Morgunblaðið - 01.03.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.03.1989, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR í. MARZ 1989 Stálvík lokar; Ég hef aldrei áður verið á atvinnuleysisbótum Nokkrir starfsmenn eiga möguleika á vinnu í Danmörku STÁLVÍK hf. hefur lokað skipasmíðastöð sinni í Garðabæ og starfe- fólkið, 50 manns, er komið á atvinnuleysisbætur. Er Morgunblaðið heimsótti Stálvík í gærdag voru starfemennirnir að ganga frá fyrir lokunina og dauft yfir öllu í vinnusalnum. Aðeins glitti í einmanna- legan loga frá einu rafeuðutæki um borð f skrokk annars af tveim- ur 10 tonna bátunum sem verið hafa í smíðum þarna að undanf- örnu. Þar var á ferðinni verktaki óháður stöðinni. Ámi Marteinsson verkstjóri hef- ur unnið hjá Stálvík í 23 ár. Hann segir að hann hafi aldrei á æfinni fyrr verið á atvinnuleysisbótum og kann alls ekki við þá tilhugs- un...„Ég vil vinna fyrir þeim pening- um sem ég fæ borgaða," segir hann. Ámi er nú kominn á sextugsaldur- inn og er óviss um framtíð sína. Fyrir liggur að enga vinnu er að hafa hérlendis í þessum iðnaði á næstunni. „Þetta eru mér mikil viðbrigði og það er mikil eftirsjá að þessu starfi,“ segir Ámi. „Mér hefur aldr- ei fyrr verið sagt upp starfi og ég vona að forráðamönnum fyrirtækis- ins takist. á einhvem hátt að endur- vekja starfsemina hér. Ekki hvað síst með það í huga að fólkið sem vann hér var upp til hópa gott fólk, frábærir starfsmenn, sem á betra skilið en að ganga um atvinnu- laust." Fram hefur komið að nokkrir starfsmenn Stálvíkur eiga þess kost að fá vinnu við dönsku skipasmíða- stöðina í Bogense þar sem fjórir af 14 togurum sem Stálvík hefur samið um smíði á við Dubai verða byggðir. Ámi segir að hann sé kom- inn á þann aldur að erfitt sé fyrir hann að fiytja úr landi. Væri hann yngri hefði hann hinsvegar hugleitt þetta mál. „Ég er tilbúinn í að starfa við eitthvað annað en skipasmíðar. Hinsvegar er ég bjartsýnn á að hægt verði að endurráða fólkið hér til fyrirtækisins í framtíðinni þótt við séum nú að rifa seglin og taka poka okkar heim,“ segir Ámi. Valgarður Friðjónsson trúnaðar- maður starfsfólksins í Stálvík hefur starfað þar í 11 ár. Hann á það sameinginlegt með Áma að báðir unnu þeir hjá Stálsmiðjunni áður ÍDAGkl. 12.00: -3° Heimild: Veðurstofa íslands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær) VEÐUR I/EÐURHORFUR í DAG, 25. FEBRÚAR YFIRUT ( GÆR: Frost verður áfram um allt land. Sums staðar allt aö 20° í innsveitum norðanlands en víöast 5-10o að deginum. SPÁrHæg norð- og norðaustanátt. Víða léttskýjað um sunnanvert landið en meira og minna skýjað í öðrum landshlutum. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á FIMMTUDAG: Fremur hæg suðvestanátt með smáólj- um um landið vestanvert en bjart veður austantil. Vægt frost við vesturströndina en talsvert frost á Noröur- og Austurlandi. HORFUR Á FÖSTUDAG: Hæg breytileg átt framan af degi en vax- andi suöaustan átt sunnan- og vestanlands þegar líður á daginn. Él við suöur- og vesturströndina en annars þurrt. Ennþá frost um allt land. s, Norðan, 4 vindstig: ^ Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * V * V Hrtastig: 10 gráður á Celsíus Skúrir Él = Þoka = Þokumóða ’, » Súld 4 K Mistur Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að fsl. tíma Akureyri Reykjavlk hm +S +5 veður úrfcoma fóttskýjað Bergen s skýjað Helslnkl 3 alskýjað Kaupmannah. 6 skýjað Narsaarsauaq vantar Nuuk vantar Osló 4 rignlng Stokkhólmur 4 þokumóða Þórah&fn 2 rigning Algarvo 17 akýjað Amsterdam 7 Mttskýjað Barcelona 8 akýjað Berlfn 11 léttskýjað Chlcago +6 snjókoma Fenayjar 11 akýjað Frankfurt 5 akúr Glasgow 6 ak’ur Hamborg e akýjaA La* Palmas 17 aúld London 8 Mttskýjað Las Angeles 13 mlatur Lúxemborg 3 slydduól Medrid 14 skýjað Malaga 20 léttskýjað Mallorca vantar Montreal vantar New Vork vantar Orlando vantar Parfa vantar Róm 14 skýjað San Diego 13 alskýjað Vín 10 akýjað Washington 2 alskýjað Wlnnlpeg +17 anjókoma Morgunblaðið/Júlíus Tveir af starfemönnum Stálvíkur, þeir Valgarður Friðjónsson og Árni Marteinsson. en þeir hófu störf hjá Stálvík. Að- spurður um hvort hann geti hugsað sér að flytja til Danmerkur segir Valgarður að slíkt geti hann ekki ákveðið að svo stöddu. Hann er jafnbjartsýnn og Ámi á að fyrirtæk- ið hefji starfsemi aftur. „Það er óhætt að segja að starfs- menn hér séu mjög reiðir vegna þess hvemig farið hefur og beinist sú reiði ekki hvað síst gegn stjóm- völdum. Hingað hafa komið ráða- menn, bæði ráðherrar og þingmenn kjördæmisins. Málin hafa verið rædd fram og til baka og við höfum afhent þessum herrum undirskrif- talista þar sem þeir em beðnir um að beita sér fyrir aðgerðum til að- stoðar fyrirtækinu. En ekkert hefur komið út úr þessu," segir Valgarð- ur. í máli Valgarðs kemur fram að þeir 50 starfsmenn sem missa vinnu sína nú séu allt frá mönnum sem hafa starfað við fyrirtækið í 25 ár, eða frá því það var stofnað, til nema sem nýkomnir voru til vinnu og fara nú beint á atvinnuleysisbæt- ur...„Það hljóta að vera mikil von- brigði fyrir bæði þá elstu og yngstu að svona fór,“ segir Valgarður. „Ég sjálfur hef aldrei orðið atvinnulaus á æfi minni og maður veit eignlega ekki hvemig maður á að snúa sér í því.“ Jón Gauti Jónsson framkvæmda- stjóri Stálvíkur segir að það sé lýs- andi dæmi um þennan iðnað hér- lendis og þróun hans á síðustu árum að þegar fyrirtækið smíðaði Hólmadrang 1983 vom 170 manns í vinnu hjá fyrirtækinu. Nú 6 ámm síðar em þeir 50 talsins. Inn í þetta dæmi spilar skipasmíðabannið sem sett var á 1983 til 1986. Frá 1986 hafa hinsvegar verið flutt inn til landsins skip fyrir 12 milljarða króna. Hvað vinnuna í Danmörku varðar segir Jón Gauti að boðið sé upp á mjög góð kjör og áætlar Bogense að geta veitt 10-20 íslendingum vinnu. Kaupið er 86 dkr. á tímann eða 613 krónur. Unnar em 38 stundir á viku. Hvað skatta varðar nefnir Jón Gauti sem dæmi að af 100.000 dkr. tekjum séu 20.000 dkr. í persónuafslátt en síðan er greiddur 53% skattur af því sem eftir er. Sem dæmi um húsaleigu má nefiia að hús í dýrasta flokki kostar 3000 dkr. á mánuði. Skipasmíðasamiiingur Stálvíkur við Dani: Fengu vilj ayfirlýsingn hjá Barclays í London STÁLVÍK hf. hefur samið við dönsku skipasmíðastöðina Bog- ense um smiði fjögurra af 14 tog- urunum sem Stálvik samdi um fyrir M.O.J. Company Ltd. í Dubai. Hinir 10 verða smíðaðir í Egyptalandi. Það var Barclays bank i London, sem gaf viljayfir- lýsingu um athugun á fyrir- greiðslu vegna samningsins við Dani. Jón Gauti Jónsson framkvæmda- stjóri Stálvíkur sagði i samtali við Morgunblaðið, að fyrst eftir að ríkis- stjómin og Iðnlánasjóður hefðu af- greiddu beiðni Stálvíkur jákvætt hefði fyrirtækið beðið svara frá Landsbanknum. Þá þegar lá fyrir áhugi skipasmíðastöðvarinnar í Dan- mörku á smíði togaranna. „Við fengum upplýsingar um það, símleiðis, fimmtudaginn 16. febrúar að Landsbankinn teldi sig þurfa meiri tíma til að vinna málið og þá um kvöldið héldum við til Danmerkur og sömdum um. smíði togaranna," segir Jón Gauti. Ábyrgðir þær sem hér um ræðir eru á móti fyrirframgreiðslu kaup- enda og verktryggingu af hans hálfii, alls um 300 milljónir króna eða 20% af kaupverði togaranna. í máli Jóns Gauta kom fram að strax að lokinni samningagerðinni við Dani hafi forráðamenn Stálvíkur haldið til London til viðræðna við Barclays-bankann eða þann 21. febr- úar. Eftir einn dag ákvað Barcleys bank að senda kaupanda togaranna bréf með viljayfirlýsingu um að bank- inn væri að athuga málið. Er nú beðið eftir að Barclays afgreiði form- lega af sinni hálfti nauðsynlegar ábyrgðir vegna samningsins. Bogense skipasmíðastöðin í Dan- mörku hefur nýlega hafið starfsemi sína aftur en henni hafði verið lokað frá árinu 1985 vegna verkefnas- korts. Það er Privatbanken í Dan- mörku sem veitir stöðinni ábyrgðir vegna þessa verkefnis. ML í leikferð NEMENDUR Menntaskólans að Laugarvatni frumsýndu leikrítið „Láttu ekki deigan síga Guðmund- ur“, eftir Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur á laugadag- inn var i Menntaskólanum að Laugarvatni. Leikstjóri verksins er Guðjón Sig- valdason. Leikendur eru 28 auk fimm manna hljómsveitar en leikritið byggist mikið upp á dans og söng. I gærkvöldi var leikurinn sýndur í Réttarholtsskóla en næstu sýningar verða að Flúðum í kvöld miðvikudag kl. 21 og að Borg í Grímsnesi 2. mars á sama tfma. Þá er fyrirhuguð sýning í Vestmannaeyjum laugar- daginn 4. mars kl. 21. Reykhóla- hreppsbúar lítið komist Miðhútt, Rcykhólasveit í ÓVEÐRINU sem gengið hefur yfir hafa Reykhólahreppsbúar lítið komist. Á fimmtudag kom fólk með rútunni sem ætlaði að vera við jarðarför á laugardag. Jarðarforin fór loks fram í gær. Föstudagsrútan komst ekki fyrr en á laugardagsnótt í Króksfjarðar- nes, og dvöldu farþegar þar fram á sunnudag, en þá sótti snjóbíll þá. ------------------ Sveinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.