Morgunblaðið - 19.05.1988, Side 34

Morgunblaðið - 19.05.1988, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1988 Morgunblaðifl/Ámi Sæberg Yfirlitsmynd af svæðinu. Fremst til hægri er Seðlabankinn, og vinstra megin við hann er hús launa- deildar fjármálaráðuneytisins. Þar til vinstri eru lóðir við Sölvhólsgötu, sem byggt verður á. Fyrir miðri er Sambandshúsið og ofan við það Arnarhváll. Nýbygging kemur í gatið milli bygginganna, sem snýr út að Arnarhóli. Vinstra megin við Arnarhvál eru hús Hæstaréttar og Litla sviðs Þjóðleikhússins, en á milli þeirra er fyrirhuguð nýbygging. Svo verður væntanlega byggt hús í vinkil á homi Skuggasunds og Sölvhólsgötu, sem ná mun frá húsi Litla sviðsins og að austurgafli Sambandshússins. Byggiiigarsvæði sljóni- arráðsins kannað Nýr bátur til Vestmannæjrja EMMA VE 219, nýr 83 tonna stál- bátur, kom nýlega til heimahafn- ar í Vestmannaeyjum. Báturinn var smíðaður í Póllandi og er í eigu Kristjáns Óskarssonar, sem er skipstjóri á Emmu, og Arnórs Páls Valdimarssonar 1. vélstjóra. Emma VE er 23 metrar á lengd og með 705 hestafla aðalvél, búin fullkomnustu tækjum. Allur fra- gangur á visatarverum er mjög góður og eigendur segja skipið hafa reynst vel á heimleiðinni, gang- hraðinn var 9 sjómílur. Emma er sérútbúin fyrir 660 lítra ker og má koma 69 kerum fyrir í lestinni. Kaupverð skipsins var um 65 millj- ónir króna. Hugmyndir um nánast samfellda húsaröð í ferhyrning NÚ ER verið að gera könnun á garðar. Vilhjálmur sagði að nauð- lýsingar að enn lægju engir upp- drættir fyrir af svæðinu. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Emma VE 219 kemur til heimahafnar vegum stjórnarráðsins á svæð- inu milli Lindargötu og Skúla- götu með tilliti til byggingar- framkvæmda stjórnarráðsins í framtíðinni. Nefnd var stofnuð er ríkið festi kaup á Sambands- húsinu við Sölvhólsgötu til þess að gera tillögur um framtíðar- tilhögun á svæðinu og mun hún skila áliti á næstunni. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður skipulagsnefndar Reykjavíkurborgar, sagði að stjómarráðið hefði haft samráð við borgarskipulagið um þessa könn- un. Að sögn Vilhjálms hafa hann og Þorvaldur S. Þorvaldsson, for- stöðumaður borgarskipulagsins, átt viðræður við Sigurgeir Jóns- son, ráðuneytisstjóra í fjármála- ráðuneytinu, um tilhögun framtíð- arygginga stjómarráðsins á svæð- inu. Vilhjálmur sagði að hugmynd- in væri að byggð yrði nánast sam- felld húsaröð í ferhyming, sem afmarkaðist af Lindargötu að sunnan, Ingólfsstræti að vestan, Sölvhólsgötu að norðan og Skuggasundi að austan. Inn á milli bygginganna yrðu síðan synlegt væri að gera ráð fyrir bfla- geymslum fyrir þessar byggingar, samkvæmt nútímakröfum. „Það verður ekki leyft að byggja fer- metra nema nógar bílageymslur verði fyrir hendi," sagði Vilhjálm- ur. Á svæðinu sem um ræðir eru allmargar óbyggðar lóðir, allar í eigu ríkisins að sögn Vilhjálms. Þar má nefna lóð við Lindargötu á milli húss Hæstaréttar og húss- ins, sem áður var íþróttahús Jóns Þorsteinssonar, en hýsir nú Litla svið Þjóðleikhússins. Einnig mun fyrirhugað að byggja inn í gat, sem er við Ingólfsstræti, milli Am- arhváls og Sambandshússins. Stór nýbygging kemur svo væntanlega í vinkil meðfram Sölvhólsgötu og Skuggasundi. Þá er gert ráð fyrir byggingum við Sölvhólsgötu, and- spænis Sambandshúsinu. Að sögn Guðmundar Benedikts- sonar, ráðuneytisstjóra í forsætis- ráðuneytinu og formanns nefndar- innar, sem gera á tillögur um framtíðarskipan svæðisins, mun hún skila áliti bráðlega. Nefndin hefur samvinnu við húsameistara ríkisins, en þar fengust þær upp- Tap á frystingu áætlað 2V2% eftir gengisfellingu Á FUNDI formanna ríkissljóm- arflokkanna og verkalýðsleið- toga á þriðjudag vom lagðir fram útreikningar Þjóðhags- stofnunar á fjóram dæmum um þróun efnahagsmála á árinu 1988. Er þar reiknað með að sjáv- arútvegurinn í heild sé rekinn með 1% hagnaði eftir 10% geng- isfellinguna þann 16. mai sl., þar af séu veiðar reknar með 2% halla, frysting með 2V2% halla og söltun með 7% hagnaði. Þá er gert ráð fyrir að verðbólga verði 23% frá upphafi til loka ársins en verði 5% þijá fyrstu mánuði ársins 1989. Fram kemur að verð á botnfisk- mörkuðum erlendis hefur lækkað verulega eða um 8-9% frá þVí Þjóð- hagsstofnun gerði þjóðhagsspá í byijun mars. Er tekjutap þjóðarbús- ins af þessum sökum áætlað 2,8 milljarðar króna. Þá hefur verið samið undanfarið um meiri launa- hækkanir en í samningi Verka- mannasambandsins, og miðað var við í þjóðhagsspá, og í þriðja lagi hafa kjarasamningar dregist. Vinnudæmi Þjóðhagsstofnunar eru gerð í ljósi þessara breytinga. í fyrsta dæminu er gert ráð fyr- ir þessum breyttu aðstæðum, að engin breyting hafi orðið á gengi krónunnar og að viðskiptahalli verði fjármagnaður með erlendum lánum. Utkoman er að viðskiptahalli á ár- inu verði 12-13 milljarðar eða um 5% af landsframleiðslu. Þá er halli botnfiskveiða og vinnslu áætlaður 7% af tekjum, þar af verði veiðar reknar með 1% halla, frysting með 12V2% halla og söltun með 2% halla. Þá er gert ráð fyrir að kaup- máttur atvinnutekna rými um 1V2%, meðalverð erlends gjaldeyris hækki um 6’/2% á árinu og raun- gengi hækki um 10V2%. Miðað er við að. verðbólga verði 16% frá upp- hafi til loka ársins. Gjaldeyrisútstreymið í síðustu viku: Beiðni um upplýsingar ítrekuð bréflega í gær Pjármálaráðherra hefur ekki enn fengið umbeðnar upplýsing- ar frá gjaldeyriseftirliti Seðla- bankans um það hveijir keyptu gjaldeyri fyrstu þijá dagana í síðustu viku, en þá var seldur gjaldeyrir fyrir 2,5 milljarða króna. Beiðni um upplýsingar vom ítrekuð skriflega f gær. Fj’ármálaráðherra segist munu meta hvort hann birti upplýsing- arnar opinberlega þegar hann fær þær i hendur. Jón Baldvin Hannibalsson fjár- málaráðherra sagði í viðtali við Morgunblaðið í gær að hann horfði nánast í forundran á fréttaflutning af þessu máli sem hefði brenglast í hugum sumra flölmiðla. „Stað- reyndimar eru þær að á föstudag í síðustu viku leitaði ég eftir upplýs- ingum frá Landsbankanum um sundurliðun á gjaldeyriskaupum á svarta miðvikudaginn, einkum með það í huga að fá fram upplýsingar um það hveijir hefðu átt þar stærst- an hlut að máli. Um það hef ég enn ekki fengið svör og kann að vera að bankinn líti svo á að hann sé undir kvöðum um bankaleynd, enda er fjármálaráðherra ekki yfirmaður bankamála," sagði Jón. Hann sagði að þar sem hann gegndi nú embætti viðskiptaráð- herra í ljarveru Jóns Sigurðssonar hefði hann óskað eftir því við emb- ættismenn í viðskiptaráðuneytinu að gengið yrði eftir þessum upplýs- ingum. Þeirra niðurstaða hefði ver- ið sú að réttast væri að snúa sér beint til gjaldeyriseftirlits Seðla- bankans og það hefði verið gert, fyrst munnlega, og þar sem svör hefðu enn ekki borist sagðist Jón Baldvin hafa áréttað þetta með skriflegu erindi til gjaldeyrisdeildar Seðlabankans í gær. „Ástæðan fyrir því að beðið er um þessar upplýsingar er sú, að mér finnst rétt að staldra við það, hversu snöggt þetta gjaldeyrisút- streymi var og hvemig upplýsinga- ferillinn er. Annað sem fyrir mér vakti var að fá upplýsingar til að annaðhvort staðfesta, eða kveða niður, sögur sem ganga fjöllunum hærra í viðskiptaheiminum um mik- il gjaldeyriskaup einstakra aðila, svo sem Eimskips, Flugleiða, Sam- bandsins, Landsvirkjunar og jafnvel bankanna sjálfra. Landsvirlqun hef- ur þegar gert hreint fyrir sínum dyrum og ég vil sérstaklega staldra við það, vegna þess að Stöð 2 mun hafa eignað mér þá skoðun að ég hafi leitað eftir þessum upplýsing- um til þess að fá staðfestar sögu- sagnir um gjaldeyriskaup Lands- virkjunar, en það er alger tilbúning- ur,“ sagði Jón Baldvin Hannibals- son. í öðru dæminu er gengið út frá sömu forsendum um viðskiptakjör og gengisþróun en byggt á því að erlendar lántökur verði í samræmi við lánsfjárlög og fjárlög standist, það er að viðskiptahalli verði ekki fjármagnaður nema að hluta með erlendum lánum. Það leiði síðan til meiri samdráttar í efnahagslífinu. Út úr því dæmi kemur að viðskipta- halli verður 4% af landsframleiðslu eða 10 milljarðar og kaupmáttur atvinnutekna dregst saman um 5V2%. Miðað við þær forsendur sem dæmið byggir á er talið að staða útflutnings- og samkeppnisgreina verði mjög erfið og hætta á veruleg- um samdrætti. í þriðja dæminu er byggt á því fyrsta að viðbættri 10% gengis- lækkun krónunnar. Jafnframt er gert ráð fyrir að laun hækki vegna verðbótaákvæða kjarasamninga. Helstu niðurstöður þessa dæmis eru þær að viðskiptahalli minnkar úr 5% í 4'/2% af landsframleiðslu og afkoma sjávarútvegs batni þannig að veiðar verði reknar með 2% halla, frysting með 2V2% halla og söltun með 7% hagnaði. Gert er ráð fyrir að verðbólga verði 23% saman- borið við 16% í fyrsta dæminu en í báðum dæmunum verði verðbólg- an svipuð í byijun næsta árs eða 5% miðað við fyrstu þijá mánuði 1989. Tekið er fram að óvissa um verðbólgu þá sé mjög mikil. Gert er ráð fyrir að kaupmáttur atvinnu- tekna dragist saman um 3V2% mið- að við 1V2% í fyrsta dæminu. Þá hækki meðalverð erlends gjaldeyris um 18% og raungengi hækki um 8%. f fjórða dæminu er miðað við sömu forsendur og í öðru dæminu að viðbættri 10% gengisfellingu og að laun hækki ekki vegna verð- bótaákvæða í kjarasamningunum. Viðskiptahallinn er minnstur í því dæmi, eða 3’/2% af landsfram- leiðslu. Verðbólga og afkoma sjáv- arútvegsins er eins í þessu dæmi og því þriðja, en talið líklegt að verðbreytingar yrðu eitthvað minni vegna meira aðhalds. Gert er ráð fyrir að kaupmáttur atvinnutekna dragist saman um 8% frá fyrra ári en verði samt 11% meiri en að meðaltali 1986.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.