Morgunblaðið - 08.12.1987, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 08.12.1987, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987 Pilturogstúlka Leikstjóri: Borgar Garðarson Leikmynd: Öm Ingi Gíslason Lýsing: Ingvar Björnsson Tónlist: Jón Hlöðver Áskelsson Frumsýning annan dag jólakl. 17.00 2. sýning sunudaginn 27. des. kl. 20.30 3. sýningþriðjudaginn 29. dcs. kl. 20.30 4. sýning miðvikudaginn 30. des. kl. 20.30 5. sýning fimmtudaginn 7. janúar kl. 20.30 6. sýning föstudaginn 8. janúar kl. 20.30 7. sýning laugardaginn 9. janúar kl. 18.00 8. sýning sunnudaginn 10. janúar kl. 15.00 Ath. breyttan sýningartíma. Forsala aðgöngumiða hafin. Gjafakortift gleAur - tilvalin jólagjöf. ÍA MIÐASALA SlMI 96-24073 Lgkfélag akureyrar Jólatilboð 25 smákökur kr. 160,- 12 kókóstoppar kr. 160,- 12 makkarónukökur kr. 130,- 12 kransakökukonfekt kr. 300,- 12 jólamarengstoppar kr. 130,- Tryggvabraut 22 Sími27099 Erumí hjarta bæjarins Gisting og morgunverður Veríð velkomin HÓTEL TJalflbot# GEISLAGÖTU 7 - SÍMI96-22600 BIIALCICA Reykjavik Akureyri Borgarnes Blönduós Sauðárkrókur Siglufjörður Húsavik Egilsstaðir Vopnafjörður Höfn Hornafirði S: 91-31815/686915 S: 96-21715/23515 S: 93-71618 S: 95-4350/4568 S: 95-5828 S: 96-71489 S: 96-41940/41594 S: 97-11550 S: 97-31145/31121 S:97-81303 interRent Helgar-og viðskiptaferðir til Reykjavíkur Ótrúlega hagstætt verð Verðfrá kr. 6.859,- Ferðaskrifstofa Akureyrar, Ráðhústorgi 3, sími 25000. Stjarnan norður eftir áramót: Samstarf við stöðvar í Reylqavík góð trygging — segir Ómar Pétursson útvarps- stjóri Hljóðbylgjunnar Útvarpsstöðin Stjarnan hefur væntanlega útsendingar á Akur- eyri í byrjun janúar. Póstur og sími vinnur nú að þvi að stækka örbylgjunet sitt svo hægt verði að koma fleiri sunnlenskum útvarps- stöðvum norður, en eins og kunnugt er hefur Bylgjan haft útsendingar hér i nokkra mánuði. Ólafur Hauksson útvarpsstjóri Stjömunnar sagði að þó Póstur og sími lyki verkinu fyrir jól yrði ekki hægt að koma á útsendingum fyrir hátíðir sökum annríkis. Hinsvegar yrði farið í það strax eftir áramót að koma Stjömuefni til Norðlend- inga. Ólafur sagðist ekkert geta upplýst um með hvaða hætti Stjam- an yrði fyrir norðan, en unnið væri nú að því að skoða ýmsa mögu leika. „Rætt hefur verið meðal annars við forráðamenn Hljóðbylgjunnar um samstarf, en ekkert er frágengið í því efni. Við erum opnir fyrir öllum möguleikum. Við viljum gera þetta á hagkvæman og sniðugan hátt og vera í góðu sambandi við norðan- menn,“ sagði útvarpsstjóri Stjöm- unnar að lokum. Ómar Pétursson útvarpsstjóri Hljóðbylgjunnar sagði í samtali við Morgunblaðið að hvorki væri búið að afskrifa samstarf við stöðvar í Reykjavík né búið að skrifa undir samninga. Málið væri í biðstöðu. „Stjömumenn hafa rætt málið við okkur og við vitum jafnframt um áhuga Bylgjumanna. Bylgjan hefur aðeins 100 watta sendi sem þeir leigja af Pósti og síma og vilja þeir örugglega stækka hlustunarsvæði sitt. Við aftur á móti höfum yfir að ráða 2,5 kWh sendi eðá 25 sinnum öflugri sendi en sá er Bylgjan á.“ Þessi samstarfshugmynd við aðrar stöðvar hefur verið í umræðunni frá því Hljóðbylgjan hóf útsendingar fyrst, að sögn Ómars, og yrði sam- starfí að öllum líkindum þannig háttað að sunnanmenn kæmu inn í dreifikerfí Hljóðbylgjunnar á fyrir- fram ákveðnum tímum eða á þeim tímum sem Hljóðbylgjan útvarpar ekki. „Það eru margir mjög augljósir kostir við slíkt samstarf og vissulega ókostir líka. Hljóðbylgjan var reynd- ar í upphafi aðeins hugsuð sem landshlutaútvarp og eilítil ögrun við stöðvamar í Reykjavík. Það verður hinsvegar að segjast eins og er að markaðurinn og tekjumar ráða. Ljóst er að Bylgjan og Stjaman em miklu sterkari en við hér fyrir norðan og ef við ætlum ekki að lenda undir í baráttunni er slíkt samstarf góð trygging," sagði Ómar. Morgunblaðið/GSV Birgir Marinósson starfsmannastjóri iðnaðardeildarinnar, Hrafn Hauksson varaformaður Starfsmannafélags verksmiðja SÍS og Valdi- mar Thorarensen fulltrúi Iðju ganga frá bréfum um vinnumiðlun til starfsmanna loðbandsdeildar, þeirra er misst hafa vinnu sína hjá ullariðnaðardeild SÍS. —_ Vinnumiðlun tekur til starfa: Þurfum að útvega hátt í fimmtíu ný störf — segir Birgir Marinósson starfsmannastj óri iðnaðardeildar SÍS VINNUMIÐLUN Alafoss hf. tók formlega tii starfa í gær og hafa þrír menn verið skipaðir til þess að hafa yfirumsjón með henni. Að sögn Birgis Marinóssonar, eins þremenninganna, hefur tekist að útvega tíu fyrrverandi starfs- mönnum ullariðnaðardeildar SÍS atvinnu á ný, en eftir er að finna atvinnu handa hátt í fjörutíu manns til viðbótar. Send voru út bréf í gær til þeirra starfsmanna sem fengu uppsagnar- bréf í lok síðasta mánaðar. Birgir sagði í samtali við Morgunblaðið að alls hefði 61 manni verið sagt upp af félagsmönnum Iðju auk 15 manna sem starfað hefðu við verslunar- eða verkstjórnarstörf. Sumu af þessu fólki þyrfti ekki að útvega störf á nýjan leik þar sem það væri komið á ellilífeyri. í bréfí því er starfsmenn- imir fengu í gær, undirritað af hinum nýja forstjóra, Jóni Sigurðarsyni, segir meðal annars: „Það liggur nú ljóst fyrir að ekki er hægt að endur- ráða þig hjá nýjum Álafossi hf. eftir endurskipulagninguna 1. desember sl., en hún fylgdi í kjölfar samruna Álafoss hf. og ullariðnaðar Sam- bandsins. Forráðamenn Álafoss hf. vilja hinsvegar leggja sitt af mörkum til að aðstoða þig við að finna þér nýtt starf eins fljótt og kostur gefst. Þegar hefur verið lagður grunnur að vinnumiðlun Álafoss hf. í samráði við viðkomandi starfsmannafélög og launþegafélög á Akureyri og í Mos- fellsbæ. Tveir starfshópar vinnumiðlunar- innar hafa verið skipaðir til að vinna þetta verk, en á Akureyri eru starf- andi: Birgir Marinósson starfs- mannastjóri iðnaðardeildar, Hrafn Hauksson varaformaður Starfs- mannafélags verksmiðja Sambands- ins og Valdimar Thorarensen fulltrúi Iðju. í Mosfellsbæ eru Ingjaldur Landsmenn kynni sér stefnu- breytingu ríkisstj órnarinnar — segir í ályktun frá ráðstefnu Samtaka jafnréttis og félagshyggju SAMTÖK jafnréttís og félagshyggju gengust fyrir ráðstefnu sl. laugar- dag á Akureyri um misrétti og andbyggðastefnu. Hátt á annað hundrað manns munu hafa sótt fundinn og meðal frummælenda voru þau Guð- mundur J. Guðmundsson formaður Verkamannasambands íslands, Gunnlaugur Ólafsson bóndi á Grímsstöðum, Jóhanna Þorsteinsdóttir kennari á Akureyri, Jónas Árnason rithöfundur í Borgarfirði, Júlíus Sólnes alþingismaður og Magnús B. Jónsson kennari á Hvanneyri. Eftirfarandi ályktun var samþykkt 4. Að niðurgreiðsla á áburði verði einróma á ráðstefnunni: „Skorað er afnumin en af því leiðir að áburðar- á alia landsmenn að kynna sér þá stefnubreytingu sem felst í fjárlaga- frumvarpi ríkisstjórnarinnar og flármálaráðherra áréttaði í umræð- um á Alþingi. Greiniiegt er að stefna, aðgerðir og flárlagafrumvarp ríkis- stjómarinnar eru í engu samræmi við kosningaloforð stjómarflokkanna og má í því sambandi benda á: 1. Að leggja 25% söluskatt á allar vörur um næstu áramót sem breytt verður í virðisaukaskatt í ársbyijun 1989, þar með taldar allar matvömr. 2. Áð lækka tolla á ýmsum inn- fluttum vörum úr 80% í 30% án tillits til samkeppnisaðstöðu innlendrar framleiðslu. 3. Stefnt er að því að fella niður allar niðurgreiðslur á innlendum bú- vömm svo sem áður hefur komið fram hjá fjármálaráðherra og ýmsum öðrum fijálshyggjupostulum jafn- framt því sem tollar eru felldir niður á niðurgreiddum erlendum land- búnaðarvörum. verð hækkar um 46% sem veldur aftur verðhækkunum á landbúnaðar- afurðum. 5. Að fella á niður eða draga úr framlögum til ýmissa þátta land- búnaðarins. Tilraunastöðvar land- búnaðarins í héruðunum verði felldar út af fjárlögum nema ein og dregið verulega úr leiðbeiningaþjónustu við landbúnaðinn. 6. Að draga á úr framlögum til Iðnlánasjóðs og greiðslur til iðnráð- gjafar felldar niður. 7. Raunvextir á íslandi nálgast nú heimsmet. Vextir hafa meira en tvöfaldast á árinu enda hafa ávöxt- unarmöguleikar fjármagnseigenda hækkað um 60% á fímm mánaða valdaferli ríkisstjómarinnar saman- ber ríkisvíxlana. Grái fjármagns- markaðurinn fær að starfa án bindiskyldu eða raunverulegs eftir- lits. 8. í drögum að frumvarpi um stjóm fískveiða fyrir árið 1988 til 1991 er gert ráð fyrir svo miklum samdrætti í afla sex til tíu tonna báta að grundvöllurinn undir þeim atvinnurekstri er brostinn ef frum- varpið verður samþykkt óbreytt. 9. í fjárlagafrumvarpinu eru 250 milljónir króna ætlaðir til hafnar- framkvæmda sem aðeins er lítill hluti af brýnni þörf. 10. Launamunur hefur stóraukist og misréttið vaxið á flestum sviðum. Ráðstefnan vill minna landsmenn á að í stefnuyfírlýsingu ríkisstjómar- innar er því heitið að auka jafnrétti, iækka vexti og stefna að hóflegum raunvöxtum. Þar er einnig talað um að markmiðið sé að treysta starfs- skilyrði í landbúnaði, bæta hag bænda, bæta lífskjör og draga úr verðbólgu. Greinilegt er að stefnan er eitt en framkvæmdin annað. Avinnuvegimir til lands og sjávar eru í hættu og níðst er á láglaunafólkinu og framleiðslustéttunum í landinu. Gjaldþrot blasir við fyrirtækjum og einstakiingum vegna vaxtaokurs. Fijálshyggjan elur á misrétti og veit- ir þeim sem hafa fjármagn og aðstöðu aukin völd á kostnað hinna. Nú verður hver og einn að gera það upp við sig hvort hann vill styðja stefnu ríkisstjómarinnar sem lýst er hér að framan með beinum stuðningi eða afskiptaleysi eða taka á með þeim sem vilja vinna að jafnrétti. Minnumst þess að sameinuð erum við sterk og sundruð veik.“ Hannibalsson fyrrverandi forstjóri gamla Álafoss hf., Geir Thorsteins- son starfsmannastjóri, Þrúður Helgadóttir formaður Starfsmanna- félags Álafoss og Baldvin Hafsteins- son fulltrúi Verslunarmannafélags Reykjavíkur. Jón Sigurðarson for- stjóri verður formaður beggja starfs- hópanna. Ráðgjafí starfshópanna verður Jón Hákon Magnússon, sem var í forsvari fyrir Vinnumiðlun Haf- skips hf., þegar 250 manns misstu vinnuna, og aftur þegar rösklega eitt hundrað manns misstu vinnuna vegna samruna ísbjarnarins og BÚR í Granda hf.“ Birgir sagði að vonir stæðu til að búið yrði að útvega öllum þeim, sem óskuðu, atvinnu á nýjan leik fyrir áramót. „Við höfum þegar komið tíu manns fyrir í öðrum deildum hins nýja fyrirtækis og okkur sýnist örfá störf laus í skinnaiðnaði Sambands- ins. Þá er vitað að nokkur aukning verður við saumaskap. Hinsvegar standa fyrir dyrum breytingar á skinnaiðnaðinum enda er iðnaðar- deild Sambandsins orðin heldur lítil nú þegar loðbandsdeildin fer í burtu. Hægt er að reka skinnaiðnaðinn áfram í núverandi mynd, en menn grunar að breyta eigi rekstrarfyrir- komulagi. Að öllum líkindum tekur sambandsstjómin um það ákvörðun fyrir áramót," sagði Birgir. Róleg helgi LÖGREGLAN á Akureyri átti rólega daga um nýliðna helgi. Umferð var þó nokkur á laugar- daginn þar sem versianir voru opnar fram til kl. 16.00 en minna ber hinsvegar á jólasnjónum hér norðanlands. Að sögn lögreglunnar var einn og einn tekin fyrir ölvun við akst- ur, smávægilegir árekstrar komu upp á borð lögreglunnar auk þess sem hraðamælingar voru hafðar í hávegum eins og endranær. Góð aðsókn hjá Helga Myndlistarsýning Helga Vilberg í Glugganum galleríi við Glerár- götu 34 á Akureyri verður framlengd um tvo daga vegna góðrar aðsóknar. Sýning Helga verður opin í dag og á morgun, þriðjudag og miðviku- dag, miili kiukkan 14.00 og 20.00.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.