Morgunblaðið - 04.11.1987, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 04.11.1987, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1987 29 miðlamir undir hans stjóm hafi bolmagn til dagskrárgerðar án styrkja utan úr bæ. „Ef aðstæður eru ekki hagstæðar og fyrirséð er að innlend dagskrár- gerð verði fyrirferðarlítil þá hugsa menn málið. En hvert tilvik verður að skoða gaumgæfílega. Ég geri ekki ráð fyrir því að þetta verði regla, því fá fyrirtæki hafa mikið fjármagn umfram það sem þau veita í almennar auglýsingar." Sighvatur Blöndal segir að inn- lend dagskrárgerð í þeim mæli sem raun ber vitni hefði verið Stöð tvö um megn án fjárframlaga fyrir- tækja. Hann gerir ráð fyrir því að styrkir fyrirtækja til dagskrárgerð- ar stöðvarinnar nemi um 15 milljón- um króna á þessu ári, eða tæpum fjórðungi af þeim 70 milljónum króna sem til hennar er varið. Að mati Sighvats mun þessi upphæð ekki hækka að neinu marki á kom- andi árum og hlutfall hennar í tekjum stöðvarinnar minnka. „Sem stendur eru kannski 20-30 fyrirtæki á íslandi sem eiga nægt fé og hafa hag af því að kynna sig með þessum hætti," segir Sighvat- ur. í þessu sambandi bendir hann á að Stöð tvö stefni að því að tekj- ur af auglýsingum verði 15% af veltu innan fárra ára í stað 30% á þessu ári. Stöðin verði því ekki háð þessum tekjustofni, heldur byggi reksturinn á afnotagjöldum áskrif- enda. Hlustendur veita að- hald Útvarpsstöðvamar hafa lítið haft sig í frammi á þessum vettvangi, að sögn talsmanna þeirra. Þorgeir Astvaldsson á Stjömunni segir að áður en útvarpsrekstur var gefínn frjáls hafí þeirri kenningu verið haldið á lofti að stöðvar sem byggðu afkomu sína á auglýsingum hlytu að verða ofurseldir valdi pening- anna. „Sumir töldu gefíð að fyrir- tæki myndu kaupa og stjóma dagskrá stöðvanna. Kók sæi um morgunþáttinn, Sanitas um miðjan daginn og Sól kvölddagskrána. Þetta er auðvitað fjarri öllum sanni." Þorgeir segir að fjölmiðlamenn séu meðvitaðir um aðhald hlustenda og áhorfenda. Engar skráðar reglur gildi um mörkin á milli auglýsinga og dagskrár, en þau seu engu að síður skýrt dregin. „Á okkur er ákveðin sjálfsstýring. Hlustendur hafa mjög skýrar hugmyndir um magn auglýsinga og hvemig þær eigi að vera fram settar. Brytum við í bága við þessar reglur yrðu hlustendur ekki lengi að hegna okk- ur með því að skipta um stöð. Það er þeirra vald og við beygjum okkur undir það.“ en allir hefðu lagt sig fram eftir getu og því hefði mikið áunnist. Hann sagði einnig að það hefði verið mjög skemmtilegt að koma í Hólminn og sagði að þar væru góð skilyrði til að ná árangri í söng og lét í ljósi ánægju yfír hinu góða hljóðfæri sem félagsheimilið ætti. Á sunnudaginn kl. 16 var síðan kór- æfing og var öllum sem áhuga höfðu boðið að koma og fylgjast með. Tókst þessi æfing með ágæt- um. Fólk kom til að fylgjast með og hafði mikla ánægju af. Að æfíngu lokinni ávarpaði Sigríður Pétursdóttir, formaður landssambandsins, viðstadda og færði þakkir fyrir þátttöku og árangur og afhenti stjómendum viðurkenningu. Stefán Jóhann Sig- urðsson, Ólafsvík, tók þá til máls, rakti sögu kóra á Snæfellsnesi og störf þeirra um áraraðir. Fagnaði hann mjög að hafa fengið að taka þátt i æfíngum þessum og var ekki í vafa um að þetta myndi lyfta mjög sönglífi hér um slóðir og tengja betur saman hina ýmsu kóra til átaka og samstarfs. „Þetta er upphaf að öðru rneira," sagði Stefán og þakkaði um leið öllum sem hér áttu hlut að máli. Stjómendur sögðu nokkur orð og voru eins og aðrir harðánægðir með þessa daga. Sögufélag Skagfirðinga 50 ára: Bauð til samsætis í Safnahúsinu Saudárkróki. UM ÞESSAR mundir er Sögufé- lag Skagfirðinga 50 ára. í tilefni þessara tímamóta bauð félagið til veglegs samsætis í Safnahús- inu á Sauðárkróki þann 24. október síðastiiðinn. Um það bil 200 gestir sóttu hófið sem stóð fram á nótt. Hjalti Pálsson forstöðumaður Safnahússins og formaður Sögufé- lagsins bauð gesti velkomna og rakti í stuttu máli aðdragandann að stofnun Sögufélagsins og stikl- aði á stóm í sögu þess. En félagið er hið elsta sinnar gerðar sem starf- að hefur óslitið. Taldi ræðumaður það engum einum manni fremur að þakka en Jóni alþingismanni Sigurðssyni á Reynistað, að félagið var stofnað 16. apríl 1937. Að lokinni ræðu Hjalta tók sr. Hjálmar Jónsson við veislustjóm og las ámaðaróskir og kveðjur sem félaginu höfðu borist. Sigurjón Bjömsson prófessor flutti ræðu og ræddi meðal annars um Sögufélagið, tilurð þess og þann þátt sem það á í menningarsögu héraðsins. Þá flutti Siguijón kveðj- ur frá Jóhannesi Geir listmálara ,sem gaf félaginu útgáfurétt á myndum af tveim málverka sinna af Örlygsstaðabardaga, ásamt 10 eftirprentunum af myndum, sem unnar vom um sama efni. Þá fluttu félagar úr Leikfélagi Sauðárkróks valda kafla úr ritum Sögufélagsins undir stjóm Hilmis Jóhannessonar. Andrés Valberg og Friðrik Mar- geirsson fluttu vísnamál. Þórdís Magnúsdóttir stjómarmaður sögu- félagsins lýsti kjöri nýs heiðurs- félaga, Páls Sigurðssonar frá Lundi, og afhenti honum heiðursskjal því til staðfestingar. En Páll hefíir um margra ára skeið safnað heimildum til skráningar æviþátta Skagfírð- inga sem búandi voru eftir 1910. Eftir að orðið var gefíð laust voru fluttar kveðjur og ámaðaró- skir félaginu til handa. Milli atriða þágu gestir kaffíveitingar, og þótti hóf þetta takast hið besta. í viðtali við Hjalta Pálsson for- Gestir í afmælishófinu. stöðumann Safnahússins kom fram að í upphafí var markmið félagsins, auk söfnunar á þjóðlegum Skag- fírskum fróðleik, að ná saman sem heillegastri mynd af sögu Skagfírð- inga frá upphafi, og gefa út á bók. Samkvæmt þessu kom fyrsta bókin, Ásbimingar eftir prófessor Magnús Jónsson, út árið 1939, og síðar Landnám í Skagafirði eftir Ólaf Lárusson, Frá miðöldum í Skaga- fírði eftir Margeir Jónsson og Heim að Hólum eftir Brynleif Tobíasson. Var þar þá komin nokkuð heilleg mynd af sögu héraðsins frá land- námi og til siðaskipta. Langmerkasta útgáfuverk Sögu- félagsins er, að mati Hjalta, Jarða- og búendatal í Skagafírði 1781—1958, sem út kom á sjötta áratugnum í fjórum bindum. Er þetta einstakt rit, og mun einsdæmi að hérað eigi svo nákvæma og ítar- lega skráða sögu sem nær yfir nærri tvær aldir. Er hér um að ræða grundvallar rit fyrir alla skagfírska sögu og sagnritun, að áliti Hjalta. Margir ágætir fræði- menn lögðu hönd að við samantekt á Jarða- og búendatali, en þó mun Jón Sigurðsson á Reynistað hafa skráð ríflega helming ritsins. Skagfírskar æviskrár, sem nú þegar hafa komið út í átta bindum, eru beint framhald af Jarða- og búendatali. Nú er unnið að ritun æviskráa Sr. Hjálmar Jónsson var veislu- stjóri. frá 1850—1890 og hefur Guðmund- ur Jóhannsson ættfræðingur verið starfsmaður Sögufélagsins undan- fama vetur, og unnið að samningu þessa verks. Hjalti Pálsson telur að þegar þessu er lokið verði komið svo ítar- legt yfírlit yfír sögu Skagfírðinga á nítjándu öld, að allir þeir sem ættir eiga að rekja til Skagafjarð- ar, ættu fyrirhafnarlítið að fínna þar rætur sínar. Að lokum kom fram í viðtalinu við Hjalta, að nú í nóvember kemur út fjórða og næstsíðasta bindi af Morgunblaðið/Bjöm Bjömsson Hjalti Pálsson forstöðumaður Safnahússins og formaður Sögu- félagsins. ritsafni Stefáns fræðimanns Jóns- sonar frá Höskuldsstöðum, og á næsta ári, þegar liðin verða eitt hundrað ár frá fæðingu Jóns frá Reynistað, er áætlað að gefa út bók með þáttum úr Skagfírskri sögu ,sem hann skráði. Síðast en ekki síst taldi Hjalti rétt að minna á Árbók Sögufélags- ins, sem er einn af föstumpunktum í starfi félagsins, en af Árbókinni eru nú komin út sextán bindi. - BB. Swans og Sykurmol- ar á tónleikum 1MH TÓNLEIKAR verða haldnir í Hátíðarsal Menntaskólans við Hamrahlíð fimmtudagskvöldið 5. nóvember. Á tónleikunum koma m.a. fram Sjón, S/h draum- ur og Sykurmolamir en aðal- atriði kvöldsins er bandaríska rokksveitin Swans. Swans er fímm manna hljóm- sveit ættuð frá New York og er talin af mörgum einn helsti boðberi neðanjarðartónlistar þeirrar borgar. Hljómsveitin er skipuð þeim Mich- ael Gira sem er söngvari og laga- smiður, Jarboe söngkonu og hljómborðsleikara, Norman West- berg gítarleikara, A1 Kizys bassa- leikara og Ted Parsons trommuleik- ara. Það er Listafélag MH sem gengst fyrir tónleikunum og hefjast þeir kl. 21.00. Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn. Merktar gangbraut- ir í Hveragerði Hveragerði. MERKTAR hafa verið tvær gangbrautir hér í Hveragerði á aðalgötu bæjarins Breiðumörk. Er önnur við Hótel Ljósbrá en hin við Gagnfræðaskólann. Á þessum stöðum eru ferðir skóla- barna tíðastar, en báðir skólarnir eru austan Breiðumerkur. Morgunblaðið/Sigrún Sigfúsdóttir Börnin í leikskólanum Undralandi voru að læra umferðarreglumar og að notfæra sér gangbrautir þegar myndin var tekin. Komið hefur til tals að setja upp- hækkaðar hraðahindranir á Breiðu- mörk vegna of mikils hraðaksturs þar miðað við aðra umferð og að- stæður, en þær hafa ekki verið samþykktar ennþá. — Sigrún.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.