Morgunblaðið - 13.04.1995, Side 85

Morgunblaðið - 13.04.1995, Side 85
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995 85 BRÉF TIL BLAÐSINS Hvers vegna eru banka- stjórar Landsbankans ekki kallaðir til ábyrgðar? Frá Einari Vilhjálmssyni: I VIÐTALI við Sverri Hermannsson í Morgunblaðinu 10.5. 1994, er jafn- framt vitnað í erindi hans á fundi hjá SH skömmu áður, þar sem hann sagði meðal annars að offjárfesting, óráðsía og gegndarlaus eyðsla væri orsök kreppunnar á ís- landi. Hann sagði einnig að kunn- ingsskapur, fyrir- greiðsla og at- kvæðakaup stjórnmála- manna hefði miklu um íjár- festingarákvarðanir ráðið. Aðspurð- ur segir Sverrir: „Ég hef aldrei hald- ið því fram að ég væri saklaus í þessum efnum. Ég á ekki von á því að axarsköftin þyki neitt betri þótt ég hafi lagt hönd að smíði þeirra." Ef rétt er að spilling stjórnmála- manna og bankastjóra sé orsök efnahagskreppu undanfarinna ára, hvers vegna er ekki tekið á málinu? Er ekki verið að lýsa hér glæpsam- legu athæfi? Er valdþurrð þegar taka þarf á pólitískri spillingu? í Morgunblaðsgrein 2. apríl 1995 segir prófessor Ólafur Björnsson á þessa leið: Þeir sem opinberum fyr- irtækjum stjórna eru ekki kosnir af almenningi til starfans, heldur skipaðir af leiðtogum þeirra stjóm- málaflokka sem með völdin fara. Það er því eðlilegt að þeir sérhags- munir, sem þessir forstjórar opin- berra fyrirtækja bera einkum fyrir bijósti, séu hagsmunir flokksins sem þeir eiga að þakka að þeir gegna sínu trúnaðarstarfi. í þessu felst ekki, að því sé haldið fram að íslenzku stjórnmálaflokkarnir séu allir sem einn einskonar mafíur sem einblína á sérhagsmuni flokksins og forystu hans. Þetta breytir þó engu um það að þeir sem skipaðir eru pólitískt til þess að taka ákvarð- anir um lánveitingar og úthlutun efnahagslegra gæða, eru háðir þrýstingi frá þeim, sem settu þá á stallinn. Hér er um að ræða mikil- vægan þátt skýringa á hinum stór- felldu afskriftum ríkisbankanna á útlánum sínum. Og enn segir Ólaf- ur: „Vitanlega er pólitísk spilling vandamál hér á landi, þó að ég hafí ekki notað það orð um þjónkun við pólitíska sérhagsmuni sem hér hefur verið rædd.“ I sama blaði hinn 7. september 1993 segir hann: „Vegna þess hve íslenzki markaður- inn er lítill og einangraður er mikil hætta á því, að tilraunir til þess að koma hér á fijálsum markaði, endi í fákeppni og jafnvel einokun. Það er því óraunhæft að tala um slíkan markað, nema löggjafarvaldið setji viðskiptareglur, sem geri slíka skip- an mála virka.“ Kvótakerfið stefnir fiskveiðum lansdsmanna inná braut fákeppni í einkarekstri og er því víti til varnað- ar. Samkvæmt orðum Sverris má skoða Landsbankann sem dæmi um spillingu í opinberum rekstri og ætti að fara með mál hans sam- kvæmt því. Sverrir telur lausn spill- ingarinnar vera að einkavæða bank- ann. Væri það nokkur lausn? Hvers vegna má ekki uppræta spillinguna innan stofnunarinnar og snúa á veg heiðarleikans? Fjármálaráðherra er lausmjólkaðri á almannafé til greiðslu óreiðuskulda Landsbank- ans en til velferðarmálanna. Banka- málaráðherra virðist ekki hafa treyst sér í hreinsunaraðgerðir inn- an bankakerfísins. Hann hefði átt að taka hinn röggsama heilbrigðis- ráðherra sér til fyrirmyndar, sem lætur kné fylgja kviði í glímunni við sjúka, aldna og öryrkja. EINAR VILHJÁLMSSON, Smáraflöt 10, Garðabæ. í I I t íi I COMPACl Compaq Presario CDS 520 66 Mhz 486SX2 - 4/420. Innbyggður 14" SVGA skjár CD-ROM - 16 bita hljóðkort. Fax / mótald. Innbyggðir hágæða hátalarar. MS Works, MS Encarta, INCA2, leikir o.fl. 3 ÁRA ÁBYRGÐ 149.900 kr. 179.900 kr. með HP DeskJet 320 prentara Mumffimna * Compaq Presario 460 66 Mhz486SX2-4/270 Innbyggður 14" SVGA skjár MS Works 3 ÁRA ÁJBYRGÐ 99.900 kr. 129.900 kr. m. HP DeskJet 320 prentara Póatverdlun SÍMI587-7100 KRIPALUJ□GA HvrjaJii suniariO vcl, gcfOu |icr tínia Væntanleg námskeið Byrjendanámskeið mánudaginn 24. apríl kl. 20.00. Leiðbeinandi. Ingibjörg G. Guðmundsdóttir Byrjendanámskeið þriðjudaginn 2. maí kl. 16.30. Leiðbeinandi. Áslaug Höskuldsdóttir. „Heildrænn lífsstíll“ þriðjudaginn 2. maí kl. 20.00. Leiðbeinandi. Nanna Mjöll Atladóttir. JÚGA5TÖÐIN HEIIV15LJD5 Ármúla 15, sími 5B8 91B1 — einnig símsvari. Stúdentar í Osló með tölvuheimilisfang Frá Guðnýju Katrínu Einarsdóttur: MORGUNBLAÐINU hefur borist orðsending frá stúdentum í Ósló, sem er svohljóðandi: „FISN er félag stúdenta í Ósló. Um leið og við bjóðum íslendinga velkomna til Noregs, viljum við minna á heimilisfangið hjá FISN Gudrunarstofa, Sogn Studentby, Sognsveien 85, uppgangur 51,(hjá búðinni. Erum á efstu hæð), 0858 Oslo. Fastir liðir í starfsemi félagsins eru blaðakvöld á mánudagskvöld- um, með nýlegum Morgunblöðum og nýsteiktum vöfflum, sauma- klúbbur, kór, auk ýmissa annarra skemmtana. Félagið hefur einnig LÍN-full- trúa á sínum snærum og fulltrúa í SIDS, sem er félag íslendinga á Norðurlöndum. Sendið okkur línu og við sendum þér upplýsingar um hæl. Einnig er hægt að hafa sam- band við félagið med því að nota email, netfangið er: gudny- eifi.uio.no Fyrir hönd stúdenta í Ósló, GUÐNÝ KATRÍN EINARSDÓTTIR gudnyeifi.uio.no Opið alla " skana Já!Vá!Já! Kramhúsið er rétti staðurinn.. /r mig Leli og Músikleikfimi:V^óxS “J t/> • CP Salsa Flaitt® ro o3 X c ö c Vornámskeiðin hefjast 18. apríl. HÚ5I& Sími: 551 5103 HaóPa

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.