Morgunblaðið - 07.04.1987, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.04.1987, Blaðsíða 12
12 B /IÞROTTIR ÞRJÐJUDAGUR 7 APRÍL 1987 Reynsluakstur / Audiso, 1 ss GERT ÚT Á SKYNSEMINA Þaö er misjafnt hvað bílaframleiðendur gera út á. Sumir egna fyrir hégómagirnd manna og hlaða bílana álitlegu dóti, sem í raun og veru gagnast harla lítið. Aðrir leggja snörur sínar fyrir þá „karl- mannlegu“, þ.e. þessa sem ekkert sjá annað en glannalegt útlit og hestaflatölur. Enn eru þeir, sem leggja uppi á grunninu, þar sem grunnt er í buddun- um. Audi tilheyrir í rauninni engum þessara flokka, hann verður að teljast til eins hópsins enn, sem vissulega er stór og ekki síst í Þýskalandí. Það eru þeir sem höfða fyrst og fremst til skynsemi kaup- endanna, þ.e. bílarnir eru laglegir, hagkvæmir og allt kapp á það lagt, að þeir séu sem traustastir. Þessir bílar eiga að falla í geð kaupendum, sem eru kröfuharðir, en vilja ekki kaupa annað en það sem að gagni kemur. Morgunblaðið/Bjarni Hinn nýi Audi 80, þaulhugsaður þýskur gæðingur. Mjúkar og loftkleyfar línur samkvæmt tíðarandanum. í öryggisbúri Audi 80 kom fyrst fram árið 1972, síðan breyttur 1978 og fyrir um hálfu ári síðan kom nýj- asta gerðin og hafði hennar verið beðið með nokkurri óþreyju um tíma. Búið var að end- umýja stóru bílana, Audi 100 og Audi 200 og þess var að vænta, að sá litli yrði ekki síður nýstárlegur í sinni breyttu mynd. Það kom líka á dag- inn, að svo var. Aðeins vélin og kramið á beinan skyldleika að rekja til gamla bílsins og þó ekki án breyt- inga. Allt annað er nýhönnun og þess vegna á nýi bíllinn fátt sameig- inlegt með þeim gamla, annað en nafnið og stærðarflokkinn. Öryggisbúr Þegar hinn nýi Audi 80 kom fram, var óðara farið að verðlauna hann. Það sem öðru fremur greindi hann frá keppinautunum við úthlutun þessara verðlauna og viðurkenn- inga (t.d. hlaut hann viðurkenningu þýskra bílagagnrýnenda, Gullna stýrið) var öryggisbúnaðurinn. Hann er margþættur, en helstu hutar hans eru bygging bílsins, nákvæmar stillingar hjóla og hemla, stillingar á beltum og, síðast en ekki síst, svokallaður „Procon/ten“ búnaður. BÍLAR Þórhallur Jósepsson skrífar Boddýið er hannað sem öryggisbúr utan um farþegana og er óvenju rammbyggt. Gert er ráð fyrir að það þoli mun öflugri högg en kröf- ur segja til um að það þurfi að þola. Hurðir eru þannig gerðar, að þær eiga að vera opnanlegar eftir kröftugan árekstur beint framan á. Sterkir bitar eru einnig í þeim til varnar við hliðarhögg. Klæðningin er öll miðuð við að meiða ekki, ef maður er á annað borð á fleygiferð að rekast utan í hana. Hjólabúnaðurinn þarf vissulega að vera réttvísandi til að bíllinn haldi réttri stefnu, hvað sem á dynur. Því er mikilvægt að til hans sé vandað og í Audi 80 var mikið kapp lagt á, að hafa þar allt sem örugg- ast. Hemlarnir eru nákvæmir og að aft- an er breytilgt átak, eftir því hve mikið bíllinn er hlaðinn. Að sjálf- Beltin eru með stillanlegri hæð yfir öxlina (framsæti) og eru fimm stilling- ar. Staðreyndir Lengd mm 4.393 Breiddmm 1.695 Hæðmm 1.397 Eiginþyngdkg 1.020 Mestaþyngdkg 1.480 Farangursrými ltr. 4.401 Veghæð mm 120 Beygjuradíus m 5,15 Vél 4 strokka bensínvél, blöndungur, handv. innsog Slagrúmmál smS 1.781 Afl hö/snún. mín 90/5200 Togkr. Nm/snún. mín. 150/3300 Þjöppunarhlutfall 10:1 Drif Framdrif, 4,111:1 Gírkassi 5 gíra alsamhæfður Hlutföll: 1. 3.545:1 5. 0,638:1 Stýri Tannstöng, hjálparafl EyðsIaltr./lOO km 90km/klst. 5,1 120km/klst 6,7 Bæjarakstur 9,3 Tankurltr. 68 Viðbr. 0-100 km/klst., sek. 11,5 Hámarkshraði km/klst 180 Hemlar Diskar framan, skálar aftan, hjálparafl Dekk 175/70 HR 14 Verð kr.: 820.000 Umboð á íslandi: Hekla hf. sögðu er tvöfalt hemlakerfi og eru samtengd annað afturhjólið og framhjól. Við það var miðað, að bíllinn héldi stefnu við hemlun, þótt annað kerfið virkaði ekki. ABS er aukabúnaður sem fæst í öflugri gerðirnar. Oryggisbeltin er hægt að stilla á hæðina og er fimmskipt stillingin. Þá er eftir sá búnaður, sem mesta athygli hefur vakið, en það er víra- virki nokkuð, sem kallast „Procon/ ten“. Það nafn er stytting orðanna „Programmed contraction/tensi- on“. Vírum úr ryðfríu stáli er komið þannig fyrir, að við árekstur framan á bílinn strekkja þeir á beltunum .við framsætin og draga stýrishjólið NOKKRIR PUNKTAR Reynsluakstur við allar aðstæður, á möl, á malbiki, þurm og blautu, í hálku og krapi, bæjarakstur og langferð. Vél og kram Bensínvél, langsum, tveggja hólfa blöndungur, handvirkt innsog. Afl- nóg vél og þýðgeng. Gírkassinn er fimm gíra og hlut- föll mjög góð, skiptir góður og ratar óaðfinnanlega í gírana. Kúplingin er vökvaknúin og létt. Drif er að framan og sýnir enga veikleika. Undirvagn Stýri er af tannstangargerð, hjálp- arafl, vindur fullseint ofan af í kröppustu beygjum, mjög stiiðugt þótf djúp hjólför séu í veginum. Fjöðrun er sjálfstæð á hveiju hjóli, mjúk við flestar aðstæður, en hörð í kröppum holum. Slær sundur að framan í uppsveiflu. Bíllinn er mjög rásfastur og skekkir sig ekki í hol- um. Öryggisbúnaður Boddýbygging veitir hámarks- vernd við árekstur og/eða veltu. Galvanhúðað boddý og sumir hlutar zinkhúðaðir, hindrar ryð og tær- ingu. Belti í framsætum með stillan- legri hæð yfir öxl, klæðning öll mjúk og eftirgefanleg. Hemlar góðir, hjálparafl. Diskar að framan, skálar aftan. Hand- bremsa er mjög góð. Útsýni er gott, útispeglar rafstýrð- ir. Ljósabúnaður er góður, aðalljós endurbætt frá eldri gerð, inniljós er eitt. Boddy er slétt og hefur hvergi hvassa hluta sem aukið geta á meiðsli, ef ekið er á vegfaranda. Stjómtækl Mælaborð er skýrt, en fyrir há- vaxna er efsti hluti þess í hvarfi á bak við stýrishjólið. Rofar eru vel staðsettir og einkar auðveldir í notkun. Fótstig eru með hæfilegu millibili og létt ástigs. Þægindi Rými er gott, nema til loftsins aft- ur í, þar er það í knappasta lagi. Sæti eru allgóð, bök framsæta halda þó ekki nægilega vel við mjó- hrygginn til að teljast góð til langferða. Hljóðeinangrun er góð, nema frá miðstöðvarmótor, hann er óþægi- lega hávær þegar mikið blæs. Miðstöðin er með fjórum hraðastig- um og frá því fyrsta og niður að stoppi er stiglaus stilling, hitar vel og blástursop eru miirg og beina loftinu nánast hvert sem vill. Farangursgeymslan er fullklædd og opnast niður að stuðara, vel

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.