Morgunblaðið - 20.03.1992, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 20.03.1992, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 20. MARZ 1992 Fyrirspurn: Víðtækari takmarkanir á sölu o g neyslu tóbaks ÞÓTT ekki séu nema rúm sjö ár síðan núgildandi lög um tóbaks- varnir tóku gildi „þarf að herða ýmis ákvæði þeirra og bæta við nýjum ákvæðum til að nálgast það markmið, sem sett hefur ver- ið, að draga úr og síðar útrýma reykingum," segir Þuríður Back- man (Ab- Al) sem hefur lagt fram fyrirspurn til heilbrigðisráð- herra um endurskoðun laga um tóbaksvarnir. Sighvatur Björgvinsson heil- tóbaksvarnir hafi vakið athygli brigðisráðherra er krafinn skrif- iegra svara: 1) Hvernig gengur endurskoðun laga um tóbaksvarn- ir frá 1984? 2) Hveijir annast endurskoðunina? 3) Verður frum- varp til nýrra tóbaksvarnarlaga lagt fram á yfirstandandi þingi? Þuríður segir að lögin um víða um heim og þótt til fyrir- myndar. En þótt ekki séu nema rúm sjö ár síðan lögin tóku gildi þurfi að herða ýmis ákvæði þeirra og bæta við nýjum ákvæðum til að nálgast það markmið, sem hefði verið sett; að draga úr og síðar útrýma reykingum. Af þeirri reynslu sem hefði fengist af heil- brigðisfræðslu ekki hvað síst í skólum, væri varla að vænta meiri árangurs af tóbaksvamarstarfí meðal barna og unglinga, nema fastar væri tekið á þeim málum í þjóðfélaginu. Umhverfi barna og unglinga þyrfti að breytast og kæmi þar til kasta löggjafans að hafa frumkvæði um enn víðtækari og markvissari löggjöf um tak- markanir á tóbakssölu og tóbaks- neyslu. Tóbaksvarnarlöggjöfin sé einnig viðspyrna gegn sterkari fíkniefnaneyslu. Sumarþing mjög líklegt Þingforseti segir rangt eftir sér haft af EFTA-fundi SALOME Þorkelsdóttir forseti Alþingis segir að fundargerð af 'óformlegum fundi forseta þjóðþinga EFTA-Ianda sé röng og vill- andi. Það sé hrein firra að ætla Alþingi að afgreiða 200 lagafrum- vörp á 4-6 vikum. En hún hefði sagt það líklegt að koma þyrfti til aukafunda Alþingis í sumar, hugsanlega I lotum, hugsanlega 4-6 vikur. Salome Þorkelsdóttir forseti Alþingis kvaddi sér hljóðs á 105. fundi Alþingis í gær. Þingforseti sagði tilefnið vera það að á síðasta fundi hefðu orðið nokkur orðaskipti þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (SK-Rv) hefði gert að umræðuefni ... minnispunkta frá skrifstofu Frí- verslunarbandalags Evrópu, EFTA, um óformlegan óundirbúinn rabb- fund forseta þjóðþinga EFTA-landa í Stassborg. í þessum punktum væri eftir sér haft að Alþingi ætl- aði sér að afgreiða 200 lagafrum- vörp á 4-6 vikum. Komið að óvörum Þingforseti sagði að þegar hún hefði verið innt skýringa á ummæl- um sem eftir henni væri höfð í þess- um minnispunktum, þá hefði hún ekki haft tækifæri til þess að líta yfir þá, enda hafi þeir þá verið nýkomnir í bréfi frá forseta aust- urríska þingsins. Nú hefði hún lesið ,Jiessa minnispunkta eða fundargerð og borið hana saman við eigin minn- ispunkta. Fundargerðin væri bæði röng og villandi, þótt miskilningur- inn væri reyndar auðrakinn. „Eg sagði í þessu rabbi að ég teldi líklegt — ef unnt yrði að leggja EES-samninginn fram í maí og heíja umræður um hann þá — að koma þyrfti til sumarfunda eða aukafunda Alþingis, hugsanlega í lotum, hugsanlega í fjórar til sex vikur, til þess að fjalla um og af- greiða sjálfan EES-samninginn.“ Forseti Alþingis sagðist einnig hafa greint sínum viðmælendum frá því að Alþingi yrði að taka sér góðan tíma til að afgreiða lagabreytingar sem þyrftu að fylgja í kjölfar samn- ingsins og einnig bent á það að 30. september féllu öll óafgreidd þing- mál niður samkvæmt þjngsköpum og yrði að endurflytja. í umræddri fundargerð væri þessu hins vegar ruglað saman og eftir sér haft að Alþingi ætlaði sér að afgreiða 200 lagafrumvörp á fjórum til sex vik- um. Slíkt væri hrein firra og hefðu þegar verið gerðar ráðstafanir til að fá það leiðrétt. Þingforseti vildi vegna þessa til- efnis ítreka það að haft yrði samráð við þingflokka um tilhögun þing- halds ef bregða þyrfti frá fyrirliggj- andi starsáætlun Alþingis. En eins og nú stæði á, lægi ekkert fyrir og væri mikil óviss um EES-málið vegna margvíslegra tafa eins og öllum þingmönnum væri kunnugt. MMnOI Forseti Alþingis harmaði að þessi ranga og villandi fundargerð skyldi hafa orðið tilefni til orðaskipta í þingsalnum og fréttaefni fjölmiðla. Unnt hefði verið að leiðrétta mis- skilninginn ef málið hefði verið bor- ið undir forseta áður utan fundar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (SK-Rv) sagði e.t.v. hafa verið ástæðu til að bera þessa fundargerð fyrirfram undir þingforseta. En sín reynsla af fundargerðum frá EFTA hefði ekki gefið tilefni til að ætla að þessar upplýsingar væru rangar. Hún fagnaði því að Alþingi væri ekki svo naumt skammtaður tími til þessarar vinnu sem 4-6 vikur. Hún lagði áherslu að enn væri óvíst hvenær ESS-samningurinn kæmi fyrir þingið en ef til þess kæmi væri nauðsynlegt fyrir þingmenn að hafa einhveija vinnuáætlun í höndunum. Svavar Gestsson (Ab- Rv) og Páll Pétursson (F- Nv) tóku undir það að nauðsynlegt væri að fá nán- ar upplýst hvernig ætti að standa að þessari vinnu ef af yrði. Páll Pétursson ítrekaði tilmæli um upp- lýsingar um hvaða lagabreytingar yrði að gera; það vantaði tæmandi skrá yfir nauðsynlegar lagabreyt- ingar. Aðspurð sagði Þuríður Back- mann sem hefur undanfarið setið á þingi í íjarveru Hjörleifs Gutt- ormssonar (Ab-Al) að hún hefði í starfi sínu sem fræðslufulltrúi Krabbameinsfélags Austurlands orðið áskynja — og þyrfti ekki mikla þefvísi, — að ólöglegar reyk- ingar ungmenna undir sextán ára aldri væru algengar og væri að bersýnilega litlum erfiðleikum háð fyrir unglingana að kaupa þennan varning. Nauðsynlegt væri að taka á þessu máli, hvort það væri ekki íhugunarefni að það þyrfti sér- stakt leyfi til að selja þennan varn- ing. En einnig yrði að huga að öðrum neyslumáta tóbaksins sér- staklega væri snuffneysla og jafn- vel munntóbaksneysla orðin veru- legt áhyggjuefni. Nikótíninnihald- ið þarna væri hátt og fyrir suma einstaklinga væri stutt yfir í annað sterkara. Varaþingmaður Aust- firðinga taldi einnig nauðsynlegt að reyna að forða mönnum frá tóbaksnautn og neyslu með verð- stýringu, þ.e.a.s. hærra verði á tóbaksvörum. Stuttar þingfréttir Auglýst í Alþýðublaði Guðrún Helgadóttir (Ab-Rv) lagði fram fyrir nokkru fyrir- spurnir um auglýsingakostnað ráðuneyta í Alþýðublaðinu. Hversu háa upphæð ráðuneytin greiddu fyrir auglýsingar í Al- þýðublaðinu frá 1. maí 1991 til 1. mars 1992. Guðrún Helga- dóttir beindi fyrirspurnum sínum einungis til þeirra ráðuneyta sem eru undir tilsjón Alþýðuflokks- manna. Fjögur ráðuneyti hafa nú svarað skriflega fyrirspurn hennar. Einungis ráðuneyti heil- brigðis- og tryggingamála á eftir að svara. Utanríkisráðuneytið hefur upplýst að það hafi auglýst fyrir 422.880 krónur í Alþýðublaðinu. Auglýstir voru kynningarfundir með utanrikisráðherra um EES og GATT. Einu sinni var auglýst laus staða til umsóknar. Á fyrrgreindu tímabili greiddi félagsmálaráðuneytið fyrir aug- lýsingar í Alþýðublaðinu, alls 105.078 kr. í svari ráðuneytisins eru tilgreind alls sex skipti sem ráðuneytið auglýsti í blaðinu. Auglýstir voru viðtalstímar fé- lagsmálaráðherra á Norðurlandi, kynningarfundir með sveitar- stjórnum, orðsending til atvinnu- rekenda, umsóknir um Evrópu- ráðsstyrki á sviði félags- og vinnumála. Tvívegis var auglýst lokun aðalskrifstofu vegna jarðarfara. Iðnaðarráðuneytið auglýsti á fyrrgreindu tímabili fyrir 47.734 kr í Alþýðublaðinu. Auglýstir voru viðtalstímar ráðherra. Viðskiptaráðuneytið auglýsti fyrir 119.111 kr. Meðal þess sem auglýst var, voru viðtalstímar ráðherra, námskeið í verðbréfa- miðlun o.fl. Skýrsla um Norður-Atlantshafsþingið 1992: Fortíð Alþýðubandalagsins ljót - segir Karl Steinar Guðnason FORTÍÐ Alþýðubandalagsins er ljót og ættu menn þar á bæ að biðj- ast afsökunnar á henni, segir Karl Steinar Guðnason (A-Rn) formað- ur íslandsdeildar Norður-Atlantshafsþingsins. Björn Bjarnason (S-Rv) þakkar formanninum þörf orð og tímabær. Kristinn H. Gunn- arsson (Ab-Vf) segir Karl Steinar og Björn vera frosna í hugsana- gangi kalda stríðsins. Kork*o*Plast Sænsk gæðavara KORK-gólfflísar með vinyl-plast-áferð Kork-o-Plast; í 10 gerðum Veggkork í 8 gerðum. Ávallt til á lager Aðrar korkvörutogundir á lager: Undirlagskork í þremur þykktum Korkvélapakkningar í tveimur þykktum Gufubaöstofukork Veggtöflu-korkplötur í þremur þykktum Kork-parkett venjulegt, í tveimur þykktum Einkaumboö á íslandi: Þ. Þ0RGRÍMSS0N & C0 Ármúla 29 • Reykjavík ■ Sími 38640 Skýrsla um starf Norður-Atl- antshafsþingsins 1992 varð tilefni snarpra orðaskipta í gær. Atlants- hafsþingið sækja þingmenn þjóð- þinga Atlantshafsbandalagsins, NATO. 27. . febrúar gerði Karl Steinar Guðnason (A-Rn) grein fyr: ir starfi íslandsdeildar þingsins. í framsöguræðu sinni þá gagnrýndi Karl Steinar Aþýðubandalagsmenn, Alþýðubandalagið og fyrirrennara þess, Sósíalistaflokkinn og Komún- istaflokkinn. Hann hvatti til þess að menn könnuðu sagnfræðilegar heimildir. Karl Steinar taldi næsta líklegt ef ekki fullvíst að þá myndi margt skuggalegt koma í ljós. Það varð að fresta frekari umræðum um þessa skýrslu en í gær var umræðu framhaldið. Gamall stíll Kristinn H. Gunnarsson (Ab- Vf) sagði að framsöguræða Karis Steinars Guðnasonar frá því í fyrra mánuði hefði um margt verið í gömlum stíl. Það væri leitt til þess að vita að enn væru menn fastir í gömlum viðjum; freðnir í fortíðinni og tryðu á kalda stríðið. Kristinn taldi að formanni Islandsdeildarinn- ar stæði nær að kynna sér kúgun á Kúrdum í NATO-landinu Tyrk- landi heldur en vega að Alþýðu- bandalagsmönnum. Hann kvaðst ekki þurfa að biðjast afsökunar á því sem einhver hefði einhvern tím- ann sagt í Alþýðubandalaginu eða biðjast afsökunar fyrir orð og at- burði sem jafnvel hefðu gerst fyrir sinn fæðingardag. Björn Bjarnason (S-Rv) taldi ástæðu til að þakka Karli Steinari fyrir sína þörfu og tímabæru ræðu. Hann taldi að þróun Atlantshafs- þingsins myndi mótast af þeim breytingum sem væru í Evrópu og á Atlantshafsbandalaginu. Nú væru fundir í höfuðstöðvum bandalagsins ekki einungis með fulltrúum frá aðildalöndum heldur einnig frá Austur-Evrópu og þeim landsvæð- um sem Svovétríkin hefðu náð til. Atlantshafsþingið gæti orðið virkur samráðsvettvangur í öryggis- og varnarmálum. Þetta þing ætti að geta starfað samhliða og í nánu samstarfi við Evrópuþingið. Fortíðaruppgjör Ræðumaður kvaðst sjálfur hafa mátt sæta ákúrum frá þingmönnum Alþýðubandalagsins fyrir kalda- stríðshugsunarhátt. Björn taldi að ef einhveijir væru í fjötrum kalda stríðsins væru það þingmenn Aþýðubandlagsins sem treystust ekki til að taka þátt í þessu sam- starfi þingmanna. Þeir gætu ekki lagað sig að þeim breytingum sem orðið hefðu. Öll fyrrverandi ríki Varsjárbandalagsins hefðu óskað eftir samstarfi og aðild að Atlants- hafsbandalaginu. En ekki Alþýðu- bandalagsmenn þeir treystust ekki til að gera upp við sína fortíð. Steingrími J. Sigfússyni (Ab- Ne) fannst ræður Karls Steinars Guðnasonar og Björns Bjarnasonar nánast heimilislegar; vekja upp bemskuminningar. En Steingrím fýsti ekki á Atlantshafsþing, taldi það þingmannaklúbb eða viðhengi við hernaðarbandalag sem hefði tapað sínum óvin og þar með til- gangi. Ræðumaður hvatti til þess að NATO fylgdi í kjölfar Varsjár- bandalagsins og legði sig niður. Hann óttaðist að áframhaldandi til- vera NATO myndi draga hugsana- gang fortíðar til framtíðarinnar, hugsanagang vígbúnar og gereyð- ingarfælingar. Steingrímur taldi það ámælisvert og afsökunarefni að Karl Steinar hefði í sinni fram- söguræðu, sem hann flytti fyrir hönd þingmannahóps, blandað sam- an við sínum persónulegu skoðun- um og sögutúlkunum. Karl Steinar Guðnason sagði að ánægulegt að þessi skýrsla hefði orðið tilefni nokkurrar umræðu. Þeir sem hefðu beitt fyrir varn- arsamstarfi lýðræðisþjóða hefðu verið rægðir og beittir lygum. Hann hefði í sinni framsöguræðu vakið athygli á nokkrum sögulegum stað- reyndum sem væri ástæða til að rifja upp og því yrði haldið áfram þangað til Alþýðubandalagið bæðist afsökunar á sinni fortíð sem væri ljót. Fleiri þingmenn tóku þátt í þess- ari umræðu sem stóð u.þ.b. tvo tíma.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.