Morgunblaðið - 20.03.1992, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 20.03.1992, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1992 13 NORRÆNT GIGTARAR em tegund bakverkja * eftirArna Tómas Ragnarsson Einn algengasti kvilli sem læknar sjá á stofum eru bakverkir. Oftast stafa þeir af of miklu álagi á bak- ið, t.d. miklum setum eða erfiðis- vinnu. Sem betur fer lagast þessir verkir yfirleitt eft- ir stuttan tíma en » stundum verða jA bakverkir þrálátir eða það sem lækn- ar ^alla ..krónísk- ir“. Meðal þeirra orsaka sem þá geta legið að baki er gigtsjúkdómur sem kallast hrygggigt eða hrygg-ikt (Spondylitis ankylopo- etica). Tíðni - orsök Hrygggigt kemur oftast fram á aldrinum 20-30 ára og er miklu algengari hjá körlum en konum. Talið er að tæplega 1% fólks fái þennan sjúkdónt. Orsök et' óþekkt en ónæmisfræðilegit' þættir eru taldir liggja að baki og er sjúkdóm- urinn að miklu leyti arfgengur. Einkenni Sá sem fær hrygggigt finnur fyrir vet'kjum og miklum stirðleika í baki, einkum á morgnana í allt að 2-3 klukkustundir. Það er hinn mikli morgunstirðleiki sem skilur hrygggigtina frá „venjulegum“ bakverkjum sem yfirleitt eru hvað skástir á morgnana. Einkenni hrygggigtar koma fram í mjóbaki og bijósthrygg, oft einnig í hálsi og bijóstkassa og stundum í útlima- liðum sem geta bólgnað. Þá fylgja iðulega einkenni frá sinafestum en aðrir fylgikvillar geta m.a. verið blöðruhálskirtilsbólga og lithimnu- bólga í augum. Greining og meðferð Þegar greina á hrygggigt getur saga sjúklings og skoðun læknis gefið sterkar vísbendingar en örugg greining fæst aðeins með því að sjá einkennandi breytingar á röntgen- mynd. ísótópa-skann getur hjálpað við greiningu en venjulegar blóð- rannsóknir oft lítið; stundum má þó sjá hækkun á blóðsökki. Nær allir sem hafa hrygggigt eru með svokallaða HLA B27 vefjagerð sem hægt er að greina með venjulegu blóðsýni. Þessi vefjagerð gengur í erfðir og hafa hana tæplega 20% Íslendinga en aðeins lítill hluti þeirra hefur þó sjúkdóminn. Meðfet'ð sem leiðir til fullkom- innar lækningar er ekki fyrir hendi en hægt er að minnka óþægindi og hindra óæskilegar afleiðingar sjúk- dómsins. Séu einkenni veruleg eru gefin „bólgueyðandi" gigtarlyf sem minnka stirðleika og draga úr verkj- um. Ef einkenni verða meiri eru gefin enn sterkari lyf sem geta haft bremsandi áhrif á sjúkdóminn. Eitt helsta atriði meðfet'ðar er sjúkraþjálfun sem miðar að því að halda við hreyfigetu og að auka hana eftir mætti. Leiðbeint er um heimaæfingar og kenndar réttar vinnustellingar. Hópæfingar undir leiðsögn sjúkraþjálfara hafa einnig gefist vel. Slíkar æfingar fara m.a. fram í þjálfunarstöðinni Mætti og einnig er nú unnið að því að skipu- leggja hópþjálfun á vegum Gigtar- Þú svalar lestrarþörf dagsins ' sjöum Moggans! félags íslands, m.a. í vatni, sem vonir standa til að geti hafist á þessu ári. Öll slík þjálfun hjálpar til við að fyrirbyggja þá hættu sem af sjúkdómnum stafar, þ.e. að hryggurinn stirðni og festist í bog- inni stöðu. Horfur Eftir allmörg ár brennur hrygg- gigt oftast út. Þótt stirðleiki sé þá enn í baki verður bæklun sjaldan mikil hafi meðferð verið rétt. Lang- flestir geta því lifað nokkurn veginn eðlilegu lífi þótt taka þurfi tillit til sjúkdómsins hvað starfsval og starfsaðstöðu snertir. Fyrir nokkru var stofnuð deild sjúklinga með hrygggigt innan Gigtarfélags íslands. Upplýsingar „Hrygg'gigt kemur oft- ast fram á aldrinum 20-30 ára og er miklu algengari hjá körlum en konum. Einkenni hennar koma fram í mjóbaki og brjóst- hrygg, oft einnig í hálsi og brjóstkassa og stundum í útlimaliðum ' sem geta bólgnað.“ um starfsejni þess má fá hjá Gigtar- félaginu, Ármúla 5, í síma 35310. Höfundur er sérfræðingur í gigtsjúkdómum. Árni Tómas Ragnarsson ilrauna Tilraunaútsendingar Sýnar hefjast laugardaginn 21. mars kl. 17.00 og fyrst um sinn verða þœr aðeins um helgar milli kl. 17.00 og 19.00. Tilraunaútsendingar Sýnar verða í opinni dagskrá til að byrja með**. Sendar Stöðvar 2 og Sýnar eru á Vatnsendahœð. Þeir sem ná útsendingum Stöðvar 2 frá Vatnsenda (Rás 12*) koma einnig til með að geta náð tilraunaútsendingum Sýnar. (Rás 6*). Athugið að aðeins þarf að endurstilla sjónvarpstœkið til að ná þessum útsendingum að svo stöddu. Allar breytingar sem gera þarf á myndlyklum verða auglýstar síðar. Allar upplýsingar varðandi tilraunaútsendingar þessar og dagskrá eru veittar í síma 67 22 55. SÝN * Rás er útsendingartíðni sendis, ekki minnis- hnappur á sjónvarpstæki/myndlykli. ** Áhorfendur sem nota endurvarpssenda á eftirtöldum stöðum á liöfuðborgarsvœðinu og nágrenni ná tilraunailtsendingum Sýnar illa eða ekki: Víðines (Mosfellsbær), Borgarspitali (hluti Kópavogs), Digranes (neðanvert Seljahverfi). Gamli Garður (Pinghollin), Porbjörn (Grindavík).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.