Morgunblaðið - 13.04.1995, Page 55

Morgunblaðið - 13.04.1995, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995 55 Köllunarákvæði laga um veitingu prestakalla og aðdragandi þeirra SAKIR þess uppn- áms, sem orðið hefur vegna ákvörðunar sóknarnefnda Hvera- gerðisprestakalls um að kalla sér prest án auglýsingar, skulu hér rifjuð upp nokkur atr- iði um aðdraganda þess, að ákvæði um köllun voru lögfest. Á hinu fyrsta kirkjuþingi, sem dr. theol Sigurbjörn Ein- arsson, biskup, stjórn- aði árið 1960, flutti hann frumvarp til laga um veitingu presta- kalla og var það fyrsta og aðalmál þingsins. í 5. gr. þessa frumvarps segir svo: „Heimilt er kjörmönnum að kalla prest. Ef kjörmenn einnar sóknar eða fleiri í prestakallinu eru einhuga um að kalla prest án umsóknar, gera þeir prófasti við- vart um það þegar í stað, en hann gerir biskupi aðvart. Biskup felur þá prófasti að boða kjörmenn prestakallsins á sameiginlegan fund innan viku og er þá'embætt- ið eigi auglýst.“ Eins og flestum kirkjunnar mönnum, og þá ekki síst stjórn Prestafélags Islands, má vera kunnugt, börðust margir forystu- menn kirkjunnar, þar á meðal bisk- I I upamir Sigurbjörn Einarsson og Pétur Sigurgeirsson, fyrir því árum saman að fá breytt lögunum um veitingu prestakalla frá 1915. Einkum var lögð á það áhersla, að ákvæði um almennar prestskosningar félli brott. Kirkjuþing eftir kirkjuþing voru flutt og afgreidd frumvörp um veitingu presta- kalla, og munu engin önnur mál hafa komið svo oft til umfjöllunar á kirkjuþingum. Nefna má, að frumvarp um veitingu prestakalla var afgreitt á kirkjuþingi 1962, 1964, 1972, 1976 og oftar. í öllum þessum frumvörpum er heimild- arákvæði til handa sóknamefndum um að mega kalla sér prest „og er þá embættið eigi auglýst". Lengi vel sýndi Alþingi þessu baráttumáli kirkjunnar tómlæti og fékkst ekki til að afgreiða það. Frumvarp um veitingu prestakalla var að vísu lagt fyrir Alþingi vetur- inn 1973-1974, en kom ekki úr nefnd. Hinn 20. júlí árið 1977 skipaði kirkjumálaráðherra Ólafur Jó- hannesson nefnd til að endurskoða lögin um veitingu prestakalla frá 1915. í nefndinni áttu sæti: Gunn- laugur Finnsson, kirkjuráðsmaður og þá alþingismaður, sem var for- maður, Friðjón Þórðarson, alþing- ismaður og síðar kirkjumálaráð- herra, Geirþrúður Hildur Bernhöft, cand theol., frú Guðrún Ásgeirs- dóttir og sr. Sigurður H. Guð- mundsson. Nefndin vann ágætt starf og skilaði meirihluti nefndarinnar vel útfærðu og rökstuddu frumvarpi, sem í meginatriðum var byggt á áðurnefndum frumvörpum kirkju- þings. Minnihlutinn (Guðrún As- geirsdóttir) gerði einnig vel rök- studda grein fyrir því áliti sínu, að prestskosningar yrðu ekki afn- umdar. En öll var nefndin sam- mála um það að taka inn í lögin ákvæði, sem heimilaði kjörmönn- um að kalla prest án undangeng- innar auglýsingar. Köllun skyldi þó vera tímabundin og „eigi lengur en til fjögurra ára í senn“. Frumvarp meirihluta hinnar stjórnskipuðu nefndar byggðist á málamiðlun, þar sem ákvæði um almennar prestskosningar var ekki að öllu leyti afnumið, heldur skyldu prestskosningar fara fram, ef um það bærist „skrifleg ósk frá minnst 25% atkvæðisbærra sóknarbarna í prestakallinu“. Álit hinnar stjórnskipuðu nefnd- Ámæli, sem sóknar- nefnd Hveragerðis- prestakalls hefur orðið fyrir, eru óréttmæt og óviðurkvæmileg, segir sr. Jón Einarsson. Sóknamefnd og biskup fara að lögum. ar (bæði meirihluta og minnihluta) voru tekin til ítarlegrar umfjöllunar á kirkjuþingi árið 1978. Um léið og kirkjuþingið áréttaði fyrri álykt- anir sínar um breytta skipan á veitingu prestakalla, sem vikið er að hér að framan, samþykkti þing- ið að mæla með samþykkt frum- varps meirihluta nefndarinnar, þótt það „gangi skemur en kirkju- þing óskar“. Skemmst er frá því að segja, að eftir nokkurra ára töf og marg- ar ályktanir kirkjunnar manna varð frumvarp meirihluta hinnar stjórnskipuðu nefndar að lögum með lítils háttar breytingum. Eru það lög nr. 44 30. marz 1987. Við þau lög hefur kirkjan búið síðan eða í átta ár. Eitt af grundvallará- kvæðum þessara laga er heimild til handa „kjörmönnum að kalla prest“. Nýti kjörmenn sér þann rétt, er „embættið eigi auglýst". Um þetta höfðu kirkjuþing ályktað og kirkjunnar menn fyrir þessu barist í nærri þijá áratugi. í ljósi þess, sem að framan er rakið, þarf engan að undra, þótt sóknamefndir nýti sér lagalegan rétt sinn til að kalla prest. Þau ámæli, sem sóknarnefndir Hvera- gerðisprestakalls hafa orðið fyrir, em því óréttmæt og óviðurkvæmi- leg. Hámæli og hörð gagnrýni meirihluta stjórnar Prestafélags íslands í garð sóknarnefndanna og biskups landsins er afar furðuleg og ósanngjörn. Ljóst er, að sóknar- nefndirnar og biskupinn fara í þessum efnum í einu og öllu að réttum og gildum lögum. Breytir þar engu um, þótt einhveijir telji sig þess umkomna að bera brigður á lögin, þykist vita betur og hafi í hótunum, ef ákvæði, sem þeim fellur ekki, er framfylgt. Vissulega eru lögin um veitingu prestakalla ekki gallalaus fremur en önnur mannanna verk. Að sjálf- sögðu er það álitaefni, hvort svo skýr og afdráttarlaus ákvæði um köllun eiga að vera í lögunum, án undangenginnar auglýsingar. Ekki verður þó annað séð en köllunar- ákvæðið standist guðfræðilega. Nú er til umræðu endurskoðun laganna um veitingu prestakalla. Vonandi verður sú endurskoðun til • góðs fyrir kirkju landsins, starfs- menn hennar og þjónustu alla. Höfundur er formaður Prófastafélags íslands. Sr. Jón Einarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.