Morgunblaðið - 07.04.1987, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 07.04.1987, Blaðsíða 7
ptofgwtMamp /IÞROTTIR ÞRŒXIUDAGUR 7. APRÍL 1987 B 7 KNATTSPYRNA / ENGLAND Everton með pálmann í höndunum Clive Allen skoraði þrjú gegn Norwich „ÞAÐ er undir okkur sjálfum komið, hvort við höldum fyrsta sætinu í lokin — meistaratitill- inn er í okkar höndum," sagði Howard Kendall, framkvæmda- stjóri Everton, eftir sigurleikinn gegn Chelsea í London. Ever- ton náði Liverpool að stigum í 1. deild, en er með betra markahlutfall og á auk þess leik til góða. Af átta leikjum, sem liðið á eftir, eru fimm á heimavelli, en margir telja að úrslitaleikurinn verði 25. apríl, þegar Liverpoolliðin leika á Anfield. Alan Harper hefur átt erfitt með að komast í lið Everton, „en ég get ekki án hans verið,“ sagði Kendall. Harper skoraði sig- urmarkið með FráBob þrumuskoti af rúm- Hennessy lega 25 metra færi iEnglandi 12 mínútum fyrir leikslok. Fimm mínútum fyrr hafði Kerry Dixon jafnað fyrir Chelsea, en Dave Wat- son skoraði fyrsta markið um miðjan fyrri hálfleik. Allen með þrennu Clive Allen, sem hafði ekki skorað í síðustu fjórum leikjum, skoraði þrennu á 12 mínútum, og jafnaði þar með markamet Jimmy Greaves hjá Spurs frá tímabilinu 1962-1963 í bikar og deild. „Eiginkonan verður ekki ánægð, því ég á 12 bolta heima, sem ég hef fengið fyrir að skora þrennu, og það er varla pláss fyrir fleiri,“ sagði Allen. Ken Brown, framkvæmdastjóri Nor- wich, sagði að Allen vissi allt um,. hvemig ætti að skora mörk. „Hann átti Qögur skot að marki og skor- aði þijú!“ David Pleat sagðist ekki hafa séð betri skorara. „Hann hefur hvorki kraft á við Rush né skalla sem Harford, hann verður aldrei eins og Di Stefano, en hann nægir.“ Mikil barátta var í leik Charlton og Watford. Heimamenn komust í 3:1, en Watford náði að jafna. Jim Mel- rose skoraði sigurmark Charlton, sem heldur enn í vonina um að forð- ast fall. Colin Walsh, Steve Gritt og Mark Stuart skoruðu einnig fyr- ir Charlton, en Mark Falco, Steve Sims og Luther Blissett svöruðu fyrir Watford. Tommy Caton kom Oxford yfir gegn Manchester United, en Nicky Wood og Peter Davenport skoruðu fljótlega fyrir heimamenn. Mike Duxbury skoraði sjálfsmark og allt stefndi í jafntefli, en Bryan Robson tryggði United sigurinn á síðustu Everton á toppinn Símamynd/AP Dave Watson skallar her að marki Chelsea á laugardaginn. Vamarmenn Chelsea eru Colin Pates, fyrirliði númer 4, og Joe McLaughlin. Everton er nú í efsta sæti og hefur auk þess leikið einum leik færra en Liverpool. mínútu. Tuttugu og þijú þúsund áhorfendur sáu Newcastle vinna Leicester 2:0. Kenny Wharton og Paul Goddard skoruðu á upphafsmínútunum. Aston Villa og Manchester City, Luton og Wimbledon og Notting- ham Forest og Coventry gerðu markalaust jafntefli. Cettlc vann Rangers Tæplega 61 þúsund áhorfendur voru á Parkhead, heimavelli Celtic, þegar liðið vann Rangers 3:1 — fyrsti sigur heimamanna í „derby- leik“ liðanna í vetur. Brian McClair skoraði úr tveimur vítaspymum í fyrri hálfleik, Ally McCoist minnk- aði muninn skömmu eftir hlé, en Owen Archdeacon skoraði þriðja mark Celtic. ÍTALÍA Maradona sækir að marki Empoli, en leiknum lauk með markalausu jafntefli. Símamynd/Reuter Ovenju lítið skorað FÁ mörk voru skoruð í ítölsku 1. deildinni um helgina. Þrr leikir enduðu með markalausu jafntefli ng Inter Milan skaust í annað sætið — er fjórum stig- um á eftir Napoli. Napoli varð að sætta sig við markalaust jafntefli gegn Empoli. Maradona og félagar sóttu stíft, en vöm Empoli var þétt fyrir. Giuseppe Bergomi skoraði fyrir Int- er í 1:0 sigri gegn Como. Roma og Fiorentina gerðu 1:1 jafntefli. Ram- on Angel Diaz skoraði á 6. mínútu, en Boniek jafnaði úr vítaspymu á 75. mínútu. Juventus gerði marka- laust jafntefli við Atalanta, sem er í næst neðsta sæti, en er enn í 4. sæti, þar sem Milan tapaði fyrir Avellino. ■ Úrsllt/B14 SPÁNN Sex lið í úrslit REAL Madrid, Barcelona, Espanol, Sporting Gijon, Real Zaragoza og Real Mallorca komust í úrslitakeppnina og leika um meistaratitilinn í knattspyrnu á Spáni. Espanol hélt jöfnu gegn Real Madrid og er ósigrað á heima- velli í vetur. Barcelona vann At- letico Madrid 4:0 og þar með missti Atletico af úrslitakeppninni og átt- atíu milljón króna ágóðavon. BELGÍA Archibald, Carrasco, Caldere og Lineker skoruðu. Athletic Bilbao og toppliðin tvö hafa ávallt leikið í 1. deild, en Bilbao tapaði 2:1 fyrir Las Palmas og er í hópi sex neðstu liða, sem leika um að halda sætinu í 1. deild, en þijú falla. Miðjuliðin sex leika einnig inn- byrðiskeppni, en þar er ekkert í veði nema röðin. ■ Úrslit/B14 ■ Staðan/B14 Tvö efst og jöfn TOPPLIÐIN íbelgísku knatt- spyrnunni, Anderlecht og Mechelen, skildu jöfn um helg- ina, hvoru liði tókst að skora eitt mark og að sögn Arnórs Guðjohnsen voru leikmenn Anderiecht óheppnir að vinna ekki leikinn. Við vomm betri aðilinn í þessum leik, sérstaklega í fyrri hálf- leik, og hefðum átt að vera 2:0 yfír í leikhléi. Mechelen jafnaði um miðj- an síðari hálfleik eftir aukaspymu. Boltinn lenti í vamarmanni okkar og breytti um stefnu þannig að markmaðurinn misti af honum i netið,“ sagði Amór eftir leikinn. „Verkauteren skoraði eina mark okkar snemma í fyrri hálfleik en ég fékk gott færi strax í upphafi. Ég komst einn inn fyrir en hitti boltann illa og skotið var það laust að markmaðurinn náði að veija. Spennan helst í deildinni við þetta jafntefli því liðin eru jöfn að stigum þegar átta umferðir eru eftir. Við eigum erfiðan leik úti gegn Ware- gem um næstu helgi og við verðum að gæta okkar að tapa ekki stigum þar. Ég stóð mig þokkalega, en ég held ég hafi oft leikið betur,“ sagði Amór Guðjohnsen. Ragnar Margeirsson lék ekki með liði sínu í 2. deildinni þar sem hann e. meiddur og Guðmundur Torfason var ekki í liði Beveren. ■ Úrslit/B14 ■ Staðan/B14

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.