Morgunblaðið - 08.10.1988, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.10.1988, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1988 Reynt að semja um embætti á Alþingi: Kemur „huldumaðurimi“ ekki fram við forsetakjör? „ÉG SPURÐI forsætisráðherra hvort beiðni hans þýddi að huldumaður Stefáns Valgeirs- sonar teldi kjör forseta og nefndarmanna á Alþingi ekki nægilega mikilvæg mál til að koma fram á sjónarsviðið,“ sagði Ólafur G. Einarsson, form- aður þingflokks Sjálfstæðis- flokksins um ósk Steingríms Hermannssonar um samstarf við stjórnarandstöðuna í þeim málum tíl að losna við hlutkesti um forsetastól i neðri deild. Stefán Valgeirsson segist hafa gefið tryggingu fyrir að einstök mikilvæg stjórnarmál færu í gegn í báðum deildum með að- stoð „huldumanna“, en ekki hafi verið minnst á forseta- og nefhdakjör í því sambandi. Þingstyrkur stjómar og stjóm- arandstöðu er jafn í neðri deild. Beiðni Steingríms um samstarf við stjómarandstöðuna kom fram á fundi hans með formönnum þing- flokkanna í gær þar sem ákveðið var að fresta ekki þingfundum eft- ir að Alþingi verður sett á mánu- dag. „Það varð fátt um svör við spumingu minni, en þegar sjálfur forsætisráðherra spyr svona hneig- ist maður tii að ætla að hann hafi rétt einu sinni látið skrökva að sér. Ég er satt að segja alveg stór- hneykslaður ef þetta er svona í raun og vem að menn laumi sér inn í Stjómarráðið á skröksögum Stefáns Valgeirssonar,“ sagði Ólafur. „Þeir sem fylgjast með og lesa blöð eiga að vita hvað ég hef sagt,“ sagði Stefán Valgeirsson þegar þetta mál var borið undir hann. „Ég sagði ekkert annað en það en að ég gæti tryggt það að koma málum fram í Alþingi í báð- um deildum, þeim málum sem ég á annað borð gæti fylgt. Við það stend ég.“ Stefán sagði að ekkert hefði verið rætt um forsetakjör eða nefndakjör á Alþingi við „huldu- manninn" eða -mennina og því færi ijarri að hann hefði skrökvað að Steingrími Hermannssyni um það atriði. Hann sagðist hafa lofað að nefna ekki nöfn „huldumann- anna“ við neinn. - Gætu huldumennimir þá kom- ið fram í atkvæðagreiðslu um bráðabirgðalögin? „Já, til dæmis. Ég er ekkert hræddur um að þau fari ekki í gegn.“ VEÐUR Heimild: Veðurstofa islands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær) ÍDAGkl. 12.00: VEÐURHORFUR í DAG, 8. OKTÓBER YFIRUT f GÆR: Austur við Noreg er 960 mb lægð sem grynnist og þokast austur, en 1015 mb hæð yfir Grænlandi. Fyrir sunnan land er grunnt lægðardrag, og 998 mb lægð um 1200 km suðvestur í hafi hreyfist austur. Kalt verður áfram. SPÁ: Norðan og noröaustan-gola eöa kaldi um mestallt land. Él á annesjum á vestanverðu Norðurlandi, á Norðausturlandi og suður með Austfjörðum, en annars þurrt. Á Suður- og Vesturlandi verður víða léttskýjað. Hiti nálægt frostmarki. (Sem sagt prýðisgott útivist- arveður). VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á SUNNUDAG: Hægviðri, bjart veður og frost víöa um land en suðvestanátt og dálítil él vestanlands þegar líður á daginn. HORFUR Á MÁNUDAG: Suðvestanátt og heldur hlýnandi. Dálítil súld vestantil á landinu en þurrt austantil. VEÐUR VÍÐA UM HEIM ki 12:00 ígær að fsl. tíma Akureyri Reykjavik hlti +1 7 veAur snjóél skýjaA Bergen S skýjað Helsinki 9 rignlng Kaupmannah. 12 skýjað Narssarssuaq +6 heiðskírt Nuuk +4 skýjað Osló 9 skúr Stokkhólmur 11 hélfskýjað Þórshöfn 8 súld Algarve 24 helðskírt Amsterdam 13 skúr Barcekma 24 skýjað Chicago 2 lóttskýjað Feneyjar 17 þokumóða Frankfurt 12 skýjað Glasgow 10 skúr Hamborg 10 skúr Las Pahnas 26 léttskýjað London 12 skýjað Los Angeles 17 léttskýjað Lúxemborg 9 skúr Madrid 3 vantar Malaga 23 þoka Mallorca 29 hálfskýjað Montreal 4 skýjað New York 9 skýjað París 13 skúr Róm 22 skýjað San Dlego 18 skýjað Winnipeg 6 léttskýjaft Morgunblaðið/Júlíus Steypt við Stjórnarráð Nú er veriö að gera við steypa upp vegg þann er markar lóð Stjórnarráðshússins niður með Bankastræti. Gamli veggurinn var mjög illa farinn og víða hálfhruninn. Framkvæmdum við vegginn á að ljúka á næstu vikum. Stj ómarandstaða vill ekki fresta þinghaldi Fjárlagafrumvarp lagt fram síðustu viku október Alþingi verður ekki frestað strax eftir setningu þess á mánudaginn næstkomandi þó svo að Qárlagafirumvarpið verði ekki lagt fram fyrr en í síðustu viku mánaðarins. Steingrímur Hermannsson, forsætisráð- herra, bar fram beiðni þessa efnis á fúndi sem hann boðaði með formönnum þingflokkanna í gær, en eftir að fúlltrúar stjórnarandstöðunnar höfnuðu beiðninni varð niðurstaðan þessi. Steingrimur óskaði eftir samvinnu við stjórnarandstöð- una um kosningu forseta þings- ins og formenn nefiida og munu formenn þingflokka ræða það mál frekar um helgina. Ólafur G. Einarsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, sagði að hugmyndir Steingríms hefðu gert ráð fyrir frestun þing- funda eftir að kjömir hefðu verið forsetar og í þingnefndir, og bráð- birgðalög ríkisstjómarinnar hefðu síðan verið lögð fram fljótt. Ástæð- an fyrir þessari frestun væri vænt- anlega sú að ráðherrar og ein- hveijir þingmenn væru uppteknir við fjárlagagerð. Þingflokksfor- menn stjómarandstöðunnar hefðu hins vegar sagt að þeir sæju enga ástæðu til að fresta þingfundum, því Alþingis biði ærinn starfi. Það yrði hins vegar ekki gagnrýnt þó að fjárlagafrumvarpið yrði ekki Iagt fram í byijun þings, eins og venja er til. Stefnuræða forsætis- ráðherra gæti síðan komið fljótlega eftir það, eða um 27. október. Forsætisráðherra óskaði eftir samstarfi við stjómarandstöðuna um kjör forseta þings og í nefndir, en lagði ekki fram tilboð þess efn- is, að sögn Ólafs. Hann sagði að stjómarandstaðan væri reiðubúin að hlusta á tilboð stjómarliða og væntanlega myndu formenn þing- flokkanna ræða saman um þetta efni um helgina. Menntamálaráðuneytið: Fréttabréfinu dreift DREIFING hófst í gær á Frétta- bréfi menntamálaráðuneytisins. Eins og frá sagði í Morgunblað- inu í gær hafði Svavar Gestsson menntamálaráðherra áður látið stöðva dreifingu fréttabréfsins, en það var unnið í tíð forvera hans í embætti, Birgis ísleifs Gunnarssonar. í fréttatilkynningu frá mennta- málaráðuneytinu, sem barst íj'öl- miðlum síðdegis í gær, segir: „Skömmu eftir að ný ríkisstjóm kom til starfa í síðustu viku var nýtt tölublað af Fréttabréfi mennta- málaráðuneytisins tilbúið til dreif- ingar. Þar sem meginefni þess var kynning á ákvörunum sem vörðuðu undirbúning nýrrar aðalnámsskrár fyrir grunnskóla og fyrir lá að ný- skipaður menntamálaráðherra áformaði breytingar í þeim efnum þótti ráðuneytinu ekki ástæða til að efna til kostnaðar við dreifíngu fréttabféfsins að svo komnu máli. Nú hefur menntamálaráðherra kynnt opinberlega ákvarðanir um breytt vinnuferli við undirbúning aðalnámsskrárínnar og því ekki lengur hætta á misskilningi um hvað fyrirhugað sé í því efni.“ Samkvæmt tilkynningu ráðu- neytisins hefur bréfinu verið dreift til fjölmiðla, samtaka kennara og fleiri aðila og er það jafnframt fáan- legt í ráðuneytinu. Verðlagsráð sjávarútvegsins: Fijálsu sfldverði haftiað Verðlagsráð sjávrútvegsins hafnaði í gær tillögu um að verð á síld til vinnslu á komandi vertíð yrði gefið frjálst. Ákvörðun um verð var síðan vísað til yfirnefnd- ar ráðsins. Fulltrúar seljenda í Verðlagsráði, sjómenn og útgerðarmenn, lögðu til á fundinum í gær að verðið yrði gefið fijálst að fullu. Á síðasta ári var verð á sfld til bræðslu fijálst, en lágmarksverð giltu á sfld til sölt- unar og frystingar. Kaupendur höfnuðu þessari tillögu og var ákvörðun um verðið þá vísað til yfimefndar, sem samdægurs hélt sinn fyrsta fund um málið. Niður- staða fékkst ekki þar og hefur nýr fundur verið boðaður á mánudag. Verðlagsráð vísaði einnig til yfir- nefndar í gær ákvörðun um verð á rækju og hörpudiski. Fundað verður um þá ákvörðun eftir helgina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.