Morgunblaðið - 13.04.1995, Qupperneq 73

Morgunblaðið - 13.04.1995, Qupperneq 73
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995 73 MINNINGAR í einni runu. Það lék enginn eftir honum. Hann var einnig ágætur söngmaður og skipaði sér í bassa í Laugarvatnskórnum. Ólafur var vel metinn skólaþegn og vinsæll af nemendum skólans. Snemma í júlímánuði 1934 var haldið nemendamót á Laugarvatni. Þar mættu margir af nemendum skólans frá upphafí. Við Ólafur ákváðum að sækja mótið og fara á reiðhjólum frá Eyrarbakka. Eftir ánægjulega mótsdaga var hjólað heim næstu nótt eftir að því lauk. Þetta var björt og fögur júlinótt, eins og þær geta verið fegurstar á íslandi, þegar sólin blundar skamma stund bak við íjöllin. Þessi ferð var sannkallaður sólskinsdagur í lífí okk- ar, sem oft var síðar minnst á. Á næstu árum skildu leiðir okkar og haldið var til ólíkra starfa. En vináttuböndin frá Laugarvatni voru sterk og varanleg. Ólafur átti lengst af heima í Keflavík og starfaði þar sem matreiðslumaður eða bryti - bæði á skipum og í landi. Hann var ánægður með starf þetta og fórst Krossar á íeiði liyðfrítt stá(— varaníeyt efni JQ'ossarnir crufrandeidcfír úr hvíthúðuðu, ryðfríu státi. Minnisvarði sem endist um óígmna tíð. SóCkross (táiCnar eilíft Líf) tHxð 100 smfrájörðu. ‘Jíefðbundinn kross m/munstruðum endum. tHœð 100 smfrá jörðu. Sóíkross m/geisCum. Hczð 100 sm.frájörðu. 'TvöfaCdur íqoss. ttxð 110 smfrá jörðu. Hringlð I slma 93-11075 og félð lltabækllng. k BLIKKVERKf8 m Dalbraut 2,300 Akraneal. Slml 93-11076, fax 93-13076 það vel úr hendi. Þegar líða tók á ævina flutti hann til Reykjavíkur og vann við matargerð í kjötbúð. Síðar sneri hann sér að verslunar- störfum - fyrst í Reykjavík og síð- ar á Selfossi - en þangað flutti hann fyrir tæpum tíu árum. Ólafur var maður trygglyndur og vinfastur. Hlýr og ljúfur í um- gengni en hlédrægur um of. Hann var alla ævi mikill íþróttamaður. Stundaði sund og fjallgöngur. Á síðari árum ferðaðist hann mikið um landið með Ferðafélagi Islands og naut þess vel. Hann starfaði um skeið í Árnesingakórnum í Reykja- vik, enda söngmaður góður. Fyrir sextán árum hóf Ólafur sambúð með skólasystur okkar frá Laugarvatni - Ólöfu Símonardóttur frá Stokkseyri. Hún fór til- Dan- merkur nokkru fyrir stríð, giftist þar dönskum manni en flutti heim nokkru eftir að hún varð ekkja. Þessi ár hafa verið þpim báðum mikill hamingjutími. Ólöf er vel gerð mannkostakona og myndarleg húsmóðir. Þau áttu fallegt og aðlað- andi heimili á Selfossi sl. tíu ár en áður í Reykjavík. Þegar góður æskuvinur kveður koma upp í hugann ljúfar minning- ar um bjarta framtíðardrauma og sterk vináttubönd. Engin vinátta endist lengur en sú sem'myndast á æskuárunum. Hún stendur jafnan ævina út. Því hefur Þorsteinn Erl- ingsson lýst öðrum betur: Hve glöð er vor æska, hve létt er vor lund, er lifsstríð ei huga vorn þjáir. Þar áttum við fjölmarga indæla stund er ævi vor saknar og þráir.., (Þorsteinn Erlingsson) Ég blessa minningu Ólafs Sig- urðssonar. Þakka honum öll hin góðu kynni og sendi Ólöfu, börnum hans og systkinum einlæga samúð- arkveðju. Sumir kveðja og síðan ekki söguna meir. Aðrir með söng er aldrei deyr. (Þ.V.) Daníel Ágústínusson. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vin- áttu vlð andlót elginkonu mlnnar, sonar og ófæddar dóttur, tengdadóttur og barnabarna, HAFDfSAR HALLDÓRSDÓTTUR . 09 HALLDORS BIRKIS ÞORSTEINSSONAR. Þorsteinn Þorkelsson, Halldór Jóhannesson, Þorkell Þorsteinsson, Guðlaug G. Vilhjálmsdóttir, Guðrún Pétursdóttir og fjölskyldur. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLAFÍA KATRÍN GUÐMUNDSDÓTTIR frá Núpi, Aðalgötu 5, Keflavík, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 18. apríl kl. 14.00. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Sendum öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs bróður okkar og frænda, EYMUNDAR SVEINSSONAR frá Stóru-Mörk. Sórstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilis aldraðra á Hvolsvelli. Systkini, systkínabörn og fjölskyldur. Alúðar þakkir fyrir sýnda samúð og vin- semd við andlát og útför konu minnar og móður okkar, SIGRÍÐAR SÍMONARDÓTTUR. Erlendur Sigmundsson, Ragnhildur Ragnarsdóttir, Sfmon Ragnarsson. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andlóts og útfarar ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, DAGNÝJAR WESSMAN. V fbWessman, Inga Wessman, ína Petersen, Chrfstian Petersen, Dagga Lfs Kjærnested, Harrý Kjærnested, Wilhelm Wessman, ÓlöfWesSman, Ragnar Wessman, Alda Wessman, Anna Sigrfður Wessman, Helgi Hálfdánarson, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinóttu við andlót og útör eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÞÓRIS KONRÁÐSSONAR bakarameistara, Krummahólum 29, Reykjavfk. Hrönn Jónsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa, BJÖRNS GUÐMUNDSSONAR, Grindavfk. Börn, tengdabörn og barnabörn.- t Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar og tengdamóður, GUÐRÚNAR RÓSMUNDSDÓTTUR. Þorsteinn Þorsteinsson, Þröstur Þorsteinsson, Kristfn Gfsladóttir, Hólmfrfður B. Þorsteinsdóttir. t Hjartans þakkir til þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, VALGERÐARINGVARSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Ljósheimum. Guðrún Helgadóttir, Sigurjón Helgason, Elfn Erlingsdóttir, Valgerður Erlingsdóttir, Loftur Erlingsson, Erlingur Loftsson, Hildur S. Arnoldsdóttir, Magnús Sigurjónsson, Helga Guðrún Sigurjónsdóttir, Hjalti Sigurjónsson. t Hugheilar þakkarkveðjur sendum við öllum þeim, sem auðsýndu okkur sam- úð og vinarhug við andlát og útför elsku- legrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, GUÐRÚNAR S. EINARSDÓTTUR frá Hróðnýjarstöðum. Steinunn Árnadóttir, Gunnar A. Aðalsteinsson, Inga Árnadóttir, Sigurður Markússon, Guðrún L. Árnadóttir, Guðmundur Benediktsson, Árni J. Árnason, Edda Þorsteinsdóttír, Brynhildur Erna Árnadóttlr, barnabörn og aðrir afkomendur. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu samúð við andlát og jarðarför eiginmanns míns, föður okkar, tengda- fööur, afa og langafa, BJÖRNS JÓNSSONAR fyrrv. yfirflugumferðarstjóra, Kópavogsbraut1, Kópavogi. María Hafliðadóttir, Hafliði Orn Björnsson, Maja Guðmundsdóttir, Hilmar Þór Björnsson, Svanhildur Sigurðardóttir, Steínunn Ásta Björnsdóttir, Jón Frímann Eiríksson, Sigrfður Birna Björnsdóttir, Steen Haugaard, barnabörn og barnabarnabarn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.