Morgunblaðið - 14.12.1988, Page 52

Morgunblaðið - 14.12.1988, Page 52
tr* 52 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988 gUSLrfcW 1 ©»9B7 Univefsal Pfess SyndicalB ,Eréu aftur hsettur a.h r-e.ykja.?" TM Reg. U.S. Pat Off. — all rights reserved ° 1988Los AngelesTimes Syndicate !01)T> — ~ — - HÖGNI HREKKVÍSI z, HL-eOU AB> 8RÖNPORONU/U HANS BF Pi) VILT EKKI /VtlSSA 1_ÍF|E>.“ Að læra að drekka ekki Til Velvakanda. Mikil ölvun í Reykjavík í nótt, 6 rúður brotnar í miðborginni, maður stunginn með hnífi í vestur- bænum, kveikt í skóla í Kópavogi, mikið drukkinn ökumaður keyrir utan í 3 bíla og eyðileggur þá, skotið á konu í Breiðholtinu. Eitt- hvað á þessa leið hljóða útvarps- fréttimar hvem laugardags- og sunnudagsmorgun, allan ársins hring. Þeim, sem stjóma brennivíns- sölunni, er samt greinilega ekki nóg boðið. Aldrei hefur í manna minnum verið gert eins mikið að því að íjalla um áfengi í fjölmiðl- um. Það er verið að opna nýja brennivínsbúð einhvers staðar ut- anbæjar eða innan. Áfengisútsölur em haldnar með pomp og prakt að ógleymdum bjómum sem á að hella yfir landslýðinn á vordögum. Forstjóri Áfengisverzlunar ríkisins virðist telja það sitt hlutverk að ota áfengi að almenningi eins og hann væri að selja þorskalýsi eða hunang. Um daginn var kölluð hingað fjölskylda alla leið frá London til að taka þátt í skímarathöfn á brennivínstegund. Ég hélt satt að segja að það væri bannað að aug- lýsa áfengi en ekki veit ég hvað em auglýsingar, ef ekki þessi endalausa umijöllun um brennivín eins og ekkert sé sjálfsagðara en hafa það á hvers manns borði, við öll tækifæri. Bjarki Elíasson, lög- reglumaður, sagði í útvarpi um daginn að 90% meiri háttar af- brota tengdust áfengisneyslu, samt er haldið áfram endalausum brennivínsáróðri og hvart sem fólk kemur saman, birtast myndir af því haldandi á brennivínsglösum. Nú fer jólaglöggstíðin í hönd, fólk kemur saman eftir vinnu, sötrar glöggið og ekur svo heim. Er von á góðu? Svo skilst mér að komin sé lausn á því máli, hvað eigi að gera við gamla miðbæinn, eftir að verzlunin fluttist mikið til upp í Kringlu. Það á sem sé að opna bjórstofu á öðm hveiju götuhomi. Aumingja íbúamir þeir kjósa líklega þá sem kölluðu þetta yfír þá, næst þegar færi gefst] Að lok- um þetta til þeirra, sem enn þá hafa áhyggjur af velferð Islend- inga: Það er alltaf verið að tala um að fólk eigi að læra að drekka. Ég vil aftur á móti taka undir með vitmm manni sem sagði: „Fólk á ekki að læra að drekka, það á að læra að drekka ekki.“ Þorbjörg Björnsdóttir Slysalaus j ólaundirbúningur Er jólaserían í lagi? Það tekur sinn tíma að láta yfirfara og gera við útiseríur og því ástæða til að huga að slíku núna. Takið ekki þá áhættu að nota lélegar og illa varðar ljósaseríur. Njótum undirbúnings jólanna með slysalausum dögum. Víkveiji skrifar Sífellt er verið að þrengja að reykingarmönnum. Innan dyra á Morgunblaðinu hafa til dæmis verið gerðar ráðstafanir til að fram- fylgja með skipulegum hætti regl- unum sem losa þá sem ekki reykja á vinnustað undan þeirri áþján að vera sífellt í reykjarmekki þvert ofan í vilja þeirra. Á nýlegri ferð til Bandaríkjanna fagnaði Víkveiji því sérstaklega að vera laus undan reykingum. Þar í landi fer það ekki fram hjá neinum að réttur þeirra sem ekki reykja er í heiðri hafður. Meðal þeirra aðgerða sem gripið hefur verið til er að banna alfarið reykingar í flugvélum þegar ferðin tekur innan við tvo klukkutíma. Minna flugfreyjur farþega á að við því séu háar sektir að virða ekki þetta bann alls staðar í flugvélinni. Á fundi sem Víkverji sat með um 80 mönnum var bannað að reykja í fundarsal. Ekki nóg með það. I kaffihléi urðu reykingarmenn að fara út úr byggingunni eða fram í anddyri hennar ef þeir vildu stunda ávana sinn. Fór ekki fram hjá nein- um að þeir litu á sig sem illa settan minnihlutahóp en tóku harðræðinu af karlmennsku. Víkveiji minnist þess þegar hann fór til Bandaríkjanna fyrir nokkrum árum og var enn á því stigi að totta danska vindla af og til að hann lenti stundum í dálitl- um vandræðum vegna þess. Lét fólk ekki hjá líða að láta í ljós óánægju yfir stybbunni. Kom þetta einkum fram í svipbrigðum eða lát- æði. Lá stundum við að fólk færi frá næstu borðum við Víkvetja þeg- ar hann kveikti sér í vindli á veit- ingastöðum. Eða gestir kvörtuðu við þjóna undan þeirri áþján er því fylgdi að nýta sér þjónustu þeirra í návist þessa illþeijandi reykháfs. Með hliðsjón af þeim skrefum sem síðan hafa verið stigin í barátt- unni gegn reykingum í Banda- ríkjunum hefði líklega mátt hand- taka Víkveija eða stórsekta nú ef hann hefði kveikt sér í dönskum smávindli á almannafæri. Verða Bandaríkjamenn þó ekki almennt sakaðir um að vera með of mikil afskipti af öðrum; þeir vilja hins vegar fá að hafa rétt til að gæta eigin heilsu og vernda hana fyrir ágangi annarra. A IBandaríkjunum hafa talsmenn heilbrigðs lífernis sett fram áætl- un í 21 lið, sem menn eiga að fylgja í daglegu lífi og neyslu til að halda sem bestri heilsu. Nýlega var birt niðurstaða í árlegri könnun, þar sem leitað er svara við spurningum er miða að því að fá hugmynd um, hve mikið mark almennir borgarar taka á slíkum ábendingum. Könnunin leiðir m.a. í ljós, að 92% aðspurðra forðast að reykja í rúminu. 88% neyta áfengis í hófi. 84% láta mæla blóðþrýstingin ár- lega. 83% taka reglulega þátt í fé lagslífi. 82% hafa reykskynjara á heimilum sínum. 77% forðast að aka eftir neyslu áfengis. 75% fara ár- lega til tannlæknis. 72% reykja ekki. 68% reyna að takmarka stress. 61% sofa 7 til 8 tíma á nóttu. 60% borða trefjar. 59% huga að vítamín- og steinefnaneyslu. 57% nota öryggisbelti við akstur. 55% virða ákvæði um hámarkshraða. 35% reyna oft á sig við líkamsrækt en aðeins 24% tekst að halda kjör þyngd.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.