Morgunblaðið - 13.04.1995, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 13.04.1995, Qupperneq 34
34 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ i ■ ' ' : ' Morgunblaðið/Ragnar Axelsson SÉRA SKÍRNIR Garðarsson hóf prestskap í Búðardal og hefur síðan þjónað víða í Norður-Noregi. Bæði meðal flökkufólks og heimiiislausra, fanga, hreindýrabænda í Finnmörku, sjómanna í Tromsö og námamanna á Svalbarða. EG HEF alltaf verið Norður- hjaramaður," segir séra Skírnir Garðarsson, nú sóknarprestur í Tempe- prestakalli í Niðarósi. Leiðir hans hafa legið víða um Norður-Noreg frá því hann flutti frá íslandi fyrir 16 árum. Hann segist kunna því betur að starfa úti á meðal fólksins en að sitja á prestafundum og unir sér best á meðal þeirra sem ekki vita hvað „kyrie eieison" (Drottinn miskunna þú oss) þýðir. Hann var um tíma prestur flökkufólks og fanga, afleysingaprestur meðal sjó- manna í Tromsö og hreindýrabænda í Finnmörku. Séra Skímir þjónaði í þrjú ár á Svalbarða og tók þar með- al annars þátt í Biblíusmygli austur fyrir tjald. Nú hefur hann sest um kyrrt í Niðarósi, einum höfuðstað norrænnar kristni. Tempe-sókn í Þrándheimi liggur að sóknarmörkum Dómkirkjunnar í Niðarósi. Við heimsóttum séra Skími stilltan vetrardag meðan dúraði á milli lægða sem koma frá íslandi og ausa snjó yfír Noregsstrendur. Grein- ar trjánna sliguðust undan drifhvítri mjöllinni og reykurinn liðaðist úr skorsteinunum á húsunum í kringum kirkjuna. Ilmur af bmnnum viði fyllti loftið og umhverfíð minnti á jólakort. Séra Skímir lauk guðfræðinámi frá Háskóla íslands 1976, var vígður af herra Sigurbimi Einarssyni bisk- upi til Búðardals og þjónaði þar í tvö ár. Skírnir er giftur norskri konu, Torill og eiga þau þijú börn. „Við kynntumst á íslandi. Hún er fædd í Noregi en bjó lengi á íslandi og talar íslensku. Meðan ég var í guðfræði- námi sótti ég um frí til að kynnast norsku kirkjunni og leit við í Háskól- anum í Bergen og einnig í Osló. Ég tók þrjú fög til guðfræðiprófs hér 5 Noregi og að loknu embættisprófi fór ég hingað til framhaldsnáms í sái- gæslu og hef réttindi hér sem sjúkra- húsprestur.“ Prestur heimilislausra Þau Skímir og Torill fluttu fyrst til Mæris. Skímir var ráðinn farprest- ur og gegndi því embætti í þijú ár. Hann ferðaðist víða, þjónaði heimilis- lausu fólki og afbrotamönnum sam- hliða framhaldsnámi. Aðalviðfangs- efnið var að sinna farandfólki, sem stundum er nefnt tatarar. „Ég held að þessi tegund af fólki hafí aldrei verið til á íslandi," segir Skírnir. „Það má segja að þetta fólk sé um sumt skylt sígaunum í Suður-Evr- ópu. Það býr gjaman í hjólhýsum og ferðast um á sumrin en sest um kyrrt yfir köldustu mánuðina. Þá fær það sér Ieigt eða kemur hjólhýsinu fyrir á heppilegum stað. Þegar ég vann við þetta í lok 8. áratugarins vom skráðir um 1000 heimilislausir í Noregi. Þeim hefur heldur fækkað, enda allt gert til að fá þessu fólki fasta búsetu." Skírnir bjó með fjölskyldu sinni í Svanviken þar sem var opið fan'gelsi fyrir afbrotamenn úr hópi hinna heimilislausu. Á stofnuninni var rúm fyrir tíu fjölskyldur. Margir hinna heimilislausu voru með minniháttar brot á samviskunni. Þeir óku próf- lausir, höfðu jafnvel aldrei tekið bíl- próf og lentu í ýmsum smáafbrotum. Fólk fékk að afplána væga refsidóma þarna á stofnuninni. „Hlutverk mitt Séra Skímir Garðarsson hefur víða þjónað í Norður-Noregi og er nú sóknarprestur í Niðar- ósi. Guðni Einarsson heimsótti séra Skími og ræddi við hann, meðal annars um prestsþjón- ustu á Svalbarða. var meðal annars að fara í fangelsin og meta hveijir ættu frekar heima á upptökuheimilinu en í venjulegu fangelsi," segir séra Skírnir. „Óft var um að ræða sambýlisfólk, þar sem annað hvort eða bæði voru í fangelsi og bömin í reiðileysi. Ég var ráðinn bæði sem prestur og kennari þessa fólks, kenndi því meira að segja norsku. Ég hef raun- ar unnið alltaf meira og minna við kennslu með prestskapnum. Þarna var fólk sem hafði ekki verið í skóla og kunni ekki að lesa hvað þá ann- að. Áhugi minn á kennslu og starfí meðal þessa fölks vaknaði. Sú stefna varð síðan ofaná að loka helst öllum stórum stofnunum og þessi stofnun var lögð niður og starf mitt þar með.“ Sóknarprestur á Svalbarða Séra Skímir og Torill fluttu með bömin sín þijú til Longyearbyen á Svalbarða 1985 og bjó fjölskyldan þar í tvö ár. Sr. Skírni er dvölin í Longyearbyen eftirminnileg. Þama er lítil kapella með um 50 sætum þar sem kirkjulegar athafnir og guðsþjónustur fara fram. Safnaðar- starfið ber þess merki að mikill minnihluti íbúanna er fjölskyldufólk og lítið af bömum. Meirihlutinn er einhleypir karlar eða þá að fjölskyld- ur þeirra búa annars staðar. í norsku byggðinni bjuggu um 1200 manns og þar af var meira en helmingurinn námamenn. Hinir voru við rannsókn- arstörf og ýmislegt annað. „Það er bara einn prestur á Sval- barða í einu og ekki fastráðinn," seg- ir sr. Skímir. „Á Svalbarða er eigin- lega ekki neitt til neins sem tilheyrir daglegu lífí. Þetta er ekki venjulegt samfélag. Það er ekki einu sinni hægt að vera þar veikur. Þama er lítið sjúkrahús en ef fólk lenti í ein- hveijum verulegum vandræðum var eina leiðin að senda það heim. Það var flogið tvisvar í viku og einangrun- in eiginlega horfín. Nú er bæði hægt að hlusta á útvarp og horfa þar á sjónvarp,“ segir sr. Skímir. Rússar í Barentsburg Séra Skímir hefur um árabil verið áhugasamur um tengsl norsku kirkj- unnar í austurveg. Sá áhugi vaknaði þegar hann starfaði í Finnmörku í Norður-Noregi þar sem mönnum varð oft hugsað til nálægðar rúss- neska bjamarins. Hann hefur kynnst bæði Rússum og Pólveijum f gegnum kirkjulegt starf og átt mikil sam- skipti við kristna í Póllandi. Skímir kann svolítið í rússnesku og getur haldið uppi samræðum á því máli. Á Svalbarða er byggð Rússa sem heitir Barentsburg. Skímir gat þó ekki notað nágrennið við Rússana til að æfa sig í rússnesku, því á þess- um árum var íbúum í Longyearbyen að mestu bannað að hafa samskipti við Rússana. Eitt lítið atvik sýnir hve langt var í raun á milli þessara ná- grannabæja. Einu sinni sem oftar fóru þau Skímir og Torill í vélsíeðaferð. Þá hittu þau nokkra Rússa sem voru á snjóbfl. Skímir tók Rússana tali og spurði hvort þeir gætu ekki selt hon- um samovar, eða rússneskan teketil. Þeir héldu það nú þótt viðskipti væru bönnuð á milli þessara nágranna. „Vjð ákváðum að hittast á sama stað daginn eftir klukkan 12,“ segir Skímir. „Við brunuðum á tilsettum tíma til stefnumótsins en það voru engir Rússar á staðnum og við ákváðum að bíða. Klukkan var að verða tvö þegar við heyrðum drunur í díselmótor í fjarska og Rússamir komu brunandi á beltavélinni. Okkur var orðið kalt og ég hálf afundinn og spurði hvað það ætti að þýða að
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.