Morgunblaðið - 21.03.1999, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 21. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Geir H. Haarde, nýr varaformaðnr Sjálfstæðisflokksins:
Og ég dska þér til hamingju hvað þú myndast vel Sdlveig mín.
D A
myndarleg
J fermingargjöf
OLYMPUS
X* lá '
OLYMPUS
nm>AF3t
Olympus mju II Limited
Alsjálfvirk, 35 mm linsa
Ljósop 1:2,8
Fylgihlutir: Taska, filma.
rafhlaða og myndaalbúm
Olympus mju I cg
Alsjálfvirk, 35 mm linsa
Ljósop 1:3,5
Fylgihlutir: Taska, filma,
rafhlaða og myndaalbúm
l Olympus Trip Af 31
I Alsjálfvirk. 34 mm linsa
l Ljósop 1:5,6
S Fylgihlutir: Taska, filma,
i rafhlaða og myndaalbúm
Ráðstefna bandalags kvenna um öldrun
Forvarnir
mikilvægar
Ráðstefna um öldr-
un verður haldin á
vegum Bandalags
kvenna í Reykjavík og
Bandalags kvenna í
Hafnarfirði í Borgartúni
6 í dag klukkan 14 til 17.
A ráðstefnunni verða átta
fyrirlesarar með stutt
innlegg. Það eru læknar,
sálfræðingur, sjúkra-
þjálfari, einstaklingar frá
félagasamtökum og fleiri.
Þórey Guðmundsdóttir er
formaður Bandalags
kvenna í Reykjavík. Hún
var spurð hver væri til-
gangurinn með þessari
ráðstefnu?
- „Mikið hefur verið rætt
um félagslega og fjár- _ _ .
hagsiega hiið á máiefnum Þorey Guðmundsdottir
eldri borgara en næsta lítið um
öldruðu manneskjuna sjálfa og
það ferli sem hún gengur í gegn-
um á þessu æviskeiði. A ráð-
stefnunni er ætlunin að fá skil-
greiningu á hugtakinu öldrun,
orsökum og afleiðingum, for-
vörnum gegn of hraðri öldrun,
eigin sjálfshjálp og hve einstak-
lingur er ábyrgur fyrir eigin
ánægjulegum efri árum.“
- Um hvað fjalla hinir aðskUjan-
legu fyrirlestrar?
- „Læknar tala um áhrif erfða og
umhverfis og einnig um bein-
þynningu og beinbrot. Öldrunar-
sálfræðingur ræðir um hvernig á
að takast á við öldrun. Sjúkra-
þjálfari fjallar um hreyfingu og
forvarnir gegn öldmn. Ymsir að-
ilar frá félagasamtökum tala
þarna líka. Rætt verður um inn-
eign eldra fólks í samfélaginu,
aðseturskipti í þjónustuíbúðir,
skatta- og tryggingamál eldri
borgara sem tengjast öldmn og
aðdraganda að stofnun Land-
sambands aldraðra."
- Hvað er brýnast að þínu mati
að lagfæra í málefnum aldraðra?
- „Mér finnst brýnt að fólk skilji
þann feril sem það gengur í
gegnum þegar það eldist og taki
honum með ró og skynsemi og
reyni sjálft að stuðla að því að
gera sér lífið ánægjulegt."
- Er svo mikill munur á því sem
yngra fólk getur notið umfram
eldra fólk?
- „Sá munur er helstur að líkam-
leg færni er oft ekki sú sama en
það er líklega það eina sem að-
skilur ungt fólk frá eldra fólki. Á
hinn bóginn hefur eldra fólk um-
talsverðan þroska umfram það
yngra, þannig að segja má að
það hafi jafnvel meiri möguleika
á að njóta ýmissa lífsins gæða en
yngra fólk, auk þess sem það
hefur miklu meiri tómstundir.
Þess vegna er mikilvægt að
reyna að halda góðri heilsu svo
lengi sem auðið er og það er
talsvert í hendi fólks __________
sjálfs. Með líferni
sínu getur fólk ráðið
talsvert heilsu sinni,
hvort það er frískt
eða veikt.“
Al' hverju eru ““
bandalög kvenna að taka þetta
málefni fyrir núna?
- „Það er gert í tilefni af ári aldr-
aðra en auk þess era kvenfélögin
samansett af ýmsum aldri, kon-
um sem ýmist em sjálfar orðnar
aldraðar eða annst á einhvern
hátt málefni aldraðra ættingja -
þeim er þess vegna málið skylt. I
Bandalagi kvenna era tuttugu
►Þórey Guðmundsdóttir er fædd
25. nóv. 1934 á Akureyri. Hún
lauk stúdentspróll frá Mennta-
skólanum á Akureyri 1953 og
prófi frá Iþróttakennaraskóla Is-
lands 1954. Hún lauk svo prófí í
íþróttafræðum frá háskólanum í
Liverpool 1958. Hún hefúr starf-
að sem íþróttakennari á Akur-
eyri og í Reykjavík og hún
kenndi einnig í fjögur ár ensku í
Vestmannaeyjum. Hún hefur
kennt við Kennaraskólann og
síðar Kennaraháskólann í
Reykjavík frá 1968. Þórey er gift
Kristjáni H. Ingólfssyni tann-
lækni. Þórey á tvo syni og Krist-
ján þrjá syni frá fyrri hjónabönd-
um.
Með líferni
sínu getur fólk
ráðið talsvert
heilsu sinni
kvenfélög í Reykjavík og í
Bandalagi kvenna í Hafnarfirði
era sjö kvenfélög. Það era því 27
kvenfélög sem standa að þessari
ráðstefnu. Ég hafði samband við
Kolbrúnu Jónsdóttur, formanns
Bandalags kvenna í Hafnarfirði,
þegar þessi hugmynd kom upp í
Bandalagi kvenna í Reykjavík og
vegna fyrri samskipta, sem hafa
verið afar góð, var ákveðið að
standa sameiginlega að þessari
ráðstefnu."
- Eiga fleiri erindi á þessa ráð-
stefnu en þeir sem aldraðir eru?
- „Já, þarna er verið að fjalla um
málefni sem koma öllum aldurs-
flokkum við. Því með hækkandi
lífsaldri þjóðarinnar er líklegt að
fleiri og fleiri gangi í gegnum
þetta ferli ævinnar. Auk þess er
gott fyrir yngra fólk að vita hvað
það getur gert til þess að eldast
vel því forvarnarstarf gegn ótím-
bærri öldrun byrjar í raun á
yngri áram. Beinþynning til
dæmis á sér langan aðdraganda
og er háð lífsmunstri fólks, reyk-
ingar era líka áhættuþáttur, svo
og hreyfingarleysi, offita og
fleira."
- Geta stjórnvöld eitthvað gert til
þess að draga úr áhættuþáttum
öldrunar?
- „Það er sannað mál
að fátækt hefur áhrif
á heilsu fólks, því er
mikilvægt að eldri
borgarar hafi al-
^“ mennt ráð á því að
kaupa sér hollan mat, taka þátt í
félagsstarfi og líkamsrækt, fái
rétta læknishjálp og góða að-
hlynningu. Kjör eldri borgara
hér á landi þurfa að mínu mati
að batna verulega ef vel ætti að
vera. Þess má geta að ráðstefna
okkar kvenna um öldrun er öll-
um opin og er þátttaka ókeyp-
is.“