Morgunblaðið - 20.05.1989, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 20.05.1989, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1989 33 H Aðstandendur bókmenntadagskrárinnar um ást og erótík í Iðnó. Athugasemd frá formanni HÍK Bókmenntadag- skrá um ást og erótík í Iðnó Bókmenntadagskrá _ þriðja bekkjar Leiklistarskóla íslands og Leikfélags Reykjavíkur verður um ást og erótík í Iðnó; þriðjudag- inn 23. maí og miðvikudaginn 24. maí klukkan 20.30 og fimmtudag- inn 25. maí klukkan 17. í fréttatilkynningu segir, „Um er að ræða sviðsetta dagskrá með leik, ljóðaflutningi, söng og hljóðfæraleik. Dagskráin í heild er ein órofa leik- sýning, þar sem fléttað er saman efni um ást og erótík úr leikritum, ljóðum, söngtextum og sögum frá ýmsum tímum víða að úr bókmennt- unum — innlendum sem erlendum. í sýninguni er að finna efni allt frá Ljóðaljóðum Gamla testamentis- ins til íslenskra dægurlaga sam- tímans. Sérstaklega ber að nefna efni úr nýlegu amerísku leikriti, Rio Esmeralda, eftir Erin Cressida Wil- son, sem Karl J. Guðmundsson leik- ari hefur þýtt sérstaklega fyrir þessa sýningu. Höfundur leikgerðar og leikstjóri er Guðrún Ásmundsdóttir. Söng- stjóri er Helga Gunnarsdóttir. Leik- hljóð eru flutt af fingrum fram á sýningunni af Pétri Grétarssyni. Leikendur frá Leikfélagi Reykjavíkur eru; Helga Þ. Stephen- sen, Valgerður Dan og Þröstur Leó Gunnarsson og frá Leiklistarskóla íslands (þriðji bekkur 1988-1989); Baltasar Kormákur, Björn Ingi Hilmarsson, Edda Amljótsdóttir, Eggert Amar Kaaber, Erling Jó- hannesson, Harpa Amardóttir, Hilmar Jónsson, Ingvar Eggert Sig- urðsson og Katarína Nolsöe. Helgi Þorgils Friðjónsson held- ur fyrirlestur um iist sína NÚ FER að ljúka sýningu á verk- um eftir Helga Þorgils Friðjóns- son, sem stendur yfir á Kjarvals- stöðum. Helgi sýnir þar 27 málverk, sem hann hefur unnið á síðustu tveimur árum. Sýningin hefur fengið mjög góðar viðtökur og háfa öll helstu listasöfn í landinu fest kaup á verk- um eftir listamanninn, segir í frétt frá Kjarvalsstöðum, og þessi sýning mun nú ferðast til Listamiðstöðvar- innar í Sveaborg, Borgarlistasafns- ins í Eckenförde, í Þýskalandi og síðan til listasafnsíns í Rovaniemi í Finnlandi. í tengslum við sýninguna mun Helgi Þorgils Friðjónsson halda fyr- irlestur um list sína á Kjarvalsstöð- um sunnudaginn 21. maí klukkan 16 í fundarsal safnsins. Tónleikar á Hót- el Borg TÓNLEIKAR Djass Stórsveitar Kópavogs fara fram í dag, laug- ardaginn 20. maí undir stjórn Stefáns S. Stefánssonar. Tónleikamir fara fram á Hótel Borg og hefjast klukkan 17. Á efnisskránni er stórsveitartónlist auk útsetningar eftir Össur Geirs- son básúnuleikara sveitarinnar. Hveragerði: Málverkasýning í Hótel Ljósbrá Hveragerði. GUÐBJÖRG Guðjónsdóttir opn- aði málverkasýningu á annan í hvitasunnu í Hótel Ljósbrá í Hveragerði. Þetta er önnur einkasýning Guð- bjargar, en hún hélt nýlega sýningu í heilsuhæli NLFI. Hún sýnir núna olíumálverk, sem unnin em á und- anfömum árum og eru myndimar allar í einkaeign. Guðbjörg hefur stundað nám í einkatímum og Myndlistaskóla Reykjavíkur. Sýningin verður opin á opnunartíma hótelsins sem er frá klukkan 9—21 alla daga um óákveðinn tíma. - Sigrún * Islandsmeistara- keppni í torfæru- akstri Íslandsmeistarakeppninnií tor- færuakstri 1988 lauk formlega með afhendingu íslandsmeistarat- itla á árlegri árshátíð LÍA. íslandsmeistarar urðu þeir Har- aldur Ásgeirsson í flokki sérútbúinna bíla á Jeepster árg. 67 og Þórður Gunnarsson í flokki götubíla á Ford árg. 42. íslandsmeistarakeppnin 1989 hefst 27. maí á Akureyri. MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Wincie Jónannsdóttir, form. HÍK. í Morgunblaðinu 19. maí birtist frétt sem bar yfirskriftina Tökum ekki við fyrirskipunum frá skóla- stjórnendum. í henni em beinar tilvitnanir í mig sem eru þannig teknar úr samhengi, að merking þeirra breytist. Útkoman er þess eðlis að skólastjórnendur hljóta að líta svo á að formaður Hins íslenska kennarafélags hafi af einhverjum óskiljanlegum ástæðum kastað stríðshanska, og þætti mér ekki óeðlilegt ef Skólameistarafélagið mótmælti formlega þeim ummælum sem eftir mér eru höfð. Einnig er haft ýmislegt eftir mér sem snertir nemendur, og þar er því sleppt sem skiptir máli og annað tekið úr sam- hengi, þannig að nemendur hljóta að reiðast einnig. Það hefur einkennt fréttaflutning Morgunblaðsins af kjaradeilu und- anfarinna vikna hversu vandaður og ábyrgur hann hefur verið. Blaða- menn þar hafa m.a. lagt sig fram um að hafa rétt eftir mér og sam- starfsmönnum mínum öðrum sem þeir hafa vitnað í. Mér þykir þess vegna sérstaklega leitt að sjá svo óvönduð og æsileg vinnubrögð í því blaði, og hef hér fengið inni í blað- inu til að leiðrétta það versta. Á fundi með HÍK kennurum 18. maí var aðalumræðuefnið skólalok og hvemig skyldi staðið að þeim. í ræðu minni vék ég að skólastjóm- endum og sagði m.a.: 1. að yfirlýsingar ýmissa skóla- stjómenda í fjölmiðlum bæm vott um taugaveiklun. Því sagði ég þetta að þeir höfðu, áður en verkfalli lauk, staðhæft um skólalok í smáatriðum, en menntamálaráðherra hefur alla tíð sagt mjög skýrt að ákvarðan- ir þar um yrði að taka í samráði við kennara og nemendur á hveijum stað. Kennarar skyldu því fara inn í skólana til að eiga samráð við stjómendur en ekki bara til að taka við fyrirskipun- um. 2. að Skólameistarafélagið hefði ekki gefið út neinar yfirlýsingar eða ályktanir sem styddu okkar málstaðá neinn hátt, og að félag- ið hefði ekki stutt okkur íjár- hagslega heldur, þó við hefðum formlega farið fram á hvort tveggja. Ég vék aftur á móti að því að einstakir skólastjómendur kynnu að hafa stutt okkur bæði í orði og á borði. Mér er einnig kunnugt um að ýmsir þeirra hafa lagt sig fram um að leita lausnar, þó það hafi ekki verið gert opinberlega. 3. að skólastjómendum bæri að leggja talsverða áherslu á atriði er snerta rekstur, en kennarar hugsuðu einkum um fagleg at- riði, og því væri samráð þessara aðila nauðsynleg til að besta lausnin fengist. Ég gaf alls ekki í skyn að skólastjórnendur legðu lítið upp úr hinu faglega, heldur benti líka á aðrar skyldur þeirra. Eins og fram kemur í greininni var spurt um hvort HÍK hefði haft eitthvert samband við nemendur. Þessu var svarað játandi og sagt TVÆR íslenskar Iistakonur, Borghildur Óskarsdóttir og Guð- rún Krisljánsdóttir, sýndu fyrir skemmstu höggmyndir og olíu- málverk í SCAG galleríinu í Amaliegade. Borghildur sýndi 7 höggmyndir, tvi- og þrískiþtar. Hún hefur tekið frá því sambandi sem hefði verið, en blaðamaður kýs að greina e.kki frá því. Einnig segir hann þannig frá minni umfjöllun um nemendur að það er ekki hægt að skilja annað en að mér þyki erfifðleikar þeirra léttvægir. Þetta er fullkomlega ómaklegt eins og þeir sem sátu fundinn, þ.m.t. blaðmaður Morgun- blaðsins, vita vel. Eftir jafn langa, harðvítuga og skaðlega deiju og verkfall BHMR- félaga hefur verið hljóta allir að leggjast á eitt um að draga sem mest úr skaðanum. Skólastjómend- ur, kennarar og nemendur verða að vinna saman til að svo geti orð- ið, og fjölmiðlar ættu að sjá sóma sinn í að forðast að gera illt verra.“ Aths. ritstj.: Morgunblaðið hefur undir hönd- um segulbandsupptöku af ræðu Wincie Jóhannsdóttur, sem umrædd frétt var byggð á. Eftir að athuga- semd hennar kom fram var frétt blaðsins í gær borin saman við seg- ulbandsupptökuna. Á grundvelli þess samanburðar er athugasemd Wincie Jóhannsdóttur vísað á bug. Henni er að sjálfsögðu heimilt að hlýða á þessa segulbandsupptöku á ritstjómarskrifstofum blaðsins. þátt í fjölda samsýninga víða um Evrópu og í Bandaríkjunum. Guð- rún sýndi 12 olíumálverk. Hún hef- ur fengið góða dóma fyrir einkasýn- ingar heima og á að baki álitlegan námsferil. - G.L.Ásg. íslandsmeistarar í torfæruakstri 1988 talið frá vinstri; Þórður Gunnars- son, Haraldur Ásgeirsson og aðstoðarmaður Þórðar, Rúnar A. Gunnars- son. n Kaupmaimahöfíi: íslenskar konur sýna málverk og höggmyndir Jónshúsi, Kaupmannahöfn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.