Morgunblaðið - 27.06.1992, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1992
31
: !■■■ • í
iíleááur N r
a tttflt*lYtttt
uiuiuuu v
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11 árdegis. Organleikari
Sigrún Steingrímsdóttir. Sr. Guð-
mundur Þorsteinsson.
ÁSKIRKJA: Vegna sumarleyfa
starfsfólks Áskirkju er minnt á
guðsþjónustu í Laugarneskirkju
sunnudag kl. 11. Sóknarprestur.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Sameig-
inleg guðsþjónusta Breiðholts-
safnaðar og Hjallasafnaðar (
Breiðholtskirkju kl. 11. Oganisti
Daníel Jónasson. Sr. Gísli Jónas-
son.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.
Dómkórinn syngur. Organisti
Marteinn H. Friðriksson. Sr. Jak-
ob Á. Hjálmarsson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs-
þjónusta kl. 10. Sr. Ólafur Jó-
hannsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 20.30. Prestur sr.
Hreinn Hjartarson. Organisti
Guðný M. Magnúsdóttir. Prest-
arnir.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11. Altarisganga. Sr. Karl Sigur-
björnsson. Barnastund á sama
tíma. Þriðjudag: Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðiö fyrir
sjúkum.
LANDSPÍTALINN: Guðsþjón-
usta kl. 10. Sr. Ragnar Fjalar
Guðspjall dagsins:
Lúk. 14:
Hin mikla
kvöldmáltíð.
Lárusson.
HÁTEIGSKIRKJA: Hámessa kl.
11. Sr. Arngrímur Jónsson. Eftir
messu efnir sóknarnefndin til
fjölskylduferðar um Borgarfjörð.
Lagt af stað frá kirkjunni kl.
12.30. Lengst verður staldrað við
í Húsafelli. Nesti skal tekið með.
Sóknarnefndin. Kvöldbænir og
fyrirbænir í kirkjunni á miðviku-
dögum kl. 18.
HJALLAPRESTAKALL: Sameig-
inleg guðsþjónusta Hjallasafnað-
ar og Breiðholtssafnaðar í Breið-
holtskirkju kl. 11. Sr. Gísli Jónas-
son messar. Organisti Daníel
Jónasson. Kristján Einar Þor-
varðarson.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Almenn
samkoma kl. 20. Ester Daníels-
dóttir stjórnar. Áslaug Hugland
talar. Starfsfólk gistihússins tek-
ur þátt í samkomunni.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guösþjón-
usta í Kópavogskirkju kl. 11. Org-
anisti Sighvatur Jónasson. Ægir
Fr. Sigurgeirsson.
SEUAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14. Ferming og altarisganga,
Fermd verður íris Stefánsdóttir.
Guðsþjónusta kl. 20. Organisti
Kjartan Sigurjónsson. Sóknar-
prestur.
KRISTKIRKJA Landakoti: Messa
kl. 8.30. Hámessa kl. 10.30.
Messa kl. 14. Ensk messa kl. 20.
Laugardaga messa kl. 14 og
ensk messa kl. 20. Aðra rúm-
helga daga messa kl. 18.
MARÍUKIRKJA Breiðholti:
Messa kl. 11. Laugardag messa
kl. 14, fimmtudag kl. 19.30. Aðra
rúmhelga daga messa kl. 18.30.
GARÐAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11 í tengslum við norræna
vinabæjarmótið. Sr. Bragi Frið-
riksson.
KAPELLA St. Jósefssystra
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
KARMELKLAUSTUR: Messa kl.
8.30. Rúmhelga daga kl. 8. Júni
er tileinkaður hinu alhelga hjarta
Jesú. Tilbeiðsla frammi fyrir sakr-
amentinu í klausturkapellunni kl.
17, rúmhelga daga og 18.30
sunnudaga. Systurnar syngja
Jesú hjarta litaníu. Tilbeiðsian er
öllum opin.
LAUGARNESKIRKJA: Messa kl.
11. Altarisganga. Organisti Ron-
ald Turner. Sr. Jón D. Hróbjarts-
son. Heitt á könnunni eftir guðs-
þjónustu. Barnagæsla. Fimmtu-
dag: Kyrrðarstund kl. 12. Orgel-
leikur, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðar-
heimilinu að stundinni lokinni.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja
Guðbrands biskups. Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. Ingólfur
Guðmundsson. Kór Langholts-
kirkju (hópur III) syngur. Organ-
isti Jón Stefánsson. Síðasta
guðsþjónusta fyrir sumarleyfi
starfsfólks.
NESKIRKJA: Messa kl. 11. Org-
el- og kórstjórn Reynir Jónasson.
Guðmundur Óskar Ólafsson.
Miðvikudag: Bænamessa kl.
18.20. Guðmundur Óskar Ólafs-
son.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Messa kl. 11. Organisti Gyða
Halldórsdóttir. Prestur sr. Sol-
veig Lára Guðmundsdóttir.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarna-
son messar. Organisti Úlrik Óla-
son, Sr. Sigurður H. Guðmunds-
son.
KAPELLAN St. Jósefsspítala:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
kl. 18.
KAÞÓLSKA kapellan Keflavík:
Messa kl. 16.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Messa kl. 14.
Altarisganga og ferming. Fermd-
ur verður Jóhann Þórsson frá
ísrael. Aðalsafnaðarfundur verð-
ur nk. mánudagskvöld í kirkjunni
kl. 20.30. Sr. Hjörtur Magni Jó-
hannsson.
STOKKSEYRARKIRKJA: Messa
kl. 10.30.
STRANDARKIRKJA í SELVOGI:
Messa kl. 14. Rúta frá skólanum
í Þorlákshöfn kl. 13.15.
LJósmynd/Björg Sveinsdóttir
Silfurtónar.
Rokkað í Héðins-
húsinu um helgina
ÓHÁÐA listahátíðin Loftárás á Seyðisfjörð stendur enn, en lýkur
reyndar um þessa helgi. í dag verður sitthvað í boði fyrir rokk-
þyrsta, aukinheldur sem myndin Alexander Névskíj er sýnd í MÍR.
Á rokktónleikum í Héðinshús-
inu, sem er einn besti tónleikastað-
ur landsins um þessar mundir,
leika fjórtán sveitir ólíkrar gerðar.
Sveitimar eru Pulsan, Bíllinn, Jón
Þruma, Maidjanek, Reptilicus,
Rafmagn, Frumskógaredda, Yuk-
atan, Silfurtónar, Camal Cain,
Kolrassa krókríðandi, Glott, Púff
og íslenskir tónar. Einnig flytja
Margrét H. Gústavsdóttir og Katr-
ín Ólafsdóttir geminginn Baráttan
milli góðs og ills. Tónleikarnir hefj-
ast kl. 20.00 og standa fram á
nótt.
Árni Matthíasson
Kolrassa krókriðandi.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Iþróttakennara-
skóli Islands 50 ára
Laugarvatni.
FIMMTÍU ár eru síðan fyrstu lög um íþróttakennaraskóla íslands
voru staðfest, 29. apríl 1942. Þá hafði Björn Jakobsson starfrækt
sinn einkaíþróttaskóla síðan 1932 og útskrifað 48 nemendur. Þessi
lög tóku síðan gildi 1. janúar '43.
Þessara tímamóta var minnst
við útskrift við ÍKÍ í lok maí sl.
1932 hóf Björn Jakobssn starf-
rækslu íþróttaskóla á Laugarvatni
og naut þá húsakosts Héraðsskól-
ans enda fyrstu nemendur skólans
aðeins tveir. Skólinn var síðan rek-
in með ríkisstyrk í tíu ár þar til
að lög um íþróttakennaraskóla
íslands vom samþykkt. Björn Jak-
obsson var skólastjóri skólans
áfram allt til ársins 1957. Síðan
hefur Árni Guðmundsson verið
skólastjóri skólans.
Nám við skólann var í fyrstu
eins vetrar nám en lengdist í
tveggja vetra nám með lögum frá
1972. Eftir þeim lögum hefur skól-
inn starfað síðan. Drög að lögum
um íþróttaháskóla íslands hafa
verið til athugunar frá 1986 og
stendur til að þau verði tilbúin nú
fyrir haustið.
Nám við íþróttakennaraskólann
hefur verið endurskipulagt og lag-
að að einingamatskerfí skóla á
háskólastigi. Munu fyrstu nem-
endumir útskrifast þannig næsta
vor, eða 1993. í tengslum við þró-
un skólans á háskólastigi hefur
verið samþykkt áætlun um leng-
ingu hans í þijú ár með deilda-
skiptu námi. Er stefnt að því að
taka fyrstu nemenduma inn í skól-
ann til þriggja ára náms haustið
’94.
Jafnt og þétt hefur verið unnið
að uppbyggingu skólans á Laugar-
vatni. Fyrsta íþróttahúsið sem
reist var á Laugarvatni var
sýningarskáli þjóðhátíðarinnar
1930 sem var fluttur frá Reykja-
vík og reistur á bakka Laugar-
vatns 1932. Skálinn var 10x20 m
að flatarmáli og þjónar í dag sem
smíðakennsluhús. 1946 var byggt
íþróttahús, þá stærsta hús sinnar
tegundar á íslandi, 12x24 m.
Malarvöllur var tekinn í notkun ’58
en hefur síðan verið endurbyggð-
ur. Malbikaður harðvöllur var tek-
inn í notkun ’72. Nýtt íþróttahús,
27x45 m að stærð, var tekið í
notkun ’87 og er í dag eitt best
búna íþróttahús landsins til al-
mennrar íþróttakennslu. Ný úti-
sundlaug við skólann var vígð 30.
maí sl. og bætir úr brýnni þörf
þar sem gamla innisundlaug Hér-
aðsskólans má heita ónothæf.
Heimavistarhúsnæði fyrir 30
nemendur og tveimur kennara-
íbúðum var tekið í notkun fyrir
skólann 1968, en það var byggt
með tæplega 39% eignarhluta ISI.
í þessu húsi er nú starfandi íþrótt-
amiðstöð,íslands en íþróttakenna-
raskólinn hefur til afnota fyrmrn
húsnæði hússtjómarskóla Suður-
lands ásamt tveimur kennaraíbúð-
um.
íþróttakennaraskólinn er nú í
hraðri þróun. Allt nám skólans er
nú metið til eininga eftir því sem
gert er í öðmm skólum á háskóla-
stigi. Lög skólans hafa um
nokkum tíma verið til endurskoð-
unar og verða væntalega lögð fyr-
ir Alþingi í haust. Nám við skólann
er nú 60 einingar en verður 90
einingar með nýju lögunum. Stefnt
er að því að taka inn nemendur
til þriggja ára náms haustið ’94.
- Kári.-
Rjómabúið opnað
RJÓMABÚIÐ á Baugsstöðum
verður opnað laugardaginn 27.
júní og verður opið um helgar í
sumar frá kl. 13 til 18.
Rjómabúið hóf starfsemi sína
1905 og starfaði nær óslitið til
1952. Vatnshjólið og tækin í
vinnslusalnum munu snúast þegar
gesti ber að garði og minna á löngu
liðna tíma. 10 manna hópar eða
fleiri geta fengið að skoða búið á
öðmm tímum ef haft er samband
með góðum fyrirvara við gæslu-
mann, Sigurð Pálsson á Baugsstöð-
um.
(Úr frcttatilkynningu)
Bílamarkaburinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut,
Kópavogi, sími
671800
0PIÐ SUNNUDAGA KL 14 - 18.
Honda Prelude EX '87, grásans, 5 g., ek.
77 þ., sóllúga, rafm. í rúftum o.fl. V. 980
þús., sk. á ód.
Toyota Hllux turbo EFI '86, 5 g„ ný vél
og kúpl., krómfelgur, ek. 74 þ. Glæsivagn.
V. 1100 þús., sk. á ód.
Saab 9001 '87, 5 dyra, rauður, ek. 94 þ„
5 g. V. 870 þús. sk. á ód.
Ford Escort RS turbo '85, hvítur, gullfal-
legur sportbfll m/öllu. V. 720 þús„ sk. á ód.
Mazda 323 LX '89, 5 g„ ek. 47 þ. V. 550
þús. stgr. Sk. á nýrri bíl.
Fjöldi bíla á sýningarsvæði okkar.
Peugout 206 |unlor '91, ek. 14 þ„ 2
dekkjag. o.fl. V. 550 þús. stgr.
Renault 5 TR '90, rauður, 5 g„ ek. 25 þ
V. 550 þús„ sk. á ód.
Honda Clvlc Schuttle 4x4 '88, hvitur, 5
g„ ek. 71 þ, Toppeintak. V. 760 þús. stgr.
Mazda B-2600 Ex Cap 4x4 '92, ek. 7
þ„ (vask-bill). V. 1480 þús.
Ford Ranger STX 4x4 Plck Up '91,
m/húsi, V-6, sjálfsk., ek. 16 þ. V. 1550
þús„ sk. á fólksbíl.
Daihatsu Charade TX '88, ek. 66 þ.
Fallegur bfll. V. 490 þús. Góð lán.
Nissan Primera SLX 2000 '90, 5 g„ ek.
78 þ. V. 1080 þús„ sk. á ód.
Toyota Tercel 4x4 '87, station, Gott ein-
tak. V. 650 þús„ sk. á ód.
Toyota Corolla CTi 16v '88, 4k, 40 þ
Toppeintak. V. 980 þús.
Taunus 1.6 GL '81, sjálfsk. Gott eintak.
V. 150 þús. stgr.
Lada Sport '90, 5 g„ ek. 23 þ. V. 590
þús„ sk. á ód.
Mazda 626 2.0 GU '90. sjálfsk., ek. 45
þ. V. 1180 þús.
MMC Lancer GLXI hlaðb. 4x4 '90, 5 g„
ek. 45 þ. V. 1080 þús.
Subaru Legacy 2.2 GL '90, sjálfsk., ek.
34 þ. V. 1780 þús.
Toyota Carina II GU 16v '90, sjálfsk., ek.
34 þ. V. 1780 þús.
VANTAR:
Pajero, Tropper, Landcruiser og
Nlssan Patrol 4 dyra, '87-'91.