Morgunblaðið - 07.04.1987, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.04.1987, Blaðsíða 2
2 B JBoreunbluiiib /ÍÞRÓTTtR ÞRWJUDAGUR 7. APRÍL 1987 KÖRFUBOLTI / ÚRSLITAKEPPNI ÚRVALSDEILDARINNAR Fjórði meistara- titillinn áfjórum árum NJARÐVÍKINGAR eru íslands- meistarar í körf ubolta fjórða árið í röð og kemur það ekki á óvart. Liðið hefur leikið frábær- lega í vetur, hvergi er veikur hlekkur og titillinn er þeirra með sanni. Á laugardaginn sigruðu þeir Valsmenn öðru sinni í úrslitum og virtist sigur- inn aldrei í hættu. Öruggir mættu þeirtil leiks, stjórnuðu ferðinni og léku eins og þeir sem valdið hafa. Njarðvíkingar hafa nær ein- göngu notað átta leikmenn í vetur, sem leika allir fyrir einn og einn fyrir alla. Liðsheildin er sterk, samvinnan til fyrir- myndar. A laugar- daginn kom Hreiðar þeim á sporið, skor- aði fyrstu fjögur stigin, og síðan skoraði Valur þrjár þriggja stiga körfur í röð. Varnar- leikurinn var ákveðinn, sóknimar gengu upp og Valsmenn sátu eftir. Mestur var munurinn fjórtán stig í fyrri hálfleik, en Valsmenn enduðu hálfleikinn vel og byijuðu þann seinni eins, náðu að minnka muninn í þijú stig. Nær komust þeir ekki og Njarðvíkingar tóku aftur völdin í sínar hendur. Þegar rúmar tvær mínútur voru til leiksloka gáfu meistaramir aðeins eftir og Vals- menn gengu á lagið. Staðan breytt- ist úr 74:61 í 74:69, en þá fékk Torfí Magnússon sína fímmtu villu, sem var mjög vafasamur dómur, og Njarðvíkingar gerðu út um leik- inn. Valsmenn voru seinir í gang og hafa oft leikið betur, en þeir áttu hreinlega ekkert í Njarðvíkinga að þessu sinni. Leifur var sterkur í fráköstunum, en hittnin almennt var ekki góð. Ekki er ástæða til að nefna einn öðrum fremur hjá meisturunum. Liðið vinnur vel saman og árangur- inn er eftir því. Jón Otti Ólafsson og Sigurður V. Halldórsson voru alltof smámunas- amir í dómum sínum, sem bitnaði frekar á Valsmönnum. Steinþór Guóbjartsson skrifar Morgunblaðið/Einar Falur Barningur við körfuna Ámi Lárusson reynir hér skot í leiknum gegn Val en Tómas Holton er til varnar og ekki vantar tilþrifín. Sagt eftir leikinn Valur Ingimundarson, UMFN Mér líður mjög vel. Þessi árangur er afrakstur öflugs unglingastarfs og ég sé ekki að á velgengninni verði breyting næstu árin. Við lékum ágætlega í þessum leik lengst af, en vorum kærulausir í lokin. Við ætluðum að verja titil- inn, það tókst, og nú setjum við stefnuna á sigur í bikarúrslitunum á föstudaginn. við höfum aldrei orðið bikarmeistarar og finnst mörgum kominn tími til. Jon West, þjálfari Vals Við byijuðum illa og það kann ekki góðri lukku að stýra gegn sterku liði eins og Njarðvík. Við vorum nálægt titlinum og það er alltaf erfitt að þurfa að sætta sig við tap, en Njarðvíkingar hafa verið bestir í allan vetur. En við lærum af reynslunni og mætum tvíefldir til bikarúrslitaleiksins. ísak Tómasson, fyririiðí UMFN Hjá okkur kom ekki til greina annað en sigur. Við byijuðum vel, sem gerði eftirleikinn auðveld- an, en Islandsmeistaratitillinn er fyrst og fremst sigur liðsheildarinn- ar. Nú er fyrri hálfleik lokið, en sá seinni er eftir, þar sem bikarúrslitin eru, og þar ætlum við okkur einnig sigur. Torfi Magnússon, fyririiði Vals Betra liði vann. Við töldum okk- ur eiga sigurmöguleika fyrir leikinn, en sóknin gekk ekki upp og því fór sem fór. Þetta var ekki okkar dagur, en við fáum annað tækifæri á föstudaginn og tökum þá í bikamum. Valur-UMFN 70-81 Sþróttahús Seljaskóla, 4. apríl 1987. Annar leikur (úrslitum úrslitakeppni úrvalsdeildarinnar. 0:2, 2:2, 3:7, 3:16, 10:23, 16:27, 20:27, 22:29, 22:35, 26:42, 28:45, 36:45, 42:45, 45:48, 45:54, 52:63, 54:67, 58:72, 69:74, 69:81, 70:81. Stig Vals: Tómas Holton 16, Leifur tíústafsson 13, Torfi Majjnússon 11, Sturla Örlygsson 11, Einar Ólafsson 9, Páll Amar 6, Bjöm Zoega 4. Stig UMFN: Valur Ingimundarson 24, Helgi Rafnsson 15, Teitur Örl- ygsson 11, Hreiðar Hreiðarsson 8, ísak Tómasson 8, Jóhannes Krist- bjömsson 8, Kristinn Einarsson 5, Ami Lárusson 2. SPURT ER / Hverjir verða bikarmeistarar í handknattleik? Björn Jónsson Ég veðja á Stjörnuna í karlaflokknum, þeir eiga skilið að vinna bikarinn. Ætli leikurinn fari ekki 25-22. Framstúlkurnar verða líklega bikarmeistar- ar, spái þeim sigri með 19 mörkumgegn 17. Guðmundur Guðmunds. Stjömumenn verða bikar- meistarar ef þeir spila jafn skynsamlega á móti Fram og þeir gerðu á móti okk- ur. Þeir búa líka yfír meiri leikreynslu. í kvennadeild- inni spái ég að Framstúlk- urnar verði bikarmeistarar. Geir Sveinsson Framstúlkurnar tel ég besta kvennaliðið á Norð- urlöndum nú og spái þeim bikarmeistaratitlinum. En ég held að Stjamar sigri í karlaflokki, hef á tilfínn- ingunni að þeir séu með sterkara og reyndara lið. Friðrik Þorbjörnss. Ég veðja á Stjömuna í karlaflokki, 24-20. Þeir hafa verið jafnari í keppni í vetur, en em þó að mínu mati enn betri og hefðu átt að keppa um Islandsmeist- aratitilinn. Framstúlkurnar vinna með 21-17. Þorgils Ó. Matthísen Stjaman sigrar líklega 25-23. Þeir eru sterkara lið og eiga skilið uppreisn æm eftir keppnistímabilið. Þó má ekki vanmeta Framm- arana. Mér er óljúft að spá Framstúlkunum sigri, en þær vinna líklega 20-18. Friðjón G. Jónsson í kvennaflokki verður það sterkara liðið, Fram. Svo hef ég trú á að Stjarnan vinni bikarinn í karlaflokki, held að þeir séu bara sterk- ara lið en Fram. en ég þori engu að spá um tölur í þessum leikjum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.