Morgunblaðið - 20.01.1998, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 20.01.1998, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1998 B 5 KA vann öruggan sigur á Stjöm- unni, 28:23, er liðin mættust á Akureyri um helgina. Með sigrinum ■■■■■^B nældi KA sér í dýr- ReynirB. mæt stig í barátt- Eiríksson unni á toppi deildar- skrifar innar þar sem hvert stig skiptir miklu máli. Það sem gerði út um leikinn var mjög góður leikkafli hjá liðinu í rúmar tuttugu mínútur í upphafi síðari hálfleiks. Á þessum kafla nýtti KA 80% sókna sinna, ásamt því að leika mjög sterka vöm þar sem leikmenn Stjömunnar fundu fáar glufur. Þeg- ar flautað var til leiks eftir hlé var staðan 12:10 fyrir KA, þá léku norð- anpiltar við hvern sinn fingur á meðan Stjarnan sá vart til sólar og Létl hjá Haukum Haukar unnu ömggan sigur á botnliði Breiðabliks á sunnu- dagskvöldið, 37:22. Þar með töpuðu ■■■■■■ Blikar sínum þrett- Hörður ánda leik í röð og ef- Magnússon laust eiga fleiri eftir skrifar að bætast yið. Frá- bær markvarsla Magnúsar Sigmundssonar í Hauka- markinu í fyrri hálfleik lagði grunn- inn að sigrinum, en Magnús varði þá fimmtán skot, þar af tvö vítaköst í byrjun leiks. Allir fengu að spreyta sig hjá Haukum og allir úti- leikmenn liðsins skomðu nema einn. Homamennimir Jón Freyr Egilsson og Daði Pálsson komu vel út og þá gerði Tjörvi Ólafsson skemmtilega hluti. Blessuðum Blik- unum er hálfgerð vorkunn því allir leikmenn liðsins em ungir að ámm og óreyndir og Geir Hallsteinsson þjálfari því ekki ekki öfundsverður. Brynjar Geirsson, Björn Hólmþórs- son og Sigurbjöm Narfason gerðu stundum góða hluti en mistök þess á milli. Þá varði Elfar Guðmunds- son ágætlega á köflum en vörn gest- anna var slök. Valur skipti um ham VALSMENN hófu ekki leik með heilum hug gegn Víking- um í Víkinni á sunnudaginn en sneru við blaði eftir að hafa tekið leikhlé eftir tæpar fimmtán mínútur. „Við töluð- um um það sama í leikhléinu og við gerðum fyrir leikinn: það má ekki vanmeta, því þá er munurinn á getu liðanna farinn. Það var ekki fyrr en í leikhléinu að þessi skilaboð síuðust inn en í vetur höfum við tekið betur á í leikjum eft- ir því sem róðurinn hefur ver- ið þyngri," sagði Jón Krist- jánsson, leikmaður og þjálfari Vals, eftir 22:18-sígur Vals, sem lyfti liðinu í fjórða sæti deildarinnar, en Víkingar sitja eftir sem áður í því næstneðsta. Víkingar hófu leikinn af krafti og eftir að Valsmönnum hafði að- eins tekist að skora tvö mörk gegn sjö um miðjan fyrir hálfleik tóku þeir leikhlé. Eftir að hafa ráðið ráðum sínum skipti Valsliðið um ham og jafnaði 7:7 þegar Víkingum tókst ekki að skora mark úr níu sóknum á tíu mínútum. Hart var barist og jafnt á flestum tölum þar til tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik. Þá fóru Víkingar að missa móðinn og Valsmenn gengu á lagið, juku forskotið hægt og bítandi án þess að heimamenn fengju neitt við ráðið. Víkingum skorti þrek Vöm Víkinga var ágætlega á verði og til að byrja með mátti sjá í sóknarleiknum ágæt tilþrif en er á leið gekk á þrekið, andlegt sem lík- amlegt, svo enginn gat tekið af skarið í sókninni. Birkir Ivar Guð- mundsson markvörður var góður og Þröstur Helgason og Birgir Sig- urðsson voru ágætir. Skipta verður umsögn um Valsliðið í tvo hluta: fyrir vanmat og eftir vanmat. Um þann fyrri er lítið að segja en í þeim síðari var vömin gríðarlega hreyfanleg og góð, sem skilaði góðri markvörslu og betri sóknarleik. Liðið hélt sínu striki og beið þolinmótt eftir því að mótherjamir gæfu eftir - það gekk eftir. Guðmundur Hrafnkelsson stóð milli stanganna í 20 mínútur og varði 11 skot og Jón Kristjáns- son og Ingi Rafn Jónsson vom bestir útileikmanna. ■ Úrslit/B10 ■ Staðan/B10 HANDKNATTLEIKUR Öruggur sigur KA- manna Norðanpiltar léku við hvern sinn fingur og náðu mest tíu marka forskoti gegn Stjörnunni „Hlökkum til miðvikudagsins“ SIGURÐUR Sveinsson, leikmaður og þjálfari HK, sem verður 39 ára í mars, gerði þrettán mörk í góðum baráttusigri HK á liði Fram, sem hafði unnið níu leiki í röð - sex í 1. deildarkeppninni og þrjá í bikarkeppninni. Lokatölur urðu 26:24, en liðin mætast aftur í undanúrslitum bikarkeppninnar á morgun. Kópavogsliðið, sem var á heima- velli, byrjaði vel og gerði þrjú fyrstu mörkin án þess að gestimir bláklæddu næðu að svara. Daði Haf- þórsson gerði fyrsta mark Fram er sex mínútur vom liðnar, en sóknarleikur liðsins var vand- ræðalegur í upphafi. Safamýrarpilt- ar fundu þó taktinn eftir stundar- kom og höfðu náð tveggja marka forskoti, 14:12, er gengið var til búningsherbergja í leikhléi, en sóknarnýting Fram í fyrri hálfleik, að fyrstu sex mínútunum loknum, var 58,3%. Frammarar gerðu fyrstu tvö mörk síðari hálfleiksins og þóttust nokkrir sjá að úrslit leiksins væm þegar ráðin. Línumaðurinn Alex- ander Arnarsson og fyrirliðinn Ósk- ar Elvar Óskarsson gerðu sitt markið hvor í tveimur næstu sókn- um HK og minnkuðu muninn í tvö mörk - gáfu þannig tóninn fyrir HK. Því næst tók einleikssyrpa Sig- urðar Sveinssonar við, en fjögur mörk hans úr næstu sex sóknum heimamanna spönnuðu næstum allt litrófið og héldu Kópavogsliðinu á floti. Á þessum tíma var Sigurður eini HK-maðurinn sem Frömmur- um stóð ógn af og vakti nokkra furðu að gestimir gerðu aldrei til- raun til að taka hann úr umferð. Alexander Amarsson jafnaði síðan, 19:19, þegar rúmar tólf mínútur lifðu leiks, með marki eftir hraða- upphlaup, en hann reyndist liði sínu dýrmætur á lokakaflanum og barð- ist af miklum móð. Sigurður skoraði úr vítakasti og kom HK yfir, 23:22, er fimm mínút- ur vom eftir og Hlynur Jóhannes- son, markvörður HK, varði í kjöl- farið, en hann varði þrívegis á mikil- vægu augnabliki. I næstu sókn gerði Sigurður síðasta og glæsileg- asta mark sitt í leiknum og skyndi- lega vom heimamenn með pálmann í höndunum - staðan 24:22. Páll Þórir Beck, sem leysti Guðmund Pálsson af í leikstjórnandastöðunni hjá Fram undir lokin, minnkaði muninn í eitt mark þegar tvær mín- útur vom eftir. Óskar fyrirliði og Alexander línumaður gerðu því næst tvö mörk í röð fýrir HK og tryggðu sætan sigur. „Við hlökkum til miðvikudags- ins,“ sagði Sigurður Sveinsson í leikslok, og átti þá við undanúrslita- leik liðanna á morgun. „Við lögðum upp með það fyrir augum að leika góða vöm og skynsaman sóknar- leik. Við byrjuðum ágætlega, en fengum síðan nokkur mörk á okkur úr hraðaupphlaupum þegar nær dró leikhléi. En þetta var virkilega skemmtilegt - barátt- an var mjög mikil. Hver leikmaður lagði sig allan fram og það nægir oftast,“ sagði Sigurður. Eins og kom fram í orðum Sigurðar var baráttan helsta vopn HK á sunnudagskvöld en sóknarleikurinn heldur einhæfur, sem kom ekki að sök að þessu sinni. Frammar- ar léku ágætlega á köflum, en þess á milli voru þeir ekki sjálfum sér líkir, miðað við góð- an leik liðsins að und- anfömu. Edwin Rögnvaldsson skrifar Stórleikur Sigurðar Sveinssonar í sigri HK á Fram náði KA 10 marka forskoti, 26:16, þegar rúmar 8 mínútur vom til loka leiksins og úrslitin virtust þá ráðin. Stjaman gafst þó ekki upp og gerði fimm næstu mörldn og fór nú um margan áhanganda heimamanna, sem hvöttu sitt lið af miklum krafti. En nær komst Stjaman ekki og ör- uggur sigur KA varð að veruleika. Leikurinn var mjög harður i fyrri hálfleik, þar sem varnarleikurinn var aðal beggja liða. KA byrjaði betur og gerði þijú fyrstu mörkin en Stjarnan fór þá í gang og náði að jafna leikinn í 5:5 um miðbik hálf- leiksins. KA reyndist sterkara í seinni hluta háÓleiksins og hafði tveggja marka forystu í leikhléi, 12:10. Hjá KA var Sigtryggur bestur en hann varði 19 skot í leiknum og gaf sínum mönnum svo sannarlega tón- inn. Karim átti mjög góðan leik eftir hlé, en aðrir leikmenn léku einnig vel að þessu sinni. Hjá Stjörnunni átti Ingvar í markinu ágætan leik í fyrri hálfleik, Valdimar var sterkur að vanda og Amar Pétursson átti góða spretti. Morgunblaðið/Golli LOK, lok og læst...getur HK-maðurinn Hjálmar Vilhjálmsson ver- ið að segja er hann stöðvar Sigurpál Áma Aðalsteinsson, horna- mann hjá Fram. Fram og HK mætast aftur annað kvöld f undan- úrslitum bikarkeppninnar. Sigurður yfir 100 mörkin SIGURÐUR Sveinsson skoraði þrettán mörk fyrir HK gegn Fram og rauf hann þar með hundrað marka múrinn - hefur skorað 103 mörk í 1. deildarkeppninni. Sigurður hefur sett stefnuna á markakóngstitilinn í þriðja skipti, var sfðast markahæsti leikmaður 1. deildar 1993 er hann lék með Selfossi. Næst- ur á blaði er markakóngurinn frá sl. keppn- istíraabili - Eyjamaðurinn Zoltán Belányi með 94 mörk. Guðjón ekki með FH-ingum GUÐJÓN Ámason hefur ekki leikið tvo síðustu leiki FH- liðsins, þar sem hann er meiddur í baki. Ragnar Óskarsson, leikmaðuriun ungi hjá ÍR, lék ekki með liðinu gegn FH, þar sem rifbein er brákað. Ragnar missti þar með dýrmætan leik í markakóngsbaráttunni - haim er þriðji markahæstur með 87 mörk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.