Morgunblaðið - 21.03.1999, Blaðsíða 44
<44 SUNNUDAGUR 21. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
>
Lögfregðjnður
i íérhilduf ssnöhsit
UGiumaður
GitiH ijayrhjörn§§r'
568-7633 <f
Ðíldshöfði
Iðnaðarhúsnæði
Gott iðnaðarhúsnæði, 291,4 fm, með tvennum
innkeyrsludyrum. í húsnæðinu eru 2 skrifstofur,
kaffistofa og 2 snyrtingar. 3ja fasa raflögn.
Lofthæð um 4 metrar. Malbikuð bílastæði.
blartsmem: Svernr Knsunsson lógg. lasteignasali. sölust|ón,
Þorieifur St.Guðmundsson.B.Sc., sðlum.. Guðmundur Sigurjónsson lögtr. og lögg.fasteignasali, skjalagerö.
Stefán Hrafn Stefánsson lögfr., sölum., Magnea S. Svemsdóttir, lögg. fasteignasali, sölumaöur,
Stefán Ámi Auöólfsson, sölumaöur, Jóhanna Valdimarsdóttir, auglýsingar, gjaldkeri, Inga Hannesdóttir, Æ.
slmavarsla og ritari, Ólðf Steinarsdóttir, óflun skjala og gagna, Ragnheiöur D. Agnarsdóttir.skrifstofustört. H
Sími 588 9090 • Fax 588 9095 • Síðiunúla 21
Um 500 eignir kynntar a alnetinu -www.eignamidlun.is
Álftamýri 1 -3 - Borgar Apótek til sölu.
Hér er um að ræða 2ja hæða hús auk kjallara. Götuhæð: 385 fm og að
mestu nýtt fyrir Borgar Apótek. 2. hæð: 307 fm og nú leigt fyrir skrifstofu-
starfsemi (en íbúð skv. teikningu). Kjallari: 400 fm og leigður út sem
geymslupláss og að hluta til nýttur af Borgar Apóteki. Bílskúr: 49 fm og nú
nýttur sem geymsla. Borgar Apótek: Til greina kemur að selja apótekið
(þ.e. rekstur, innréttingar og lager) og leigja plássið út. Allar nánari uppl.
veita Sverrir og Stefán Hrafn.
Hæðarbyggð - útsýni.
Glæsilegt um 300 fm tvílyft einbýlishús m. frábæru útsýni. Á neðri hæð er
| tvöf. bílsk., þvottah., 2 herb., bað og stór sólstofa m.heitum potti. Mögul.
á 2ja herb. íb. Á efri hæðinni er eldhús, 3 herb., bað og stórar stofur o.fl.
Gott hellul. plan m. útilýsingu og hita. Ákv. sala. V. 24,0 m. 8596
EINBYLI
Þernunes - Arnarnesi.
Vorum að fá í einkasölu húsið nr. 13 við þemu-
nes. Um er að ræða u.þ.b. 350 fm hús á tveim-
ur hæðum er skiptist í tvær samþykktar íbúðir
116 fm og 232 fm. Vel staðsett hús innst í götu
með fallegu sjávarútsýni. Húsið lenti í brunatjóni
f. nokkru og var endumýjað að utan m.a. þak,
gluggar, gler, hurðir o.fl. Að innan er húsið fok-
helt. V. 14,5 m. 8601
3JA HERB.
Hæðargarður
húsið.
Mexíkó
Vorum að fá í einkasölu fallega og bjarta u.þ.b.
80 fm íbúð á 2. hæð í þessu vinsæla fjölbýli.
Sérinngangur. Vestursvalir. Sérþvottahús. Góð
lofthæð í stofu. V. 8,7 m. 8592
PARHUS
Hverfisgata - standsetning.
Til sölu tvílyft timburhús sem þarfnast mikils
viðhalds. Möguleiki er á aó rífa húsið og
byggja nýtt. V. 2,5 m. 8595
raðhus \WmBX
Laufrimi - endaraðh.
Vorum að fá í sölu um 185,5 fm endaraðhús
ásamt innb. bílskúr. Á neðri hæðinni eru.m.a. 3
herb., stofur, þvottah., eldhús og bað. I risi er
gert ráð fyrir holi og tveimur herb. Góðar innr.
Húsið þarfnast lokafrág. en er að mestu full-
búið. Áhv. 6,7 m. V. 13,7 m. 8600
Flúðasel - endaraðhús.
Til sölu vandaö þrílyft raðhús með aukaíb. í
kjallara. Á miðhæð e,m tvær saml. stofur, eld-
V hús, herb., bað o.fl. Á efri hæðinni eru#4 herb.,
sjónvarpshol og nýstandsett bað. í kj. er
þvottah., geymsla og 2ja herb. íb. Fallegt útsýni.
Mjög góð staðsetning. V. 14,5 m. 7825
4RA-6 HERB. 3881
Stóragerði.
1 4ra herb. vel skipulögð íbúð á 1. hæð í fjölbýli.
I íbúðin er nánast öll parketlögð. Sameign er
| góð. Lrtið framboð er af eignum á þessu svæði.
^ V. 8,1 m. 8360
2JA HERB.
Eiðistorg.
Vorum að fá í einkasölu snyrtilega og bjarta
u.þ.b. 55 fm íbúð á 3. hæð í þessu vinsæla húsi.
Suðursvalir. Góð sameign. Afh.1.06.99. V. 5,7
m.8597
Vallarás - útsýni.
2ja herb. um 45 fm mjög björt íbúð með
frábæru útsýni á 6. hæð í lyftublokk. Suðursvai-
ir. Áhv. Byggsj. 3,6 m. Laus strax. V. 5,0 m.
8598
Miðstræti - Þingholt.
Snyrtileg einstaklingsíbúð u.þ.b. 34 fm á
jaröhæð í fallegu timburhúsi í Pingholtum.
Sérinngangur. Lftil lóð. íbúðin er samþykkt.
Áhv. ca 1,3 m. húsbróf. V. 3,3 m. 8409
Kópavogur.
2ja herb. 63 fm íbúð á jarðhæö í litlu fjölbýli
í austurbæ Kópavogs með sórinngangi.
Snyrtileg og falleg íbúð sem skiptist í for-
stofu, svefnherb., baðherb., eldhús og
stofu. Sérgarður til suöurs. Mjög góð sér-
geymsla á-sömu hæö. V. 6,2 m. 8385
Opið í dag sunnudag kl. 12-15.
Dagbók
Háskóla
íslands
DAGBÓK Háskóla íslands vikuna
22.-27. mars. Allt áhugafólk er vel-
komið á fyrirlestra í boði Háskóla Is-
lands. Upplýsingar um fyrirlestra má
einnig fá á heimasíðu Háskóla Is-
lands: http://www.hi.is/HIHome.html
Mánudagurinn 22. mars:
Ragnar Sigurðsson sérfræðingur á
Raunvísindastofnun flytur fyrirlestur
i málstofu í stærðfræði sem nefnist:
„Brúun á fáguðum follum af mörgum
breytistærðum." Málstofan verður í
stofu 258 í húsi Verkfræði- og raun-
vísindadeildar, VR-II, Hjarðarhaga
4, kl. 15.25.
Þýðingar og íslensk menning.
Þáttur í RÚV, rás eitt, kl. 15.03 sem
fjallar um þýðingar og hlut þeirra í
íslenskri menningu eða menningu á
Islandi. Þættimh’ eru unnir í sam-
vinnu Stofnunar Sigurðar Nordals og
RUV. Jón Yngvi Jóhannsson deddar-
stjóri á SSN annast þættina og ræðir
við marga fræðimenn og þýðendur
um hlut þýðinga.
Opinn fundur um Þemaáætlun 1 í
5. rammaáætlun Bvrópusambands-
ins, sem fjallar um „Lífsgæði og nýt-
ingu náttúruauðlinda.“ Ingileif Jóns-
dóttir dósent mun flytja framsögu og
tveir Islendingar sem vinna hjá
framkvæmdastjóm ESB, auk starfs-
manns Iðntæknistofnunar. Fundur-
inn er í Borgartúni 6 kl. 9-11. Fund-
urinn er ókeypis og öllum opinn. Til-
kynnið þátttöku í síma RANNÍS, 562
1320 eða tölvupóst: rannis@rannis.is
Námskeið í uppbyggingu um-
sókna, lagalegum atriðum og kostn-
aðaráætlunum umsókna í rannsókna-
og þróunaráætlanir ESB. Leiðbein-
andi er Indriði Benediktsson, vís-
indafulltrúi Framkvæmdastjórnar
ESB. Námskeiðið er haldið í Tækni-
garði, Dunhaga 5, kl. 13.30-15. Nám-
skeiðið er ókeypis og öllum opið. Til-
kynnið þátttöku í síma Rannsókna-
þjónustu HÍ, 525 4900 eða með tölvu-
pósti: grimurk@rthj.hi.is
Þriðjudagurinn 23. mars:
Þóra Kristjánsdóttir sérfræðingur
Þjóðminjasafns flytja íyrirlestur á
málstofu sagnfræðiskorar sem nefn-
ist Islensk listsköpun 1550-1830.
Megininntak fyi-irlestrarins verður:
„Hverjir stunduðu listsköpun á Is-
landi á þessu tímabili og hvaðan
komu þeir?“ Fyrirlesturinn hefst kl.
16.15 í stofu 311 Amagarði.
Miðvikudagurinn 24. mars:
Háskólatónleikar í Norræna hús-
inu. Þá leikur dr. Unnm' Vilhelms-
dóttir, píanóleikari, verk eftir Lud-
wig van Beethoven (1770-1827) og
Sergei Rachmaninov (1873-1943).
Verkin sem hún leikur eru sónata op-
us 31 nr. 3 eftir Beethoven og Etude-
Tabieaux opus 39 nr. 2 eftir
Rachmaninov. Tónleikarnir hefjast
kl. 12.30. Verð aðgöngumiða er kr.
400. Okeypis fyrfr handhafa stúd-
entaskírteina.
Fritz Loomeijer, hollenski sagn-
fræðingurinn og forstöðumaður fisk-
veiðisögusafnsins í Vlaardingen fyr-
irlestur í boði Rannsóknaseturs í
sjávarútvegssögu og Sjóminjasafns
Islands. Fyrirlesturinn ber yfir-
skriftina: „Iceland, too far away for
the Duteh fishermen?" í fyi-irlestrin-
um rekur Loomeijer meginþætti í
fiskveiðum Hollendinga við ísland
fi'á 17. öld til hinnar 20. og ræðir m.a.
spurninguna hvers vegna fiskveiðar
við Island urðu aldrei meginþáttur í
hollenskum sjávarútvegi. Fyrfrlest-
urinn verður haldinn kl. 16 í fyrir-
lestrarsal Hafrannsóknastofnunar,
Skúlagötu 4.
Helgi Tómasson dósent í viðskipta-
og hagfræðideild HI flytur fyrirlest-
ur í málstofu viðskipta- og hagfræði-
deildar um: „Monitoring trading in-
tensity of a stock market" í kennai-a-
stofu deildai'innar á þriðju hæð í
Odda kl. 16.15.
Fimmtudagurinn 25. mars:
Rannsóknaþjónusta Háskólans
stendur fyrir námskeiði um umsókn-
ir um rannsóknarstyrki í 5. rammaá-
ætlun ESB. Námskeiðið er haldið í
Tæknigarði Dunhaga 5 kl. 10-17.
Leiðbeinandi Oskar Einarsson ESB.
Námskeiðið hentai' þeim sem þegar
hafa ákveðið þátttöku í umsókn eða
þurfa starfa sinna vegna að skilja vel
umsóknarferlið sjálft. Námskeiðið er
ókeypis og öllum opið en þátttakend-
ur er beðnir um að tilkynna þátttöku
sína í síma Rannsóknaþjónustu HI,
525 4900 eða með tölvupósti: grim-
urk@rthj.hi.is
Sigurður R. Sæmundsson tann-
læknir flytur íyrfrlestur í málstofu
læknadeildai' um „Tauganet - nýjar
leiðfr til að láta tölur spá um framtíð-
ina.“ Málstofan fer fram í sal
Krabbameinsfélags Islands, Skógar-
hlíð 8, efstu hæð og hefst kl. 16 með
kaffiveitingum.
Magnús Sveinn Helgason nemi í
sagnfræði flytur fyrirlestur í mál-
stofu hagfræðiskorar og sagn-
fræðiskorar sem hann nefnir: „Geng-
isstefna í kreppunni rniklu." Málstof-
an fer fi-am kl. 16.15 í stofu 422 í
Árnagarði 4. hæð.
Föstudagurinn 26. mars:
Jón Bragi Bjarnason prófessor
flytur fóstudagsfyrirlestur Líffræði-
stofnar sem hann nefnfr: „Póteinasar
úr sjávarfangi: eðli, eiginleikar og
notkun.“ Fyi'irlesturinn eru fluttur
að Grensásvegi 12 stofu G-6 og hefj-
ast kl. 12.20.
Vagn Greve prófessor í refsirétti
og forseti lagadeildai' Kaupmanna-
hafnarháskóla mun halda fyrfrlestur
á vegum lagadeildar Háskóla Islands
og fjallar um: „Criminal Law in the
21st Century.“ Fyrirlestur prófess-
orsins verður fluttur kl. 17 á ensku í
stofu 1011 Lögbergi.
Laugardagurinn 27. mars:
Björn Rúnar Lúðvíksson læknir,
ver doktorsritgerð sína „The Regul-
atory Function of IL-2 and IL-12 in
Autoimmunity and Thymocyte
Development", sem Iæknadeild hefur
metið hæfa til doktorsprófs. And-
mælendur verða dr. Nils Lycke dós-
ent frá Háskólanum í Gautaborg og
dr. Ingileif Jónsdóttir dósent frá Há-
skóla Islands. Forseti læknadeildar,
Jóhann Agúst Sigurðsson prófessor,
stjórnai' athöfninni. Doktorsvörnin
fer fram í Odda sal 101 og hefst kl.
14.
Orðasöfn og gagnabankar
Ollum er heimill aðgangur að eftir-
töldum orðabönkum og gagnsöfnum
á vegum Háskóla Islands og stofnana
hans. Rannsóknagagnasafn Islands.
Hægt að líta á rannsóknarverkefni
og niðurstöður rannsókna- og þróun-
arstarfs: http://www.ris.is
Islensk málstöð. Orðabanki. Hefur
að geyma fjölmörg orðasöfn í sér-
greinum: http://www.ismal.hi.is/ob/
Landsbókasafn Islands - Háskóla-
bókasafn. Gegnir og Greinir:
http://www.bok.hi.is/gegnfr.html
Orðasafn Islenska stærðfræðifé-
lags-
ins:http://www.hi.is/~mmh/ord/leit-
un.html
Gagnasafn Orðabókai' Háskólans:
http://www.lexis.hi.is/
Námskeið á vegum Endurmennt-
unarstofnunar HI vikuna 22.-27.
mars:
22. mars kl. 9-16. Agi og hegðun-
armótun leikskólabarna. Kennari:
Opið í dag
frá kl. 12-14
Hvassaleiti — raðhús
Fallegt og vandað 182 fm raðhús á tveimur hæðum. Innb.
bílskúr. Arinn. Nýleg sólstofa, 4 góð svefnherb. Frábær stað-
setning. Verð 16 millj. 1060.
Vesturhús — glæsilegt tvíbýli
Frábær útsýnisstaður
Til sölu glæsilegt hús á frábærum stað staðsett við óbyggt
svæði. í húsinu eru tvær samþykktar íbúðir. Efri hæð ca 200
fm með innb. bíiskúr. Góðar stofur með glæsilegum arni.
Útsýni yfir borgina, sundin og víðar. Á neðri hæð er glæsileg
ca 108 fm sérhæð. Fallegur garður. Alno-innréttingar. Upp-
lýsingar veitir Bárður í síma 896 5221 eða á skrifstofu.
Hverafold — parhús
Glæsilegt 151 fm parhús á
einni hæð. Innb. góður bílskúr.
3 góð svefnherb. Parket.
Glæsilegt bað og eldhús.
Hellulögð verönd. Eign í sér-
flokki. Ahv. byggingasjóður ca
3,5 millj. Verð 14,5 millj.
Fokhelt einbýli í Grafarvogi
Vorum að fá í sölu glæsilegt ca 245 fm einbýli í grónu hverfi
með glæsilegu útsýni. Nánari upplýsingar gefur Ingólfur í
síma 896 5222.
Grafarvogur — ný íbúð — til afh.
Glæsileg 62 fm íbúð á 1. hæð, fullbúín í hólf og gólf. Verð 6,4
millj. Lyklar á Valhöll. Skipti á nýlegum bíl skoðuð. 1059.
Ægisíða
Falleg og björt 3ja herb. íbúð með sérinng. Mikið endur-
nýjuð. Parket. Franskar hurðir. Verð 7,1 millj. Þessi fer strax.
Einbýli — Garðabæ óskast
Leitum fyrir fimm manna fjölskyldu, sem búin er að selja sína
eign, að einbýlishúsi í Garðabæ. Verðhugmynd 14 til rúm-
lega 20 millj. Kópavogur og Hafnarfjörður koma einnig til
greina eða skemmtileg staðsetning í Reykjavík. Allar nánari
uppl. veitir Bárður Tryggvason, sölustjóri, í síma 896 5221
eða á skrifstofu.
Valhöll fasteignasala,
Síðumúla 27, sími 588 4477.