Morgunblaðið - 13.04.1995, Síða 96

Morgunblaðið - 13.04.1995, Síða 96
Afl þegar þörf krefur! f3GlHEWLETT IlZIpackard -------------UMBOÐIÐ HP Á ÍSLANOI HF Höfðabakka 9, Reykjavík, sími (91) 671000 Frá mögulcika til veruleika MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 669 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL1995 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Morgunblaðið/RAX Utanríkisráðherra - Kína á Bessastöðum UTANRÍKISRÁÐHERRA Kína, Qian Qichen, eiginkona hans, Zhou Hanqiong, og fylgdarlið heimsóttu Vigdísi Finnbogadótt- ur, forseta Islands, í gær. Var myndin tekin er þau ræddu sam- an á Bessastöðum; fyrir miðju er túlkur. Kínversku gestirnir komu hingað til lands um þrjú- leytið í gær með vél SAS-flugfé- lagsins og mun Qian ræða við þá Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra og Davíð Oddsson forsætisráðherra í dag. Gestimir halda héðan á laugar- dag til Bandaríkjanna. ■ Vaxandi samskipti/48 Fjögur erlend flugfélög með beint áætlunarflug til íslands í sumar Vikulegt sætafram- boð um 1.000 sæti EMERALD European Airways, EEA, sem stofnað var sl. haust og er í eigu íslenskra og breskra aðila, er eitt fjögurra erlendra flugfélaga sem verða með beint áætlunarflug til íslands í sumar. Auk EEA er um að ræða SAS og Lufthansa sem hafa flogið hingað undanfarin sum- ur, auk þýska flugfélagsins LTD sem hefur ekki verið með beint áætlunarflug hingað áður. Að meðaltali verður vikulegt sæta- framboð þessara flugfélaga á bilinu 900 til 1.000. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins mun áætlunarflug EEA frá Belfast til Keflavíkur hefjast um miðjan júní nk. Flogið verður þrisvar í viku með BAC 111-vélum sem taka 104 í sæti. Þá er í athug- un að fljúga frá Edinborg í Skot- landi til Keflavíkur, en ekki hefur verið tekin endanleg ákvörðum þar að lútandi. Flogið frá Belfast, Kaupmannahöfn og Diisseldorf Líkt og undanfarin ár flýgur SAS tvisvar í viku frá Kaupmannahöfn til Keflavíkur í sumar. Yfir háanna- tímann, frá júníbyijun til seinni hluta ágúst, verður þó flogið þrisv- ar í viku að þessu sinni. SAS notar MD-80, 110 eða 130 sæta eftir eft- irspum. Þýska flugfélagið Lufthansa mun hefja vikulegt áætlunarflug til Keflavíkur frá Frankfurt í lok maí. Líkt og undanfarin ár verður flogið með Boeing 737-300-vélum sem taka um 120 í sæti. Loks mun þýska flugfélagið LTU fljúga hingað viku- lega frá Dusseldorf með 209 sæta Boeing 575-200-vélum. Aukin eftirspurn Komum erlendra ferðamanna til íslands hefur fjölgað vemlega síð- ustu ár. Tæplega 180 þúsund ferða- menn komu til landsins á síðasta ári og er það 14% aukning frá árinu áður og 25 aukning frá 1992. Um helmingur þeirra ferðamanna sem komu til íslands í fyrra komu yfír háannatímann. Á aðalferðamannatímanum í fyrra var afkastageta Flugleiða fullnýtt og á tímabili annaði félagið ekki eftirspurn. Flugleiðir hafa í hyggju að bæta við flugvélaflotann á næsta ári, en Einar Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Flugleiða, segir að í sumar sé ætlunin að fjölga ferðum og auka þannig sætafram- boð til þess að mæta aukinni eftir- spum. ■ Fljúgandi/B8 Islensk menning- arhátíð í Þýskalandi ÍSLENSK menningarhátíð verður haldin í fjórum þýskum borgum í sumar, Bonn, Köln, Bielefeld og Krefeld. Landsstjórn þýska sam- bandsríkisins Nordrhein-Westfalen stendur fyrir hátíðinni og ákváðu menningarmálaráð borganna fjög- urra að veija umtalsverðum fjár- munum til hátíðahalda, sem hefjast í Bonn á þjóðhátíðardegi íslendinga, 17. júní og standa til 10. júlí. Dr. Winfried Gellner, frá menn- ingarmálaráði Kölnar, og Horst Adam, frá menningarmálaráði Biele- feld, segja að ekkert Norðurland- anna sé jafnvel kynnt á menningar- sviðinu í Þýskalandi og ísland. ■ Öll þýsk börn/49 Útgerð frystitogarans Kolbeinseyjar ÞH á Húsavík Fimm daga samningi við SH var sagt upp SAMNINGI íshafs, sem rekur frystitogarann Kolbeinsey, við Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna um sölu afurða, var sagt upp í gær. Samningurinn tók gildi fyrir tæpri viku, 7. apríl. Einar Njálsson, bæj- arstjóri á Húsavík og stjómarform- Jfrar Fiskiðjusamlags Húsavíkur og dótturfyrirtækisins íshafs, sagði í samtali við Morgunblaðið að ástæða uppsagnarinnar væri sú, að ákvæði samningsins um gildistíma hefðu verið óljós, en hann hefði aldrei átt að gilda nema í 6 mánuði. Húsavíkurbær á tæp 55% hluta- .•ir í Fiskiðjusamlaginu og Húsa- víkurbær og Fiskiðjusamlagið sameiginlega tæp 66% hlutafjár í íshafi hf. Ishaf hafði áður afurða- sölusamning við fyrirtækið íspóla, en fyrir tæpri viku var samið um að SH sæi um sölu afurða frysti- togarans Kolbeinseyjar. Þessum samningi hefur nú verið sagt upp. „Samningurinn átti aldrei að gilda nema í sex mánuði,“ sagði Einar Njálsson. „Orðalag hans var óskýrt og honum hefur þegar verið sagt upp.“ Aðspurður um hvort gengið yrði til nýrra samninga við SH sagði Einar, að ekki hefði verið tekin ákvörðun um við hveija yrði rætt um afurðasölu, en ýmsir kæmu þar til greina. Á aukaaðalfundi Fiskiðjusam- lagsins, sem haldinn var fyrir nokkru, var samþykkt að auka hlutafé félagsins um rúmlega helming, eða um 200 milljónir. Einar sagði að stjóm félagsins hefði þegar boðið út 100 milljón króna hlutafjáraukningu. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins hafa verið hugmyndir um að ÍS keypti hlut, en Einar kvaðst ekki vilja ræða það á þessari stundu hvort rætt hefði verið við ÍS. Frest- ur núverandi hluthafa til að nýta sér forkaupsrétt rynni ekki út fyrr en 19. maí og fyrr væri ekkert um málið að segja. Morgunblaðið/Rúnar Þór Mikil upplifun Diddú og Kristján eða Sigrún Hjálmtýsdóttir og Kristján Jó- hannsson voru klöppuð upp hvað eftir annað á Akureyri í á tónleikum Sinfóníuhljóm- sveitar Norðurlands í gær- kveldi, þar sem þau voru í aðal- hlutverkum, undir stjórn Guð- mundar Óla Gunnarssonar. Þau voru óspart hyllt af áhorfend- um í troðfullu íþróttahúsi KA í lok tónleikann og launuðu þakklátum áheyrendum með þremur aukalögum. MORGUNBLAÐIÐ kemur næst út miðvikudaginn 19. apríl. Krístinn og Guðjón saman á La Scala KRISTINN Sigmundsson barítón- söngvari og Guðjón Óskarsson bassasöngvari munu syngja burðar- hlutverk í nýrri uppfærslu á Rínar- gullinu, fyrsta hluta Niflungahrings Wagners, á La Scala í Mílanó í júní 1996. Stjómandi verður Riccardo Muti. Þetta verður frumraun þeirra félaga á fjölum þessa nafntogaða óperuhúss en Kristján Jóhannsson hefur sungið þar og Sigurður Dem- etz á árum áður. „Það er mjög gott að fá tæki- færi til að syngja á La Scala, enda virt óperuhús," segir Guðjón. „Við Kristinn verðum þama saman í hlutverkum jötnanna Fasolts og Fáfnis. Þeir eru alltaf saman á svið- inu en í lokin slettist upp á vinskap- inn og ég drep hann.“ Guðjón starfar við Óslóaróper- una, en er í tveggja ára leyfi til að sinna öðrum verkefnum. í maí verð- ur söngvarinn í Brassel og í júlí mun hann syngja á sumarhátíð í Glyndebourne á Englandi. Mörg járn í eldinum Upphaflega stóð til að Kristinn tæki þátt í uppfærslu á Töfraflaut- unni á La Scala um næstu jól. Þá verður hann hins vegar að syngja í La Bohéme í París og í staðinn var honum boðið að taka þátt í uppfærslunni á Rínargullinu. Geng- ið var frá samningum þar um fyrir nokkru. Kristinn hefur ekki síður mörg jám í eldinum en Guðjón. Síðasta kastið hefur hann sungið hlutverk Mústafa í uppfærslu á ítölsku stúlk- unni í Alsír eftir Rossini en sýning- um lauk í Berlín í gærkvöldi. í dag heldur hann síðan til Genf þar sem við taka stífar æfingar fyrir sýning- ar á Skosku púritönunum eftir Bell- ini sem hefjast í byijun maí.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.