Morgunblaðið - 27.06.1999, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 27.06.1999, Blaðsíða 45
 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. JÚNÍ 1999 45 I DAG Arnað heilla O0ÁRA afmæli. Stein- O\J unn Gunnarsdóttir, fyrrverandi húsfreyja á Saurum í Dalasýslu, er átt- ræð á morgun, mánudaginn 28. júní. Eiginmaður hennar var Benedikt Jóhannesson, bóndi og húsasmiður á Saurum, en hann lést árið 1983. Steinunn dvelur nú á Silfurtúni, dvalarheimili aldraðra í Búðardal. BRIDS llmsjnn Guðmundur 1‘áll Arnarson ÞAÐ ER stundum sagt um Frakkana að stjmkur þeirra liggi í úrspili og vörn. I sögnum hugsa þeir fyrst og fremst um að finna ein- hverja afsökun til að segja þrjú grönd ef punktarnir eru eitthvað yfir 20, en þeg- ar styrkurinn er meiri og slemma er inni í myndinni er öryggið ekki eins mikið. A.m.k. er algengt að þeir fari í slemmu þar sem tvo ása vantar. Hér er nýlegt dæmi frá EM á Möltu, þar sem Mari og Multon héldu á spilum AV gegn Grikkjun- um Liarakos og Kapa- yannides: Suður gefur; AV á hættu. Norður * K10752 V 8762 * 104 * 106 Vestur Austur ♦ D4 * 6 V K5 V ÁDG93 ♦ KD965 ♦ 73 ♦ K985 * ÁDG42 Suður A ÁG983 V 104 ♦ ÁG92 ♦ 73 Vestur Norður Austur Suður Mari Liarak Multon Kapay - Pass 1 ttgull Pass 1 hjarta 1 spaði 21auf 3spaðar Dobl* Pass 4 hjörtu Pass 4 grönd Pass 5tíglar Pass 61auf Allirpass Fjögur grönd var lykil- spilaspuming miðað við hjarta sem tromp og því svaraði Mari á fimm tíglum til að sýna eitt lykilspil (hjartakóng). Multon taldi fimm hjörtu jafnvel í hættu og ákvað að skjóta á laufslemmu í þeirri von að lykilspil makkers væri ás, en ekki hjartakóngur. En svo var ekki og vörnin tók strax á ásasna tvo. Á hinu borðinu spiluðu Grikkirnir fimm lauf og tóku því 12 IMPa inn á spil- inu, og unnu leikinn 17-13. O M a?|i ^'234 f* /\ÁRA afmæli. Á mánu- ö\/daginn, 28. júní, verð- ur sextug frú Halldóra Traustadóttir Ijósmóðir. Á afmælisdaginn mun hún ásamt eiginmanni sínum, Einari G. Jónassyni múrara- meistara, taka á móti gest- um á heimili þeirra í Strýtu- seli 16. Þeir sem vilja gleðj- ast með þeim og þiggja veit- ingar eru hjartanlega vel- komnir eftir kl. 18. /?/\ÁRA afmæli. Mánu- O vfdaginn 28. júní verður sextugur Steini S. Þor- steinsson. Hann tekur á móti gestum milli kl. 17 og 19 á Sléttuvegi 15-17. 4 /\ÁRA afmæli. í dag, ‘tlvfsunnudaginn 27. júní, verður fertugur Pétur Pét- ursson, ljósmyndari og fyrr- verandi landsliðsmaður í knattspyrnu, til heimilis á Seilugranda 7, Reykjavík. Eiginkona hans er Dagmar Haraldsdóttir. Hann hélt upp á afmælið í gær, laugardag. BRUÐKAUP. Gefin voru saman hinn 27. júní 1998 í Áskirkju af sr. Sigurði Arn- arsyni Elfsabet Dungal og Karl Brynjólfsson. Þau eru til heimilis í Stararima 14. Með morgunkaffinu ÞÚ segir mér söguna um blómin og býflugurnar bara til að koma þér hjá svari. Jón Thorodd- (1818/1868) LjóðiO ísland LJOÐABROT ISLAND Ó, fögur er vor fósturjörð um fríða sumardaga, er laufin grænu litka börð og leikur hjörð í haga, en dalur lyftir blárri brún mót blíðum sólar loga, og glitrar flötur, glóir tún og gyllir sunna voga. Og vegleg jörð vor áa er með ísi þakta tinda, um heiðrík kvöld að höfði sér nær hnýtir gullna linda og logagneistum stjömur strá um strindi, hulið svellum, en hoppa álfar hjami á, svo heyrist dun í fellum. Þú fósturjörðin fríð og kær, sem feðra hlúir beinum og lífið ungu frjóvi fær hjá fomum bautasteinum, ó, blessuð vertu, fagra fold, og fjöldinn þinna barna, á meðan gróa grös í mold og glóir nokkur stjarna. STJ ÖRIVUSPA eftir Frances Drakc KRABBI Afmælisbam dagsins: Þú ert djarfur og tekur hverri þeirri áskorun sem líiið fæiir þér og leggur þig fram um að sigrast á þeim öllum. Hrútur ~ (21. mars -19. apríl) Hin gömlu kynni gleymast ei. Það er þó óþarfi að láta þau setja allt úr skorðum bæði heimafyrir og í vinnunni. Naut (20. apríl - 20. maí) Það er nauðsynlegt að ræða hlutina svo að þeir stefni ekki í óefni. Þú þarft að taka djarfa ákvörðun sem þú stendur eða fellur með. Tvíburar ^ (21.maí-20.júní) AA Þú færð oft góðar hugmyndir en týnir þeim jafnóðum niður. Breyttu nú um og skrifaðu hjá þér það sem þér dettur í hug. Krabbi (21. júní - 22. júll) Þú þarft fyrr eða síðar að horfast í augu við staðreynd- ir. Ef þú þarft að láta í minni pokann skaltu gera það með reisn. Ljón (23. júh' - 22. ágúst) W Þú ert svo kappsfullur að þér hættir til að sýna öðram óþol- inmæði. Forðastu það því annars stefnir þú árangrinum í hættu. Meyja (23. ágúst - 22. september) <DSL Ef þú gengur fram fyrir skjöldu og lætur skoðanir þín- ar afdráttarlaust í ljós muntu undrast hversu mikil áhrif þær hafa á aðra. (23. sept. - 22. október) m Þú ert friðsæll og í góðu jafn- vægi og hefur því góð áhrif á alla í kringum þig. Það er kominn tími til að þú dekrir svolítið við sjálfan þig. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Þú finnur á þér að eitthvað er ekki eins og það á að vera og þarft því að taka í taumana áður en það er um seinan og koma málunum á hreint. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) ítSf Ef ágreiningur rís upp meðal fjölskyldumeðiima þarf að komast að málamiðlun. Vertu skilningsríkur og hlustaðu vandlega á sjónarmið ann- arra. Steingeit (22. des. -19. janúar) Gættu þess að taka engu sem sjálfsögðum hlut ella muntu iðrast þess síðar. Einbeittu þér málum heimilisins bæði innan veggja sem utan. Vatnsberi (20. janúar -18. febrúar) QSft: Reyndu að gera þér grein íyrir vandanum og gerðu ekki úlfalda úr mýflugu. Þú hefðir gott af því að hafa samband við fólk og iyfta þér UPP-______________________ Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Einhver reynir að gera þér lífið leitt svo nú reynir veru- iega á þoiinmæðina. Láttu ekkert verða til að egna þig upp. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. MORGUNHANI GLERAUGNABÚDIN HelmoutKiekller Laugavegi36 5 fær 20% afslátt af viðskiptum milli kl. 9 og 11 Jjiiialdlcikiiui er fallegastur Til sölu eða ieigu öðruvísi brúðarkjólar. Fallegar mömmudragtir, hattar og kjólar. Allt fyrir herra. Fataleíga Garðabæjar, SÍmi 565 6680. Opið virka daga kl. 9.00-18.00, lau. kl. 10.00-14.00. Alltaf rífandi sala! Opið HÚS á Hlíðarvegi 50 Kópavogi Vorum að fá glæsilega 3ja herb. risíbúð í fallegu Vsicon-hiiumi Skipholö Wb-2 hcð Lv __ mciu. iiðiuuo i lanoyu Sá <tOO tvlbýlishúsl, 68,9 fm sam- w® “ kv. fasteignamati en í raun stærri. Mikið endurnýjuð, nýlegt parket og flísar á gólfum. Allt tréverk að inn- an endurnýjað auk glers. Baðherbergi er nýstandsett. Suðursvalir. Nýtt skolp er ( húsinu auk nýrrar rafmagns- 'i töflu. Geymsluskúr á lóð fylgir. Góður garð- . ur. Þessi fer fljótt. Verð 7,5 millj. Áhv. er caf‘ 3,0 millj. í húsbréfum. Ágúst og María taka á móti ykkur á milli kl. 14 og 17 í dag. Verið velkomin. OPIÐ HUS í dag, sunnudag, frá kl. 14-17 að HLÍÐARHJALLA 5, Kóp. Mjög gott og vel staðsett 263 fm einbýlishús ásamt tvöf. 63 fm bílskúr. Garð- skáli. Mögul. á að hafa séríbúð á jarðhæð. Húsið stendur innst í lokaðri götu á glæsilegum útsýnisstað. Stór og falleg lóð. Laust fljótlega. Verð 19,8 millj. Dagný og Erling bjóða ykkur velkomin á milli kl. 14 og 17 I dag. LÆKJARHJALLI - KÓP. Fallega innr. og rúmg. 2ja herb. íb. á jarðhæð með sérinng. Vandaðar innr. Stærð 65,4 fm. Sérþvottah. Suðurverönd. Áhv. 3,7 m. húsb. Verð 7,8 millj. LAUS STRAX. 9607 HAGAMELUR Rúmg. og falleg 69 fm ib. í kj. í 3-býli með sérinng. Stórt herb., rúmg. stofa. Nýl. eikarparket. Sérhiti. Áhv. 3,5 millj. Verð 7 millj. 9606 FROSTAFOLD Rúmg. og falleg 3ja herb. íb. á jarðhæð með sérverönd og garði. Rúmg. eldhús og stofa. Þvhús í íbúð. Stærð 89 fm. Áhv. 5 millj. byggsj. Verð 9,2 millj. 9612 LJÓSVALLAGATA Sérlega vel staðsett 3ja herb. íb. ásamt fjórum herb. í risi með aðgengi að sameiginl. snyrtingu. Stærð samt. 116,3 fm. Mikil lofthæð. Hús í góðu ástandi. Laus fljótl. Verð 10,8 m. 9609 SKÓLAGERÐI - KÓP. Mjög góö 132 fm efri sérhæð í tvíbýli ásamt 34 fm bflskúr. Eikarparket. Baðherb. nýl. standsett. Vandaðar innr. Tvær saml. stofur. 3 svefnherb. Hús í góðu ástandi. Áhv. 6,5 m. Verð 12,4 millj. DVERGHAMRAR Rúmgóð neðri sérhæð á fallegum stað neðan við götu. Allt sér. Stærð 124 fm. Verð 11,9 millj. Áhv. 5 millj. byggsj. 9574 VESTURBERG - ÚTSÝNI Vorum að fá í sölu vel staðsett og gott 193 fm einbýlishús ásamt rúmg. 33 fm bílskúr. Húsið er í mjög góðu ástandi. 4-5 svefnherb. Góðar stofur. Húsið er í góðu ástandi. Húsið stendur fremst á brekkunni og gefur glæsilegt útsýni. Verð 16,9 millj.i Sími 533 4040 Fax 588 8366 orejg^hj Ármúla 21 DAN V.S. WIIUM, hdl. lögg. fasteignasali.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.