Morgunblaðið - 20.05.1989, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 20.05.1989, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1989 3 Jarðgöng undir Kópavog: Virðist vera viðunandi leið - segir Heimir Pálsson forseti bæjarstjórnar Kópavogs „ÉG LÍT svo á að þetta þýði, að borgarsijóri sjái ástæðu til þess eins og við, að leita allra annarra leiða heldur en leggja braut um Fossvogsdalinn,“ sagði Heimir Pálsson forseti bæjarstjórnar Kópavogs, þegar hugmynd borg- aryfirvalda um gerð jarðganga undir Kópavog í stað Fossvogs- brautar, var borin undir hann. Heimir sagðist að vísu ekki hafa séð hvernig hugmyndin væri útfærð Tollafgreiðsla á inn- fluttu smjörlíki stöðvuð FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ hef- ur að ósk heilbrigðisráðuneytis stöðvað tollafgreiðslu á innfluttu snyörlíki, nema Hollustuvernd ríkisins hafi fyrst gengið úr skugga um að settum reglum varðandi vöruna sé fúllnægt, meðal annars varðandi merkingu umbúða og innihald aukaefna. Hollustuvemd ríkisins óskaði eft- ir því að tollafgreiðslan yrði stöðvuð þar sem smjörlíki, jafnt sem aðrar matvörur, yrði að fullnægja settum reglum og ekki skipti máli hvort það væri framleitt hér á landi eða innflutt. Um sextíu tonn af smjörlíki, sem viðskiptaráðuneytið hefur veitt leyfi fyrir innflutningi á, bíða nú tollafgreiðslu, en Hag- kaup hhefur þegar hafið sölu á smjörlíki frá Hollandi. Varðandi það smjörlíki hefur Hollustuvemd greint frá því í bréfi til heilbrigðis- ráðuneytisins, að það uppfylli öll ákvæði reglugerðar um aukaefni í matvælum, en ekki að öllu leyti kröfur um merkingu neytendaum- búða. Þess vegna þurfi innflytjandi vömnnar að bæta úr merkingu umbúðanna áður en smjörlíkið er sett á markað. Markaðsnefnd landbúnaðarins hefur sent Steingrími Hermanns- syni forsætisráðherra ályktun, þar sem meðal annars er lýst furðu á að innflutningur smjörlíkis hafi ver- ið leyfður án undangenginnar at- hugunar á efnainnihaldi þess, og því að merkingar séu í samræmi- við íslensk lög og staðla. Skorar Markaðsnefndin á ríkisstjómina að stöðva þegar innflutninginn, nema tryggt sé að þessum skilyrðum sé fullnægt. Neytendasamtökin hafa fagnað innflutningnum, en hafa jafnframt lagt áherslu á að strangt gæðaeftirlit verði ætíð að vera fyrir hendi, jafnt með innlendum sem innfluttum vömm. eða hversu skynsamleg þessi lausn væri. Engar tölur um kostnað hefðu til dæmis verið nefndar. „Það er sjálfsagt vissast að segja sem minnst um þessa lausn fyrr en hún er séð og fyrr en maður veit nánar hveming þessi hugmynd er en í fljótu bragði virðist, sem þetta geti vel verið leið sem allir geti við un- að,“ sagði Heimir. „Ég veit að vísu ekki til þess að menn hafi áður gert jarðgöng undir byggð hér á landi og maður þarf náttúrlega ansi góðar tryggingar fyrir að þetta sé framkvæmanlegt. Ég hef heyrt eitthvað um að það skipti miklu máli hvemig berglögin em en ég vænti Jjess að verið sé að rannsaka þau. Á þessu stigi málsins er ekk- ert nema gott eitt um það að segja að það sé leitað allra annarra leiða en að fara um dalinn." Morgunblaðið/Júlíus Berlínar- björninn á nýjanstall Stytta af Berlínarbirninum, tákni Berlínar, er komin á nýjan stall á horni Skothús- vegar og Sóleyjargötu. Berlínarbjöminn er gjöf Berlínarborgar til Reykja- víkur. Á stall styttunnar er letrað hversu langt er frá Reykjavík til Berlínar. Vísitala bygging- arkostnaðar: Hækkun um 1,9% frá síð- asta mánuði HAGSTOFAN hefúr reiknað vísi- tölu byggingarkostnaðar fyrir júnímánuð, miðað við verðlag í miðjum mai. Vísitalan er nú 141,6 stig, eða 1,9% hærri en i siðasta mánuði. Síðustu þijá mánuði hefiir visitalan hækkað um 6,9% og sam- svarar það 30,4% árshækkun. Launaliðir byggingarvísitölunnar hækkuðu um 2,7% sem valda um 1,1% hækkun vísitölunnar. Annars vegar er um að ræða áfangahækkun á ákvæðisvinnutöxtum iðnaðar- manna 1. maí samkvæmt kjarasamn- ingum. frá fyrra ári og hins vegar hækkun á útseldri vinnu verkamanna samkvæmt kjarasamningum gerðum 1. mai síðastliðinn. Síðastliðna tólf mánuði hefur byggingarvísitalan hækkað um 26%. Þessi hækkun nú, reiknuð til heils árs, samsvarar um 25% árshækkun. Grandi hf.: 145,2 mílljóna króna tap varð á rekstri fyrirtækisins í fyrra Heildarverðmæti afla og framleiðslu var rúmlega 1.500 milljónir króna. Vinnulaun voru 485 millj. TAPREKSTUR Granda hf á árinu 1988 varð 145,2 miHjónir króna. Heildarvelta fyrirtækisins nam 1.551,6 miiy. kr., en var 1.587,4 milþ'ón- ir 1987. Heildarvelta Granda hf. og Síldar- og fiskimjölsverksmiðjunn- ar hf., sem er dótturfélag þess, var 1.722,3 mifij. kr. 1988. Heildarafli togara Granda hf. á árinu 1988 nam 23.888 tonnum, aflaverðmæti 694,2 milijónum króna og heildarlaunagreiðslur voru 485 mifljónir króna, en ársverk voru 340. Þetta kom fi-am á aðalfúndi Granda hf. í gær. Samkvæmt rekstrarreikningi staps er þar um að ræða tap á eign- nam hagnaður sl. árs fyrir afskrift- ir og fjármagnskostnað 235,6 millj. kr. Afskriftir og fjármagnskostnað- ur reyndist 309,6 millj. kr., þannig að tap fyrir skatta varð á reglu- legri starfsemi að fjárhæð 74 millj. kr. Gengistap umfram almennar verðlagsbreytingar, að teknu tilliti til erlendra verðlagsbreytinga er nú sérgreint í rekstrarreikningi sem óreglulegur liður, en það nam 123,4 millj. kr. Önnur gjöld námu sam- tals 71,2 millj. kr. en auk gengi- arhlut í dótturfélagi að frádregnum hagnaði af eignasölu. Tap á rekstri fyrirtækisins sl. ár varð því 145,2 millj. kr. Heildarafli 1988 var 23.888 tonn miðað við 26.209 tonn árið 1987, en innvegið hráefni sl. árs var 17.178 tonn, sem skiptist þannig að karfi var 60%, þorskur 12%, ufsi 18% og aðrar fisktegundir sam- tals 10%. Heildarmagn frystra sjáv- arafurða varð 7.713 tonn og sölu- verðmæti framleiðslunnar reyndist 813,9 milljónir króna. Togarinn Ásþór var seldur í byij- un árs 1988 með veiðarfærum og öðrum búnaði fyrir 130 milljónir króna, en Snorra Sturlusyni var breytt í frystitogara í Póllandi. Kostnaður vegna breytingar togar- ans varð 147,7 millj. króna en skip- ið var í fimm mánuði frá veiðum af þessum sökum. Miklar tækni- breytingar voru framkvæmdar í vinnslusal fyrirtækisins í Norður- garði, en þar hefur verið tekin í notkun ný og fullkomin vinnslulína, sem þegar hefur sannað ágæti sitt við framleiðslu sjávarafurða. Eigið fé Granda hf. nam í lok sl. árs 666,6 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi að meðtöldu hlutafé að ijárhæð 578,6 millj. kr. en eigið fé í lok ’87 var 623,6 millj. kr. Hlutafé í Granda hf. var á sl. ári aukið um 104,6 millj. kr. .með innborgunum, en auk þess voru gefin út jöfnunarhlutabréf að upphæð 289 millj. kr. í fyrirtækinu. Borgarsjóður Reykjavíkur seldi, eins og fram hefur komið, fjórum nlutafélögum eignarhlut sinn í sjáv- arútvegsfyrirtækinu. Á aðalfundin- um í dag voru eftirtaldir menn kosn- ir í aðalstjóm fyrirtækisins: Ámi Vilhjálmsson, stjömarformaður, Jón Ingvarsson, varaformaður, Benedikt Sveinsson, Gunnar Sva- varsson og Kristján Loftsson. Vara- menn vom kosnir Bjarni Bjömsson, Bragi Hannesson, Grétar B. Kristj- ánsson, Halldór Vilhjálmsson og Ólafur Bjarki Ragnarsson. Verktaka á Keflavíkurflugvelli: Hef verið að lýsa margítrekuðum stefiiuyfirlýsingum SjáJfetæðisflokksins - segir Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins Matthías A. Mathiesen telur að samningar við Bandaríkjamenn eigi að vera á einni hendi ÞORSTEINN Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins segir „dylgjur" þess efiiis að skoðun hans á því að bjóða eigi út á opnum markaði fi*amkvæmdirnar fyrir varnarliðið sé hans einkaskoðun, en ekki stefna Sjálfstæðisflokksins, vera gripnar úr lausu lofti. Hann hafi verið að lýsa margitrekuðum stefiiuyfirlýsingum um þessi mál, sem samþykktar hafi verið á landsfúndi Sjálfstæðisflokksins. Ólafúr G. Einarsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins tekur í sama streng og segir persónulega skoðun formannsins og stefiiu Sjálfstæð- isflokksins fara algjörlega saman. Matthías Á. Mathiesen, fyrsti þing- maður Reyknesinga segist aftur á móti telja að samningar við Banda- ríkjamenn um framkvæmdir á vegum varnarliðsins, eigi að vera á einni hendi. „Það eru grófar ýkjur og stað- hæfulausar með öllu, að þetta séu einkaskoðanir formannsins," sagði Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, í samtali við Morg- unblaðið í gær. Þorsteinn sagði að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefði að vísu ekki gert neinar ályktanir um þetta mál, en landsfundir Sjálfstæðis- flokksins hefðu oftar en einu sinni um það ijallað. „í ályktun lands- fundar 1983 segir að verktakastarf- semi á Keflavíkurflugvelli eigi að gefa frjálsa,” sagði Þorsteinn, „og í verkefnaskrá sem landsfundur samþykkti 1985 segir að verktaka- fyrirtæki eigi að sitja við sama borð með vamarliðsframkvæmdir. í ályktun landsfundar 1987 er kveðið á um það að halda eigi áfram breyt- ingum á fyrirkomulagi verktaka- mála á Keflavíkurflugvelli, með það fyrir augum að fleiri eigi kost á verkefnum þar.“ Þorsteinn sagði að fleiri orð þyrfti ekki að hafa um þetta efni. „Allar dylgjur af þessu tagi, eru þess vegna gripnar úr lausu lofti. Eg hef sem formaður flokksins ver- ið að lýsa margítrekuðum stefnu- yfirlýsingum, sem samþykktar hafa verið á landsfundi." Verktakar sitji við sama borð „Mér þykir heldur verra að verið sé að greina frá umræðum á þing- flokksfundi sjálfstæðismanna og verið að láta að því liggja að for- maðurinn sé að skýra frá stefnu- málum sem séu þá einkaskoðun hans, en ekki stefna flokksins," sagði Ólafur G. Einarsson, formað- ur þingflokks Sjálfstæðisflokksins og annar þingmaður Reyknesinga í samtali við Morgunblaðið. Ólafur sagði einnig: „Sé þetta skoðun formannsins persónulega, þá fellur hún algjörlega saman við stefnu Sjálfstæðisflokksins í þessum mál- um og ég vísa til ítrekaðra ályktana landsfundar Sjálfstæðisflokksins frá 1983, 1985 og 1987, þar sem ályktað er í þá veru að verktakar skuli sitja við sama borð og útboð skuli viðhafa um framkvæmdirnar fyrir vamarliðið á Keflavíkurflug- velli." Ólafur sagði að hann sem þing- maður Reyknesinga væri alveg sammála því sem ályktað hefði ver- ið um þessi mál á landsfundi Sjálf- stæðisflokksins. „Ég tel að þessi háttur á framkvæmdunum hafi ver- ið rétt ráðinn í upphafi, en við verð- um að átta okkur á því að við lifum ekki á þeim tímum núna. Þá (1954) voru hvorki þau tæki né þekking í landinu til þess að annast svona framkvæmdir fyrir varnarliðið, en það hefur auðvitað gjörbreyst á 35 árum og ég sé því enga ástæðu til þess að viðhalda því skipulagi, sem þá var komið á,“ sagði Ólafur. Samningar við Bandaríkjamenn á einni hendi Matthías Á. Mathiesen sagði í samtali við Morgunblaðið að hann teldi ekkert óumbreytanlegt varð- andi það fyrirkomulag sem viðhaft er við framkvæmdir á vegum varn- arliðsins. „Það er hins vegar alveg ljóst, frá minni hendi, að það verður einhver einn aðili að semja um þær framkvæmdir sem hér eiga að fara fram á vegum varnarliðsins, og semja þá við Atlantshafsbandalag- ið, eða Bandaríkjastjóm, eftir því hvers eðlis framkvæmdirnar eru. Hvað aðilinn heitir, sem semur þar um, skiptir ekki öllu máli. Síðastlið- in 35 ár hafa íslenskir aðalverktak- ar, í umboði ríkisstjómar annast þá samninga," sagði Matthías. Matthías sagði jafnframt að til skamms tíma hefðu framkvæmd- imar alfarið verið í höndum Aðal- verktaka og Keflavíkurverktaka. „Þegar Geir Hallgrímsson varð ut- anríkisráðherra, gerði hann þarna á breytingar, þannig að undirverk- taka átti sér stað í miklu ríkara mæli en áður. Þetta varð til þess að á ámnum 1983 til 1987, þegar sjálfstæðismenn fóm með utanrík- ismál, að um flölmörg útboð var að ræða, oft á stómm verkum, svo sem flugstöðinni, Helguvík og rat- sjárstöðvunum á Vestfjörðum og Áusturlandi," sagði Matthías.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.