Morgunblaðið - 28.11.1987, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 28.11.1987, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1987 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1987 41 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fróttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 600 kr. á mánuöi innanlands. f lausasölu 55 kr. eintakiö. Stóriðja til umræðu á ný að hefur lítið farið fyrir umræðum um stóriðju í atvinnulífí okkar síðustu ár- in. Til þess liggja tvær meginástæður. Hin fyrri er sú, að á þeim tíma, þegar enn voru tækifæri til að efna til samstarfs við erlenda að- ila um stóriðrju, var Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráð- herra og vann skipulega að því að flæma frá okkur hugs- anlega samstarfsaðila. Hjörleifur reyndist þjóðinni býsna dýr í því embætti. Á hinn bóginn hefur framvinda mála á alþjóðavettvangi síðustu árin dregið mjög úr áhuga álfyrirtækja t.d. á því að byggja upp ný álver. Um skeið var offramleiðsla á áli, sem leiddi til mikillar verð- lækkunar. Nú er hugsanlegt, að nýir möguleikar séu að opnast í sambandi við stóriðju og stórvirlq'anir. Friðrik Sop- husson, iðnaðarráðherra, átti í gær viðræður við ráðamenn Evrópubandalagsins um hugsanlegt samstarf milli okkar og bandalagsins um undirbúning að nýju álveri hér. Ástæðan fyrir því, að Evrópubandalagið kann að hafa hug á að stuðla að sam- starfí milli íslendinga og álfyrirtækja í Evrópu er sú, að helzti möguleikinn, sem þau fyrirtæki hafa til end- umýjunar á meginlandi Evrópu er að byggja á orku frá kjamorkuverum. Bygg- ing kjamorkuvera mætir hins vegar mikilli andstöðu eins og kunnugt er. Þess vegna horfa menn nú til fs- lands, sem enn hefur upp á að bjóða mikla, ónotaða, vatnsorku. Við íslendingar höfum nú um tveggja áratuga reynslu af stóriðju. Sú reynsla er góð. Samstarfíð við Svissn- eska álfélagið hefur gengið snurðulaust fyrir sig, ef und- an er skilinn sá tími, sem Hjörleifur Guttormsson var í iðnaðarráðuneytinu. Jafíi- framt hefur fengin reynsla kennt okkur, að skjmsam- legra er að byggja stóriðju- fyrirtæki upp á þann veg, að þau séu í eigu erlendra fyrirtækja og að við seljum þeim raforku, heldur en að við leggjum fram mikið áhættufé í þessi fyrirtæki. Það hefur nefnilega sýnt sig, að sveiflur eru miklar á þessu sviði, ekki síður en í sjávarút- vegi og hægt er að tapa miklum fjármunum á þessum rekstri ekki síður en í útgerð og fískvinnslu. Áhugaleysi erlendra aðila um uppbyggingu stóriðjufyr- irtækja hér hefur valdið því, að virkjanaframkvæmdir hafa nánast stöðvast, en samningar um nýja stóriðju mundu hleypa nýju lífí í virkjun fallvatnanna. Vel má vera, að við íslendingar höf- um ýmislegt lært á þessum árum, þegar svo illa hefur gengið að fínna samstarfsað- ila um nýja stóriðju. í eina tíð héldu menn, að erlend stórfyrirtæki biðu í biðröðum eftir því að fjárfesta á ís- landi en nú höfíim við kynnzt því, að svo er ekki. Þess vegna er ekki ólíklegt, að umræður um nýja stóriðju og stórvirkjanir í tengslum við hana geti farið fram á skynsamlegri grundvelli en áður. Enn liggur ekkert fyrir um hver niðurstaðan verður í viðræðum okkar og Evrópu- bandalagsins um stóriðjumál en það er vissulega ánægju- legt, að nýr skriður er kominn á þessi mál eftir ár- angurslausar tilraunir síðustu ára til þess að vekja áhuga erlendra aðila á slíkri uppbyggingu hér á íslandi. Hér er um viðamiklar framkvæmdir að ræða. Jó- hannes Nordal, Seðlabanka- stjóri, skýrði frá því á fundi Verkfræðingafélags íslands í fyrradag, að nýtt álver mundi kosta um 20 milljarða króna og kostnaður við virkj- anir í tengslum við nýtt álver yrði um 20-25 milljarðar króna. Hér er því verið að ræða um íjárfestingu, sem getur numið 40-45 milljörð- um króna. Þess er að vænta að Friðrik Sophusson, iðnað- arráðherra, fylgi fast eftir þeim hugmyndum, sem nú eru á döfínni. Líkan af tónlistarhúsinu. Samtök um byggingu tónlistarhúss: V onast til að draumur- inn rætist árið 1992 Samtökin gefa út plötu og selja happdrættismiðatil fjáröflunar UNDIRBÚNINGUR að byggingu tónlistarhúss stendur sem hæst og hefur verið unnið að hönnun húss- ins sleitulaust á þessu ári. Gert er ráð fyrir að endanlegar teikn- ingar verði tilbúnar fyrri hluta næsta árs. Samtök um byggingu tónlistarhúss eru nú að hrinda af stað átaki til að afla fjár til bygg- ingar hússins og gera sér vonir um að draumurinn um Tónlistar- hús rætist árið 1992. Samtök um byggingu tónlistar- húss voru stofnuð fyrir um fjórum árum og hafa það að markmiði að koma upp húsi fyrir hvers konar tón- listarflutning. A blaðamannafundi þar sem teikningar af húsinu voru sýndar og fjáröflunarátakið var kjmnt kom fram f máli Ármanns Arnar Armannsson framkvæmda- stjóra að eina húsið, sem sérstaklega var byggt til tónlistarflutnings hér á landi, væri Hljómskálinn og augljóst væri að hann svarar ekki kröfum nútímans. Armann sagði að draum- urinn um sérstakt tónlistarhús hér á landi væri orðinn nokkuð gamall og benti í því sambandi á grein sem birtist í Vikunni í febrúar árið 1942 þar sem sagt er frá því að Tónlistar- félag Reykjavíkur berjist fyrir byggingu slíks húss. Samtökin stóðu fyrir samkeppni á Norðurlöndum um hönnun tónlistar- húss. Sagði Armann það hafa verið ósvikið gleðiefni þegar ljóst var að íslenskur arkitekt, Guðmundur Jóns- son sem starfar í Noregi, hefði sigrað í keppninni. Stefán Einarsson verk- fræðingur í Gautaborg sér um hljómburð í húsinu og hafa þeir Guð- mundur haft nána samvinnu við hönnun hússins með það fyrir augum að ná sem bestum hljómburði. Kostnaður við hönnun og undir- búning byggingarinnar nemur nú um það bil tíu milljónum króna. Samtök- in eru að hefla átak til að afla fjármagns til byggingarinnar meðal annars með sölu á happdrættis- miðum. Kom fram að seldir hafa verið um 6 þúsund happdrættismið- ar. Fyrirhugað var að draga í happdrættinu 14. nóvember, en því hefur nú verið frestað til 9. janúar næstkomandi. Töldu forsvarsmenn samtakanna að það hefði ef til vill fælt fólk frá þvi að kaupa miðana að á þá er prentað að dregið verði 14. nóvember. Næstu helgar verða ýmsar uppá- komur í stórmörkuðum þar sem tónlistarfólk kemur fram og happ- drættismiðar seldir. Þá hafa Samtök um byggingu tón- listarhúss gefið út hljómplötu með lagi eftir Gunnar Þórðarson við texta Kristjáns frá Djúpalæk. Á annarri hlið plötunnar flytja söngvaramir Björgvin Halldórsson, Jóhanna Linn- et, Egill Ólafsson og Eiríkur Hauksson ásamt hljómsveit og kór lagið Söngur um draum. Á hinni hlið- inni flytur Sinfóníuhljómsveit íslands lagið undir stjóm Páls P. Pálssonar. Hljómplatan kemur út í næstu viku. Hámark fjáröflunarátaksins verð- ur á Galatónleikum í Háskólabíói 9. janúar næstkomandi. Á þessum tón- leikum koma fram Iistamenn á öllum sviðum tónlistar. Dregið verður í happdrættinu á tónleikunum, en þeir verða í beinni útsendingu Sjónvarps- ins. Guðmundur Jónsson arkitekt var á fundinum og skýrði út fyrir við- stöddum teikningar af húsinu. Tónlistarhúsið verður um 53.000 rúmmetrar að stærð, eða um 8.000 fermetrar að flatarmáli. Það skiptist í stóran hljómleikasal sem tekur 1400 manns í sæti og annan minni sem tekur um 400 manns. Aðstaða verður fýrir tónlistarfólk svo sem búnings- herbergi, æfingasalir og setustofa. Einnig verður þar veitingastaður, skrifstofur og fleira. Helstu breytingar sem gerðar hafa verið miða að því að hvers konar tónlistarflutningur njóti sín sem best. Guðmundur sagði að upphaflegu til- lögumar hafi verið gerðar með það fyrir augum að hægt yrði að gera ýrnsar breytingar. í ljós kom að hús- ið var ekki talið vel fallið til óperu- flutnings, en nú hefði tekist að bæta úr því. Fyrirhugað er að tónlistarhúsið standi norðan við Suðurlandsbraut og vestan við framlengingu á Grens- ásvegi sem gert er ráð fyrir í skipulagi. Morgunblaði/Sverrir Nokkrir aðstandenda Samtaka um byjggingu tónlistarhúss og arkitekt hússins. Frá vinstri Bergþór Pálsson söngvari, Haraldur Ólafsson lektor, Armann Öm Ármannsson framkvæmdastjóri, Rut L. Magnússon söng- kona, Gunnar S. Björasson húsasmiður, formaður byggingamefndar, Guðmundur Jónsson arkitekt, Helga Hauksdóttir tónlistarmaður og Guðmundur Jónsson. Húðsjúkdómurinn hringskyrfi finnst undir Eyjafjöllum: Nauðsynlegt að læknis- skoða fólk sem kemur til starfa við landbúnað - segir Sigurður Sigurðarson dýralæknir SIGURÐUR Sigurðarson dýra- læknir á Keldum segir að húðsjúk- dómurinn hringskyrfi geti borist til landsins með ýmsum hætti, til dæmis með fólki sem unnið hefði við landbúnað erlendis og færi til slíkra starfa hér. Þannig hefur sjúkdómurinn borist í tvö sfðustu skiptin sem hann hefur komið upp hér á landi. Telur hann tímabært að koma á læknisskoðun á íslend- ingum og útlendingum sem koma frá útlöndum til að vinna við land- búnað hér. Einnig gæti hring- skyrfi borist hingað til lands með óhreinu hestadóti svo dæmi sé tekið. Fyrir stuttu varð vart við hring- skyrfi í kúm á bænum Syðstu-Grund undir Eyjafjöllum. Talið er að sjúk- dómurinn hafi borist þangað í vor með sænskri vinnustúlku. í sumar fór að bera á hringlaga útbrotum, gráleitum, á haus og háls kúnna á bænum og í október fékk bóndinn hringlaga útbrot á handlegg og síðar á háls. Þegar hann leitaði til læknis kom í ljós að hér var um hringskyrfi að ræða. Smitast sjúkdómurinn aðal- lega á milli dýra og manna. Sigurður sagði að þessi sjúkdómur væri landlægur í nágrannalöndunum, þar sem hann er nefndur hringorm- ur. Hann gæti orðið alvarlegur ef hann fengi að blómstra óáreittur. í þessu tilviki virtust vera möguleikar á að útrýma sjúkdómnum. Hann hefði bara fundist á þessum eina bæ. Reyndar hefði verið samgangur við nautgripi á næstu bæjum, en þar hefðu enn ekki fundist merki um hringskyrfi. Það gæti þó átt eftir að koma í ljós síðar því 2—4 mánuðir gætu liðið þar til útbrot kæmu í ljós. Sagði Sigurður að hringskyrfi gæti farið í hross og sauðfé og bjóst hann við að sauðfénu á Syðstu-Grund yrði fargað af öryggisástæðum, enda væru fáar kindur á bænum. Fylgst yrði vel með þessu svæði í vetur og væri fólk sem hefði lent í hugsan- legri hættu beðið að hafa samband við lækni sinn strax og það yrði vart við eitthvað grunsamlegt. Nú væru til góð lyf við sjúkdómnum í fólki. Hann sagði að ýmsar öryggisráðstaf- anir yrðu viðhafðar. Til dæmis yrði FUNDUR Samtaka þéttbýlis- staða á Norðurlandi vestra, sem haldinn var á miðvikudag, sam- þykkti að beina því til hvers þéttbýlisstaðar fyrir sig að taka aðild sína að Fjórðungssambandi Norðurlands til endurskoðunar. Þá hefur bæjarráð Siglufjarðar skorað á bæjarstjóra þar i bæ að hún taki ákvörðun um að segja sig úr Fjórðungssambandinu. Snorri Bjöm Sigurðsson, bæjar- stjóri á Sauðárkróki, sagði að þetta mál hefði ekki verið rætt í bæjar- stjóm og bjóst hann ekki við að það yrði rætt þar fyrir áramót. Hinu reynt, að koma í veg fyrir óþarfa umgang aðkomumanna um fjósið á Syðstu-Grund og heimilisfólkið látið nota sérstök hlífðarföt við mjaltir. Einnig þyrfti að athuga með ásetning kálfa því að það gæti haldið sjúk- dómnum lengur við. Þetta er í þriðja skipti sem hring- skyrfí berst til landsins, í fyrsta skiptið kom það með innfluttum nautgripum frá Skotlandi árið 1933 og í annað skiptið með dönskum fjó- samanni í Eyjafjörð árið 1966. Sigurður sagði að hringskyrfið hafi valdið miklum vandræðum í Eyjafírð- inum. Það hefði komið upp á 3 svæðum og hefði þurft að setja upp miklar girðingar og skera niður hross og fé til að útrýma því. Þar hefðu 25 manns fengið útbrot. væri ekki að leyna að af ýmsum ástæðum væri óánægja ríkjandi með Fjórðungssambandið og það hafi lengi verið um það rætt á Norðurlandi vestra hvort ekki væri ástæða til þess að stofna kjördæm- issamband. Snorri sagði að sveitastjómar- mönnum á Norðurlandi vestra fyndist þeim þeir ekki eiga nema takmarkaða samieið með austur- svæðinu og það drægi mikið til sín í krafti stærðar og fólksfjölda. Ef Siglufjörður tæki ákvörðun um að segja sig úr Fjórðungssambandinu mætti búast við að grundvöllurinn undir því brysti. Samtök þéttbýlisstaða á Norðurlandi vestra: Aðild að Fj órðung'ssambandi Norðurlands endurskoðuð Ferðaþjónusta bænda endurskipulögð: Algengt að bændur geri sér gyllivonir um tekjumöguleika - segir Paul Richardsson framkvæmdastj óri UNNIÐ hefur verið að endur- skipulagningu Ferðaþjónustu bænda undanfarna mánuði í framhaldi af umræðum um möguleika bænda á að draga saman í hefðbundnum búskap og skapa sér tekjur í staðinn af þjón- ustu við ferðamenn. Stjóm Félags ferðaþjónustubænda ák- vað að reyna að efla ferðaþjón- ustuna vegna þessara umræðna og breyta henni þannig að hún geti í framtíðinni staðið undir sér fjárhagslega. Hefur verið rætt um stofnun fyrirtækis um starf- semina, að sögn formanns félagsins, en ennþá hefur ekkert verið ákveðið í því efni. Þrír starfsmenn eru nú hjá Ferðaþjónustu bænda: Paul Rich- ardsson á Eystra-Skagnesi í Mýrdal er framkvæmdastjóri, en hann er jafnframt formaður Félags ferða- þjónustubænda, Margrét Jóhanns- dóttir, sem tók til starfa sem ráðunautur Búnaðarfélags íslands fyrir skömmu, og Þórdís Eiríks- dóttir ritari. Áður var lengst af einn starfsmaður, Oddný Björgvinsdótt- ir. Auk sölu og kynningar og annarrar aðstoðar við ferðaþjón- ustubændur er skrifstofan með vinnumiðlun og sér um að útvega bömum sumardvöl í sveit. Sfðastliðið sumar vom 88 bænd- ur í Ferðaþjónustunni með gistiað- stöðu fyrir um 700 manns. Verða nokkm fleiri með næsta sumar. Paul Richardsson segir að bændur spyijist mikið fyrir um þessa mögu- leika og sé reynt að veita þeim sem mestar upplýsingar og ráðgjöf. Al- gengt sé að menn geri sér gyllivonir um tekjumöguleikana. Oft eigi menn ákveðna aðstöðu sem þurfi að lagfæra eða hugsi sér að byggja upp ný hús. Þeir hjá Ferðaþjón- ustunni geri arðsemisútreikninga fyrir slíkan rekstur miðað við ákveðnar forsendur og komi það oftar en ekki í ljós að slík fjárfest- ing borgi sig ekki nema á löngum tíma nema menn hafi þeim mun meiri peninga til að leggja fram sjálfir. Ferðaþjónusta bænda hefui' RÍKISSTJ ÓRNIN hefur sam- þykkt, að tillögu Fríðriks Sophus- sonar iðnaðarráðherra, að ísland gerist aðili að Vestur-Evrópsku staðlasamböndunum CEN og CENELEC. Er talið að þessi aðUd auðveldi íslendingum að fylgjast með reglum og stöðlum innan Evrópubandalagsins og EFTA þannig að islensk fyrirtæki geti betur aðlagað sína framleiðslu, að sögn Guðrúnar Zoéga aðstoðar- manns iðnaðarráðherra. Að sögn Guðrúnar veita þessi stað- alsambönd einnig gagnkvæmar upplýsingar um það starf sem fram fer í aðildarrílqunum á þessu sviði á nokkuð gert af því að setja saman svokallaða ferðapakka og bjóða til sölu, bæði innanlands og erlendis. Meðal annars er boðið upp á ijúpna- veiði, sjóstangaveiði, fjallaferðir og hestaferðir með ferðum, gistingu og öðru tilheyrandi. Sagði Paul að góð viðbrögð hefðu fengist við svona tilboðum í Bretlandi en ferðir þar væru skipulagðar svo langt fram í tímann að raunverulegur árangur kæmi ekki í ljós fyrr en 1989 eða 1990. frumstigi, auk laga og reglugerða, sem verið er að semja. Með því móti væri hægt að miðla upplýsingum um væntanlegar markaðskröfur fyrr til framleiðenda. Einnig hefðu Islend- ingar tækifæri til að hafa áhrif á staðalstarfið, til dæmis á sviði sjávar- afurða og tölvutækni. Kostnaður við aðild íslands er áætlaður 5,5—6 milljónir kr. á ári en ekki er gert ráð fyrir þessum kostnaði t flárlagafrumvarpinu að sögn Guðrúnar, þar sem málið sé tiltölulega nýtilkomið. Kostnaðurinn felst í aðildargjöldum, 400 þúsund kr. og kostnaði við tvo starfsmenn, auk kostnaði vegna funda og útgfu og dreifingu upplýsinga. Island gerist aðili að staðalsamböndum Talið auðvelda aðlögun Islend- inga að mörkuðum í Evrópu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.