Morgunblaðið - 19.08.1986, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 1986
að var hér hreinlega húsnæðisekla.
En þegar Sigurfarinn var seldur
snerist dæmið við og það fólk sem
hingað var komið til að vinna og
ekki búið að fínna sér fast hús-
næði, fluttist á brott."
Pétur er mikið með hugann við
sjóinn og á margar góðar endur-
minningar þaðan. „Það hefur
ekkert verið nema indælisfólk með
mér á sjónum í gengum tíðina. Og
þó svo það væri stundum rígur á
milli manna útaf drætti var hann
alveg horfinn þegar í land var kom-
ið. Mannlífið hér á Grundarfirði
hefur hins vegar breyst mikið á
þessum árum, það er komin alveg
ný kynslóð sem ég varla þekki,
svona er maður orðinn gamall.
Fólkinu hefur fjölgað svo mikið
héma, atvinnutækifærin eru orðin
svo miklu fleiri og þetta er orðið
allt svo félagslegt, miklu meira
heldur en það var. Hér eru starf-
andi klúbbar og félög út um allt,
og um okkur sem erum orðin göm-
ul er hugsað alveg ákaflega vel.“
Er trúaður á
framhaldslíf
„Þó svo ég sé ekki mjög kirkju-
rækinn þá hefí ég gefið eilífðarmál-
unum nokkum gaum. Eg held mikið
upp á hugvekjur, sem mamma gaf
mér, og ég les úr Passíusálmunum
og Biblíunni. Og ég er alveg ömgg-
ur um að það sé til framhaldslíf.
Hvað er til dæmis á seyði þegar
fólk veikist á leið til skips og fær
annan fyrir sig og síðan ferst skip-
ið með manni og mús. Þetta gerðist
til dæmis þegar mótorbáturinn
Trausti frá Súðavík fórst, og þau
em mörg dæmin þessu lík.
Það var einu sinni kona úr Eyj-
um, sem hafði verið þar háseti á
tólf vertíðum, og kom hún til Ól-
afsvíkur til að fara þar á vertíð.
Hún þekkti þar bátsformann og
treysti því að hann tæki sig með á
vertíðina. Hann var búinn að full-
ráða og gat því ekki tekið hana og
vísaði á annan sem ekki var búinn
að fullráða. Hún fór síðan til að
finna hann og á leiðinni þangað
gekk hún fram hjá vetrarskipum,
sem þá vom 8 alls, og stóðu uppi
á kampinum fyrir vestan klifíð þar
sem nú er verið að byggja nýja
samkomuhúsið. Hún komst á fund
mannsins sem hún vildi fínna og
hann lofaði að taka hana ef hún
gæti útvegað sér sjóklæði. Á leið
sinni til baka sér hún hvar einn
báturinn er kominn niður að sjó og
við hann standa átta menn. Skilur
hún ekkert í þessu því hún vissi að
þessi formaður hafði níu á bátnum.
Varð henni þá litið eftir fjömnni
og sér hún þá hvar maður kemur
gangandi með sjóklæðin undir
hendinni. Hún sér hvar hann fer
fyrstur upp í bátinn og síðan er ýtt
frá landi og róið í tunglskininu.
Komið var fram á vöku og skildi
hún því síður neitt í þessu. Hún
hélt síðan áfram eftir götunni,
framhjá bátunum, og þegar hún
gengur nær þeim sýnist henni þeir
allir vera uppi. Athugar hún þetta
betur og sér þá að svo er, það er
enginn bátur róinn. Sagði hún frá
þessu. Seinna sá hún þessa sýn
aftur þegar komið var fram á góu,
en þá var ekki um neina missýningu
að ræða og fórst þessi bátur í róðr-
inum og með honum aliir sem vom
á.
Maður er orðinn
g’lámskyg'gri
„Hér hefur mér liðið vel og alltaf
haft nóg að gera. Héma hef ég
alltaf verið heimilisfastur og vona
að svo verði þangað til ég sný tán-
um upp í loft. Það má með sanni
segja að margt hafí breyst héma á
undanfömum ámm. Áður fyrr
þekkti maður hvem einasta mann
en nú er ég orðinn svo glámskyggn
að ef unglingur fer að heiman og
í skóla annars staðar, þá er varla
að ég þekki hann aftur." Að þessum
orðum töluðum er kominn tími til
að kveðja Pétur. Hann hefur eflaust
frá mörgu að segja sem fólk á öllum
aldri hefði gagn og gaman af að
hlusta á.
Nýja þakið sett á skattstofuna. Morgunblaðið/SigJóns.
Nýtt þak á skatt-
stofima á Hellu
Selfossi.
ÞESSA dagana vinna trésmiðir að Myndin sýnir smiðina við vinnu á
því að setja nýtt þak á skattstofu þaki skattstofunnar.
Suðurlandskjördæmis á Hellu. - Sig. Jóns.
mypoN 9
STAPAHRAUN 4 - 220 HAFNARFJÖRÐUR
SIMAR 687787 - 53443
götukant?
Sveitarfélög, verktakar, lóðareigendur
tökum að okkur að steypa götukanta hvar sem
er á landinu.
Fullkominn tækjabúnaður, vönduð vinna.
Leitið hagstæðra yerðtilboöa.
Á hátíðinni í fyrra komu 7. milljónir manna
víðsvegar að úr heiminum saman, drukku 5 'A
milljón lítra af þýskum gæðabjór, átu meðal
annars 629.520 kjúklinga og skemmtu sér
hreint stórkostlega vel.
i ár gefst þér kostur á að slást í hópinn undir
leiðsögn hinns kunna útvarpsmanns Arthúrs
Björgvins Bollasonar, sem er öllum hnútum
kunnugur á þessum slóðum.
Verð aðeins krónur 29.700 með hóteli og
morgunmat.
Athugið takmarkað sœtaframboð
(ItttMtlK
FERÐASKRIFSTOFA, HALLVEIGARSTÍG 1, SÍMAR 28388 - 28580
Umboö a Islandi fyrir
DINERS CLUB
INTERNATIONAL