Morgunblaðið - 03.10.1996, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.10.1996, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Málþing í tilefni af tíu ára afmæli Reykjavíkurfundar Gorbatsjovs og Reagans Bætti samskipti risaveldanna Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson SERGEI Rogov, stjórnandi rússneskrar stofnun- MAX Kampelman sendiherra lýsir reynslu sinni ar, sem rannsakar málefni Bandaríkjanna og frá 1986, en hann var einn helsti samningamað- Kanada, ræddi fundinn frá sjónarhóli Rússa. ur Bandaríkjamanna í afvopnunarmálum. MÁLÞING í tilefni þess að tíu ár eru liðin frá því að Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Míkhaíl Gorb- atsjov Sovétleiðtogi ræddust við í Höfða á Reykjavíkurfundinum hófst í gær og var niðurstaða þeirra sem tóku til máls sú að þar hefði verið stigið stórt skref í átt til afvopnunar og um leið verið greidd gata fyrir bætt samskipti risaveldanna eftir lægð í upphafi níunda áratugarins. Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra setti málþingið og rifjaði upp þær „sláandi breytingar", sem átt hefðu sér stað frá því að leiðtoga- fundurinn var haldinn. Hann bætti því við að nafn Reykjavíkur hefði verið ofið inn í sögu afvopnunar árið 1986. Leiðtogafundir vektu yfirleitt auknar væntingar um árangur, en væru venjulega of stuttir til að unnt væri að knýja fram samkomulag. Reykjavíkurfundurinn 12. til 13. október 1986 hefði verið undantekn- ing þar á. „Það er staðföst trú mín að ísland hafi lagt sitt að mörkum,“ sagði Halldór. „Nýjasti kjarnorkutilrauna- sáttmálinn sýnir það.“ Max Kampelman, sem var í samn- ingaliði Bandaríkjamanna á leiðtoga- fundinum, sagði að Reykjavíkurfund- urinn hefði verið „sögulegur áfangi á þeirri leið, sem mannkyn gengur hikandi skrefum í átt til 21. aldarinn- ar . . . í Reykjavík var glímt við flókin mál og ágreiningurinn var al- varlegiir,“ sagði Kampelman. „En okkur þótti sem við værum að ná samkomulagi." Annað viðmót Sovétmanna Ein ástæðan fyrir því, sagði Kampelman, var allt annað viðmót Sovétmanna en í viðræðunum í Genf. Sagði hann að Sergei Akhromejev, yfírmaður sovéska herráðsins, sem fyrirfór sér eftir valdaránstilraunina í ágúst 1989, hefði átt mestan þátt í því að Bandaríkjamenn og Sovét- menn næðu saman, þótt ekki tækist samkomulag vegna ágreinings Gorb- atsjovs og Reagans um geimvamaá- ætlun Bandaríkjamanna (SDI). „Ég var hins vegar viss um að þessi mál mundu skjóta aftur upp kollinum í Genf og þá yrðu þau leyst án þess að SDI yrði til trafala,“ sagði Kampelman. „Niðurstaðan varð sú að við gerðum sáttmálana um meðal- drægar (INF) og langdrægar flaugar (START).“ Donald T. Regan, þáverandi skrif- stofustjóri Bandaríkjaforseta, sagði að Reykjavíkurfundurinn hefði verið þess virði, meðal annars vegna þess að þar hefðu risaveldin náð saman og hann hefði ýtt undir upplausn sovéska heimsveldisins. „Skrá verður fundinn sem sigur fyrir mannkyn," sagði Regan. Ekki ógnar- heldur hagsmunajafnvægi Sergei Rogov, stjórnandi Rann- sóknarstofnunar á Bandaríkjunum og Kanada í Moskvu, sagði að miili Bandaríkjanna og Sovétríkjanna hefði ríkt samkeppni á öllum sviðum, jafnt í hernaði sem menningu og efnahagsmálum, og fram að Reykja- víkurfundinum hefði markmiðið aldr- ei verið að binda enda á hana. Það hefði breyst með Reykjavíkurfundin- um. Gorbatsjov hefði viljað binda enda á kalda stríðið en án þess að eftir stæðu sigurvegarar og hinir sigruðu. Hann hafí séð fram á tíma þar sem ekki ríkti ógnaijafnvægi, heldur jafnvægi hagsmuna. Til þess þyrfti samstarfsvilja og yrðu Rússar einangraðir væri framtíðin óviss. Dr. Steven E. Miller, frá vísinda- og alþjóðastofnun Harvard-háskóla, rakti áhrif fundarins í sjö liðum, en sagði að mikilvægast hefði verið að bundinn hefði verið endi á langvar- andi kyrrstöðu í afvopnunarmálum og öðrum samskiptum austurs og vesturs. Þar skipti einnig máli hvaða áhrif fundurinn hefði haft á mannleg samskipti og þá sérstaklega milli Reagans og Gorbatsjovs. Stanislav Kondrasjov, stjórnmála- skýrandi dagblaðsins Ízvestíu, kvaðst hafa fjallað um alla leiðtogafundi Gorbatsjovs og Reagans nema Reykjavíkurfundinn. Hann sagði að Gorbatsjov hefði gert sér grein fyrir því eftir Reykjavíkurfundinn að hann gæti unnið með Reagan, báðir hefðu skilið að of mikið var lagt undir í viðureign risaveldanna. Kondrasjov sagði að margt hefði breyst síðan þá og menn ættu að hafa hugfast að 1986 var Jeltsín enn bandamaður Gorbatsjovs. Á þessum tíu árum hefði alræðiskerfið verið lagt af en í stað sósíalisma með mannlega ásjónu, sem Gorbatsjov hefði dreymt um, hefði tekið við kapítalismi með ásjónu glæpa. Richard Pipes, prófessor við Har- vard-háskóla, sagði að Reagan hefði alla tíð, meira að segja þegar sam- skiptin milli austurs og vesturs voru hvað stirðust í forsetatíð hans, verið að hugsa um nálgun við Sovétríkin. Pipes starfaði í þjóðaröryggisráðinu fyrstu tvö árin af valdatíð Reagans og minntist þess þegar bréf frá hon- um var ritskoðað vegna þess að þar þótti gengið of langt í eftirgjöf. Hann sagði að Gorbatsjov hefði verið knú- inn af því að til þess að geta ein- beitt sér að umbótum heima fyrir hefði þurft að slaka á spennunni í utanríkismálum. Málþingið heldur áfram á Grand Hóteli í dag. Verður fjallað um sam- skipti Bandaríkjamanna og Rússa á tímamótum og samstarf og ágreining í samskiptum þjóðanna. Fjárlagafrumvarp lagt fram með afgangi Spáð er 2,5% hagvexti á árinu 1997 Batinn notaður til að greiða niður skuldir Morgunblaðið/Þorkell FRIÐRIK Sophusson kynnir fjárlagafrum- varp ársins 1997. Til vinstri er Halldór Árna- son, skrifstofusljóri. „ÞAÐ er afar mikilvægt að sá efnahagsbati sem við finnum núna verði nýttur til þess að greiða niður skuld- ir,“ sagði Friðrik Sophusson fjármálaráðherra þegar hann kynnti flölmiðlum ij'ár- lagafrumvarp fyrir árið 1997, en frumvarpið gerir ráð fyrir að ríkissjóður verði rekinn með rúmlega eins milljarðs króna afgangi. Rík- issjóður hefur ekki verið rek- inn með afgangi síðan árið 1984. Friðrik sagði að þetta fjárlagafrumvarp, sem er það fimmta sem hann leggur fram, endurspeglaði að bjartara væri yfir efnahags- lífinu nú en oft áður. Betri efnahagur væri hins vegar ekki röksemd fyrir því að auka útgjöld ríkissjóðs. „Ef við greiðum ekki niður skuldir og rekum ekki ríkis- sjóð með afgangi þegar vel gengur, hvernig eigum við þá að geta það þegar illa árar? Þetta sjá allir sem standa fyrir heimili eða reka fyrirtæki. Rekstur ríkisins lýtur alveg sömu lögmálum. Við þessi skilyrði þarf að leggja til hliðar og greiða niður skuldir og það ætlar þessi rík- isstjórn að gera. Ef við gerum það ekki erum við að vísa á framtíðina, m.ö.o. að komandi kynslóðir greiði skuldirnar fyrir okkur, annaðhvort með því að rifa seglin í útgjöldum ríkisins, jafnvel í viðkvæmum mála- flokkum, eða með því að borga meiri skatta.“ Friðrik sagði að í fjárlagafrum- varpinu væri gengið út frá því að kjarasamningar yrðu í takt við efna- hag þjóðarinnar. Frumvarpið byggð- ist á þeirri forsendu að launahækk- anir hér á landi á næsta ári yrðu eins og meðalkaupmáttaraukning í löndum OECD. Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra sagðist telja að frumvarpið væri gott innlegg í þær kjaraviðræð- ur sem framundan væru. „Það er visst svigrúm í þessu frumvarpi til þess að koma til móts við sjón- armið aðila vinnumarkaðar- ins. Það eru vissir möguleikar til þess að lækka jaðarskatta og breyta til í skattlagningu. Við höfum tekið upp fjár- magnstekjuskatt og tekjum af honum hefur ekki verið ráðstafað til nýrra útgjalda. Þvert á móti er gert ráð fyrir að öll ný skattlagning verði notuð til að skapa möguleika til að lækka aðra skatta.“ Velferð varin Halldór sagði að útgjöld samkvæmt íjárlagafrumvarp- inu væru heldur meiri en rík- isstjórnin hefði stefnt að, en útgjöld aukast um 1% miili ára. „Það má segja að eðliiegt hefði verið að stefna að óbreyttum útgjöldum milli ára sérstaklega í ljósi þess að einkaneysla hefur aukist og viss spenna er í efnahagslíf- inu. En það eru fleiri mark- mið sem þarf að Iíta til, m.a. viljum við veija velferðarkerf- ið. Velferðarkerfið verður hins vegar ekki eingöngu varið með því að setja í það meiri peninga. Við getum ekki leyft okkur að auka út- gjöldin og safna skuldum og ætlast til þess að komandi kynslóðir borgi. Það er mikill misskilningur, sem stundum er haldið fram, að það sé einhver sérstök árás á velferðarkerf- ið þó þar sé beitt aðhaldi og sparn- aði. Ef við gerðum það ekki myndi kerfið springa og við réðum ekki neitt við neitt. Aðhald er því hluti af stefnu okkar að veija velferðar- kerfið." Viðskiptahalli áætl- aður 15 milljarðar HAGVÖXTUR hér á Iandi stefnir í 5,5% á þessu ári og miðað við for- sendur þjóðhagsáætlunar, sem lögð var fram á Alþingi í gær, verður vöxturinn 2,5% á næsta ári. Spáð er áþekkum hagvexti næstu árin á eftir. Ekki er gert ráð fyrir byggingu álvers á Grundartanga í þjóðhagsá- ætlun Þjóðhagsstofnunar en þó er tekið fram að ef álverið verður reist, leiði það til þess að hagvöxtur á næsta ári verði um 4%. 2% verðbólga Reiknað er með að verðbólga verði um 2% á árinu 1997 og ástand á vinnu- markaði svipað og á þessu ári. Við- snúningur hefur orðið á viðskiptajöfn- uði og er nú gert ráð fyrir að 9 millj- arða halli verði á viðskiptajöfnuði á þessu ári og að viðskiptahallinn verði um 15 milljarðar kr., eða sem svarar 2,9% af landsframleiðslu, á næsta ári. Gert er ráð fyrir að þessi halli hverfi í áföngum á árunum 1998-2000. Útflutningur vöru og þjónustu eykst um 2,8% á næsta ári, skv. áætlunum Þjóðhagsstofnunar. Stofn- unin telur að hreinn hagnaður at- vinnurekstrarins í landinu hafi numið um 3,5% af tekjum í fyrra. Hagur atvinnurekstrarins í heild verði áþekkur í ár og í fyrra og svipaður eða litlu betri á næsta ári. Þá er því spáð að fjármunamyndun aukist um 5,5% á árinu 1997. Andlát EINAR ÁRNASON EINAR Ámason, fyrr- verandi flugstjóri og útgerðarmaður, er lát- inn. Hann fæddist 22. júlí árið 1925 í Landa- koti í Sandgerði. Foreldrar Einars voru Sigríður Magnúsdóttir húsmóðir og Árni Magnússon útvegsbóndi í Landakoti í Sandgerði. Einar gekk í kvöldskóla í Sandgerði á árunum 1940-1941 og sótti mótornámskeið í Reykjavík árið 1942. Hann var við flugnám við Spartan School of Aeronautics í Tulsa, Oklahoma á árunum 1946- 1947 og við Air Service Training í Southampton í Englandi árið 1951- 1952. Að námi loknu hlaut hann bresk flugstjórnarréttindi hin meiri og réttindi sem flugleið- sögumaður. Einar var flugmaður hjá Loftleið- um hf. árið 1947-1948 og flugstjóri hjá sama félagi 1948-1964 er hann sneri sér að út- gerð. Einar var formaður FÍA árin 1952-1953, átti sæti í stjórn Loft- leiða hf. frá 1953 og síðar í stjórn Flugleiða hf. til ársins 1988. Hann var forstjóri og aðaleigandi útgerðarfé- lagsins Borgarkletts hf. 1962-1971 ogBúðakletts hf. 1963- 1969. Þá var hann stjórnarformaður og meðeigandi Sjóla hf. frá 1964. Einar kvæntist 1963, Maríu Bergmann skriftargreini-MGA. Hann lætur eftir sig fjögur börn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.