Morgunblaðið - 23.03.1999, Qupperneq 10
10 B ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1999
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
■ BRASILISKI miðherjinn Elber
hjá Bayern Miinchen mun ekki
keppa meira með Bæjurum þetta
keppnistímabil. Meiðsli hans í hné
eru það alvarleg, að hann verður frá
æfíngum og keppni í fjóra til fimm
mánuði.
■ BAYERN Miinchen hefur gert 16
ára Búlgara, Kroum Bibitschow,
tilboð um að koma á samning hjá fé-
laginu.
■ BÆJARAR eru með „njósnara"
út um allan heim til að finna unga
og efnilega leikmenn og bjóða þeim
samning. Bibitschow þykir mikið
efni og er markhæstur í Búlgaríu,
sem leikmaður með Pirin Bla-
gowgrad.
■ FORRÁÐAMENN erkióvinanna í
skoskri knattspymu, Rangers og
Celtic, gerðu í gær tímamótasam-
komulag við sjónvarpsstöðina NTL
til fíögurra ára.
■ I samningnum er kveðið á um að
bæði félög beri auglýsingar stöðvar-
innar á keppnispeysum sínum á
samningstímanum. Þetta tryggir
hvoru félagi 1,6 millj. punda í tekjur
á ári.
■ ÞETTA er næst verðmætasti
samningur sem gerður hefur verið
um auglýsingar á búningum á Bret-
landseyjum, aðeins samningur
Manchester United við Sharp er
verðmætari.
Barcelona
eykur
forystuna
HOLLENDINGURINN Philip
Cocu tryggði Barcelona sigur
með tveimur mörkum gegn
Real Sociedad um helgina.
Með sigrinum jók Barcelona
forystu sína í deildiuni í fínim
stig. 2:0 sigur liðsins var sá
fyrsti sem liðið vimiur á
Anoeta-vellinum hjá Real
Sociedad síðan árið 1993.
Real Madrid, sem lagði
Extremadura 2:0, hefur nú
sigrað í þremur ieikjuin í röð
í deildinni en það hefur ekki
gerst síðan í nóvember 1997.
Þrátt fyrir að MadiTdarliðið
þokist upp töfluna var John
Toshack, þjálfari liðsins, allt
annað en ánægður með
frammistöðu leikmanna sinna
um helgina. Hann sagði þá
ekki liafa leikið af krafti og
að liðið hefði átt að skora
mun fleiri mörk gegn
Extremadura, sem er við botn
deildarinnar. „Við fengum
gott tækifæri til þess að laga
inarkatölu liðsins, en leik-
menn lögðu sig ekki nægilega
fram.“ Toshack sagði að leik-
menn liðsins yrðu að breyta
viðhorfi sínu fyrir næstu leiki
f deildinni.
Valencia mistókst að lialda
öðru sæti deildarinnar en lið-
ið gerði jafntefii við Real
Zaragoza 1:1. Celta Vigo
tókst að ná öðru sætinu með
því að leggja Racing Santand-
er 3:0. Mikil barátta er á milli
liða í deildinni um sæti í Evr-
ópukeppninni að ári, en að-
eins þrjú stig skilja að liðin í
2. til 6. sæti deildarinnar.
Fátt gengur upp hjá Athlet-
ico Madrid í spönsku deild-
inni, en liðið er komið í und-
amirslit f Evrópukeppni fé-
lagsliða. Liðið, sem tapaði
fyrir Alaves 3:0, er nú í 13.
sæti deildarinnar og hefur að-
eins náð einu stigi f sfðustu
átta leikjum.
Man. Utd.
heldur
sínu striki
MANCHESTER United hélt sínu striki í ensku úrvalsdeildinni um
helgina, sigraði Everton 3:1 og er sem fyrr í efsta sæti með fjög-
urra stiga forskot. Liðið hefur ekki tapað í 19 leikjum í röð. Ar-
senal og Chelsea fylgja í humátt á eftir, en bæði liðin unnu um
helgina.
að tók United fyrri hálfleikinn
að finna leiðina í mark Aston
Villa á Old Trafford, en í síðari
hálfleik braut Norðmaðurinn knái,
Ole Gunnar Solskær, ísinn með 11.
marki sínu á tímabilinu eftir undir-
búning Dwight Yorke. Eftir það
var engin spurning um hvorum
megin sigurinn lenti. Yorke átti
einnig þátt í öðru markinu sem
varnarmaðurinn Gary Neville
gerði á 64. mínútu. David Beckham
gerði þriðja markið beint úr auka-
spyrnu af 25 metra færi þremur
mínútum síðar. Don Hutchison
náði að klóra í bakkann tíu mínút-
um fyrir leikslok með fallegu marki
beint úr aukaspymu.
Chelsea virðist vera að ná sér á
strik eftir misjafnt gengi að undan-
fömu. Það tók leikmenn Chelsea
59 mínútur að koma boltanum í
mark Aston Villa á Villa Park.
Norðmaðurinn Tore Andre Flo var
hetja liðsins og gerði tvö marka
liðsins og það þriðja gerði Daninn
Bjarne Goldbæk. Með sigrinum er
Chelsea í þriðja sæti, sjö stigum á
eftir United. Villa er sem sprungin
blaðra, eftir að hafa haft forystu í
deildinni framan af vetri. Liðið hef-
ur tapað fimm heimaleikjum í röð
og hefur aðeins náð einu stigi úr
síðustu átta leikjum.
„Við þurftum á sigri að halda ef
við ætluðum okkur að vera áfram
með í baráttunni um titilinn, sér-
staklega eftir tvo tapleiki í röð,“
sagði Flo. „Við höfum ekki skorað
mikið af mörkum að undanförnu en
þessi úrslit ættu að gefa okkur
góðan grunn til að byggja á í næstu
leikjum," sagði hann.
Arsenal ætlar ekki að láta meist-
aratitilinn af hendi átakalaust og
vann Coventry sannfærandi 2:0 á
Highbury. Ray Parlour og
Hollendingurinn Marc Overmars
gerðu mörkin á 16. og 80. mínútu.
Arsenal er með 59 stig, fjórum
stigum á eftir United og á einn leik
til góða. Liðið hefur ekki tapað í
deild og bikar í 17 leikjum í röð og
segir það allt um styrk liðsins. „Við
lékum ekki eins góðan sóknarleik
og við getum best, en varnarleikur-
inn var góður og hélt okkur inni í
þessum leik,“ sagði Arsene Wen-
ger, knattspymustjóri Arsenal.
Stígandi hefur verið í leik Leeds
að undanfömu og um helgina vann
liðið góða sigur á Derby, 4:1, á El-
land Road. Þetta var sjötti sigur
liðsins í röð og er það nú komið í
fjórða sæti deildarinnar, fimm stig-
um á eftir Arsenal. „Við lékum
mjög vel og mörkin vora falleg. Við
slógum leikmenn Derby oft út af
laginu í þessum leik,“ sagði David
O’Leary, knattspyrnustjóri Leeds.
I neðri hluta deildarinnar vann
Blackburn mikilvægan sigur á
Wimbledon 3:1 og færðist við það
upp úr fallsæti. Southampton held-
ur í vonina um að bjarga sér frá
falli með 1:0 sigri á Sheffield Wed-
nesday. Staða Nottingham Forest
er orðin slæm í botnsætinu eftir
2:1 tap á heimavelli fyrir Middles-
bro.
Reuters
NORSKI landsliðsmaðurinn Tore Andre Flo fagnar fyrra marki
sínu fyrir Chelsea.
Sex Bæjarar í liði Ribbeck
Sex leikmenn frá Bayern
Munchen er í 21 manns lands-
liðshópi Erichs Ribbecks, landsliðs-
þjálfara Þýskalands, en tveir leik-
menn til viðbótar frá Bayem era
meiddir og komu því ekki til greina,
Alexander Zickler og Michael Tar-
ant. Þá gaf Lars Ricken, leikmaður
Dortmund, ekki kost á sér vegna
meiðsla, samherji hans Christian
Nerlinger og Carsten Ramelov hjá
Leverkusen. Þjóðverjar mæta Norð-
ur-írum í Belfast næsta laugardag
og miðvikudaginn eftir gegn Finnum
í Núrnberg, en báðir leikimir eru í
undankeppni EM.
Ribbeck hikaði ekki við að velja
Andy Möller þrátt fyiir að hann
væri meiddur. Sagði hann að Möller
léki ekki gegn Irum en hefði vonandi
náð sér fyrir síðari leikinn. Hann lét
þess jafnframt getið að það væri
synd að Steffan Effenberg gæfi kost
á sér í landsliðið, því hann hefði leik-
ið vel í vetur og myndi styrkja lands-
liðið verulega.
Hópur Ribbecks er skipaður eftir-
töldum leikmönnum:
Markverðir: Oliver Kahn (Bayern
Munchen), Jens Lehmann (Borussia
Dortmund).
Vamarmenn: Markus Babbel, Loth-
ar Matthaeus (báðir hjá Bayem
Múnchen), Jens Nowotny (Bayer
Leverkusen), Marko Rehmer
(Hansa Rostock), Christian Wöms
(Paris St. Germain).
Miðvallarleikmenn: Michael Ballack,
Mai-co Reich (báðir frá Ka-
iserslautem), Stefan Beinlich (Bayer
Leverkusen), Dietmar Hamann
(Newcastle), Jörg HeimTch (Fiorent-
ina), Jens Jeremies, Thomas Strunz
(báðir frá Bayem Múnchen), Andre-
as Möller (Borassia Dortmund).
Framheijar: Oliver Bierhoff (AC
Milan), Marco Bode (Werder
Bremen), Carsten Jancker (Bayem
Múnchen), Ulf Kirsten (Bayer
Leverkusen), Oliver Neuville (Hansa
Rostock), Michael Preetz (Hertha
Berlín).
Eyjólfur lék vel með Herthu
Eyjólfur Sverrisson og samherj-
ar hans hjá Hertha Berlín unnu
mikilvægan sigur gegn 1860
Múnchen, 2:1. Ekkert gengur hjá
Hansa Rostock, sem er við botn
deildarinnar og tapaði á heimavelli
1:0 fyrir Hamborg.
Hertha er í baráttu um að tryggja
sér sæti í Evrópukeppni á næstu
leiktíð. Michael Preetz kom Herthu
yfir úr vítaspymu, en Bemhard
Winkler jafnaði íyrir 1860 Múnchen.
Rene Tretschock gerði sigurmark
Berlínarliðsins skömmu fyrir leiks-
lok. Eyjólfur átti góðan leik.
Bayem mætti Werder Bremen
og varði Kahn nokkram sinnum vel
og hélt liði sínu inni í leiknum. I
leikslok hafði hann slegið met Oli-
vers Reck, markvarðar, frá leiktíð-
inni 1987-88 um 82 mínútur. Carst-
en Jancker skoraði sigurmark Ba-
yem Munchen 2 mínútum fyrir
leikslok, en liðið hefur unnið átta
leiki í röð.
Leikmenn Bayern virkuðu
þreyttir eftir síðari leik liðsins í
Meistaradeild Evrópu gegn Ka-
iserslautem og sagði Ottmar Hitz-
feld, þjálfari Bæjara, að lið sitt
hefði mátt þakka fyrir að ná sigri
gegn Bremen. Bayem Múnchen er
nú 14 stigum á undan Ka-
iserslautem, sem er í öðru sæti
deildarinnar. Ekkert lið í sögu
Bundesligunnar hefur haft svo fá-
heyrða yfirburði og Bayern eftir 23
umferðir í þýsku deildinni.
Otto Rehagel þjálfara tókst að
þjappa leikmönnum sínum í Ka-
iserslautern saman eftir 4:0 ósigur
gegn Bayern Munchen í Meistara-
deildinni. Kaiserslautern lagði
Bochum 2:1 með mörkum frá Uwe
Rösler og Brasilíumanninum Rat-
inho.
Baulað á Bobic
Stuttgart komst í 2:0 gegn Bor-
ussia Mönchengladbach með mörk-
um frá Kristztian Lisztes og
Krassimir Balakov, en gestirnir
náðu að jafna á síðustu mínútu
leiksins með marki frá Marcel Ket-
elaer. Áður hafði Micheal
Frontzeck minnkað muninn. Áhan-
gendur Stuttgart bauluðu sífellt á
Fredi Bobic, sem á ekki náðuga
daga framundan en hann hefur til-
kynnt að hann ætli að fara frá
Stuttgart til Dortmund.
Kínverski landsliðsmaðurinn
Chen Yang stal senunni er lið hans
Frankfurt gerði 2:2 jafnteíli gegn
Núrnberg. Yang, sem er fyrsti kín-
verski leikmaðurinn í þýsku
Bundesligunni, gerði bæði mörk
Frankfurt og var valinn í lið vik-
unnar í knattspymuritinu Kicker.
Yang hefur farið mikinn í undan-
förnum leikjum og gert 6 mörk í 15
leikjum fyrir félagið.