Morgunblaðið - 20.01.1998, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 20.01.1998, Blaðsíða 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1998 KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ Shearer lagði upp sigurmark Newcastle Faustino Asprilla sendir Kenny Dalglish tóninn FAUSTINO Asprilla, sem er aftur að fara að leika fyrir Parma á ftaliu, kennir Kenny Dalglish, knattspyrnustjóra Newcastle, um hvemig komið er fyrir liðinu og segir að hann hafí eyðilagt það sem Kevin Keegan byggði upp. „Keegan reyndi að byggja upp meistaralið sem gaeti keppt við bestu lið í Evrdpu,“ sagði Asprilla við dagblaðið News of the World. „Hann setti saman lið skipað úrvalsleikmönnum og við lékum oft vel. Síðan kom Dalglish og hann reif alit niður.“ Keegan greiddi Parma 7,5 mUlj. punda fyrir Asprilla fyrir tæplega tveimur árum og Asprilla, sem er 28 ára, neitaði að hafa haft slæm áhrif hjá Newcastle. „Eg reifst aldrei við leikmcnnina og þeir buðu mér út að borða. Það var aldrei neitt vandamál.“ ALAN Shearer, sem hefur verið frá síðan í júlí vegna ökkla- meiðsla, kom inná hjá Newcastle þegar tæplega 20 mínútur voru til leiksloka í viðureigninni við Bolton í ensku úrvalsdeild- inni um helgina og lagði upp sigurmarkið, sem Temuri Ketsbaia gerði á síðustu mínútu. John Barnes gerði fyrra mark heima- manna á 6. mínútu, 200. mark hans á ferlinum, en Nathan Blake jafnaði fyrir Bolton. Reuters ALAN Shearer er kominn á ný á ferðina og er hér í baráttu við Mark Fish. „Mér líður mjög vel og ég er ánægður með að vera byrjaður að spila aftur en sigurinn skipti öllu.“ Inter tapaði á San Siro Shearer var skipt inná eftir jöfn- unarmark Blakes og var nálægt því að skora skömmu síðar með skalla. „Mér líður mjög vel og ég er ánægður með að vera byrjaður að spila aftur en sigurinn skipti öllu,“ sagði miðherjinn. „Ég var ekki Jaugaóstyrkur, frekar spenntur, og ég er ánægður með sigurinn." Hann sagði að Kenny Dalglish, stjóri Newcastle, hefði tekið ákvörðunina. „Kenny ræddi við mig eftir æfingu á fóstudaginn og ég var sammála honum. Ég efast ekki um að ég var tilbúinn. Eg hef tekið þátt í öllum æfingum með strákunum í 10 daga og fann ekki til í æfingaleik á þriðjudag. Nú vantar mig leik- reynslu en uppbyggingin hefur ver- ið þess virði.“ Hann hefur fylgst með liðinu falla úr Evrópukeppni og deildabik- amum og síga niður töfluna í ensku úrvalsdeildinni eftir góða byrjun. „Þetta hefur verið erfiður tími hjá mér - það er erfitt þegar ekki má gera það sem manni þykir skemmtilegt að gera.“ Gallacher með þrennu Kevin Gallacher var með þrennu, þegar Blackburn vann Aston Villa 5:0, og er kominn með 16 mörk. Heimamenn voru óstöðvandi og eft- ir að Tim Sherwood braut ísinn og Gallacher skoraði skömmu síðar var Ijóst að möguleiki var á ámóta úrslitum og í fyrri viðureign liðanna þegar Blackburn vann 4:0. Stuart Ripley átti síðasta orðið, skoraði af um 25 metra færi. Jurgen Klinsmann opnaði marka- reikning sinn hjá Tottenham sem vann West Ham 1:0. Samassi Abou hjá West Ham var vikið af velli eftir samstuð við Ramon Vega skömmu fyrir hlé. Frakkinn neitaði að fara Real Madrid slapp týrir horn < REAL Madrid heldur sér í toppbaráttunni á Spáni eftir 1:0 sigur á SaJamanca á lieimavelli sínum á sunnu- dag. Það var varnarmaður- inn Christian Panucci sem gerði eina markið og bjarg- aði Mardridingum frá háð- uglegri útreið gegn botnliði deildarinanr. „Liðið var ekki sannfærandi síðasta stundar- fjórðung leiksins. Það er sig- urinn sem skiptir þó öllu máli, en við þurfum að bæta leik okkar,“ sagði Jupp Heynckes, þálfari Real Ma- drid. Real Sociedad, sein er í þriðja sætið deUdarinnar, tapaði fyrsta leik sínum í 18 Ieikjum er liðið mætti Racing Santander, 1:3. út af en stjórinn, Harry Redknapp, kunni á honum tökin. Strachan æfur Coventry og Arsenal gerðu jafn- tefli, 2:2. Vörnin hjá Arsenal var sem svissneskur ostur í íyrri hálf- leik og sérstaklega fékk Darren Huckerby færin en David Seaman hélt gestunum á floti með góðri markvörslu. Noel Whelan skoraði fyrir Coventry um miðjan fyrri hálfleik en Dennis Bergkamp jafn- aði gegn gangi leiksins í byrjun seinni hálfleiks. Skömmu síðar gerði Nicolas Anelka annað mark gestanna en Dion Dublin jafnaði úr vítaspymu. Patrick Vieira sló bolt- ann frá í stað þess að skalla, mót- mælti ákvörðun dómarans og var vikið af velli. Coventry missti líka mann út af en það var furðulegur dómur. Bergkamp var á ferðinni inn fyrir vörn Coventry með Willi- ams á hælunum en datt. Ekki var hægt að sjá að Williams hefði komið við mótherjann en hafi hann gert það var það óviljaverk. Gordon Strachan, stjóri Coventry, var líka æfur út í dómarann. „Knattspyrnan hefur batnað en dómgæslan versn- að. Við jörðuðum þá, gerðum engin mistök, en dómgæslan kostaði okk- ur sigurinn. Dómarinn var brand- ari, algjör skömm.“ Dómarinn Steve Lodge féllst á að skoða umrætt atvik á myndbandi en sagði síðar að það væri ófuUnægj- andi og hann myndi skoða málið betur. Strachan sagði að félag sitt þyrfti að gjalda fyrir það að hann gagnrýndi dómarann David Elleray fyrr á tímabilinu. „Fólk segir ef til viU að ég sé haldinn ofsóknarkennd en við fáum ekkert. Við höfum lagt á okkur mikla vinnu á morgnana, í há- deginu og á kvöldin til að sigra í leikjum og svo gerist þetta. Ég verð sjálfsagt tekinn á teppið hjá Knatt- spymusambandinu fyrir þetta en eitthvað verður að gera.“ Strachan sagðist vera sannfærð- ur um að Williams hefði ekki snert Bergkamp en neitaði að dæma Hollendinginn fyrir leikaraskap. „Það er mál leikpiannsins og félags hans.“ Arsene Wenger, knatt- spyrnustjóri Arsenal, sem hefur mátt horfa upp á níu brottvisanir hjá liðinu síðan hann tók við þvi í fyrra, studdi miðherja sinn. „Ég hélt að hann hefði snert hann en Dennis vildi ekki að leikmanninum yrði vikið af velli.“ Og um fallið sagði hann: „Hann lét sig ekki detta. Ef maður dettur þá dettur maður og á þessum hraða falla menn auðvitað á einhverri vega- lengd.“ Bergkamp þvertók fyrir að hafa verið með leikaraskap. „Ég var fyr- ir opnu marki og hvers vegna ætti ég þá að láta mig detta? Hann [Williams] veit að um samstuð var að ræða. Ég er ekki svindlari. Hann veit sannleikann." Sjötti sigurinn í röð Liverpool tókst ekki að sigra í sjötta leiknum í röð, gerði marka- laust jafntefli við Leicester á Fil- bert Street, en Roy Evans, stjóri Liverpool, sagði að liðið ætti enn möguleika á titlinum. „Margir leikir eru eftir og við erum ekki hættir. Það verður ekki auðvelt en hægt er að ná United." John Robertson, að- stoðarstjóri Leicester, tók í sama streng. „Ég held að Liverpool sé líklegasta liðið til að veita Manchester United keppni út tíma- bilið. Liðið núna er ámóta og liðið sem ég lék á móti fyrir mörgum ár- um - það hefur hæfileika. Við áttum skilið það sem við fengum en McManaman er frábær leikmaður, framherjarnir tveir vinna mjög vel saman og miðjumennirnir eru mjög hæfileikaríkir. Ég myndi ekki af- skrifa möguleika liðsins á titlinum. Alls ekki.“ Barnsley vann Hermann Hreið- arsson og samheija í Crystal Palace 1:0. Bamsley er samt áfram neðst og Bolton í næst neðstasæti en Everton, Crystal Palace og Totten- ham eru með tveimur stigum meira en Barnsley. Meistaravonir Chelsea dvínuðu við 3:1 tap fyrir Everton á Goodison Park í Liverpool á sunnudag. Everton, sem var á botni deildar- innar í byrjun desember, fagnaði þriðja sigurleiknum í röð og færist æ ofar í töflunni en Chelsea tapaði í sjöunda sinn á timabilinu. Norðmaðurinn Tore-Andre Flo skoraði fyrir Chelsea átta mínútum fyrir hlé en Gary Speed jafnaði tveimur mínútum síðar. Duncan Ferguson skallaði í net gestanna um miðjan seinni hálfleik og Mich- ael Duberry gerði sjálfsmark sjö mínútum fyrir leikslok. Ruud Gullit setti sjálfan sig og Gianluca Vialli inná í seinni hálfleik en það breytti ekki því að heima- menn voru hættulegri og líklegri til afreka. Inter tapaði óvænt fyrir Bari á heimavelli um helgina - fyrsta tap liðsins á San Siro leikvanginum á tímabilinu og annað tap þess í deildinni - en Juventus sigraði Bologna og munar nú aðeins einu stigi á toppliðunum. Philemon Masinga frá Suður-Af- ríku gerði mark Bari stundarfjórð- ungi fyrir leikslok. Gianluca Pagli- uca varði skaUa frá honum en hélt ekki boltanum og óvaldaður mið- heijinn skoraði í annarri tilraun. „Þetta var frídagur," sagði Luigi Simoni, þjálfari Inter, en Brasilíu- maðurinn Ronaldo fór iUa með fær- in. Leikmaður Uðins árs fékk m.a. tvö gulUn færi tU að skora á fyrstu 10 mínútunum, skaut í hUðametið og lét Francesco Mancini verja frá sér. Juve vann 3:1 á útivelU. FiUppo Inzaghi gerði tvö mörk á fyrstu 19 mínútunum eftir gagnsóknir - kennslubókardæmi um hvemig á að nýta færin. Alessandro Del Pi- ero innsiglaði sigurinn, skoraði úr aukaspymu af um 25 metra færi hálftíma fyrir leikslok. Rússinn Igor Kolyvanov minnkaði muninn á síðustu mínútu. Udinese er í þriðja sæti fjómm stigum á eftir Juve en liðið gerði jafntefli, 1:1, við Atalanta. Fabio Gallo skoraði fyrir heimamenn snemma leiks en Þjóðverjinn OU- ver Bierhoff jafnaði fyrir Udinese, sem hefur nú leikið níu leiki í röð án taps. Lazio vann Fiorentina 3:1. Sandro Cois skoraði fyrir heima- menn um miðjan fyrri hálfleik en Alen Boksic jafnaði fyrir Lazio þremur mínútum síðar með sjö- unda marki sínu í sex leikjum. Fior- entina missti Svíann Stefan Schwarz út af með rautt spjald í byrjun seinni hálfleiks og varðist vel þar til 13 mínútum fyrir leikslok en þá skoraði Roberto Rambaudi af stuttu færi. Skömmu síðar innsigl- aði Tékkinn Pavel Nedved sigurinn en , þetta var fyrsta tap heima- manna í 11 leikjum. Sampdoria átti ekki í erfiðleikum með Lecce og vann 3:1. Miðheijinn Vincenzo Montella gerði tvö mörk og Giuseppe Signori eitt. Massimo Rastelli jafnaði 1:1 fyr- ir Piacenza á móti Roma fimm mín- útum fyrir leikslok og var púað á leikmenn Roma þegar þeir gengu af ólympíuleikvanginum. Brasilíski vamarmaðurinn Aldair gerði mark Roma. Enrico Chiesa sýndi Faustino Asprilla hvemig á að fara að því að skora og var með tvö frábær mörk í 3:1 sigri Parma á AC Milan. Dino Baggio gerði annað mark Parma með bakfaUsspymu en Maurizio Ganz minnkaði muninn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.