Morgunblaðið - 07.04.1987, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 07.04.1987, Blaðsíða 5
/ÍÞRÓTTÍR ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1987 B 5 einum af fjórum riðlum í forkeppn- inni. Núna erum við búnir að leika fimm leiki og höfum unnið þá alla með talsvert miklum mun. Meðal- talsskorið hjá okkur eru 96 stig og við höfum fengið á okkur 32 stig að meðaltali þannig að yfirburðir okkar eru miklir. Það fer víst ekki fram hjá neinum að körfubolti er það sem lífið snýst um hjá Óskari. í herberginu hans er allt þakið minjagripum úr körfu- boltanum, bikarar, verðlaunapen- ingar og fleira sem fylgir þátttöku í íþróttum. Á einni hillunni er skemmtileg stytta af „Magic“ Jo- hnson hjá Los Angeles Lakers, en hann er uppáhalds körfuboltamaður Óskars og á veggnum hjá honum hangir körfuboltaspjald sem er mik- ið notað. Hann keypti það í Bandaríkjunum fyrir nokkrum árum og á því stend- ur, „The Waist Basket" og skorar hann margar körfur með pappírsr- usli. Ruslið fer hátt í loft upp, niður í gegn um körfuna og í ruslafötuna. Draumurinn hjá Óskari er að koma heim til íslands og leika í körfubolt- anum. „Ég stefni að því að koma heim í skóla eftir að ég klára níunda bekkinn hér. Það ætti að geta orðið á næsta ári og þá ætla ég að leika með einhveiju liði heima. Ætli það verði ekki helst Valur eða ÍR. Ég / er Valsari en þegar ég var í æfinga- búðum í Seljaskóla í fyrrasumar kynntist ég strákum úr IR og líkaði vel við þá þannig að það getur vel verið að ég fari í ÍR. Æðsti draumurinn er auðvitað að komast til Bandaríkjanna í körfu- boltann. Ég fylgist vel með NBA-deildinni. Kunningjar mínir á Islandi taka upp úr Stöð 2 og senda mér leikina." - Ætlar þú þá bara að millilenda á íslandi á leið þinni til Banda- ríkjanna? „Ég veit það nú ekki. Ef ég kæm- ist einhvem tíma í íslenska landslið- ið þá væri það meira en nóg fyrir mig." JÚDÓ Bjami í áttunda sæti BJARNI Friðriksson keppti á opna þýska meistaramótinu í júdó um helgina, en það er eins konar undankeppni fyrir heimsmeistaramótið í júdó sem verður haldið á sama stað í haust. Mótið fór fram í Essen í Þýskalandi og voru 530 kepp- endur frá 35 þjóðum. Bjarni keppti íflokki -95 kg ásamt 38 öðrum og komst hann í átta manna úrslit, en hafnaði þar í áttunda sæti. Fyrsta viðureign hans var við Svisslendinginn Peneyure og hlaut Bjarni fullnaðarsigur, ippon. Því næst keppti hann við Rúmenann Olpei og sigraði hann á dómsúr- skurði, en í þeirri viðureign tognaði Bjarni á hné og átti í verulegum erfiðleikum það sem eftir var keppninnar vegna þeirra meiðsla. Kom það berlega fram í viðureign hans við Þjóðvetjann Miiller, en þar vann Bjarni á ippon, þrátt fyrir meiðslin. Hann tapaði hins vegar fyrir Bandaríkjamanninum Berland og mátti, að sögn þjálfara hans, Gísla Þorsteinssonar, rekja tapið til meiðslanna. Gísli kvað þá Bjarna nokkuð án- ægða með úrslitin og sagðist vona að meiðslin yrðu ekki langvarandi, þó útséð væri með að Bjarni tæki þátt í opna breska mótinu um næstu helgi, en þangað fer þó fimm manna keppnishópur frá Islandi. Bjarni stefnir hins vegar á að taka þátt í Evrópumótinu sem verður í París í Morgunblaðiö/Gunnlaugur Rögnvaldsson Tólf mörk samtals Þeir Páll Ólafsson og Sigurður Sveinsson skoruðu sex mörk hvor fyrir lið sín i bundesligunni um helgina og stóðu sig vel. EVROPUKEPPNIN Gummersbach fékk skell Kristján stóð sig manna best hálfleik var 11:5 og áttu Kristján og félagar aldrei möguleika. Allir léku undir getu. Kautschikas sem er 35 ára gamall sovéskur landsliðs- maður gerði sér lítið fyrir og skoraði 13 mörk af línunni. Schwabing olli einnig vonbrigðum með því að ná aðeins jafntefli gegn svissnesku bikarmeisturunum, Zurich, 20:20 á heimavelli. Sviss- lendingar eiga því alla möguleika á að leika til úrslita um Evrópubikar- inn og kemur það mörgum á óvart. GUMMERSBACH fékk slæma útreið í fyrri leik sínum í undan- úrslitum IHF-keppninnar gegn sovéska liðinu, Kaunas, á úti- velli á laugardaginn. Kaunas sigraði með 10 marka mun, 22:12. Kristján Arason var skásti leikmaður Gummers- bach og gerði 5 mörk. Róðurinn verður erfiður hjá Gummersbach í seinni leiknum sem fram fer í Köln um næstu helgi. Liðið hefur aldrei tapað svo stórt í Evrópukeppni fyrr og vilja leik- - menn örugglega gleyma þessum leik sem fyrst. Staðan í Frá Jóhannilnga Gunnarssyni i Þýskalandi HANDKNATTLEIKUR / ÞYSKALAND Essen vantar enn ertt stig | Páll og Sigurður gerðu sex mörk hvor ESSEN tókst ekki að tryggja sér meistaratitilinn í hand- knattleik um þessa helgi. Liðið tapaði fyrir Hofweier á útivelli, 19:18. Páll Ólafsson var mark- hæstur hjá Dusseldorf er þeir unnu Schutterwaid, 21:18. Sig- urður Sveinsson gerði sex mörk fyrir Lemgo og var markahæstur að vanda er liðið tapaði fyrir Göppingen á úti- velli, 23:22. Leikmenn Essen urðu að bíða með að fagna sigri í deildinni er þeir töpuðu naumlega fyrir Hof- weier á útivelli. Essen hefur oft átt í vandræðum með Frá Hofweier og tapaði Jóhannilnga þar með öðrum leik Gunnarssyni sfnum í vetur. Alfreð i Þyskalandi , gerði 3 mork og lan Rush skoraði en Liverpool tapaði IAN Rush hafði skorað í 144 leikjum með Liverpool, enginn þeirra hafði tapast og þegar Rush skoraði fyrir Liverpool gegn Arsenal í úrslitaleik deildabikarkeppninnar á Wembley á sunnudaginn, héldu margir að enn einn sigurinn væri í höfn. Svo fór þó ekki, Charlie Nicholas náði að jafna fyrir Arsenal og skora sigurmarkið skömmu fyrir leikslok. „Ég hef beðið eftir þessu tækifæri í rúm fjögur ár, en biðin var vel þess virði,“ sagði Nicholas eftir leikinn. Glæsilega var staðið að marki Liverpool, sem Rush skoraði um miðjan fyrri hálfleik, en Nicholas jafnaði skömmu síðar eftir þunga sókn. Þegar sex mínútur voru til leiksloka tryggði hann Arsenal sigurinn og bikarinn, sem keppt var um í fyrsta skipti. „Liverpool hefur átt mikilli velgengni að fagna í mörg undanfarin ár og borið höfuð og herðar yfir önnur lið. Því vorum við afskrifaðir fyrir leikinn, en það var of snemmt," sagði George Graham, fram- kvæmdastjóri Arsenal, sem hefur náð mjög góðum árangri á sínu fyrsta ári með liðið. Arsenal var lengi vel í fyrsta sæti í deildinni, en hefur dregist aftur úr Everton og Liverpool síðustu vikur. Sigurinn í deildabikarnum var því enn sætari fyrir vikið. náði sér ekki á strik frekar en aðr- ir leikmenn Essen. Liðinu vantar nú aðeins eitt stig úr síðustu 3 leikj- unum til að tryggja sér titilinn annað árið í röð. Páll Ólafsson var í aðalhlutverki hjá Dusseldorf er þeir unnu Schutt- erwald örugglega, 21:18. Staðan j hálfleik var 11:8 fyrir Dusseldorf. Páll var bestur og skoraði sex mörk. Sigurður Sveinsson var markahæst- ur að vanda hjá Lemgo er þeir máttu þola tap gegn Göppingen, 23:22. Staðan í hálfleik var 11:11. Sigurður gerði 6 mörk þar af 3 úr vítaköstum. Kiel og Grosswallstadt gerðu jafn- tefli, 21:21, í Kiel eftir að heima- menn höfðu haft yfir í leikhléi, 9:8; Loks sigraði Dortmund Hammeln á útivelli, 18:17. Mmt FOLK ■ EINAR Bollason þjálfar ÍR- inga í körfubolta áfram næsta keppnistímabil. Einar hefur ávallt náð góðum árangri sem þjálfari og undir hans stjórn sigraði ÍR í 1. deild og byrjar í úrvalsdeildinni næsta haust. Reyndar er talið mjög líklegt að níu lið leiki tvöfalda um- ferð í úrvalsdeildinni næsta tímabil, en tillaga þess efnis verður lögð fram á ársþingi KKÍ í vor. ■ BLAKLID KA, Þróttar Reykjavík og Þróttar Neskaups- stað hafa öll áhuga á að ráða kínverska þjálfara fyrir næsta keppnistímabil. Félögin hafa beðið kínverska sendiráðið í Reykjavík um aðstoð, en ekki er ólíklegt að Kínveijinn, sem þjálfaði Víking í vetur, verði á Neskaupsstað næsta tímabil. ■ UM síðustu helgi lauk dómar- anámsskeiði á vegum Knattspyrn- uráðs Reykjavíkur. Tæplega þijátíu dómaraefni tilkynntu þátt- töku, en svo fór að aðeins sjö mættu og tóku próf. Einn kom frá KR og sex frá Árvakri, sem leikur í 4. deild. Ái-vakursmenn hafa ekki safnað digrum sjóðum og þar sem dómurum fylgja aukin útgjöld fóru þeir að dæmi stóru félaganna og fengu fyrirtæki til að taka þátt í kostnaðinum. Gaui í Spörtu brá skjótt við og gaf þeim flautur, svo þeir gætu byijað að dæma. Æ TOM Cleiste er fyrsti Græn- lendingurinn, sem æfir með íslensku 1. deildarliði í knattspyrnu. Hann spilaði á Grænlandi, en kom til íslands til að kynnast fiskvinnslu og starfar í Granda hf. Tom iætur það samt ekki aftra sér frá boltan- um og æfir manna best hjá Val. ■ PETER Beardsley er ánægð- ur hjá Newcastle þó illa gangi og segist ekki fara til annars liðs, nema Newcastle vilji annað. Spurningin er hins vegar hvort félagið hafi efni á að halda Beardsley. Víst er að Liverpool þarf leikmann í stað Kenny Dalglish, og þá er Bears- dley oftast nefndur. ■ JOHN Fashanu er ákveðinn í að fara frá Winibledon að loknu þessu keppnistímabili. Fashanu hef- ur verið einn besti leikmaður nýliðanna, en vill nú leika með betra liði og kemur Arsenal sterklega til greina. ■ CHARLIE Nicholas var hetja Arsenalum helgina, en framtíð hans hjá félaginu er óviss. Nicholas hefur nú verið í fjögur ár hjá Arse- nal og ekki staðið sig eins og vonast var til. Samningurinn rennur út í maí og kæmi fáum á óvart, þó Nic- holas færi aftur til Celtic í Skotl- andi, þar sem hann lék í þijú ár og var feykivinsæll. Einar verður áfram með ÍR-inga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.