Morgunblaðið - 09.10.1988, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. OKTÖBER 1988
Stjörivu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Rannsóknir á
stjörnuspeki
Þó stjömuspeki sé gömul hafa
ekki verið gerðar margar
vísindalegar rannsóknir á
henni. Þær hafa þó verið ein-
hveijar. Niðurstöður þeirra
hafa verið misjafnar, bæði nei-
kvæðar og jákvæðar fyrir
stjömuspeki. Fræg rannsókn
sem hefur sýnt fram á jákvæða
niðurstöðu er rannsókn
franska sálfræðingsins Michel
Gauquelin.
Michel Gauquelin
Gauquelin hóf starf sitt á sjötta
áratugnum og birti niðurstöð-
ur sínar fyrst árið 1955 í bók;
inni L’Influence des Astres. I
stuttu máli má segja að Gauqu-
elin hafi komist að því að fylgni
var á milii stöðu pláneta á
himni við fæðingu og árangurs
í starfi.
Framlag
Napóleons
Napóleon keisari lét setja það
í lög í kringum 1805 að skrá-
setja skyldi fæðingartíma allra
■ bama á fæðingarvottorð
þeirra. Gauquelin hafði því úr
miklu úrvali tíma að velja og
var í þeirri aðstöðu að geta
athugað stjömukort allra sem
hann hafði áhuga á. Hann
skrifaði því til hagsýsluskrif-
stofa víðsvegar um Frakkland
og bað um að sér yrði sendur
fæðingartími manna í hinum
ýmsu starfsstéttum. Árangur-
inn lét ekki á sér standa. Þeg-
ar pláneta var nýlega risin
yflr sjóndeildarhring eða í há-
göngu virtist sem hún hefði
áhrif á starfsval og árangur í
starfl.
Mars
Mars Rísandi og við Miðhimin
var algengur í kortum lækna,
íþróttamanna, hermanna og
athafnamanna, en áberandi
var að hann var ekki á þessum
slóðum í kortum rithöfunda,
listmálara og tónlistarmanna.
Tungl
Rannsóknir á stöðu Tunglsins
sýndu að það var \ið Risandi
og á Miðhimni, eða í 12. og
9. húsi, í kortum rithöfunda
og stjómmálamanna en var
sjaldan á þeim stað í kortum
íþróttamanna og hermanna.
Júpíter
Júpíter var á fyrrgreindum
stöðum í kortum hermanna,
stjómmálamanna, blaða-
manna, leikara og leikritahöf-
unda. Hann var hins vegar
sjaldgæfur í kortuni lækna og
vísindamanna.
Satúrnus.
Satúmus var á hinn bóginn
algengur í kortum vísinda-
manna og lækna, en sjaldgæf-
ur í 12. og 9. húsi í kortum
leikara, listmálara, biaða-
manna og rithöfunda.
Frœgt fólk
Það sem er athyglisverðast við
þessar niðurstöður er að þær
sýna fyrst og fremst virkni í
kortum frægs fólks og svo það
að níunda og tólfta húsið skyldi
vera svo áberandi sem raun
varð á. Þessar rannsóknir hafa
síðan verið margendurteknar,
ekki einungis í Frakklandi,
heldur öðrum ríkjum Evrópu,
eins og Italíu, Belgíu og Þýska-
landi. Líkumar gegn því að
niðurstöður rannsóknanna
byggi á tilviljunum eru ýmist
frá 1 á móti 200, upp í 1 á
móti 5 milljónum. Þeim sem
hafa áhuga á að kynna sér
verk Gauquelins er bent á
enska þýðingu á tveim fyrstu
bókum hans, Written in the
Stars, útgefln af The Aquarian
Press 1988.
:::: rDCTTID
uKb 1 1 IK
PEIR ERU SJALFSAGTA£> WAKTA
HÚSlp OKKAR NÚN A.VlP VEfZ£>UM
AV FLÝJA Of? LANPl / !
£f?M PAVfS 9-Z
BRENDA STARR
þu sk/lo/z luclega sötr/
HVA& ÞaD SALAfZPfSEPAMD/
AD VlTA EKHER.T UM AFPtS/F'
A*AMNS/NS
x v SEAA
\x\ AAA£>U!Z
slska/z.
SMÁFÓLK
PONT TALK TO ME..
I'M HAVING MV
P0ST-CURI5TMAS LETPOUN
Talaðu ekkl við mig, ég
er að ná mér eftir jólahald-
ið.
I JUST WANTEP TO
TWANK YOU A6AIN FOR
TUE WONPERFUL PRE5ENT
YOU 6AVEME..IT UUA5
JU5T WHAT 1 WANTEP...
Ég vildi bara þakka þér
aftur fyrir dásamlegu
gjöfina sem þú gafst
mér____ það var einmitt
það sem mig vantaði...
LUHY PO YOU ALUUAY5
WAVE TO SAY
50METMIN6 NIŒ?
Fjárinn!
Af hverju þarftu alltaf að
segja eitthvað fallegt?
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Menn ofmeta oft „slagkraft-
inn“ í trompsamningum á 4-4
samlegu. Samgangsvandræði
koma oft í veg fyrir að hægt sé
að fá marga slagi á þannig
tromplit.
Norður gefur, NS á hættu.
Norður
♦ KD76
♦ Á942
♦ ÁD863
♦ -
Austur
.. 482
.. :sr
♦ KDG10
Suður
♦ ÁG105
▼ G6
♦ K105
♦ 5432
Vestur Norður Austur Suður
- 1 tígull Pass 1 spaði
Pass 4 lauf Pass 4 tíglar
Pass 4 grönd Pass 5 tíglar
Pass Pass 7 spaðar Pass Pass
Útspil: laufás.
Norður slær hvergi af í sögn-
um og þegar hann sér að félagi
á tígulkóng og einn ás freistast
hann til að reyna alslemmu. En
suður á lítið í varasjóði í þetta
sinn.
Hann á þó eitt mikilvægt spil
- tígultíuna. Án hennar væri
slemman vonlaus. Það er Ijóst
að spilið verður að liggja vel.
Tígullinn þarf að gefa fimm slagi
og trompið heila sjö. Innkomur
á spil suðurs eru af skomum
skammti svo það verður að svína
tígultíunni strax í öðrum slag.
Þegar sú svíning gengur er
hægt að trompa lauf tvisvar í
viðbót. Síðan verður að yfirdrepa
síðasta spaðann til að aftrompa
andstæðingana.
Vestur
♦ 932
▼ K105
♦ 72
♦ Á9876
Umsjón Margeir
Pétursson
Á sovézka meistaramótinu í ár
kom þessi staða upp í skák aldurs-
forsetans, Vassily Smyslov, sem
hafði hvítt og átti leik, og stór-
meistarans Vyacheslav Eingom.
42. Hxc6! — bxc6 43. Hxc6 —
He5 44. Hc7 - Hd8 45. Rxe6!
— Hxe6 46. h4! Glæsileg staða,
þótt svartur sé heilum hrók yfir
í endatafli þá eru allir menn hans
rígbundnir og hann getur engu
leikið. Eingom gaf því stöðuna.
Smyslov byijaði mjög illa á
sovézka meistaramótinu, en þótt
hann sé orðinn 66 ára, þá virtist
úthaldið ekki há honum, því hann
vann sig upp f 9.-13. sæti af 18
keppendum. •