Morgunblaðið - 20.01.1998, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.01.1998, Blaðsíða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR Landsliðið í knattspyrnu í austurveg Mótherjar íslands í undankeppni EM Færeyjar Finnland Noregur Svíþjóð gm / Eistland [|aKVJ / V LetWánd^B ytháeh>y Ö , 'Hvíta-^ : Rússlandl i, Pólland n — -i Skötland írland '? \ Walffs.- England .A-f' / Holland Daiynwí'i- 1986: ísland - Sovétr. 1:1 1987: Sovétr. - ísland 2:0 Tékkland .0mM stein , Slóvakíal..- *J| sfumki ungveijál. Molltól Slóvonla Rúmenía 1 u Króatia 7 Bosnia'lögðf..........r' , slavia; Búlgaria, llíá ■. Wakedónia . , Island hefur þrisvar dregist gegn Frökkum í EM: Portúgal GeorgíaJtzerbaiján 1975: Island - Frakkl. 0:0 1975: Frakkl. - ísland 3:0 f Urslita- keppnin fer fram í Belgíu og Hollandi Nárið 2000/ Tyrkland 1986: Island - Frakkl. 0:0 1987: Frakkl. - ísland 2:0 GrikktaQd S'li1 1990: Island - Frakkl. 1:2 1991: Frakkl. - ísland 3:1 Rússland Úkraína ■ DAÐI Dervic, fyrrum landsliðs- maður í knattspyrnu, sem hefur leikið með Leiftri á Ólafsfirði, hefur gengið til liðs við Þrótt Reykjavík. ■ ERIK Veje Rasmussen hefur ver- ið ráðinn þjálfari þýska handknatt- leiksliðsins Flensburg-Handewitt fyrir næsta keppnistímabil. Ras- mussen, sem er 38 ára fyrrverandi landsliðsmaður Dana, hefur verið spilandi þjálfari hjá svissneska lið- inu St. Ótmar/St. Gallen sem Júl- íus Jónasson leikur með. ■ LOUIS van Gaal, stjóra Barcelona, var boðið að taka við landsliðsþjálfarastöðu Hollands í knattspymu eftir HM, en Guus Hiddink hefur gefið til kynna að hann ætli að hætta. Van Gaal á eft- ir tvö ár af samningi sínum og hafn- aði tilboði Hollendinga. ■ JANI Sievinen frá Finnlandi náði ekki að verja titilinn í 200 metra fjórsundi á HM í sundi. Óreglulegur hjartsláttur í undan- rásum kom í veg fyrir að heims- methafinn gæti keppt. ■ KEPPNINNI var frestað í tvær mínútur en Sievinen, sem er 22 ára, varð að hætta við að keppa. „Hjart- að sló æ hraðar og ég náði ekki andanum,“ sagði hann. Sundmaður- inn hefur átt við þennan vanda að stríða undanfarið ár en ekki er talin hætta á ferðum. ■ AUSTURRÍKI hefur sótt um leyfi til að senda skíðastökkvarann Andreas Goldberger á Vetrar- ólympíuleikana í Nagano í Japan. ■ GOLDBERGER viðurkenndi í fyrra að hafa neytt kókaíns einu sinni og var settur í keppnisbann. Hann reyndi að komast að hjá öðru landi en það gekk ekki. Goldberger var síðan tekinn inn í austurríska landsliðshópinn fyrir skömmu. ■ GREINT var frá því um helgina að heimsmeistarakeppnin í sundi í 25 metra laug verður haldin í Aþenu árið 2000. Áður hefur komið fram að keppnin næsta ár verður í Hong Kong í apríl. ■ JAPAN hleypir engum inn í land- ið sem hefur neytt eiturlyfja og hafa þessi ströngu lög bitnað m.a. á Diego Maradona og mörgum hljómlistarmönnum. Samt verðui- umsókn Austurríkismanna tekin íyrir hjá yfirvöldum. ■ SIGURÐUR Jónsson og samherj- ar í Dundee United gátu ekki tekið á móti Celtic í skosku úrvalsdeild- inni í knattspyrnu um helgina vegna veðurs. ■ GILBERT Gress, þjálfari Neuchatel Xamax undanfarin 15 ár, verður næsti landsliðsþjálfari Sviss í knattspyrnu. Samningurinn er út júní árið 2000. ■ PAOLO Futre, miðherji Atletico Madrid á Spáni, leikur með La Portuguesa í Brasilíu út tímabilið. Brasilíska félagið fékk miðherjann lánaðan en hann hefur aðeins verið með í fimm deildarieikjum Atletico á tímabilinu. ■ TEEMU Selanne frá Finnlandi var kjörinn besti maður stjörnu- leiks NHL-deildarinnar í íshokkí sem fór fram um helgina. Hann gerði þrjú mörk fyrir heimsliðið en heimamenn (Kanadamenn og Bandaríkjamenn) unnu 8:7. NAGANO Skíðasamband íslands óskaði eftir því að lágmörk Alþjóða ólympíunefndarinnar, IOC, giltu við val íslensku keppendanna á Vetrarleikunum í Nagano í Japan í næsta mánuði og varð íþrótta- og Ólympíusamband Islands við þeirri bón. Því voru allir átta í alpagreinum valdir á leikana sem voru innan við 500 á styrldeikalísta heimslista Alþjóða skíðasambandsins í nóvember sem leið. Við- miðun Óí í Lille- hammer í Noregi fyrir fjórum ár- um var 260 á styrkleikalistanum. Rökin fyrir stefnubreytingu ÍSÍ eru góð og gild; ástæðulaust er fyrir ísland að vera með önnur lágmörk en IOC setur og fjar- stæðukennt að ætlast til að ís- lenskii- keppendur nái verðlauna- sæti á Ólympíuleikum. Þátttakan á fyrst og fremst að vera hvatning til íslenskrar æsku - með því að leggja sig fram er möguleiki að komast ú helstu íþróttahátíð heims. ÍSÍ varpai- ábyrgðinni á vali íþróttafólksins yfir á viðkomandi sérsambönd. „Þeiira er að meta hvort þau vilji leggja út í kostnað með því að senda íþróttafólk til út- landa í æfingai- og keppni til að búa það undir Ólympíuleika," sagði forseti ÍSÍ við Morgunblaðið á liðnu sumri þegar Ijóst var hvert stefndi. „Þau senda ekki fólk sem á ekkert erindi á Ólympíuleika heldur frambærilega keppendur sem hafa stundað æfingar af kost- gæfni og náð árangri í alþjóðleg- um mótum.“ GrundvaUaratriði í þessu er að ekki er sjálfgefið að aJlir, sem ná lágmarki, fari á Ólympíuleika. T.d. eiga Svíar marga frambærilega skíðamenn í alpagreinum en þeir senda aðeins sjö til Nagano. Is- lendingar eiga einn frábæran skíðamann en aðrir standa honum langt að baki. Enginn þeirra er innan við 160 á heimslistanum, en snillingurinn, sem er í fremstu röð í heiminum, dregur sjö með sér inn á leikana. Vonandi standa íslensku kepp- endurnir sig í Nagano og verða öðrum fyi-irmynd, en árangur sjömenninganna á alþjóðlegum mótum bendir til að þeir komi til með að eiga erfitt uppdráttar - verði aftarlega eða falli úr keppni, en það síðar nefnda getur reyndai- hent hvaða keppanda sem er. Á Ólympíuleikunum í Atlanta fékk írland þrenn gullverðlaun og ein bronsverðlaun. Sama stúlkan var á palli í öll skiptin. Hún náði lág- mörkum fyrir heimsmeistara- keppnina í sundi sem lauk í Perth í Ástralíu um helgina, en fór hvergi - sagðist ekki eiga erindi. Málið er að auðvelt er að segja að aðalatriðið sé að vera með, en það hlýtur að vera erfitt og lítt uppörvandi fyrir flesta ef ekki alla að eiga ekki möguleika á að vera fyrir fi-aman miðju. Þó spennandi og gaman sé að fara á Olympíu- leika - geta sagst hafa verið með þeim bestu - getur hvorki verið skemmtilegt að reka lestina né hvatning fyrir aðra að feta í slíkt íötspor. Það eru fyrst og fi-emst afreksmenn í íþróttum sem hvetja aðra til dáða og bjarnargreiði er að senda miðlungsmenn á Ólymp- íuleika, þó þeir séu í hópi þeirra bestu á landinu. Steinþór Guðbjartsson Nauðsynlegt að vera með á Ólympíuleikum en vanda verður valið Stefnir fyrirliði Stjörnunnar, HERPÍS SIGURBERGSDÓTTIR, að þreföldum sigri í ár? Það býr mun meira í liðinu HERDÍS Sigurbergsdóttir er fyrirliði Stjörnunnar sem hefur sjö stiga forskot í efsta sæti 1. deildar kvenna að loknum 16 umferðum. Herdís og stöllur hennar hafa verið að leika vel betur og betur eftir því sem á hefur liðið. Um liðna helgi sigr- aði Stjarnan sameinað lið Gróttu/KR 33:23 á Seltjarnarnesi og var þetta 13. sigurleikur Garðbæinga í röð í deildinni. Þá er iiðið komið í undanúrslit bikarkeppninnar og mætir ÍBV í Garðabæ á miðvikudaginn. Herdís er 26 ára og segist hafa verið í kringum handknattleik frá því hún man eftir sér en for- eldrar hennar voru Eftir báðir í handknatt- ívar leiknum, faðirinn, Benediktsson Sigurbergur Sig- steinsson, lék með Fram á sinni tíð og móðirin, Guð- rún Hauksdóttir, stóð í eldlínunni hjá Víkingi árum saman. „Ég var ekki gömul þegar ég fór á æfingu í fyrsta skipti,“ segir Herdís sem hefur leikið með meistaraflokki Stjömunnar og landsliðinu síðan hún var 16 ára. Herdís hefur æft með Stjörnunni frá 9 ára aldri en hóf ferilinn hjá Fram en söðlaði um er fjölskyldan flutti í Garðabæ. Hún á að baki 276 leiki með meist- araflokki Stjömunnar og fjölda landsleikja. Herdís, sem er aðstoð- armaður á tannlæknastofu, er í sambúð með Jörandi Áka Sveins- syni íþróttakennara og þjálfara meistaraflokks kvenna hjá Breiða- bliki. Dóttir Herdísar er Sigrún María; 4 ára. - I ljósi þess að foreldrarnir æfðu handknattleik, og fleiri skyld- menni, kom þá aldrei annað til greina en að Herdís færi í sömu leið? - „í raun ekki, þetta var sú íþróttagrein sem ég kunni best við mig í. Ég mætti á nokkrar æfingar í knattspyrnu en líkaði ekki. Einnig var ég í fimleikum sem bam.“ - Sl. tvö ár hefur keppnin staðið á milli ykkar og Hauka, ennú virð- ast Haukar ekki ná sér á sama flug ogfyrr. Hvað hefur breyst? „Frammistaða leikmanna Hauka hefur komið á óvart. Þeim hefur ekki tekist að ná jafnvægi í leik sinn og hafa nokkmm sinnum farið illa með leiki sem þeir vom með vænlegri stöðu í. Við hins vegar byrjuðum illa, gerðum tvö jafntefli Morgunblaðið/Ásdís HERDÍS Sigurbergsdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, sem sigraði í 13. leiknum í röð f 1. deildinni um liðna helgi. og töpuðum einum leik en höfum síðan verið á sigurbraut. Við ein- settum okkur fyrir tímabilið að gera betur en í fyrra og eins og staðan er nú er útlitið gott.“ - Er stefnan sett á að vinna þrefalt; deildina, bikarinn og ís- landsbikarinn? „Við ætlum okkur að leika til úr- slita í bikarnum og vinna, og verða deildarmeistarar og komast í úr- slitaleiki um Islandsmeistaratitil- inn og þá er aldrei að vita hvað gerist. Kjarninn í liði Stjörnunnar hefur leikið saman í nokkur ár og er samstíga í að leggja sig fram og vinna allt sem í boði er.“ - Má reikna með að Stjaman og Haukai■ etji kappi um Islands- meistaratitilinn þriðja árið í röð? „Ég reikna alveg eins með því. Það býr meira í liði Hauka en það hefur verið að sýna upp á síðkastið og líklegt að það verði sterkara þeg- ar fram í úrslitakeppnina verður komið. Þú er VíWngsliðið í sókn um þessar mundir og til alls líklegt." - Er vel búið að kvennahand- knattleik í Garðabæ? „Já, það er vel hugað að öllu varðandi liðið okkar og rétt að geta þess að við erum með í kringum okkur yndislegan hóp kvenna í meistaraflokksráði sem leggur sig fram við gera allt sem hægt er fyr- ir okkur.“ - Þið óttist ekki að vera á toppn- um á röngum tíma og vera komnar í lægð þegar kemur að úrslita- keppninni? „Það held ég ekki, við höfum verið að leika vel og ég tel að enn meira búi í liðinu en það hefur sýnt hingað."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.