Morgunblaðið - 18.02.1990, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
DÁGBÓK
SUNNUDAGUR
18. FEBRÚAR 1990
T T4 APersunnudagur 18. febrúar. 2. sunnudagurí
1 iJAllníuviknaföstu. Biblíudagurinn 49. dagur ársins
1990. Góa byrjar. Árdegisflóð í Reykjavík kl. 11.54 og síðdeg-
isflóð kl. 24.50. Sólarupprás í Reykjavík er kl. 9.14 og sólar-
lagkl. 18.11. Myrkurkl. 19.01. Sólin er í hádegisstað í
Rvíkkl. 13.42ogtunglið erísuðri kl. 7.45. (AlmanakHá-
skóla íslands.)
Ég bið fyrir þeim. Ég bið ekki fyrir heiminum, heldur
þeim sem þú hefur gefíð mér því að þeir eru þínir og
allt mitt er þitt og þitt er mitt. (Jóh. 17,9.-10.)
FRÉTTIR/MANNAMÓT
í DAG gengur góa í garð.
„5. mánuður vetrar að fom-
ísl. tímatali hefst með sunnu-
degi í 18. viku vetrar. Nafn-
skýring er óviss.“ Þannig seg-
ir frá góu í Stjörnu-
fræði/Rímfræði, sem segir
þannig frá konudegi sem er
fyrsti dagur góu: Sagt er að
húsfreyjur hafi átt að „fagna
góu“ þennan dag og að bænd-
ur hafí átt að gera húsfreyjum
eitthvað vel til. Þess munu
einnig dæmi að hlutverk hjón-
anna í þessum sið hafi verið
hið gagnstæða.
LÆKNAR. í tilk. frá heil-
brigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu í Lögbirtingi seg-
ir að það hafi veitt Oskari
Þór Jóhannssyni cand.med.
et chir. og Gyrit Hagman
cand.med. et chir. leyfí til að
stunda almennar lækningar.
Þá hefur ráðuneytið veitt
Erlingi Þorsteinssyni lækni
leyfi til að reka lækningastofu
út þetta árið.
ÁRBÆJARKIRKJA. í kvöld
kl. 20 er æskulýðsfundur.
S AMTÖK um sorg og sorgar-
viðbrögð hafa opið hús í safn-
aðarheimili Laugarneskirkju
nk. þriðjudagskvöld kl. 20-22.
Á sama tíma er svarað í
uppl.síma, 34516.
KVENNADEILD Styrktar-
fél. lamaðra og fatlaðra held-
ur aðalfund annað kvöld,
mánudag, kl. 20.30 á Háaleit-
isbraut 11. Að loknum fund-
arstörfum verður borið fram
kaffi og meðlæti.,
NESKIRKJA. Á morgun,
mánudag, barnastarf 12 ára
kl. 17, og kl. 19.30 13 ára
og eldri.
SAMVERKAMENN Móður
Teresu halda mánaðarlegan
fund sinn annað kvöld, mánu-
dag, í safnaðarheimilinu Há-
vallag. 16 kl. 20.30.
LISTSKREYTINGASJÓÐ-
UR ríkisins augl. í Lögbirtingi
eftir umsókn um framlög úr
sjóðnum sem hefur aðsetur í
menntamálaráðuneytinu.
Stjórn sjóðsins setur umsókn-
arfrestinn vegna framlaga á
þessu ári til 1. júlí nk. í augl.
eru birtar þær reglur sem
stuðst er við. Ekki er þess
getið hve miklu sjóðsstjórnin
hafí úr að spila.
SELJAKIRKJA. Á morgun
er barna- og æskulýðsdagur.
Fundur yngri stúlkna í KFUK
er kl. 17.30 og eldri kl. 18.30.
Fundur í Æskulýðsfél. Sela
er um kvöldið kl. 20.
KVENFÉL. Breiðholts held-
ur aðalfundinn annað kvöld,
mánudag, í Skíðaskálanum í
Hveradölum og verður lagt
af stað frá Breiðholtsskóla
kl. 19.30.
MIGRENSAMTÖKIN halda
fræðslufund á fímmtudags-
kvöldið kemur kl. 20.30 í
Templarahöllinni við Eiríks-
götu. Helgi Valdimarsson
læknir flytur fyrirlestur um
orsakaþætti migrens. Þá mun
læknirinn svara fyrirspurnum
um bókina „Migrenbylting-
in“. Fundurinn verður öllum
opinn.
SELTJARNARNES-
KIRKJA. Annað kvöld kl. 20
er æskulýðsfundur.
AFLAGRANDI 40. Félags-
miðstöðin hefur opið hús á
morgun, mánudag. Spilað
verður frá kl. 13 til 16.30.
KVENFÉL. Kópavogs held-
ur spilafund, félagsvist, nk.
þriðjudagskvöld kl. 20.30 og
er spilakvöidið öllum opið.
FÉL. eldri borgara hefur opið
hús í dag í Goðheimum kl.
14 og er þá spilað og teflt og
í kvöld kl. 20 dansað. Nk.
þriðjudag verður bókmennta-
kynning á Hótel Lind við
KROSSGATAN
LÁRÉTT: — 1 máttug, 5
skömm, 8 miskunnin, 9 dýr,
11 veík, 14 vond, 15 ilmur,
16 peningar, 17 eyktamark,
19 lokaorð, 21 tignara, 22
varkárari, 25 svelgur, 26
mál, 27 fari á sjó.
LÓÐRÉTT: — 2 leyfi, 3
halda sig, 4 smáaldan, 5
skekkjan, 6 flana, 7 eyði, 9
kvennabósi, 10 fríða, 12
færðir í letur, 13 hímdi, 18
hóta, 20 handsama, 21 tryllt,
23 tveir eins, 24 verkfæri.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: — 1 spræk, 5 hæfur, 8 ráfar, 9 halur, 11 rafts,
14 nam, 15 senna, 16 aflar, 17 rýr, 19 vein, 21 menn, 22
nýtileg, 25 kúa, 26 ýra, 27 tía.
LÓÐRETT: - 2 púa, 3 æru, 4 kárnar, 5 harmar, 6 æra,
7 urt, 9 Húsavík, 10 lundina, 12 fallegt, 13 stranda, 18
yfir, 20 ný, 21 me, 23 Tý, 24 la.
Rauðarárstíg kl. 15-17. Próf.
Sveinn Skorri Höskuldsson
segir frá Gesti Pálssyni og
verður lesið úr verkum hans.
SYSTRA- og bræðrafél.
Keflavíkurkirkju heldur fund
í Kirkjulundi annað kvöld kl.
20.30. Að fundarstörfum
loknum verður farið í heim-
sókn í Byggðasafn Suður-
nesja og það skoðað undir
leiðsögn.
HVASSALEITI 56-58. Á
morgun fer fram bridskennsla
í opnu húsi kl. 13. Góukaffí
verður drukkið kl. 15.
KFUK, Hafnarfirði. AD-
deildin efnir til kvöldvöku nk.
þriðjudagskvöld kl. 20.30 í
húsi félaganna. Fjölbreytt
efni verður flutt. Edda Gísla-
dóttir flytur hugleiðingu.
DÓSENTSTAÐA. í lækna-
deild Háskóla íslands er Iaus
til umsóknar dósentstaða í
sýklafræði. Menntamálaráðu-
neytið auglýsir stöðuna, með
umsóknarfresti til 23. þ.m.
Gert er ráð fyrir að staðan
verði veitt 1. júlí nk.
ÞENNAN dag, 18. febrúar,
hefur það gerst tvisvar sinn-
um að snjóflóð hafa fallið.
Árið 1885 féll snjóflóð austur
á Seyðisfirði. í því fórust 24
menn. Og árið 1910 féll snjó-
flóð vestur í Hnífsdal og fór-
ust 20 manns. Vitaskipið
Hermóður fórst þennan dag
árið 1959.
SKIPIN_____________
REYKJAVÍKURHÖFN.
I gær lagði Skógarfoss af
stað til útlanda. Esja kom_úr
strandferð og togarinn Ás-
björn var væntanlegur úr
söluferð og Viðey er væntan-
leg núna um helgina af veið-
um til löndunar. í dag er
Grundarfoss væntanlegur að
utan og á morgun leiguskipið
Skandia, einnig að utan.
HAFNARFJARÐAR-
HÖFN. í fyrradag kom tog-
arinn Har. Kristjánsson inn
til löndunar. í fyrrakvöld lagði
togarinn Víðir af stað í sölu-
ferð til útlanda. ísnes fór á
ströndina í fyrrakyöld. 2.000
tonna erl. flutningaskip með
heimahöfn í Vínarborg,
Salzach, kom og fór að
bryggju í Straumsvík. Það fór
til Reykjavíkurhafnar í gær.
Væntanleg voru til Hafnar-
ijarðar frystiskipið Nord-
landina og saltskip, Akmar
I, sem er með 6.000 tonn af
salti. í dag er skip væntanlegt
til Straumsvíkurhafnar með
súrálsfarm.
MINNINGARKORT
MINNINGARKORT Samb.
ísl. kristniboðsfélaga fást í
aðalskrifstofunni, Amt-
mannsstíg 2B (húsi KFUM),
s. 17536/13437.
ÞESSIR LEIKFÉLAGAR, Jóhann Indriðason, Atli Rúnar
Steinþórsson og Jónas Haraldsson, héldu fyrir allnokkru
hlutaveltu til styrktar Blindrafélaginu. Strákarnir söfn-
uðu tæplega 2.070 kr. til félagsins.
ÁHEIT OG GJAFIR
ÁHEIT á Strandarkirkju
afhent Morgunblaðinu: Jó-
hannes Guðjónss., 1000, Guð-
þjörg, 1000, Kristbjörg 500,
O.S.G. 500, SS 500, HH 500,
SBB 500, SE 500, KH 500,
LS 500, Önefnd 500, Sigrún
E1 500, NN 500, Ónefnd 400,
NN 300, Ónefnd 100, Ónefnd
100, Sigurður Antóníusson
100, RÍ 100.
ÞETTA GERÐIST
18. febrúar
ERLENDIS:
1478: Hertoginn af Clarence
tekinn af lífi í The Tower of
London.
1685: La Salle stofnar fyrstu
nýlenduna í Texas.
1813: Rússar taka Hamborg
eftir uppþot gegn Frökkum.
1856: Tilskipun um umbætur
gefin út í Tyrklandi.
1861: Italska þingið sett og
kýs Viktor Emmanúel kon-
ung.
1874: Benjamin Disraeli
myndar ríkisstjórn í Bret-
landi.
1884: Lið Gordons kemur til
Khartoum, en ;,Mahdíinn“
neitar að semja við hann.
1900: Uppgjöf Piet Cronje
fyrir Bretum við Paanderberg
í Suður-Afríku.
1915: Kafbátahafnbann Þjóð-
veija á Bretlandi hefst.
1916: Síðasta þýzka setuliðið
í Kamerún gefst upp.
1945: Orrustan um Iwo Jima
hefst.
1965: Gambía fær sjálfstæði.
1969: Árás arabískra hryðju-
verkamanna á flugvél É1 A1
í Zúrich.
1974: Olíubanni Arabaríkj-
anna á Bandaríkin aflétt.
1978: Ritstjóri „A1 Ahram“
myrtur í Nikósíu, Kýpur.
HÉRLENDIS:
1230: Hallur Gizurarson lög-
sögumaður látinn.
1875: Eldur í Mývatnsöræf-
um.
1878: Alþýðuskóli í Flens-
borg.
1885: 24 fórust í snjóflóði á
Seyðisfirði.
1910: 20 fórust í snjóflóði í
Hnífsdal.
1911: Auður Auðuns fædd.
1914: Fossafélagið stofnað.
ORÐABÓKIIM
Að fara erlendis
Fyrir viku var vikið að því,
að mörgum þætti ofangreint
orðalag tæplega rétt mál,
þar sem erlendis er í reynd
svonefnt staðaratviksorð og
táknar því dvöl á stað, en
ekki hreyfingu til staðar.
Því væri óeðlilegt að tala
um að fara erlendis, en aft-
ur rétt að tala um að vera
erlendis eða dveljast erlend-
is. En hvað segja heimildir
um þetta? I Orðabók
Menn.sj. segir, að ao. er-
lendis merki: í öðru landi,
en forn eða úrelt merking
sé: í annað land, annan
heim. Þessi skýring er í
samræmi við aðrar ob. Elztu
dæmi í OH eru frá miðri
18. öld og þá einmitt um
að fara eriendis. Til er blað
með rithendi Eggerts Ólafs-
sonar, þar sem segir m.a.:
„margir landar vorir,’ sem á
þessum dögum fara eriend-
is, gjörast miklir ættlerar."
Eru síðan dæmi um þessa
merkingu í ritum, allt fram
á okkar daga. í riti frá um
1840 stendur þetta: „hann
ásetti sér að fara erlendis. “
í tímaritinu Ægi 1950 segir
svo: „voru lifrarmjölssýnis-
horn xx send eriendis". En
svo eru einnig nokkur dæmi
um staðarmerkinguna.
Enda þótt dæmi séu til um
hvort tveggja, tel ég fara
betur á, að erlendis sé haft
um dvöl í öðrum löndum:
Hann er erlendis = dvelst
utan lands.
- JAJ.