Morgunblaðið - 01.03.1989, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 01.03.1989, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1989 1 f GRXTNN I & II GRUNNI GRUNN II Námskeið fyrir byrjendur í tölvunotkun þar-sem farið er í öll helstu atriði varðandi notkun PC tölva. MS-DOS stýrikerfið, allar helstu skipanir t.d. varðandi meðhöndlun skráa og leiðbeint um notkun handbóka auk æfinga og verkefna. Námskeið fyrlr þá er hafa einhverja reynslu af tölvum og/eða hafa farið á Grunn I. Kynnt er ritvinnslukerfið WordPerfect og töflureiknirinn PlanPerfect. Farið er í MS-DOS stýrikerfið auk æfinga og verkefna. Námskeiö í mars 15. mars kl. 9 - 16. Námskeið í apríl 6. apríl kl. 9-16. 28. apríl kl. 9 - 16. Námskeið í mars 7. - 8. mars kl. 9 - 13. Námskeið í apríl 10. - 11. apríl kl. 13- 17. GRUNN I FYRIR KQNUR Grunn I - fyrir konur laugard. 4. og 11. mars kl. 10 - 17. Námsefni sama og Grunn I. Nú sjá karlarnir um laugardagshreingerninguna en þið skellið ykkur á skólabekk. Verð kr 5.000,- Allar nánari upplýsingar og bókanir hjá Ásrúnu Matthíasd. Einari J. Skúlasyni hf. Grensásvegi 10, sími 686933. Tölvuskóli Einars J. Skúlasonar hf. RÆÐUMENNSKAOG MANNLEG SAMSKIPTI Kvennanámskeið Kynningarf undur verður haldinn f immtudaginn 2. mars kl. 20.30 á Sogavegi 69. Allir velkomnir. ★ Námskeiðið getur hjálpað þér að: ★ Öðlast hugrekki og meira sjálfstraust. ★ Láta í Ijósi skoðanir þínar af meiri sannfæring- arkrafti í samræðum og á fundum. ★ Stækka vinahóp þinn, ávinna þér virðingu og viðurkenningu. ★ Talið er að 85% af velgengni séu komin und- ir því hvernig þér tekst að umgangast aðra. ★ Starfa af meiri lífskrafti - heima og á vinnu- stað. ★ Halda áhyggjunum í skefjum og draga úr kvíða. Fjárfesting í menntun skilar þér arði ævilangt. Innritun og upplýsingar í síma 82411 0 STJÓRIMUIMARSKÓUIMIM % Konráð Adolphsson Einkaumboð fyrir Dale Carnegie namskeiðm * Forvamir: Hvað gera stórveldin? Nú ræða menn mikið um forvam- ir hér á landi, kvíðnir vegna þeirrar drykkju sem framleiðendur og selj- endur bjórs virðast óska sér. Hvað má helst til vamar verða? ☆ Bandaríkjamenn hafa nýverið hækkað lögaldur til áfengis- kaupa (bjór er áfengi) í 21 ár. ☆ Bandaríkjaþing samþykkti í haust að á öllum áfengisumbúð- um yrðu framvegis viðvamanir líkt og á tóbaksumbúðum hér. ☆ Sovétmönnum hefur tekist að draga úr drykkju um meira en helming frá 1985. Tjónið vegna diykkjunnar hefur minnkað að sama skapi. Þama hafa komið til svipaðar aðgerðir og Bandaríkjamenn beita, m.a. hækk- un lögaldurs til áfengiskaupa, svo og víðtækar hömlur aðrar og efling bindindissamtaka. ☆ í mörgum þróunarlöndum, þar sem áfengi er selt, em takmarkan- ir litlar, hömlur lélegar og lögaldur til áfengiskaupa lágur. Hvað gemm við? (Heimildir: Alkohol och Narkotika, The Joumal, ICAA.) Vímuefiianeysla svona manndómsvíxla. Unglingur- inn drekkur sig fullann og það er ýkt hve miklu magni var torgað og á hve stuttum tfma. Það er hlegið að mglinu í fólki daginn eftir og hvað það hefur orðið sér til skamm- ar. Það er fyndið, töff og sniðugt. Þetta eru allt hlutir sem mótast í félagahópnum og ef við ætlum að reyna að hafa áhrif á unglingana, án þess bara hreinlega að vera al- mennileg fyrirmjmd, sem ég segi að sé einfaldasta leiðin, þá er það f gegnum félagahópinn. Ég held að langflestar fræðslu- herferðir séu dauðadæmdar vegna þess að þær höfða ekki til félaga- hópsins. Það er þar sem viðhorfín þurfa að breytast. Það getur vtl verið að það hafi áhrif á mig þegai' ég sit og bíð eft- ir uppáhaldssjónvarpsþættinum mínum og sé einhverja sjónvarps- auglýsingu um að bjór sé hættuleg- ur eða ég eigi að láta oílinn vera heima, það getur vel verið, ég er samt ekki viss um það. En ef ungl- ingurinn sér það ekki í samhengi við sig, sína klíku og sína jafnaldra þá hefur það engin áhrif. Við verðum að byija í félaga- hópnum en við verðum lfka að taka unglingana alvarlega, þetta er hugsandi fólk, það þýðir ekkert að Ijúga, það þýðir ekkert að ýkja. Við verðum að ætla þeim að taka af- stöðu út frá staðrejmdum, ekki hryllingssögum. M.M. Tölvutækninám □ Kerfisgreining □ Rökfræöi □ Forritun Tölvuskóli íslands S: 67 14 66 WordPerfect I & II WordPerfect I Námskeið fyrir byrjendur, þar sem farið er í helstu skipanir MS-DOS stýrikerfisins, WP með íslenskum valmyndum, orðasafn WP og uppsetningu texta. Lögð er áhersla á að nemendur nái tökum á allri algengri notkun kerfisins. Námskeið i mars 6. - 9. mars kl. 13 - 17. Námskeið i apríl 10. - 13. apríl kl. 9 - 13. WordPerfect II Námskeið fyrir þá er hafa farið á WP I námskeiðið eða hafa sambærilega grunnþekkingu og vilja auka við þekkingu sína og leikni á ritvinnslukerfið WordPerfect. Farið er í flóknari aðgerðir t.d. neðanmálsgreinar og aftanmál, samsteypur, teiknun, reikning, fjölvar, dálka, kaflaham og kaflatölusetningar, gerð efnisyfirlita og atriðaskráa. Námskeiö í mars 29. -31. mars kl. 13 - 17. WordPerfect ABC: Þrískipt framhaldsnámskeið í WordPerfect verða haldin í mars og apríl 4 klukkustundir i hvert skipti Allar nánari upplýsingar og bókanir hjá Ásrúnu Matthíasd. Einari J. Skúlasyni hf. Grensásvegi 10, sími 686933. Tölvuskóli Einars J. Skúlasonar hf. IÓII Þorleifsson _PEIR ABYRGUI Þeir ábyrgu Ný bók eftir Jón Þorleifsson ÞEIR ábyrgu nefnist ný bók eft- ir Jón Þorlei&son, verkamann og rithöfund. Þetta er ellefta bók höfundar, en sú fyrsta, Nútfma kviksetning, kom út fyrir 14 árum. Þeir ábyrgu er fímm ein- þáttungar. í fréttatilkynningu, sem fylgir bókinni, segir svo: „Fyrir nokkrum árum var skáldsaga Jóns, Graf- skrift hins gleymda, lesin sem fram- haldssaga í ríkisútvarpinu. Aðrar bækur Jóns eru meðal annars ljóðabækur, sagnfræði og hag- fræði. Þeir ábyrgu lýsir, eins og flestar aðrar bækur Jóns, afstöðu stéttvíss alþýðumanns, sem þolir illa spillta verkalýðsforingja jafnt sem aðra spillta ráðamenn. Gagn- rýni Jóns er opinská og beinskeytt." Útgefandi bókarinnar er Letur hf, sem jafnframt offsetfjölritaði bókina. Kápu teiknaði Jens Kr. Guð. Bókin er 90 blaðsíður. * ♦ ¥ * _________Brids____________ Arnór Ragnarsson Bridsdeild Rangæingafélagsins Sveit Danfels Haildórssonar sigraði í sveitakeppninni sem lauk sl. miðvikudag. Hlaut sveitin samtals 246 stig i 13 um- ferðum. Alls tóku 14 sveitir þátt 1 keppn- inni og voru spilaðir 16 spila ieikir. Með Daniei spiluðu í sveitinni: Viktor Björns- son, Haukur Hannesson, Guðrún Hin- riksdóttir og Sveinn Sigurgeirsson. Röð naestu sveita: Rafn Kristjánsson 237 Ingólfur Böðvarsson 219 Ingólfur Jónsson 217 Lilja Halldórsdóttir 212 Sigurleifur Guðjónsson 209 Síðasta spilakvöld var einnig spiluð 4 umferða Sviss-sveitakeppni og varð röð efstu sveita þessi: Rafti Kristjánsson 80 Baldur Guðmundsson 68 Sæmundur Jónsson 66 Næsta keppni félagsins verður baromet- er-tvimenningur og hefst hann nk. miðviku- dagskvöld 1. marz. Spilað er f Ármúla 40 kl. 19.30. Þátttöku er hægt að tilkynna til Ingólfs Jónssonar f sfma 76525 eða til Sig- urleifs Guðjónssonar f sfma 30481. Keppnis- stjóri er Sigutjón Tryggvason. Bridsfélag Kópavogs Það má lfkja sveitakeppni félagsins við B-keppnina f Frakklandi þar sem allt var á suðupunkti. Sveitir Ármanns J. Lárussonar og Gríms Thorarensens eru f hörkueinvlgi um efsta sætið og þegar einni umferð er ólokið er staða efstu sveita þessi: Ármann J. Lárusson 285 Grimur Thorarensen 279 Jón Andrésson 265 Baldur Bjartmarsson 239 Þröstur Ingimarsson 233 Freyja Sveinsdóttir 224 Á fímmtudaginn kemur verður byrjað að spila léttan tvímenning en lokaumferðin í svcitakeppninni hefst svo um tíuleytið. Spilamennskan hefst kl. 19.45. Spilað er f Þinghól.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.