Morgunblaðið - 13.04.1995, Síða 4

Morgunblaðið - 13.04.1995, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÓSVÖR hf. í Bolungarvík hefur leigt frá sér tæplega 1.100 tonna kvóta síðustu þijár vikur þrátt fyrir ítrek- aða ósk bæjaryfirvalda til stjómar félagsins um að engar slíkar ákvarð- anir væru teknar á meðan verið væri að selja hlutabréf bæjarsjóðs. Kom þetta í ljós á bæjarráðsfundi í fyrradag og samkvæmt heimildum Morgunblaðsins kom þá jafnframt fram að þeir sem áttu að hafa stað- fest stærstan hluta kvótaleigunnar fyrir hönd bæjarfélagsins og verka- lýðsfélagsins könnuðust ekki við að hafa gert það. Lögmanni bæjarins var falið að kanna málið. Útgerðar- stjóri Ósvarar segist vilja gefa hlut- aðeigandi aðilum skýringar sínar á málinu áður en hann ræði það við fjölmiðla. Eftir að bæjarstjóm samþykkti tilboð Bakka hf. í Hnífsdal í hluta- bréf sín í Ósvör óskaði hún formlega eftir því við stjóm fyrirtækisins að hún tæki engar ákvarðanir sem breyttu stöðu fyrirtækisins og var meðferð aflaheimilda sérstaklega nefnd í því sambandi. Þetta var síð- ar ítrekað og meirihluti bæjarstjóm- . Fauk út af í Kömbunum Hellu. Hveragerði - í óveðrinu í gær varð það óhapp að flutninga- bifreið á leið austur fyrir fjall fauk yfir veginn og út af hinum megin vegarins neðarlega í Kömbunum. Miklir sviptivindar voru á þess- um slóðum um miðjan dag í gær en að sögn bílstjórans, sem var á lltilli ferð niður Kamba, skipti eng- um togum að bQlinn tókst á loft öðrum megin, sviptist yfír akrein- ina og skall niður á vegkantinum. Bílstjóranum tókst með aðstoð veg- farenda að skriða út um brotna framrúðuna. Hann slapp með skrámur og mar, en bifreiðin er mikið skemmd. Bíll með krana var sendur frá Reykjavík til að ná flutningabíln- um upp á veg en ekki tókst betur til en svo að stuðningsfótur undir bílnum gaf sig svo hann fór á hlið- ina. Þá var fenginn krani frá Sel- fossi til að hífa upp björgunarbíl- inn og gekk það ágætlega. Nokkrir fleiri bílar fuku út af veginum yfír Hellisheiði í gær en engin slys urðu á fólki. Kannast ekki við að hafa stað- fest leignna ar síðan meirihluta stjómar í sínar hendur á hluthafafundi sl föstudag. Eftir helgina kom í ljós, samkvæmt upplýsingum sem bæjarbúi hafði aflað sér úr gagnabankanum Hafsjó, að á þessu tímabili hafði fyrirtækið Ieigt í burtu tæplega 1.100 tonna kvóta, meðal annars 660 tonn 6. apríl, daginn fyrir hluthafafundinn. Kristján Jón Guðmundsson, út- gerðarstjóri Ósvarar, segir að leiga á þessum 660 tonnum af kvóta Dagrúnar, hafi verið löngu ákveðin. Rætt hefði verið um málið frá því fyrir áramót og helmingurinn greiddur 2. mars. Endanlegur frá- gangur hafi hins vegar tafist af sér- stökum ástæðum. Staðfestu ekki leiguna Bæjaryfirvöld og verkalýðsfélag þurfa að staðfesta leigu kvóta. A fundi bæjarráðs könnuðust fulltrúar þessarra aðila ekki við að hafa stað- fest stærsta hluta þessarra viðskipta. Halldór Benediktsson hefur verið starfandi bæjarstjóri frá 1. febrúar í veikindaleyfi Ólafs Kristjánssonar og hefur engar kvótaleigu samþykkt. Umrædd kvótaleiga frá 6. apríl mun vera með undirskrift Ólafs Kristjáns- sonar og Kristínar Karvelsdóttur, varaformanns Verkalýðs- og sjó- mannafélags Bolungarvíkur. Kristín kannast ekki við að hafa samþykkt þessa leigu og ekki heldur aðra sem hún á að hafa undirritað í lok mars. Hún segist í samtali við Morgunblað- ið síðast hafa samþykkt slíkt í janúar eða febrúar. Ólafur Kristjánsson er í endurhæfingu á Reykjalundi eftir erfið veikindi. Agúst Oddsson, forseti bæjar- stjómar og núverandi stjómarmaður í Ósvör hf., vill ekkert segja um málið annað en að bæjaryfirvöld hafi nú fengið upplýsingar um leigu á yfir eitt þúsund tonna kvóta frá Ósvör en slíkt ætti ekki að geta far- ið framhjá bæjaryfirvöldum. Hann segir að það hafi ekki gerst með þeirra samþykki. Kristján Jón vill ekki ræða þetta mál þegar leitað er eftir skýringum fyrirtækisins, segist fyrst vilja gefa hlutaðeigandi aðilum, bæjarstjóra og verkalýðsfélagi, skýringar sínar. Það sé síðan þeirra að ákveða framhald- ið. „En það er farið að ganga langt héma þegar menn níða skóinn hver af öðrum,“ segir Kristján. Morgunblaðið/Aldis Fr amkvæmdastj óri Hafnarbakka hf. um hlutafjárkaup í SÍF hf. Höfum eignast 1% hlut með skuldajöfnun BRAGI Ragnarsson, framkvæmdastjóri Hafnar- bakka hf., dótturfélags Eimskips, sem annast innflutning og dreifingu salts, vísar því á bug að félagið sé með einhveija yfirtökutilburði gagn- vart Sölusambandi íslenskra fískframleiðenda (SÍF). Fram kom i Morgunblaðinu í gær að Hafn- arbakki og Skandia hefðu keypt hlut í SÍF. Einnig kom fram í frétt blaðsins að átta fram- leiðendur innan SÍF hefðu stofnað eignarhaldsfé- lag innan SÍF, Saltfiskframleiðendur hf., sem keypt hefur 4% hlutaflár í SÍF. Sighvatur Bjarna- son, stjómarformaður SÍF og einn Salfiskfram- leiðenda hf., hafði í samtali við blaðið uppi efa- semdir um að hagsmunir framleiðenda og ein- stakra fjárfesta færu saman. Sagði Sighvatur að ef skipafélag eða tryggingafélag fari að gæta hagsmuna sinna innan SÍF gæti það kom- ið niður á framleiðendum. Bragi Ragnarsson segir að þarna sé verið að gera úlfalda úr mýflugu. Hafnarbakki eigi rúm- lega 1% hlutafjár í SIF eða um fimm milljónir króna sem félagið hafi að stærstum hluta eign- ast með skuldajöfnun við einstaka viðskiptavini. Formsins vegna hafi verið gengið frá þeim við- skiptum um seinustu ármót. Bragi sagði að það væri ekkert launungarmál að margir saltfísk- framleiðendur ættu hlutabréf í SÍF og þeim sem áhuga hefðu stæði til boða að jafna út skuldir sínar með hlutabréfum. Miðað við þær upplýs- ingar sem nú hefðu komið fram um rekstur SÍF mætti gera ráð fyrir að þetta væri álitlegur fjár- festingarkostur. Hörð samkeppni á saltmarkaði Hörð samkeppni hefur verið á milli Saltkaupa hf. sem er í eigu SÍF og Hafnarbakka hf. dóttur- félags Eimskips hf. um saltflutninga og saltsölu. SÍF yfirtók skuldir og eignir Saltkaupa hf. árið 1993 með samkomulagi við eigendur um kaup á öllu hlutafénu að andvirði 3 milljónir króna á genginu 0,2, en rekstur Saltkaupa var þá í jám- um. Yfirlýst markmið var að styrkja stöðu SÍF gagnvart saltfiskframleiðendum með því að taka að sér allan innflutning og dreifingu salts til framleiðenda innan vébanda SÍF í samkeppninni við Hafnarbakka. Forsvarsmenn Saltkaupa sök- uðu Hafnarbakka um að stunda undirboð á salti til þess að halda markaðshlutdeild sinni en ásak- anir um undirboð gengu á víxl milli félaganna. Hafnarbakki var með 70% markaðshlutdeild á saltmarkaðinum en viðurkennt er að hlutdeild félagsins hafi dregist saman eftir að SÍF tók yfír rekstur Saltkaupa, þótt deildar meiningar séu um hvemig saltmarkaðurinn skiptist í dag. Stofnun Saltfiskframleiðenda hf. gagnrýnd Róbert Guðfínnsson, framkvæmdastjóri Þor- móðs ramma hf. á Siglufirði, gagnrýndi stofnun eignarhaldsfélagsins Saltfiskframleiðenda hf. í samtali við Morgunblaðið. „Ég er einn þeirra sem stóð að kjöri Sighvatar Bjamasonar, stjórnar- formanns SÍF og ég undrast mjög að hann sé búinn að stofna eignarhaldsfélag innan SÍF,“ sagði Róbert. „Þegar ákveðið var að gera félagið að almenn- ingshlutafélagi mátti búast við að einhveijir aðrir en framleiðendur sýndu bréfunum áhuga, enda þar með búið að samþykkja að þau gengju kaupum og sölum. Mér þykir því undariegt þeg- ar stjómarformaðurinn gætir hagsmuna nokk- urra hluthafa umfram annarra og þyrlar upp moldviðri skömmu fyrir aðalfund. Það er síst af öllu hlutverk hans að vera í forsvari fyrir einhveija blokk hluthafa,“ sagði Róbert. Talsverður áhugi er sagður á hlutabréfum í SÍF en sölugengi þeirra er nú 1,45. Á seinasta ári var 164 millj. kr. hagnaður af rekstri félags- ins eftir skatta og á aðalfundi SÍF í næstu viku verður lagt til að eigendum verði greiddur 8% arður. Stunginn með hnífi í bringu MAÐUR á fimmtugsaldri var stunginn nokkrum stungum með hnífi á heimili sínu aðfara- nótt miðvikudagsins og var fluttur á slysadeild, Hann er ekki í lífshættu. Árásarmaður- inn var handtekinn og gisti fangageymslur þá nótt. Maðurinn sem fyrir árásinni varð var staddur á veitingahúsi og hitti þar mann og konu sem hann bauð heim til sín. Þar kom til átaka milli karlmannanna. Nágranni sem varð þess áskynja að ekki væri allt með felldu í íbúð mannsins hringdi á lögreglu. Áverkar voru á húsráðanda, fleiri en eitt stungusár eftir hníf, m.a. á bringu. Lögreglan handtók árásarmanninn og húsráðandi var fluttur á slysadeild þar sem gert var að sárum hans. Tölvusíma- skrá í Windows- umhverfi TÖLVUVÆDD símaskrá fyrir Windows-umhverfið kemur út 15. júní í útgáfu Bókaútgáf- unnar Aldamóta. Skráin inni- heldur í fyrstu útgáfu nöfn fyr- irtækja og stofnana. Auðvelt á að vera að velja og afrita upplýsingar i Tölvu- símaskránni og skeyta inn í önnur forrit. Notandi getur bætt eigin upplýsingum við Tölvusímaskrána og fyrirtæki með netkerfí geta samnýtt allar upplýsingar hennar. Gular síð- ur gefa m.a. þann möguleika að senda póstlista eftir starf- sviðum. Skráningargjald er 1.890 kr. og gjald fyrir disklinga til skráðra aðila er 365 kr. Skrán- ingu á að senda í pósthólf Alda- móta fyrir 25. apríl nk. Hrefna Ingólfsdóttir upplýs- ingafulltrúi Pósts og síma segir að símaskráin hafi verið gefin út á tölvutæku formi fyrir nokkrum árum en reynslan verið slæm. Símaskráin hefði á þessu formi verið fjölfölduð og stolið en Póstur og sími seldi hana á 50 þúsund krónur. Að- eins sárafá eintök seldust. „Það er þó jafnmikil þörf fyrir þetta nú. Við höfum því verið að velta því fyrir okkur að selja aðgang að símaskránni í gegn- um mótald." Hrefna sagði að Tölvusíma- skráin yrði ekki í líkingu við símaskrá Pósts og síma þar sem yfir 140 þúsund nöfn eru og því væri ekki hægt að bera saman verðið á Tölvusíma- skránni og skrá Pósts og síma. Arangurslaus samninga- fundur ENGIN árangur varð á samn- ingafundi Sjómannafélags Reykjavíkur og vinnuveitenda í gær. Engar nýjar tillögur voni lagðar fram til lausnar deil- unni. Fundurinn stóð aðeins í rúma tvo klukkutíma. Næsti fundur hefur verið boðaður nk. laugardag kl. 17. Bóðað verk- fall Sjómannafélagsins kemur til framkvæmda á miðnætti á sunnudag hafi samningar ekki tekist.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.