Morgunblaðið - 23.03.1999, Síða 16
ít Q6ÖI X/IAM .SS flUOAdUUUÍW
dldAJflVÍUOflOM
KNATTSPYRNA
Amar í landsliðið
eftir árs fiarveru
ARNAR Grétarsson, leikmaður AEK í Aþenu, var valinn á ný í
landsliðið eftir árs fjarveru er Guðjón Þórðarson landsliðsþjálfari
tilkynnti um 18 manna landsliðshóp sem mætir Andorra og
Úkraínu í undankeppni Evrópukeppninnar í knattspyrnu. Leikið
verður við Andorra á laugardaginn en Úkraínu á miðvikudaginn
eftir rúma viku. Báðir leikirnir fara fram ytra. „Þar sem bæði Rík-
harður Daðason og Pétur Marteinsson eru meiddir tel ég þennan
hóp vera þann sterkasta sem við eigum nú um stundir og treysti
honum fullkomlega til þess að skila þessu verkefni sem
framundan er,“ sagði Guðjón er hann tilkynnti val á liðinu í gær.
Engir nýliðar eru í hópnum að
þessu sinni en frá leiknum við
Lúxemborgara á dögunum fellur
Ivar Ingimarsson, IBV, úr hópn-
um og einnig Ríkharður Daðason,
Viking FK, en hann er meiddur.
Við bætast hins vegar Sigurður
Jónsson, Dundee United, Þórður
Guðjónsson, Genk, Stefán Þórðar-
son, Kongsvinger, og áðurnefndur
Arnar. Leikmannahópurinn eru
nú 18 menn en 16 tóku þátt í
leiknum við Lúxemborg.
Getan er
fyrir hendi
„Arnar hefur ekki verið með
landsliðinu síðastaliðið ár, en nú
fannst mér vera kominn tími til
þess að taka hann inn í hópinn og
sjá hvernig hann stendur sig,“
sagði Guðjón um valið á Arnari.“
Eg veit að getan er fyrir hendi,
Arnar er góður knattspyrnumað-
ur. Hins vegar á eftir að koma í
ljós hvernig hann fellur inn í hóp-
inn og þann anda sem þar er. Þar
verða allir að standa saman og
vinna sameiginlega að þeim mark-
miðum sem við erum að vinna að
hverju sinni.“
Leikið verður við Andorra ytra
næstkomandi laugardag og sagði
Guðjón markmið liðsins fyrir
18 manna
landslið
Guðjóns
Markverðir:
Birkir Kristinsson, Bolton 56
Árni Gautur Arason, Rosenborg 2
Aðrir lcikmenn:
Rúnar Kristinsson, Lilleström 71
Sigurður Jónsson, Dundee Utd. 59
Eyjólfur Sverrisson, Hertha 46
Arnar Grétarsson, AEK 43
Arnar B. Gunnlaugss., Leicester 28
Þórður Guðjónsson, Genk 26
Lárus Orri Sigurðsson, Stoke 25
Helgi Sigurðsson, Stabæk 23
Hermann Hreiðarss., Brentford 18
Brynjar B. Gunnarsson, Örgryte 13
Helgi Kolviðsson, FSV Mainz 11
Sverrir Sverrisson, Malmö FF 10
Steinar Adolfsson, Kongsvinger 10
Tryggvi Guðmundsson, Tromsö 9
Auðun Helgason, Viking FK 5
Stefán Þórðarson, Kongsvinger 4
þann leik vera skýrt. „Við ætlum
að vinna og fá þrjú stig, það er
ljóst. Til þess ætla ég að stilla upp
sókndjarfara liði en áður og láta
þá fínna fyrir okkur frá fyrstu
mínútu. Viljinn til sigurs verður
að vera fyrir hendi.“ Guðjón sagð-
ist telja lið Andorra vera sterkara
en Lúxemborg sem Island lék við
á dögunum ytra og vann 2:1.
Betri en Liectenstein
„Eins tel ég það vera betra en
Liectenstein sem við spiluðum við
og unnum fyrir tæpum tveimur
árum.“ Guðjón sagði ennfremur
að ljóst væri að íslenska liðið yrði
að leika betur en gegn Lúxem-
borg til þess að vinna, einkum
yrði fyrri hálfleikurinn að vera
betri, þá hefðu verið verulegir
hnökrar á leik liðsins og e.t.v.
hefðu menn ekki tekið verkefnið
nógu alvarlega. Nú yrðu menn að
vera klárir í slaginn frá fyrstu
mínútu.
„Leikurinn við Ukraínu í
Kænugarði verður hins vegar allt
öðru vísi þar verðum við frekar í
varnarhlutverkinu gegn þraut-
reyndu og vel skipulögðu liði. Mér
fínnst hins vegar ekkert sjálfgefið
að tapa þeim leik. Það verður
undir okkur komið að leika þar af
skynsemi og halda aftur af þeim.
Ukraínumenn ætla sér hins vegar
að keyra yfir okkur og fá þrjú
stig,“ sagði Guðjón.
ARNAR Grétarsson, miðvallarleikmaður AEK, er kominn
á ný í landsliðshópinn.
Sigurvin
til Fram
Sigurvin Ólafsson úr ÍBV
hefur gert þriggja ára
samning við Knatt-
spyrnufélagið Fram. Sig-
urvin, sem er 23 ára, lék
aðeins fjóra leiki með
IBV á síðustu leiktíð, en
hann fótbrotnaði illa við
lundaveiðar í Vestmanna-
eyjum. Sigurvin hefur
ekki Ieikið knattspyrnu
frá því að hann slasaðist,
en er að jafna sig á
meiðslunum. Það ræðst
hins vegar á næstu dög-
um hvort hann geti leikið
með Fram í sumar.
Sigurvin, sem hefur
leikið einn A-landsleik,
var í herbúðum Stuttgart
1994-1997. Hann var val-
inn efnilegasti leikmaður
Islandsmótsins 1997 og
hefur leikið með 16, 18
og 21 árs landsliðum ís-
lands.
Ríkharð-
ur til
íslands
RÍKHARÐUR Daðason,
knattspyrnumaður hjá
Víkingi frá Stavanger í
Noregi, hefur enn ekki
skrifað undir nýjan
tveggja ára samning við
félagið.
Ríkharður, sem er
meiddur, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær
að hann hygðist koma til
fslands í nokkra daga, til
þess að fara yfir tilboð
norska félagsins og hitta
ættingja og vini á meðan
hann væri frá æfíngum
hjá félagi sínu.
Ríkharður meiddist á
liðþófa í hné á æfíngu á
dögunum og verður frá
næstu tvær vikur og
missir af landsleikjum
gegn Andorra og Ukra-
ínu í undankeppni
Evrópu mótsins. Hann
sagði að að þeim tíma
liðnum gæti hann farið
að leika með Víkingi í
Stavangri á nýjan leik.
Ólöglegir leikmenn leika í deildabikarkeppni Knattspyrnusambands íslands
Litið mjög alvarlegum augum
NOKKUR brögð munu vera
að því að þjálfarar liða í
deildabikarkeppni KSI tefli
fram ólöglegum Ieikmönnum,
þ.e. leikmönnum sem hafa í
hyggju að ganga til liðs við fé-
lögin en hafa ekki fengið fé-
lagsskipti. Slíkt er með öllu
óheimilt samkvæmt reglum en
hingað til hefur ekkert lið
kært annað fyrir þessa iðju,
enda mun þetta vera gert
hveiju sinni með fullu sam-
þykki beggja liða sem hlut
eiga að máli hverju sinni.
„Því miður hefur verið eitt-
hvað um að ólöglegir leik-
menn séu notaðir í riðla-
keppni deildabikarsins. Að
sjálfsögðu lítum við þetta
mjög alvarlegum augum og
höfum gert athugasemdir við
félögin vegna þessa,“ segir
Geir Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Knattspyrnu-
sambands Islands. „Þetta er
skýlaust brot á öllum reglum
og því einkar alvarlegt, auk
þess sem viðkomandi leik-
menn eru einnig ótryggðir í
leikjum og því taka félögin og
þeir sjálfír mikla áhættu. Að
sjálfsögðu munum við hjá KSI
fylgjast með þessu máli og
halda áfram að gera athuga-
semdir við félögin. Notkun á
ólöglegum leikmönnum hefur
hins vegar farið minnkandi og
ég vonast til þess að hún verði
úr sögunni áður en langt um
líður.“
Þá segir Geir að ólöglegir
leikmenn séu aðeins notaðir i
riðlakeppninni, ekkert hafí
borið á því þegar komið væri
fram í 16-liða úrslit eða þegar
nær drægp úrslitum.
Geir sagði ennfremur að
KSÍ hefði ekki í hyggju að
grípa til sérstakra ráðstafana
enn sem komið er til þess að
sporna við þessu, en áfram
yrði grannt fylgst með.
„Kærurétturinn er hins vegar
hjá félögunum, það er þeirra
að kæra brot á regluin.“
Geir segir það hafa verið
hugmynd á sinum tíma þegar
deildabikarkeppninni var
hleypt af stokkunum fyrir
íjórum árum að opna fyrir að
félögin gætu notað leikmenn
sem ekki hefðu gengið frá fé-
Iagsskiptum. Þegar allt kom
til alls var það ekki hægt,
enda hefði það verið brot á al-
þjóðlegum knattspyrnuregl-