Morgunblaðið - 01.03.1989, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 01.03.1989, Blaðsíða 43
TUNGLIÐ DAGUR ITUNGLINU Kiddi Big Foot med dúndrandi rokk úr diskótekinu. Hljómsveitirnar Sniglabandió og Ölrót MORGUNBtAÐIö MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1989 William Hurt villsíðurvera nefhdur kyntákn. Mickey Rourke lék siðast á móti Fay Dunaway. Michael Douglas vijja allar sjá. Clark Gable — ógleymanleg kvikmyndahetja. hafðistfl. Harrison Ford. f fótspor Clark Gable. Don Johnson ætlar að kvænast fyrrverandi konu sinni, Melaine Griffith. HETJUR HOLLYWOOD Mannlegir og rómantískir karlmenn Margir þeirra eru látnir en engu að síður lifa þeir í kvikmyndum. Hér er átt við stór- ar stjörnur: Cary Grant, Clark Gable, Gary Cooper, Humphrey Bogart ... átrúnaðargoð fjöldans. Karlmenn vildu gjarnan líkjast þeim og konurnar sáu ekki sólina fyrir stjörnum Hollywood. Nú er komin ný kynslóð sjar- möra á hvíta tjaldið: Harrison Ford, Miehael Douglas, Mickey Rourke, Harry Hamlin, William Hurt, Tom Selieck, Don Johnson, Tom Cruise, Rob Lowe og fleiri. Arðvænlegt útlit er það sem þeir eiga allir sameiginlegt. Þeir bera af sér þokka og eru rómantískir. Þeir eru „mjúkir". Þeir eru karl- mannlegir en engar karlrembur. Þetta er hin nýja kynslóð vinsæl- ustu karlleikara Hollywood. Þeir eru ekki allir upprifnir yfir stimplinum kyntröll, sem gjarnan festist við þá. Heyrum í William Hurt: „Ég var viss um að ég myndi verða stimplaður kyntákn eftir hlutverk mitt í „Heitar ástir“ og fékk tilboð um fleiri slík hlut- verk. En ég vil ekki láta festa mig á þennan bás svo ég sagði nei takk.“ Næsta hlutverk hans var annars eðlis er hann lék kyn- hverfan fanga í kvikmyndinni „Koss kóngulóarkonunnar" og fékk hann Oskarsverðlaun fyrir. Tom Selleck hefur tvívegis fengið titilinn „Kyntákn Ameríku". „Vissulega er það ánægjulegt að fólki líki við mig en ég er ekki of ánægður með þennan titil. Mér finnst hann fela í sér að sá kjörni hafi ekki of mikla greind, sé hjartalaus og með vafasaman hugsanagang," segir Tom. Harrison Ford var negldur á bás eftir hlutverk sín í „Star Wars“ og „Indiana Jones“. En eftir leik sinn í kvikmyndinni „ Vit- nið“ sáu menn hann í öðru ljósi. Eftir það var sagt að gæti ein- hver fetað í fótspor Clark Gable þá væri það Ford. Rob Lowe hefur stráfellt marg- ar konur á hvíta tjaldinu en einn- ig utan þess. Stefanía prinsessa af Mónakó er sögð vera ein margra sem hefur fundist hann ómójstæðilegur. Tom Cruise sýndi í kvikmynd- inni „Top Gun“ að hann er bæði harðjaxl og rómantíker. Marga dreymir eflaust um að vera kösinn sá vinsælasti í Holly- wood. En það krefst mikils, ekki síst þess að kunna að taka á móti illu umtali. Ekki er verra að hafa styrka fætur sem geta hald- ið þeim við jörðina þegar vin- sældabylgjan skellur yfir. Tom Cruise. Gleymið Tarsan. Gleymið mjúka manninum í fótlagaskónum. Hetjur nútim- ans eru rómantískar. KOMNIR kúrekinn, byggingaverkamaðurinn, löggan, indiáninn, hermaðurinn. Já, mestu karlrembusvín allra tíma eru mætt til að skemmta sér og þér í HOLLYWOOD í kvöld og annað kvöld. í gervum sínum eru Village People sannkölluð sviðssprengja. * / FIV1102,2 & 104 HOUJWOOD Forsala aðgöngumiða frá ki. 9-17 daglega. Húsið opnað kl. 21.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.