg allra
heilla, landsmönnum öllum til
ánægju og gagns. Gleðilegt afmæli!
Fjöldi óskilamuna
hjá lögreg'lunni
Lítil hnáta týndi eftirlætisbrúðunni
TÖLUVERT af óskilamunum hafði borist til lögreglunnar í
Reykjavik í gærkvöld þegar fór að síga á seinni hluta afmælis-
hátíðar borgarinnar. Þeir sem hafa týnt hlutum geta leitað til
lögreglustöðvanna í dag en undir kvöld eða á morgun verða
þeir hlutir væntanlega komnir í vörslu óskilamunadeildar lög-
reglunnar.
Meðal þeirra, sem týndu hjart-
fólgnum gripum, var átta mánaða
gömul stúlka úr Kópavogi, sem
fór í kerraferð með móður sinni
niður Laugaveginn laust eftir há-
degið í gær. Sú litla hélt á hvítri
tuskubrúðu, sem hún getur ekki
verið án þegar hún á að fara að
sofa. Einhvers staðar frá Snorra-
braut niður miðjan Laugaveg
hrökk brúðan úr kerranni og mun
hafa gengið illa að koma hnát-
unni litlu í ró í gærkvöld vegna
þessa.
Brúðan er nýleg. Hún er með
hvíta blúndu saumaða um höfuð-
ið, fótalaus en méð hendur. Skila
má brúðunni til lögreglunnar í
Reykjavík eða hafa samband í
síma 46368.