Morgunblaðið - 07.04.1987, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 07.04.1987, Blaðsíða 6
6 B JQJfttfjgftttÞiaMfr /ÍÞRÓTTIR þrwjudagur z apríl m7 BADMINTON / MEISTARAMÓTIÐ Hörkuleikur - sagði Þórdís Edwald, þrefaldur íslandsmeistari íbadminton. „Þetta var hörkuleikur, sérs- taklega síðari lotan og ég verð nú að viðurkenna að ég var aðeins farin að efast um sigur- inn í henni. Hélt að þetta yrði kannski endurtekið efni frá því í fyrra þegar að ég byrjaði að vinna fyrri lotuna en tapaði svo rækiiega í þeirri síðari,11 sagði Þórdís Edwald, TBR, sem keppti nú annað skiptið við Elísabetu Þórðardóttir, TBR og endurheimti frá henni Islands- meistaratitilinn í einliðaleik kvenna eftir spennandi keppni, með 11-0,11-7. Vilborg Einarsdóttir skritar. Þetta er í þriðja sinn sem Þórdís er íslandsmeistari í einliðaleik kvenna, hún sigraði Kristínu Magn- úsdóttur 1983 og 1985. Hún hefur átt við ýmis minni- háttar meiðsl að stríða í vetur og kvaðst fegin því að geta aðeins tekið lífínu rólega með titilinn í höfn. Það verður þó ekki lengi, því nú hefjast æfingar hjá liðinu sem heldur á heimsmeistaramótið í Kína í maí nk., en liðið skipa auk Þórdísar, þeir Þorsteinn Páll Hængsson, Broddi Kristjánsson og Guðmundur Adólfsson. Þetta var lang- þráður sigur - sagði Þorsteinn Páll Hængsson, þrefaldur íslandsmeistari „ÞETTA er vissulega lang- þráður sigur og ég er mjög ánægður með að hafa loks þennan bikar,“ sagði Þorsteinn Páll Hængsson, sem lék á mótinu sinn þriðja úrslitaleik og varð íslandsmeistari í ein- liðaleik karla í fyrsta sinn, eftir harða keppni við Brodda Kristj- ánsson, sem fór 3-15,15-6, 15-5. eir Þorsteinn og Broddi, sem báðir eru í TBR mættust nú í þriðja sinn í úrslitaleik, en þeir tveir keppa einnig saman í tvfliðaleik. „Við æfum nú saman líka, þannig að það er ekkert nýtt fyrir okkur að mætast á vellinum. Svo þekkjum við vel inn á leiktæknina hjá hvor öðrum og kemur því fátt á óvart. En það er alltaf erfitt að spila á móti Brodda og þessi keppni var ekkert frábrugðin, tölumar segja ekki allt. Hann gefst aldrei upp, gerir lítið af mistökum og er með mikið keppnisskap. En ætli ég reyni ekki að halda bikarnum eitthvað áfram úr því hann er einu sinni kominn í mínar heldur," sagði Þor- steinn Páll. Hann hefur æft badminton í 15 ár, byrjaði 8 ára gamall. ^ m mmm m • -M > „ Morgunblaðið/ Þrefaldir Isalndsmeisfarar Ánægðir þrefaldir íslandsmeistarar t badminton. Þórdís Edwald og Þorsteinn Páll Hængsson. Þórdísog Þorsteinn unnu þrefalt MEISTARAMÓTIÐ í badmin- ton var haldið í Laugardals- höll um helgina og urði liðsmenn TBR sigursælir, en keppt var f meistaraflokki og A-flokki í einliðaleik, tvíliða- leik og tvenndarleik, auk þess sem keppt var í flokki öðlinga og í æðsta flokki. Sigurvegarar mótsins urði án efa þau Þórdís Edwald og Þorsteinn Páll Hængsson, bæði úr TBR, sem urðu þrefaldir íslands- ■■■i meistarar hvort um Vilborg sig, í einliðaleik, Einarsdóttir tvíliðaleik og skrifar. tvenndarleik, en þar kepptu þau saman. Þau Þórdís og Þorsteinn Páll skipa, auk Brodda Kristjánssonar og Guð- mundar Adólfssonar lið íslands sem mun keppa á heimsmeistaramótinu í badminton í maí nk. í Kína. Þeir Broddi Kristjánsson og Þor- steinn Páll Hængsson hafa lengi eldað grátt silfur saman. Tvívegis áður hafa þeir leikið til úrsilita á meistaramótinu og þá vann Broddi í bæði skiptin. Þorsteinn liafði betur að þessu sinni og er sigurinn honum ábyggilega kærkominn. ■ Úrslit/B15 KNATTSPYRNA / VESTUR—ÞÝSKALAND Ásgeir lék f rábærlega vel Ásgeir Sigurvinsson, fyrirliði Stuttgart fékk einn í einkunn hjá hinu virta knatt- spymublaði Kicker og þýðir það að hann lék í heimsklassa. Bayern heldur sínu striki Ásgeir átti stórleik með Stuttgart gegn Dortmund BAYERN Munchen hélt upp- teknum hætti um helgina og vann stórsigur á Kaiserslaut- ern, 3:0, í vestur-þýsku Bundesligunni í knattspyrn- unni og hefur örugga forystu. Fátt getur komið í veg fyrir að liðið verði meistari annað árið í röð. íslendingaliðin, Stuttgart og Uerdingen, unnu bæði um helgina. Ásgeir Sigurvinsson átti stórleik með Stuttgartt og fær 1 í einkunn í flestum blað- anna. Leikur Bayem lofar góðu fyrir leikinn gegn Real Madrid í Evrópukeppninni á morgun, mið- vikudag. Sigurinn var öruggur á heimavelli þeirra. Frá Gamla kempan Di- Jóhannilnga eter Höness skoraði Gunnarssyni sitt ioo. mark í / Þýskalandi Bundesligunni á ferlinum er hann gerði fyrsta mark Bayem. Lars Lunde bætti öðru markinu við fýrir leikhlé og Hans Dörfner bætti því þriðja við í seinni hálfleik. Kaiserslautem fékk víta- spymu á síðustu mínútu leiksins sem Pfaff varði. Hamorgarar eru þeir einu sem hugsanlega geta veitt Bayem keppni um meistaratitilinn. Þeir unnu Leverkusen, 1:0. Alex Jusufí skoraði sigurmarkið á 55. mínútu eftir fyrirgjöf frá Okomski, sem var besti leikmaður vallarins. Asgelrgóður Stuttgart með Ásgeir Sigurvinsson í aðalhlutverki skaust í þriðja sæti með því að vinna sannfærandi sigur á Dortmund, 3:0. Jiirgen Klinsmann skoraði fýrst á 6. mínútu. Allgöwer bætti öðru við í byrjun seinni hálf- leiks og svo var Klinsmann aftur á ferðinni 5 mínútum síðar. Ásgeir og Klinsmann fengu 1 i einkunn í blöðunum sem þýðir leikur í heims- klassa. Bayem Uerdingen vann Dusseldorf, 4:1. Eftir að vera einu marki undir tóku Funkel-bræðumir sig til og skoruðu þijú mörk í fyrri hálfleik. Kunzt kom inná sem varamaður í MARSEILLE hefur komið sér fyrir í efsta sæti frönsku 1. deildarinnar, eftir auðveldan sigur á Sochaux. Þetta ertólfti leikur Marseille í röð án taps. Bordeaux, helsti keppinautur Marseille, gerði jafntefli við PSG f París. Forskot Marseille er aðeins eitt stig, en um næstu helgi fær liðið tækifæri til að auka þennan mun, því þá sækir það Bordeaux heim. oulouse og Auxerre, sem em einna líklegust til að hreppa seinni hálfleik og skoraði’ fjórða markið. Lárus Guðmundsson lék allan leikinn og stóð sig ágætlega. Atli lék ekki með og virðist ekki í náðinni þessa dagana. Önnur úrslit voru þau að Frankfurt vann Galdbach óvænt, 4:0. Köln sigraði Homburg, 3:1 og hefur liðið ekki tapað leik síðan Tony Schum- acher var rekinn. Allofs, Woodcock og Lehnhoff gerðu mörkin. Bochum og Werder Bremen gerðu jafntefli, 1:1 og Blau Waiss Berlin og Schalke gerðu markalaust jafntefli. þriðja sætið í deildinni og þar með Evrópusæti, unnu bæði sína leiki. Mónakó virðist hafa Frá Bernharöi gott tak á nágrönn- Valssyni um sínum frá Nice iFrakklandi þessa dagana. Á miðvikudag sigraði Mónakó Nice í bikamum 2:0 og svo aftur 1:0 í deildinni á laugardag. Þar með er möguleikinn á Evrópu- sæti enn fyrir hendi þó veikur sé. ■ Úrslit/B14 ■ Staðan/B14 FRAKKLAND Marseille með forskot

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.