Morgunblaðið - 30.10.1997, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 30.10.1997, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1997 27 LISTIR Svanurinn hlýtur lofsamlega dóma á Spáni SVANURINN, skáldsaga Guðbergs Bergssonar, kom nýverið út á Spáni í þýðingu Aitors Yraola, hjá bóka- forlaginu Tuquets. Henni hefur ver- ið mjög vel tekið af gagnrýnendum og fjallað hefur verið um bókina og höfundinn í mörgum spænskum og suður-amerískum dag- blöðum og tímaritum. Viðtöl við Guðberg birtust m.a. í tveimur útbreiddustu dagblöð- um Spánar, E1 País og La Vanguardia og í CAMBIO 16, einu helsta vikutímariti landsins. í heilsíðugrein í La Vanguardia fjallar hinn þekkti rithöfund- ur Robert Saladrigas ítarlega um Svaninn og lýkur grein sinni á þessum orðum: „Þetta er falleg bók og nærgöngul og þar er að finna að breyttu breytanda hinn skapandi kjarna góðra bókmennta. Mikilvægi hans er enn einu sinni staðfest í þessari bók sem berst okkur frá ljarlægu landi." Ævifer- ill Guðbergs er einnig rakinn og getið um lofsamlegan dóm Milans Kunderas um Svaninn og höfund hans. Þá er Svanurinn ein þriggja bóka sem bókmenntagagnrýnendur La Vanguardia telja bestu skáld- verk júlímánaðar. í þekktasta dagblaði Spánar, E1 País, var flallað um Svaninn. Þar var hann í hópi þeirra fímm erlendu bóka sem J. Emesto Ayala-Dip taldi skyldulesningu bókmenntaunnenda. í tímaritinu Qué leer fær bókin háa einkunn og gagniýnandinn Carles Barba segir lausn sög- unnar snjalla og í anda þeirra íslendingasagna sem Jorge Luis Borges hafí hrifíst svo mjög af: „Telpan gengur ein- sömul upp á ijall og finnur vatnið, og síðan svaninn, sem hún þekk- ir úr frásögnum fólks- ins í nágrenninu. Þessi fundur er markaður afar bjartri tilfínningu þar sem guðdómurinn og lífíð renna saman í eitt og Guðbergur Bergsson flytur okkur á meistaralegan hátt.“ í tímaritunum E1 Sem- anal og MÍA fær Svanurinn einnig afar jákvæða dóma. Þær góðu viðtökur sem bókin fékk á Spáni leiddu til þess að hún seldist upp og kom út í öðru upp- lagi um það leyti er mánuður var liðinn frá útgáfudegi. Eins hefur Svanurinn verið gefinn út af bóka- forlagi í Mexíkó sem dreifir henni um alla Suður-Ameríku. Svanurinn kom fyrst út hjá For- laginu árið 1991 og hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin. Hún hefur þegar komið út í Bretlandi, Dan- mörku, Svíþjóð, Tékklandi, Frakk- landi og Spáni. Á næsta ári er hún væntanleg í þýskri þýðingu hjá hinu virta forlagi Steidl. Guðbergur Bergsson Börn í gleði og sorg BOKMENNTIR Barnabók VINABÖND eftir Sigrúnu Oddsdóttur. Mynd- skreytingar Freydisar Kristjánsdótt- ur. Barnabókaútgáfan 1997. Prent- húsið ehf. - 72 blaðsíður. „VEISTU hvað gerist ef maður þekkir engan? - Kynnist! “ (b!s 5). Þannig byijar barnasaga Sigrúnar Oddsdótttur, „Vina- bönd.“ Hildur tekur Villu á orðinu og áður en varir hefur hún kynnst fjölmörgum krökkum í sjávarþorp- inu. Hún er úr borginni og ýmislegt kemur á óvart í samfélaginu. Lífið er nátengdara náttúrunni og atvinna flestra tengist sjósókn á einn eða annan veg. Börnin eru opinskárri og nota skrýtin orð eins og að „vippa“ (bls. 11) og „heybrók" (bls. 62). Hildur byijar í skól- anum og lífið heldur áfram að koma á óvart. Hún fer á skíði og hestbak og renn- ir hýru auga til stráks í bekknum. Smám saman opnast glufur inn í heim hinna fullorðnu. Mamma Hild- ar missir fóstur og foreldrar Villu skilja. Að vissu leyti felur söguþráð- urinn í sér hringrás því að til stend- ur að Villa flytji í burtu með móður sinni eftir skilnaðinn. Engu að síður ætla vinkonurnar að halda áfram að vera vinkonur eins og Hildur hefur haldið áfram að vera vinkona Stellu eftir að hún flutti frá borginni í sjávarþorpið. Vinabönd er Ijúfsár saga um sorg- ir og gleði lítillar stúlku og vina hennar í íslensku sjávarþorpi. Ekki er talað niður til hins unga lesanda. Hann er jafningi, einn af hinum í gleði og sorg. Sorgin er ekki íþyngj- andi til lengdar enda draga nýir at- burðir aftur og aftur að sér athygli. Eini gallinn á annars mjög trú- verðugri og góðri frásögn felst í persónusköpun innan fjölskyldna Hildar og Villu. Fjölskylda Hildar er samheldna menntaljölskyldan úr borginni á meðan Villa tilheyrir sundraðri sjómannsfjölskyldu í sjáv- arþorpi. Pabbi Villu á við áfengis- vandamál að stríða og mamma henn- ar skefur ekki utan af hlutunum svo aðkomukonunni úr borginni blöskrar á stundum. „Fyrirgefið þið, ég er svolítið sein fyrir“ segir mamma Villu, „ég hef enga skál til að þeyta ijómann í af því að strákurinn skeit í skálina,“ segir hún hispurslaust og strýkur hárlokk frá enninu með handarbak- inu. Hildi finnst mamma svolítið skrítin á svipinn (bls. 19). Þrátt fyrir hnyttna sýn á samskipti . tveggja ólíkra kvenna er upp- bygging Ijölskyldunnar því miður til þess fallin að styðja við, alltof út- breidda, fordóma gagn- vart íbúum smárra sjávarþorpa á íslandi. Höfundurinn á auðvelt með að setja sig í spor barnsins, skilar raunsæjum og áhugaverðum sögu- þræði frá sér í líflegum stíl og á góðri íslensku. Sagan ætti að henta yngstu lesendunum, strákum og stelpum, einstaklega vel, enda er hún ekki löng og línubilið gott. Fyrir utan að sagan er auðvitað spenn- andi og skemmtileg aflestrar. Gam- an verður að fylgjast með næstu sögum höfundarins. Myndskreytingarnar eru hóflegar og styðja vel við textann. Allur frá- gangur er til stakrar fyrirmyndar. Anna G. Ólafsdóttir Sigrún Oddsdóttir Aðeins í 3 daga; STÓRÚTSALA MblMilM-MI IMSMM MM tfSMM 1 nmlfinr íiiH nWrn hmtfi í niif LdEiiiiiiur fiii mm iiih í piii aS 48 miik $ SUZUKI -- SUZUKIBÍLAR HF. Skeifunni 17 • Sími 568 5100 Mikið úrval góðra, notaðra bíla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.