Morgunblaðið - 08.10.1988, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 08.10.1988, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1988 Sýnir í Gallerí Gangskör ANNA Gunnlaugsdóttir opnar sýningu í Gallerí Gangskör að Amtmannsstíg 1 í dag, laugar- daginn 8. október. A sýningunni eru verk unnin með akrýl á striga og harðtex. Anna Gunnlaugsdóttir fæddist 12. júní 1957 í Reykjavík. Hún stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands frá árinu 1974 til 1978 og útskrifaðist úr málaradeild. Hún dvaldi í París veturinn 1978—79 og nam við listaskólann École superie- ur des beaux arts. Arið 1981 hóf hún aftur nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands og útskrifaðist úr auglýsingadeild hans 1983. Anna hélt sýningu í Gallerí Borg 1987 og aftur í janúar 1988 á myndaröðinni „7 dagar“. Sýningin er opin kl. 12 til 18 virka daga og frá 14 til 18 um helgar. Lokað á mánudögum. Sýn- ingunni lýkur 24. október. Anna Gunnlaugsdóttir við eitt verka sinna, en hún sýnir nú í Gallerí Gangskör. „Haust með Tsjekhov“ Leiklestur í Listasafninu Kirsuberjagarðurinn eftir An- ton Tsjekhov verður leiklesinn í Listasafni íslands við Fríkirkju- veg í dag og á morgun kl. 14.00. Lesturinn er liður í dagskrá á vegum leikhússins Frú Emilíu, sem vill með leiklestri á helstu verkum Tsjekhovs minnast þess að nú í október eru liðin hundrað ár ár frá því að Tsjekhov hlaut Puskin-verðlaunin og tvö ár frá því að Frú Emilía hóf starfsemi. Verkin sem lesin verða eru Máv- urinn, sem leiklesin var fyrir fullu húsi um síðustu helgi, Kirsubeija- garðurinn í dag og á morgun, Vanja frændi verður lesin 15. og 16. októ- ber og Þtjár systur 22. og 23. októ- ber. Eyvindur Erlendsson stjómar lestri allra verkanna og margir okk- ar þekktustu leikarar eru meðal flytjenda. Kirsubeijagarðinn flytja: Baldvin Halldórsson, Edda Heiðrún Bach- mann, Ellert A. Ingimundarson, Eiríkur Guðmundsson, Flosi Ólafs- son, Guðjón P. Pedersen, Guðrún Marinósdóttir, Helga Stephensen, Jón Júlíusson, Ragnheiður Stein- dórsdóttir, Sigurður Skúlason, Valdimar Om Flygenring og Vil- borg Halldórsdóttir. Anton Pavlovitsj Tsjekhov fædd- ist 1860 og lést 1904. Hann er eitt mikilvirtasta leikskáld aldarinnar og eru verk hans burðarstólpar í verkefnavali leikhúsa um allan heim. Allir Ieiklestramir heíjast kl. 14.00 og aðgöngumiðasala í Lista- saftiinu hefst kl. 12.30 sýningar- daga. Sýnirí Gallerí Borg JÓN ÞÓR Gíslason opnaði sýn- ingu á verkum sínum í Gallerí Borg, Pósthússtræti 9, sl. fimmtudag. Jón Þór Gíslason fæddist í Hafn- arfírði 1957. Hann lauk námi frá málaradeild Myndlista- oghandíða- skóla íslands 1981. Þetta er ijórða einkasýning Jóns Þórs, en áður hefur hann sýnt í Djúpinu 1983, Hafnarborg 1984 og Gallerí Gangskör 1986. Einnig tók hann þátt í sýningunni „Ungir myndlistarmenn" á Kjarvalsstöðum 1983 og IBM-sýningunni „Mynd- listarmenn framtíðarinnar" á Kjar- valsstöðum 1987. Á sýningu Jóns Þórs nú em olíu- málverk og teikningar. Jón Þór Gíslason myndlistarmaður. Sýningin er opin virka daga frá 14—18. Henni Iýkur þriðjudaginn kl. 10—18 og um helgar frá kl. 18. október 1988. Kveðja: Lovísa Magnús- dóttirfrá Olafisvík Fædd 20. nóvember 1907 Dáin 30. september 1988 í dag verður amma okkar og uppeldismóðir kvödd hinstu kveðju og langar okkur að minnast hennar í örfáum orðum. Á heimili hennar og afa okkar og uppeldisföður, Þóijóns, sem lést 17. apríl 1979, komum við mjög ungar. Þar ólumst við upp í stórum hópi barna þeirra og nutum við þar hlýju og umhyggju alla tíð. Þegar litið er til baka er margs að minnast. Minnisstæð eru vetrar- kvöldin þegar hún sat með pijóna og hlustaði á útvarpsleikrit og passíusálmalestur, því mikið var að gera á stóru heimili og kvöldin voru oft hennar einu frístundir. Þá 'var notalegt að sitja hjá mömmu. Alla sína tíð átti hún við mikið heilsuleysi að stríða og fundum við þá best hvað mikið vantaði þegar hún þurfti að dvelja langtímum saman á sjúkrahúsum. Bjartsýni hennar og dugnaður var okkar styrkur. Eftir að við fluttum að heiman var alltaf jafn gott að koma heim. Við kveðjum mömmu með þeim sálmum sem hún kenndi okkur: Bænin má aldrei bresta þig. Búin er freisting ýmislig. Þá líf og sál er lúð og þjáð, lykill er hún að drottins náð. Vaktu minn Jesú, vaktu í mér. Vaka láttu mig eins í þér. Sálin vaki, þá sofnar líf, sé hún ætíð í þinni hlíf. (Hallgrímur Pétursson) Hjördís og Hafrún Minninsr: ____C2 Bjami Þórarins son eirsmiður Bjami Þórarinsson eirsmiður lést 25. september sl. Hann var fæddur 12. júlí 1915 og var því 73 ára að aldri. Bjami ólst upp í Vesturbæn- um hjá vönduðum foreldrum. Hann lærði eirsmíði hjá Vélsmiðjunni Héðni skammt frá fæðingar- og uppeldisstað og starfaði þar alla sína starfsævi. En hann var hættur störfum fyrir nokkru er hann lést. Bjami var kunnur fyrir hæfni sína í starfi og lét ekki frá sér fara verkefni nema þau væm sem best úr garði gerð. Hann leiðbeindi mörgum ungum nemum varðandi smíði og reglusemi og eiga margir honum þakkir að gjalda í því efni. Bjami var stéttvís maður og starf- aði mikið og vel fyrir stéttarfélag sitt Félag jámiðnaðarmanna. Hann var fjármálaritari í stjóm félagsins í tólf ár 1944-1955 og félagslegur endurskoðandi frá 1957 til 1987. Við andlát hans þakka vinnufélagar og stéttarfélagar Bjama honum góð störf, vinsemd og tryggð við stéttarfélagið. Góður og vandaður félagi er fallinn frá. Við minnumst hans með virðingu og þakklæti. Eg votta eftirlifandi konu hans, bömum og bamabömum samúð við andlát hans. Guðjón Jónsson. Garðabær Happadrætti Sjálfstæðisflokksins Tekið verður á móti greiðslum í sjálfstaeðishúsinu Lyngási 12 laugar- daginn 8. október kl. 13.00-15.00. Vinsamlegast hafið gíróseðlana með. Stjórn sjálfstœðisfólags Garðabæjar. AKUREYRI Sjálfstæðiskvenna- félagið Vörn Hádegisverðarfundur veröur laugardaginn 8. október kl. 12.00 á Hótel KEA. Gestur fundarins: Tómas Ingi Olrich. Seyðisfjörður - bæjarmál Sjálfstæðisfélagið Skjöldur boðar til almenns félags- fundar í Frú Láru laugardaginn 8. október kl. 16.00. Dagskrá: 1. Bæjarmálefni. Bæjarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins á Seyðisfiröi, Guð- mundur Sverrisson og 2. Kosning fulltrúa á aðalfund kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins á Austurlandi, sem haldinn verður I Neskaupstaö 15. október. Stjórn Sjálfstœðisfðlagsins Skjaldar á Seyðlsfirði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.