Morgunblaðið - 30.10.1997, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 30.10.1997, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1997 15 AKUREYRI Ný aðferð við efnisöflun Kísiliðjunnar lofar góðu Stefnt að tilraunum í Mývatni sem fyrst KÍSILIÐJAN við Mývatn. Á VEGUM Kísiliðjunnar í Mývatnssveit hefur ver- ið unnið að rannsókn á nýrri aðferð við efnis- vinnslu í Mývatni. Rann- sóknin fór fram í til- raunastöð í Hollandi en í framhaldi af þeim nið- urstöðum sem nú liggja fyrir, er stefnt að því að hefja tilraunir við efni- söflun í Mývatni með þessari nýju aðferð sem fyrst, jafnvel strax næsta sumar. Hreiðar Karlsson, stjórnarformaður Kísil- iðjunnar, segir niður- stöður rannóknarinnar það vænlegar að rétt sé að gera tilraunir á því svæði í Mývatni þar sem verksmiðjan hefur leyfi til efn- istöku, þ.e. í Ytri-Flóa. Aðferðin lýtur að því að sækja kísilgúrinn undir botn vatnsins, án þess að raska yfirborði botnsins. Raunhæfur möguleiki „Menn hafa líkt þessu við kýrplóg en slík tæki hafa m.a. verið notuð við að plægja niður jarðstrengi og ræsa fram. Hugmyndin byggist á því að fara undir botninn og at- hafna sig þar. Við eigum hins veg- ar langt í land með að gera þetta að veruleika en menn telja sig sjá fram á að þetta geti verið raunhæf- ur möguleiki." Kísiliðjan hefur vinnsluleyfi í Ytri-Flóa til ársins 2010 en talið er að búið verði að hreinsa allan kísilgúr á svæðinu árið 2004 eða 2005. Því leitar Kísil- iðjan nýrra leiða við efnisöflunina. Eins og fram kom í Morgunblað- inu nýlega hafa landeigendur í Vogum við Mývatn sent umhverfis- ráðuneytinu erindi, þar sem óskað er eftir því að gefin verði fyrir- mæli um að Kísiliðjan dæli úr botni Vogaflóa og Kálfstjörn. Landeig- endur telja að svæði í Vogaflóa sé orðið svo grunnt að silungur sé að hverfa. Auk þess muni Kísiliðjan væntanlega fá þar hráefni um ára- bil. Landeigendur minna einnig á Kálfstjörn, þar sem einnig sé gott hráefni. Svæðið sé hins vegar alveg snautt af fiski og mörgum andategund- um og því mikilvægt að það verði dýpkað. Merkilegt álit í umræðuna Guðmundur Bjarna- son umhverfisráðherra segir að erindi landeig- enda sé til skoðunar í ráðuneytinu og hann geti því lítið tjáð sig um málið að svo stöddu. Guðmundur sagði þó merkilegt að fá álit landeigenda inn í þá umræðu sem framundan er. í framhaldi af niðurstöðum rann- sókna á þessari nýju aðferð við efnisöflun sagðist Guðmundur gera ráð fyrir að farið yrði fram á mat á umhverfisáhrifum vegna hennar. Þannig að það yrði skoðað ítarlega hvort hægt væri að ná samkomu- lagi um áframhaldandi efnistöku í vatninu. „Eftir að gerðar hafa verið til- raunir með þessari nýju aðferð í vatninu gætu mál farið að skýrast eitthvað og þá hvort mögulegt er að fá áframhaldandi námavinnslu- leyfi út á nýjar vinnsluaðferðir,“ sagði Guðmundur. Morgunblaðið/Kristján Flutningabíll og dráttarvél í árekstri FLUTNINGABÍLL og dráttarvél með mykjudreifara skullu harka- lega saman á þjóðveginum á Svalbarðsströnd um miðjan dag í gær, með þeim afleiðingum að bæði ökutækin höfnuðu utan vegar. Okumaður dráttarvélar- innar skarst á höfði og var flutt- ur á slysadeild FSA en meiðsl hans voru þó ekki talin alvarleg. Ökumaður flutningabílsins slapp ómeiddur. Ökumaður flutningabilsins hugðist fara fram úr dráttarvél- inni við afleggjara inn á tún, á sama tíma og ökumaður dráttar- vélarinnar beygði inn á afleggj- arann. Ökutækin rákust harka- lega saman og stungust bæði út fyrir veg. Dráttarvélin er mikið skemmd ef ekki ónýt en m.a. brotnuðu bæði afturhjól hennar undan í látunum svo og annað hjólið á mykjudreifaranum. Flutningabíllinn skemmdist nokkuð. Kynning• á skrifstofu- búnaði HLJÓMVER á Akureyri efnir tii sýningar á skrifstofubúnaði í verslun sinni við Glerárgötu á föstudag frá kl. 9-18 og laug- ardaginn 1. nóvember frá kl. 10 til 17. Meðal þess sem sýnt verður og kynnt eru ljósritunar- vélar, símbréfstæki, skjávarp- ar, sjóðsvélar, reiknivélar, skipuleggjarar og GSM-símar. Morgunblaðið/Kristján Um 700 nemendur hlupu NEMENDUR Brekkuskóla tóku þátt í Norræna skólahlaupinu í siðustu viku. Alls tóku um 700 börn í 1.-10. bekk þátt og gátu þau valið um að hlaupa 2,5, 5 eða 10 km. Einnig hlupu kennarar og starfsmenn skólans. Jóhannes Bjarnason, íþróttakennari sagði tilganginn með hlaupinu m.a. að stuðla að hreyfingu nemenda og um leið væri þetta ágætis leið til að brjóta upp skólastarfið. Foreldraráð Síðuskóla Kennaraskortur og þrengsli há starfi FORELDRARÁÐ Síðuskóla hefur sent skólanefnd Akureyrar bréf þar sem fram kemur að ráðið telji að farsælt starf skólans sé í verulegri hættu. Kennaraskortur og þrengsli í skólanum séu meiri en við verði unað og nefnt sem dæmi að um 30% kennslukrafta séu leiðbeinendur, rúmlega fimmtungur kennara hafi sagt upp, fjöldi nemenda í mörgum bekkjardeildum sé of mikill og sér- hæft starfsfólk alltof fátt. Hvetur foreldraráð íbúa skóla- hverfisins til að þjappa sér saman um skólann. Gerir ráðið þá kröfu til bæjaryfirvalda, að veitt verði nauð- synlegt viðbótarfjármagn til úrbóta þegar í stað. Guðmundur Sigvaldason sem sit- ur í foreldraráðinu sagði að frá upp- hafi hefði skólastarf verið farsælt. Nú óttuðust menn að það gæti verið í hættu. „Skólinn er að ganga í gegn- um breytingarskeið,“ sagði Guð- mundur og nefnir mikil þrengsli vegna einsetningar. Sex kennslu- stofur vantar til að fullnægja hús- næðisþörf. Fram til þessa hafa að jafnaði verið þijár bekkjardeildir í árgangi, en nú í haust var sumum þeirra skipt upp í tvo bekki sem þá eru stórir, með allt að 30 nemendum. Guðmundur sagði að það myndi bjarga miklu ef ein laus kennslu- stofa yrði sett á lóð skólans og ef hægt væri að komast að samkomu- lagi við foreldra barna í einni bekkj- ardeild um að mæta í kennslu eftir hádegi myndi það létta á og minnka þrengsl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.