Morgunblaðið - 10.05.1992, Síða 4
4 FRETTIR/YFIRLIT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. MAÍ 1992
ERLENT
INNLENT
Miðlunar-
tillaga
samþykkt
Mikill meirihluti verkalýðsfé-
laga landsins samþykkti í al-
mennri atkvæðagreiðslu miðlun-
artillögu ríkissáttasemjara til
lausnar kjaradeilu á vinnumark-
aði. Vinnuveitendur samþykktu
tillöguna nema hvað varðar vinnu
hjá Islenska álfélaginu í Straums-
vík. Er með því kominn samningur
milli þeirra 97 félaga innan ASÍ
sem samþykktu tillöguna og
vinnuveitenda annarra en ÍSAL.
Níu félög felldu tillöguna og eru
þar með áfram með lausa samn-
inga. í lok vikunnar var búið að
telja atkvæði hjá 25 félögum innan
BSRB og var miðlunartillagan
samþykkt í öllum félögunum nema
einu.
ÍSAL felldi miðlunartillögu
Framkvæmdastjóm Vinnuveit-
endasambands íslands felldi miðl-
unartillögu ríkissáttasemjara hvað
varðar ÍSAL, að ósk fyrirtækisins,
í kjölfar þess að upp úr sérkj-
araviðræðum samninganefndar
starfsmanna og fyrirtækisips
slitnaði í byijun vikunnar. Starfs-
menn samþykktu miðlunartillög-
una. í viðræðunum lagði ÍSAL
áherslu á að fá svipaðan rétt til
stjórnunar og til að nýta sér utan-
aðkomandi verktaka og önnur ís-
lensk fyrirtæki hefðu, að sögn
Þórarins Þórarinssonar fram-
kvæmdastjóra VSÍ. Gylfi Ing-
varsson aðaltrúnaðarmaður
starfsmanna ISAL sagði að fyrir-
tækið hefði aldrei ætlað að semja
við starfsfólkl aðeins stillt því upp
við vegg.
íslenskur hugbúnaður gæti
valdið byltingu
Nýr hugbúnaður sem þróaður
hefur verið af íslenska fyrirtækinu
Softis hf. og auðveldar mjög tölvu-
forritun, gæti haft í för með sér
ERLENT
Skammlíf
sjálfstæðis-
yfirlýsing
ÞINGIÐ á Krím lýsti yfir sjálf-
stæði skagans á þriðjudag og við-
skilnaði við Úkraínu og boðaði
jafnframt þjóðaratkvæðagreiðslu
til staðfestingar yfirlýsingunni.
Höfðu þingmenn uppi stór orð um
að hvika hvergi í þessu máli en
daginn eftir ventu þeir sínu kvæði
í kross, afturkölluðu yfirlýsinguna
og samþykktu, að Krímskagi væri
hluti af Úkraínu. Talið er, að þetta
sé liður í tilraunum þingsins til
að tryggja landshlutanum veru-
lega sjálfstjórn og sérstöðu innan
Úkraínu en hann tilheyrði áður
Rússlandi en var færður Úkraínu
að gjöf 1954. Eru Rússar í meiri-
hluta þar.
Rússneskur her stofnaður
FORSETI Rússlands, Borís Jelts-
ín, hefur stofnað með tilskipun
sérstakan rússneskan her og út-
nefnt sjálfan sig sem yfírmann.
Hefur þetta staðið til í nokkurn
tíma og bandarískir embættis-
menn segja, að ákvörðunin hafi
verið nauðsynleg vegna stofnunar
ríkishers í sumum samveldisríkj-
anna og til að tryggja umbætur í
rússneska hemum og koma í veg
fyrir, að hann brotni upp.
Verkföll leysast í Þýskalandi
TEKIST hafa samningar í kjara-
deilu opinberra starfsmanna í
Þýskalandi og er verkföllum þeirra
lokið. Stóðu þau í 11 daga, þau
mestu eftir stríð, og lömuðu þjóð-
lífið meira' eða minna. Var fallist
byltingu í tölvuheiminum og skilað
fyrirtækinu veltu upp á milljarða
króna á næstu ámm. Hugbúnaður-
inn hefur fengið nafnið Louis.
Softis er hlutafélag í eigu ýmissa
einkafyrirtækja og er til húsa í
Tæknigarði Háskólans. Það hefur
átt í viðræðum við ýmis þekktustu
tölvufyrirtæki heims um notkun
hugbúnaðarins.
Mjólkurbúum verði fækkað
Ef tillögur svokallaðrar sjö-
mannanefndar um hagræðingu í
mjólkurframleiðslu og mjólkuriðn-
aði ná fram að ganga verður
mjólkurbúum í landinu fækkað og
verkaskipting þeirra aukin. Þá
verða gerðar 6% framleiðnikröfur
til bænda og mjólkurbúa til ársloka
1994, og fullvirðisréttur bænda
færður niður um 4,3% næsta
haust. Samkomulag tókst um til-
lögumar á þriðjudag og þær
sendar landbúnaðarráðherra.
FH íslandsmeistari
FH-ingar urðu íslandsmeistarar
í handknattleit á miðvikudags-
kvöld er þeir bám sigurorð af
Selfyssingum 'á heimavelli þeirra
síðarnefndu. Var þetta fjórða við-
ureign liðanna í úrslitakeppninni
um Islandsmeistaratítilinn, Selfoss
vann einn leik og FH þijá. Ný-
krýndum íslandsmeisturum var
vel fagnað þegar þeir komu til
Hafnarfjarðar á miðvikudags-
kvöldið.
Samkomulag um
þingmeðferð EES
Samkomulag tókst á föstudág
milli stjómar og stjómarandstöðu
á Alþingi um þingmeðferð samn-
ingsins um Evrópskt efnahags-
svæði. Samkomulag varð um að
samningurinn og fylgimál verði
lögð fyrir á vorþingi og ljúki 19.
maí en umræður um hann hefjist
10. ágúst þegar reglulegt Alþingi
komi saman. Stefnt er að þinghléi
í síðari hluta september. Um
samninginn verður fjallað í utan-
ríkismálanefnd en ekki í sérstakri
þingnefnd eins og ríkisstjómin
hafði uppi áform um. Stefnt er
að því að málsmeðferð allri Ijúki
í nóvember.
á 5,4% kauphækkun en krafist
hafði verið 9,5% hækkunar. Ósam-
ið er enn við aðrar starfsstéttir,
til dæmis málmiðnaðarmenn, en
líklegt er, að samningar við þær
verði á svipuðum nótum. Hag-
fræðingar em á einu máli um, að
þessar launahækkanir muni koma
í bakið á öllum, jafnt launþegum
sem vinnuveitendum, og kynda
undir verðbólgu, vaxta- og skatta-
hækkunum og atvinnuleysi.
Serbar óttast útskúfun
EKKERT lát er á óöldinni í Bos-
níu-Herzegovínu og er harðast
barist um höfuðborgina, Sarajevo.
Hafa friðartilraunir Evrópuband-
alagsins engan árangur borið og
engar líkur em á, að orðið verði
við tilmælum Alija Izetbegovic,
forseta Bosníu, um erlenda hern-
aðaraðstoð. Nokkrar vöflur virðast
þó komnar á stjórnvöld í Serbíu,
sem augljóslega óttast pólitíska
útskúfun vegna yfirgangs sam-
bandshersins. Hafa þau reynt að
sveija af sér alla ábyrgð á fram-
ferði hersins í Bosníu og Slobodan
Milosevic Serbíuforseti viður-
kennir, að Serbum sé líka um að
kenna hvemig komið er í Júgóslav-
íu.
Suður-Afríka:
Viðhorfsbreytingin varð
„móður þjóðarinnar“ að falli
Winnie Mandela og eiginmaður hennar, Nelson, á leið í réttarsal-
inn er mál Winnie var tekið til meðferðar í febrúar í fyrra. Ásak-
anirnar á hendur henni hafa nú orðið til þess að þau hjónin hafa
ákveðið að skilja.
FALL Winnie Mandela end-
urspeglar þær miklu þjóðfé-
lagsbreytingar sem nú eiga
sér stað í Suður-Afríku og
snýst því um annað og meira
en eiginkonu þekktasta leið-
toga blökkumanna. Lýðræð-
isþróunin hefur þegar getið
af sér viðhorfsbreytingu; þeir
sem áður voru í dýrlingatölu
eru taldir til hinna syndugu,
óvætturinn sem áður var tal-
inn svo forógnanlegur virðist
skyndilega ekki jafn illskeytt-
ur og af var látið.
Vemleikinn var að sönnu ein-
faldur er blökkumenn og
hvítir háðu sitt andstyggilega
stríð í Suður-Afríku. Annars veg-
ar vom blökkumenn, hinir alls-
lausu, og hins vegar hinir hvítu,
sem nutu lífsins gæða. Valdið var
í höndum hinna hvítu, hinum
hömndsdökku var stjórnað. Hör-
undsliturinn mótaði alla afstöðu
manna. Þetta var heimur hinnar
skelfilegu einföldunar.
Þjóðarflokkur Búa hafði öll ráð
blökkumanna í höndum sér og
andmæli fijálslyndra í röðum
hvítra vom hundsuð. Fyrir bragð-
ið var nánast sérhver andstæðing-
ur þessarar stefnu Þjóðarflokks-
ins, hvort heldur viðkomandi tald-
ist til fijálslyndra eða var blakkur
á hörund hafinn upp til skýjanna.
Samtímis fengu Þjóðarflokks-
menn á sig þann stimpil að þar
fæm níðingar haldnir illum anda.
I augum heimsbyggðarinnar sem
og í huga flestra
Suður-Afr-
íkubúa stóð
Þjóðarflokkur-
inn vörð um fá-
mennisstjóm,
sem ríkti í skjóli
valds og hafði
það eitt á
stenfuskrá sinni að halda blökku-
mönnum niðri í krafti kynþáttaað-
skilnaðar. Þessi mynd af ástand-
inu í Suður-Afríku var rétt.
Breytinga tók hins vegar að
verða vart er fyrmm forseti lands-
ins, P.W. Botha, gerðist „umbóta-
sinni“. Verkalýðsfélögum blökku-
manna var heimilað að starfa,
slakað var á aðskilnaðarreglunum
og afnumin sú illræmda löggjöf
er kvað á um að blökkumönnum
bæri ávallt að bera á sér skilríki
til að unnt væri að sannreyna
hvort þeim væri heimilt að vera
á ákveðnum stöðum eða starfa
utan tilgreindra svæða. Hlutskipti
mikils meirihluta blökkumanna
varð heldur skárra.
En Botha, sem var í senn skap-
bráður og herskár, skorti þrátt
fyrir það hugrekki og um leið
framtíðarsýn. Af þessum sökum
gat hann ekki náð fram því sem
verið hefði rökrétt lokaniðurstaða
umbótastefnunnar: lausn blökku-
manna úr ánauð í eigin heimal-
andi. Hann reyndi að blanda sam-
an kúgun og umbótum.
Þá kom Winnie Mandela fram
á sjónarsviðið.
Þar eð eiginmaður hennar,
Nelson, hafði verið dæmdur að
því er virtist til lífstíðardvalar inn-
an fangelsismúra og aðrir leiðtog-
ar Afríska þjóðarráðsins (ANC)
sem enn voru á lífi voru ýmist í
útlegð eða fangelsi, kom það í
hlut hennar að halda uppi andófí
gegn þeirri vítisvist sem blökku-
mönnum var búin í Suður-Afríku.
Hún var kraftmikil og skörp og
svo fór að hún tók að sér hlutverk
„móður þjóðarinnar“. Hún ögraði
stjórnvöldum sífellt og sætti linn-
ulausri kúgun. Marga dálka þyrfti
til að rekja þjáningar hennar og
ofsóknirnar sem öryggissveitir
stjórnvalda og Þjóðarflokksmenn
stóðu fyrir. Hér verður það eitt
sagt að hver sá sem hlotið hefði
slíka meðferð
myndi þurfa á
aðstoð geð-
lækna og sál-
fræðinga að
halda. (Með
fullri virðingu
fyrir Winnie
Mandela má
segja að hún þurfi einmitt nú á
slíkri aðstoð að halda).
Þá kom F.W. de Klerk, núver-
andi forseti, fram á sjónarsviðið.
De Klerk tókst að neyða Botha
til að segja af sér. Hann mótaði
tvíþætta stefnu sem annars vegar
fólst í því að leysa suður-afríska
blökkumenn úr ánauð og hins
vegar að sannfæra hvíta um að
hagsmunir þeirra yrðu tryggðir.
Hann leiddi stjórnmálafrelsi í lög,
jafnvel flokkur kommúnista fékk
að starfa, kúgununarlögin voru
afnumin og eiginmaður Winnie
Mandela fékk frelsið. Nelson
Mandela sneri aftur til mann-
heima.
Nú þegar litið er til baka er
ljóst að atburðir þessir boðuðu
einnig endalokin fyrir Winnie
Mandela. Henni tókst ekki að
aðlaga sig að breyttum aðstæð-
um. Aðferðir hennar og málflutn-
ingur voru miðaðar við stjórnartíð
Botha þegar hvítir voru þrátt fyr-
ir allt umbótatalið staðráðnir í að
vera áfram valdastéttin í Suður-
Afríku. Um það bil sem valdatíð
Botha var að ljúka gerðust lífverð-
ir Winnie Mandela sekir um þau
myrkraverk, sem haldið er fram
að hún hafi vitað af og jafnvel
átt þátt í að skipuleggja. Þetta
var í Söweto árið 1988. Ungling-
um var rænt og þeim misþyrmt,
14 ára gamall piltur lést. Samfé-
laginu var misboðið og svo var
einnig um marga stuðningsmenn
ANC. Winnie Mandela féll í ónáð.
I fyrra var Winnie Mandela
dæmd í fangelsi og sakirnar voru
alvarleganmannrán og yfirhylm-
ingar. Hún hefur áfrýjað þessum
dómi. Eiginmaður hennar stóð
ávallt með henni en samband
þeirra fór versnandi.
Nú hefur Nelson Mandela, því
miður, ákveðið að binda enda á
hjónaband þeirra. Svo virðist sem
ágreiningur þeirra hafí magnast
sífellt frá því honum var sleppt
úr fangelsi í febrúarmánuði árið
1990 og Nelson Mandela, sem er
rúmlega sjötugur, telji heppileg-
ast að halda áfram starfi sínu án
hennar.
Winnie Mandela var orðin raun-
verulegur dragbítur á störf Nels-
ons Mandela. Mál þetta er að
sönnu mótsagnakennt: Þegar Nel-
son Mandela var í fangelsi var
stuðningQr Winnie afdráttarlaus
og gífurlega mikilvægur. Nú þeg-
ar hann hefur fengið frelsi er hún
til trafala.
Öfgakenndar yfirlýsingar
hennar voru í engu samræmi við
störf hans, hún jók spennuna þeg-
ar slökunar var þörf. Nafn hennar
hefur verið tengt við vafasamt
athæfí af ýmsum toga og að þessu
leyti brást hún Nelson Mandela,
Þess verður ekki vart að Winnie
Mandela hafi endurskoðað sjónar-
mið sín og málflutning. Hún heim-
sækir blóðvellina í hverfum
blökkumanna, huggar þá sem orð-
ið hafa fyrir miklum missi og
heillar ungu blökkumennina sem
dýrka hana. Svo kann að fara að
hún verði á ný dregin fyrir dóm
fari fram ný rannsókn á voðaverk-
unum sem unnin voru í Soweto.
Vafasamt er að Winnie Mand-
ela öðlist sess í sögunni. Hún hef-
ur þegar látið af trúnaðarstörfum
fyrir Afríska þjóðarráðið. Svo
virðist sem hún geti einungis
styrkt stöðu sína komi afturkippur
í lýðræðisþróunina og öfgastefna
í krafti vopnavalds verði innleidd
á ný. Ólíklegt er að þetta gerist
nú þegar fyrrum eiginmaður
hennar og F.W. de Klerk forseti
hafa ákveðið að vinna í samein-
ingu að því að skapa stöðugleika
í Suður-Afríku. Framtíð hvítra
jafn sem svartra mun mótast af
því hvort það starf ber árangur
og í því er von landsmanna fólgin.
Höfundur er fyrrum ritstjóri
Cnpe Times í Höfðaborg en ritar
nú dálka um suður-afrísk mál-
efni.
BAKSVID
Anthony Heard skrifar
fró Höjbaborg