Morgunblaðið - 23.03.1999, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ1999 B 3
Eyja-
stúlkur
rúlluðu
yfir Fram
í Eyjum
LIÐ ÍBV sýndi allar sínar
bestu hliðar þegar þær sigr-
uðu Fram í Eyjum í gærkvöldi
í öðrum leik liðanna í úrslita-
keppninni, 32:22. Eftir að
hafa steinlegið í fyrsta leikn-
um, 30:23 - á heimavelli Fram
á laugardaginn, sýndu Eyja-
stúlkur hvað í þeim býr og yf-
irspiluðu Framliðið í fyrri hálf-
leiknum þannig að úrslit voru
nánast ráðin í leikhléi enda
staðan orðin 20:11.
Við skiptum um vöm frá fyrri
leiknum, tókum tvær út og það
var allt annar andi í liðinu í þessum
^^■■■^ leik, við ákváðum að
Sigfús G. vinna þetta saman og
Guðmundsson þá hefst þetta,“ sagði
sknfar Ingibjörg Jónsdóttir,
fyrirliði IBV, sem átti
mjög góðan leik. „Ef við spilum
svona í oddaleiknum, af hörku og
festu, þá eigum við að geta unnið
þær,“ bætti Ingibjörg við.
Það var allt galopið í upphafí
leiks og nánast skorað úr hverri
sókn fyrstu mínúturnar en í stöð-
unni 6:6 vom Eyjastúlkur búnar
að slípa vömina hjá sér. Þær
klipptu Guðríði Guðjónsdóttur og
Marinu Zovevu úr sókn Fram frá
upphafi og þegar það fór að virka
ásamt frábæram sóknarleik ruku
þær frammúr og þegar blásið var
til leikhlés var staðan orðin 20-11.
Urslit vora nánast ráðin, enda fór
svo að þær héldu vel í horfinu í
síðari hálfleiknum og bættu
reyndar við og stóðu uppi sem ör-
uggir sigurvegarar í þessum leik,
32:22, og tryggðu sér þar með
oddaleik á heimavelli Fram annað
kvöld.
Lið ÍBV lék mjög vel í þessum
leik og hefur verið mikill stígandi í
hðinu undanfarið eftir frekar erfið-
an vetur. Lukrecija Bokan í mark-
inu átti stórleik varði 23 skot þar af
3 víti og liðið með fyrirliðann Ingi-
björgu Jónsdóttur og Amelu Hegic
í broddi fylkingar lék mjög vel og
sýndi vel hvað í því býr. Hjá Fram
var fátt um fína drætti og ljóst að
þær verða að taka sig saman í and-
íitinu ætli þær sér lengra í þessu
móti.
Morgunblaðið/Þorkell
HILDUR Erlingsdóttir fór fyrir liði sínu í Kaplakrika í gærkvöldi þegar það vann Víking í síðari leik
liðanna í 8-liða úrslitum. Hér svífur hún inn af línunni með Önnu Kristínu Ámadóttur á hælunum en
Eva Halldórsdóttir bíður átekta.
Víkingar úr leik
FYRSTU tuttugu mínúturnar í Kaplakrika í gærkvöldi, þegar fram
fór annar leikur FH og Víkings í 8-liða úrslitum íslandsmóts
kvenna, brostu Víkingar á áhorfendapöllunum í kampinn - stað-
an 10:4 Víkingum í vil og það leit ekki út fyrir að FH-stúlkur
hefðu neitt um úrslitin að segja. Víkingar hugðu því gott til glóð-
arinnar þegar til þriðja leiks kæmi í Víkinni. En brosið fraus því
leikur Víkinga hrundi, Hafnfirðingar skoruðu fimmtán mörk á
móti fjórum Víkinga, sem voru alveg heillum horfnir og lokastað-
an, 20:16, sendi Víkingsstúlkur í sumarfrí. FH hafði einnig betur
í Víkinni á laugardaginn, 20:18.
Stefán
Stefánsson
skrífar
Gestirnir léku á als oddi fyrstu
mínútumar og skoruðu úr sex
af fyrstu átta sóknum sínum, enda
liðu 18 mínútur áður
en Jolanta Slapikiene í
marki FH varði sitt
fyrsta skot. Dæmigert
fyrir þessar mínútur
var þegar Víkingurinn Eva Hall-
dórsdóttir kastaði sér á eftir boltan-
um og náði honum inni í hópi FH-
stúlkna, sem voru ekki á verði. En
eftir tuttugu mínútur var eins og
Víkingum þætti nóg komið, heldur
dofnaði yfir baráttunni og síðustu
átta sóknir þeirra fóru í súginn á
meðan heimasætumar sóttu í sig
veðrið. Miklu munaði að Jolanta fann
fjölina sína og varði meðal annars
vítaskot.
Framhald varð á eftir hlé, FH-
stúlkur stórbættu vamarleikinn,
sem sló Víkinga út af laginu, þeir
fóru illa að ráði sínu í sókninni og
ekki bætti úr skák þegar Jolanta í
marki FH varði tvö vítaskot. Um
miðjan síðari hálfleik jöfnuðu FH-
stúlkur í 13:13 en slógu hvergi af,
skoraðu næstu sex mörk leiksins
gegn lánlausum gestum sínum og úr-
slit voru ráðin.
„Þetta var mjög erfiður leikur en
sigurinn því sætari, enda mikið í
húfi,“ sagði Þórdís Biynjólfsdóttir,
sem tók vel við sér eftir slaka byrj-
un. „Eg veit ekki hvað var í gangi
fyrstu tuttugu mínútumar, jafnvel
einhver hræðsla og það vantaði alla
frekju og ákveðni, en þegar vömin
small saman fylgdi allt hitt á eftir.
Það var minni pressa á okkur eftir
sigur í fyrri leiknum og við höfum
verið þekktar fyrir að fara erfiðu
leiðina en það verður ekki svo í þetta
skiptið,“ bætti Þórdís við en hún,
Hildur Erlingsdóttir og Drífa Skúla-
dóttir áttu góðan leik auk þess sem
Jolanta kom til er leið á leikinn.
Stuðningsfólk Víkinga sat eins og
leikmenn eftir leikinn og reyndi að
átta sig á því hvað hafði átt sér
stað. Eflaust verður hægt að finna
út hvað sendi liðið í sumarfrí svo
snemma en það verður erfiðara að
finna út hvemig hægt er að missa
leik svo gjörsamlega út úr höndun-
um. „Um leið og þær hrukku í gír
fór okkar vél að hiksta, við nýttum
ekki færin og hættum að keyra á
þær,“ sagði Svava Sigurðardóttir,
sem var best Víkinga, en Kristín
María Guðjónsdóttir markvörður
var einnig góð. Eva, Inga Lára Þór-
isdóttir og Kristín Guðmundsdóttir
byrjuðu vel.
„Ég er lurkum lamin“
Eg er öll lurkum lamin því það
var mikil harka og ekkert gefið
eftir á báða bóga,“ sagði Gerður
■§■■■■ Beta Jóhannsdóttir,
Stefán fyrirliði Vals, eftir
Stefánsson 19:16 sigur á Haukum
skrífar J sfðari leik liðanna í
8-liða úrslitum í Hafn-
arfirði á sunnudaginn. Haukastúlk-
umar era því úr leik en gáfust þó
ekki upp baráttulaust. „Haukastelp-
urnar komu auðvitað ákveðnar inn í
þennan leik en sigurinn var því sæt-
ari fyrir vikið. Við vorum ákveðnar í
að spila fasta vöm því við ætluðum
að hafa þetta af í tveimur leikjum
og ekki taka áhættuna á þriðja leik.
Við náðum að hefna fyrir að Haukar
slógu okkur út í 8-liða úrslitum fyrir
tveimur árum og nú getum við hefnt
fyrir að Stjarnan sló okkur út í fjög-
urra liða úrslitum í fyrra,“ bætti
Gerður við en Valur fær Stjömuna í
næsta leik.
Barist var með kjafti og klóm frá
fyrstu mínútu svo að það var eins og
um bikarúrslitaleik væri að ræða.
Vöm Hafnfirðinga var grimm og
sóknarleikurinn til að byrja með
áræðinn en heldur dofnaði yfir hon-
um þegar gestimir tóku að leika
sinn varnarleik utar á vellinum. Eft-
ir að Haukastúlkum tókst ekki að
skora mark í átta mínútur á meðan
Valur skoraði fjögur, varð hlutskipti
Hafnfirðinga að elta og það er
erfitt.
Eftir hlé kom annar kafli Hauka
með mörgum mistökum, sem Vals-
stúlkur refsuðu fyrir um leið og
juku forskotið en þegar Larissa
Zouber í marki Vals varði vítakast
varð róðurinn Haukum enn þyngri.
Valsstúlkur hófu að lengja sóknir
sínar til að teygja lopann svo að
pressan var öll á heimasætunum en
þegar Larissa varði aftur víti og
Valur skoraði hinumegin, sem skil-
aði þeim í fjögurra marka forskot
og þrjár mínútur til leiksloka, var
björninn unninn.
„Við gerðum okkar besta svo
það var sárt að tapa en við getum
borið höfuðið hátt eftir þau áföll,
sem á okkur hafa dunið varðandi
meiðsli leikmanna," sagði Harpa
Melsteð, fyrirliði Hauka, eftir leik-
inn og reyndi að venjast því að
fara í frí eftir að hafa leikið til úr-
slita undanfarin þrjú ár. Óhætt er
taka undir þau orð, Haukastúlkur
lögðu sig allar fram inni á vellinum
þótt sumar ættu við meiðsli að
stríða og á bekknum sátu nokkrir
lykileikmenn, sem vora úr leik -
en að því er ekki spurt. Vömin var
góð þrátt fyrir nokkur slæm mis-
tök en talsvert vantaði upp á sókn-
arleikinn. Harpa átti góðan leik en
Hanna G. Stefánsdóttir, Sandra
Anulyte og Thelma Bj. Árnadóttir
voru ágætar.
Hjá Val fór Gerður á kostum og
lagði grunninn að sigri Vals ásamt
Larissu markverði. Varnarleikurinn
var mjög öflugur, leikmenn hentu
sér á hvern bolta og oft á þann, sem
var með boltann - gengu eins langt
og dómarar leyfðu. Eins og við var
að búast gekk sóknarleikurinn ekki
eins vel en leikmenn nýttu sér þó
flestöll mistökin í Haukavöminni.
Þóra B. Helgadóttir átti einnig
ágætan leik
Bergsveinn
er ekki
brotinn
BERGSVEINN Bergsveins-
son, markvörður deildar- og
bikarmeistara Aftureldingar
í handknattleik, er ekki
handarbrotinn eins og talið
hafði verið. Hann meiddist. á
æfingu með liði sínu fyrir
helgi og hefur ekki náð að
æfa síðan. Að sögn Skúla
Gunnsteinssonar, þjálfara
Aftureldingar, er ekki Ijóst
hvers eðlis meiðslin eru, en
líklegt er að Bergsveinn
verði í liðinu á fimmtudags-
kvöld er Afturelding tekur á
móti HK í fyrstu umferð úr-
slitakeppninnar.
Bjarki Sigurðsson gat ekki
heldur verið á æfingu með
Aftureldingu í gærkvöldi, en
hann meiddist. h'tillega í
landsleik íslendinga og Eg-
ypta í Svíþjóð sl. föstudag.
Skúli segist þó halda að
Bjarki muni mæta frískur í
leikinn gegn HK og hann
geri ráð fyrir að geta teflt,
fram sínu sterkasta liði.
■ VÍTAKÖST Hauka í síðari
leiknum við Val í 8-liða úrslitum í
Hafnarfirði á sunnudaginn fóra
mörg forgörðum. Af sjö vítum röt-
uðu þrjú í markið en eitt fór í slá
og yfir.
■ LARISSA Zouber, markvörður
Vals, gerði sér lítið fyrir og varði
þrjú vítaskot í leiknum við Hauka.
■ GUDNY AGLA Jónsdóttir fékk
að spreyta sig í marki Hauka á
sunnudaginn og Vaiva Drilingaite
fékk að hvfla sig. Guðný Agla stóð
sig ágætlega, varði oft vel en fékk
h'tið við ráðið í þau skipti þegar
Valsstúlkur sluppu óhindraðar í
gegn.
■ AUÐUR Hermannsdóttir, sem
hefur verið meidd í öxl, lék fyrstu
mínúturnar með Haukum í fyrri
leiknum gegn Val en varð að fara
fljótlega út af því hún hafði ekki
jafnað sig af meiðslunum. Hún lék
ekki í síðari leik liðanna.
■ RÖGNVALD Erlingsson, hinn
geðþekki og vinsæli handknatt-
leiksdómari hefur að mestu lagt
flautuna á hilluna en var eftirlits-
dómari á leik Hauka og Vals á
sunnudaginn. Eftir að flautað var
til loka fyrri hálfleiks áttu Vals-
stúlkur aðeins eftir að taka
aukakast og hófst rekistefna um
hvar á vellinum það ætti að fara
fram. Ekki var að sökum að spyrja,
röggsamur Rögnvald benti ná-
kvæmlega á hvar aukakastið skyldi
tekið og allir hlýddu þeim dómi.
■ THELMA BJÖRK Árnadóttir í
Haukum hefur ekkert getað æft
undanfarna tíu daga vegna meiðsla
í baki og þegar hún féll við í leikn-
um við Val á sunnudaginn fór um
stuðningsfólk Hauka: var enn einn
leikmaður á leið á sjúkralistann?
Betur fór þó en á horfðist - Thelma
hélt áfram í sókninni eftir stundar-
fjórðungs hlé.
■ HÁVAÐINN í trambuslöguram
Hauka var mikill á sunnudaginn og
vart saklausum áhorfendum bjóð-
andi. Ljóst er þó að réttur trumbu-
sláttur getur haft áhrif á leikmenn
en óneitanleg væri skemmtilegra ef
fleiri áhorfendur legðu meira af
mörkum - ekki tveir trommarar.
■ MARIE Therese Axelsson, þjálf-
ari 1. deildarliðs kvenna í hand-
knattleik þjá ÍBV, átti aftnæli í
gær, varð 33 ára, og fékk blómvönd
frá Uðinu fyrir leikinn.