Morgunblaðið - 20.05.1989, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 20.05.1989, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1989 „Wvcl& meé Lofté l Sfxtinsku kcipeLLunnL f Eg eroréinnhundleéur dL hv'iiu afburhvitu.." Þú ert slakur ökukennari, þykir mér... Græðum landið Til Velvakanda. Ég vil taka undir með höfundi greinarinnar „Tökum flag í fóstur" sem birtist í Velvakanda fyrir skömmu. Landið okkar er illa farið og er víðast hvar sauðfjárbeit um að kenna. Á allra síðustu árum hafa íslendingar tekið við sér og friðað nokkur svæði og hafist hefur verið handa með uppgræðslu þeirra. Friðað land grær að vísu upp af sjálfu sér en það tekur langan tíma. En landgræðsuverkefnið er ekki auðvelt. Það er ekki nóg að taka flag í fóstur ef sauðkindin kemst þar að. Hún ieitar í nýgræðinginn og getur farið úr góðum haga út á gróðurvana mel til að rífa í sig nokkur nýsprotnar plöntur svo þær ná ekki að dafna. Þýðingarlítið eða þýðingarlaust er að stunda land- græðslu þar sem land er ekki friðað fyrir sauðflárbeit. Við eigum mikla skuld að greiða landinu okkar. Tökum höndum saman og græðum það. Við höfum leikið það grátt öldum saman og nú er tíminn kominn til að snúa þeirri óheillaþróun við. Ræktunarmaður Eru valdhafarnir ánægð- ir með ástandið? Velvakandi góður. Sunnudagsblað Mbl. 7. maí kemur ábyggilega öllum þjóðhollum íslend- ingum til alvarlegrar jhugunar. Þar segir á baksíðu að ÁTVR ætli að bæta 3 nýjum erl. bjórtegundum á markaðinn nú þegar. (Þá vantar ekki gjaldeyrinn.) Þetta þýðir að það á að auka eins og hægt er bjórþambið, fjölga búlunum og minnka svefnfrið fólks. Þá er sagt að í Reykjavík einni séu nú komin um 70 vínveitingahús, líklega fleiri en mjólkurvörubúðir í borginni. Þá er búið að veita yfír 100 vínveitingaleyfi úti um land allt. Sem sagt borgar- og bæjarstjómir telja þetta svo glæstan atvinnuveg að hann þurfí að efla, sérstaklega þegar mörg atvinnufyrirtæki ramba á gjaldþrotabarmi. Er meira upp úr sjoppu- og brennivínsrekstri að hafa en sjósókn og landbúnaði? Það er farið fram hjá reglum í veitingum vímuefnaleyfa, varla sú búla, sem ekki fær meðmæli til rekstrar, og meðmælin oftast... „Munum láta það afskiptalaust" og út á það veitir dómsmálaráðuneytið leyfi. Það er talað um að ÁTVR hafi ekki selt eins mikið af bjór og glæst- ustu vonir þeirra stóðu til en því gleymt að bjórsalan á Keflavíkur- flugvelli þar sem allir ferðamenn fá bjórinn ódýrari hefir ekkert dregist saman. Aukning drykkjuskapar læt- ur ekki á sér standa. Fjöldi þeirra sem á að vera við vinnu og auka telgur þjóðarinnar er blýfastur á bamum og gleymir stund og stað. Ráðamenn þjóðarinnar heimta sitt og vita hvað þeir gerðu þegar þeir veittu þessum „hollu" bjórstraumum yfir landið með handauppréttingum sfnum f þinginu en syngja svo hjá- róma við hátíðleg tækifæri: „Ég vil elska mitt land“. Tala um forvamir sem enginn veit hveijar eru og þeir ekki sjálfir. Sorglegast er þó að vita kvenþjóðina í þessum her og stefna hugsunarlaust á kvennafangelsi framtíðarinnar. Og svo eykst alls- kyns ófamaður meðal þjóðarinnar, fangelsin fyllast, glæpimir vaxa, fjársvik, mútur, vinnusvik, ósann- sögli og áiíka „dyggðir" blómgvast. Fjöldinn er í sárum eftir að hafa léð „kunningjum og vinum" nafn sitt á ábyrgðir og svikarinn stingur af. Lögfræðingar hafa ekki við að greiða úr ömurlegum málum. Uppskeran sést svo m.a. í Mbl. Þar er alvarleggrein sem heitir Gisti- vinir götunnar. Og framhaldi er lofað því af nógu er að taka. Sem sagt, þjóðlíf okkar stefnir niður á við og lífi eftir lífi er fómað á altari vfmunn- ar. Hvílíkt ástand! Er það þetta sem valdhafar telja „batnandi framtíð" þegar þeir eru að semja ný frv. á Alþingi? Við sem vöruðum við þessum ósköpum og börðumst á móti urðum sannspáir, þvf miður. Ég varð fyrir miklum vonbrigðum með þjóðkirkj- una mína sem á að vaka yfir and- legri velferð. Ekkert bofs í barátt- unni. Hún svaf. Og nú varir spumingin. Hvað ætla hinir andlegu og veraldlegu vald- hafar að gera? Eru þeir ánægðir með ástandið eins og það er og loka aug- unum? Árni Helgason Yíkverji skrifar •• 011 teikn eru á lofti um, að verð- bólga muni fara vaxandi á næstu mánuðum. Fyrir launþega þýðir það áframhald rýmunar á kaupmætti og það versta er, að launþegar eru nær varnarlausir, því nýgerðir kjarasamningar em án nokkurrar vísitölutryggingar. Hvað sem hástemmdum yfirlýsingum formanns BSRB líður fer vömverð ört hækkandi, m.a. vegna gengis- sigs og gengisfellinga í smá- skömmtum. Þetta kemur svo sem ekki á óvart miðað við ástand efna- hagsmála og erfiða stöðu atvinnu- vega og fyrirtækja, þótt bláeygir forystumenn ríkisstarfsmanna átti sig ekki á því. XXX Verst er samt að ríkisstjóm fé- lagshyggjuaflanna bætir nú sífellt við nýjum skattapinklum og álögum á almúgann, þrátt fyrir fögm fyrirheitin við gerð kjara- samninganna á dögunum. Það nýj- asta er hækkun benzíngjalds til að mæta auknum kostnaði vegna snjómoksturs. Það gerist á sama tíma og benzínverð mun stórhækka vegna gengisfellinga og hærra inn- kaupsverðs og sú hækkun færir ríkinu sjálfkrafa auknar tekjur vegna skatta og gjalda af benzíni. Þá hyggur ríkisstjómin á stór- felld svik við þau loforð, sem gefin vom um nýtt skattakerfi í stað- greiðslu. Þá vom felldir niður ýms- ir sérskattar um leið og margvísleg- ur frádráttur var afnuminn. Einn af þessum sérsköttum rann til bygginga fyrir aldraða. Nú er ætl- unin að leggja 2.500 króna nef- skatttil þeirrá framkvæmda. Megn- ið af þessum skattpeningum rennur beint í ríkissjóð, en ekki til að búa öldruðum betra ævikvöld. Það er eftir öðm að fela skattpíninguna í skjóli gamla fólksins. Tveir stjórn- arflokkanna gáfu loforðin við skatt- kerfisbreytinguna, Framsóknar- flokkur og Alþýðuflokkur. Alþýðu- bandalagið, Stefán Valgeirsson og stuðningslið ríkisstjórnarinnar í Borgaraflokki gáfu þessi loforð ekki og telja sig því væntanlega geta kinnroðalaust staðið að nýjum og fjölbreyttari skattaálögum. Fólk ætti að búa sig undir það, að ríkisstjómin muni leita enn nýrra leiða til tekjuöflunar næstu mánuði til að standa undir fjára- ustri út og suður — til uppbóta á freðfiskútflutningi (í raun niður- greiðslur á fiski fyrir útlendinga), til landbúnaðar, til útþenslu ríkis- kerfisins (þótt á pappímum sé talað um niðurskurð), til gæludýra stjóm- arflokkanna, til að stoppa upp í stækkandi fjárlagagat og vegna kjarasamninga ríkisstarfsmanna. XXX Víkveiji á ekki annað ráð fyrir launþega en að draga úr út- gjöldum sem kostur er og reyna að auka tekjumar. Það vill til, að nú er vor og því getur fólk létt nokkuð á framfærslukostnaði með því að rækta sem mest eigið græn- meti í görðum sínum eða svalaköss- um, setja niður kartöflur og færa sér í nyt landsins gæði í sumar og haust. Þá er vænlegast að nota bílinn sem minnst en ganga og hjóla í staðinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.