Morgunblaðið - 02.10.1999, Blaðsíða 75
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1999 75
Krýsuvíkurkirkja
Safnaðarstarf
Krýsuvíkurhátíð
SUNNUDAGINN 3. október verður
haldin guðsþjónusta í Krýsuvíkur-
kirkju. Hefst guðsþjónustan kl. 14.
Er það orðin hefð að halda þar guðs-
þjónustu að vori, þegar kirkjan er
tekin í notkun fyrir sumarið, og eins
1 að hausti, en þá er altaristaflan sem
Sveinn Björnsson málaði tekin niður
og færð til Hafnarfjarðarkirkju.
Ki’ýsuvíkurkirkja hefur í sumar
verið klædd nýrri hurð og tjörguð og
er í fegursta búningi eins og um-
hverfíð allt.
Að þessu sinni verður sungin
gregorísk guðsþjónusta án undir-
leiks, eins og tíðkaðist í íslenskum
kirkjum til forna. í tilefni þess að
guðsþjónustan er haldin á þessum
I stað er þema guðsþjónustunnar „um-
hverfissiðfræði". Eftir guðsþjónust-
una býður Krýsuvíkurskóli kirkju-
gestum til kaffísamsætis í skólanum.
Rúta fer til Krýsuvíkurkirkju frá
Hafnarfjarðarkirkju kl. 13.15 og
heim aftur eftir kaffisamsætið í
Krýsuvíkurskóla. Kórfélagar úr
kirkjukór Hafnarfjarðarkirkju ann-
> ast söng en prestur er sr. Þórhallur
I Heimisson.
I Messað á ný í
Dómkirkjunni
SUNNUDAGINN 3. október kl. 11
kemur söfnuður Dómkirkjunnar
saman í kirkju sinni á ný. Endurbæt-
ur á kirkjunni eru nú svo langt komn-
ar að hægt er orðið að messa þar um
helgar. Upp á þennan áfanga verður
á haldið með hátíðlegi’i messu þar sem
dómkirkjuprestarnir báðir þjóna. Sr.
1 Hjalti Guðmundsson byrjar messuna
og býður söfnuðinn velkominn og sr.
Jakob Agúst Hjálmarsson prédikar
og þjónar ásamt honum að altar-
issakramentinu. Dómkórinn leiðir
söng undir stjórn Marteins H. Frið-
rikssonar, dómorganista.
Enn er mörgu ólokið við endur-
bætur kirkjunnar og verklok ekki
áætluð fyrr en undir aðventu. Trygg-
a ir kirkjugestir munu því fylgjast með
framvindu verksins á haustmánuð-
um. Vegna framkvæmdanna verður
% ekki hægt að hafa útfarir né aðrar at-
hafnir á virkum dögum fyrr en að
verklokum.
A útlegðartímanum hefur Dóm-
kirkjusöfnuðurinn notið stakrar vel-
vildar Fríkirkjusafnaðarins og er
honum þakklátur. Þakklæti hans
mun nú söfnuður Landakotskirkju
njóta, en hann mun hafa guðsþjón-
ustur sínar í Dómkirkjunni í Reykja-
jj vík meðan þeirra dómkirkja verður
máluð og lagfærð.
Að lokinni messu á sunnudaginn
^ mun Safnaðarfélag Dómkirkjunnar
hafa fyrsta félagsfund veti’ardag-
skrárinnar. Nýir félagsmenn sem
eldri eru velkomnir á fundinn.
Fyrirlestur og
fræðslukvöld í
I Langholtskirkju
PYRIRLESTRAR og hópstarf
i tengt missi verður í vetur líkt og síð-
ustu ár í Langholtskirkju. Nú á
haustdögum verður tekin fyrir úr-
vinnsla sorgar og sorgarviðbragða í
tengslum við skilnað. Séra Þórhallur
Heimisson mun flytja fyrirlestur
sunnudaginn 3. október kl. 20, í
safnaðarheimili Langholtskirkju,
um stöðu einstaklinga eftir skilnað
Ieða sambúðarslit. Fyi’irlestur séra
Þórhalls er öllum opinn en þau sem
hafa staðið í þessum sporum eru
| sérstaklega boðin velkomin. Eftir
fyrirlesturinn gefst timi til umræðna
yfir kaffibolla.
I framhaldi af fyrirlestrinum
verður þeim er vilja gefinn kostur á
því að taka þátt í hópstarfi um úr-
vinnslu skilnaðar sem Jón Helgi
Þórarinsson sóknarprestur og Svala
Sigríður Thomsen djákni hafa um-
sjón með og annast. Sorgarhópar
koma saman einu sinni í viku í 10
vikur. I sorgarhópunum eða nær-
hópunum eins og þeir eru einnig
nefndir, eru einstaklingar sem velja
að hittast í 8-10 manna hópi, gera
með sér samning og mynda trúnað-
arsamband. Þar fer fyrst og fremst
fram jafningjafræðsla, auk innleggs
stjórnenda. Hópstarfínu lýkur með
fyrirlestri um hvernig horft sé til
framtíðar.
Á fundinum 3. október geta ein-
staklingar skráð sig í hópstarfið.
Hópurinn kemur saman í fyrsta
skipti fimmtudaginn 7. október kl.
20-21.30. Einstaklingar í hópnum
geta einnig átt trúnaðarviðtöl við
sóknarprest eða djákna um lengri
eða skemmri tíma. Beðið er með og
fyrir þeim sem þess óska.
Nánari upplýsingar veitir Svala
Sigríður Thomsen djákni í síma 520
1314 eða 862 9162.
Fundur í
Safnaðarfélagi
Dómkirkjunnar
FYRSTI fundur Safnaðarfélags
Dómkirkjunnar verður haldinn
sunnudaginn 3. október nk., að lok-
inni árdegismessu í Dómkirkjunni,
en þennan dag verður fyrsta al-
menna messan haldin í viðgerðri og
endurbættri kirkjunni eftir mánaða-
langa lokun. í tilefni þessa mun Þor-
steinn Gunnarsson arkitekt verða
gestur á fundinum og ræða um hinar
umfangsmiklu endurbætur, sem
gerðar hafa verið á kirkjunni á und-
anfórnum mánuðum.
Fundir Safnaðarfélags Dómkirkj-
unnar eru haldnir eftir árdegismessu
fyrsta sunnudag hvers mánaðar og
hefjast um kl. 12:00 á hádegi. Þeir
eru haldnir á 2. hæð í safnaðarheimili
Dómkirkjunnar á horni Vonarstrætis
og Lækjargötu og standa í rúma
klukkustund. Fundirnir hefjast með
léttum málsverði á vægu verði.
Lofgjörðar-
guðsþjónusta í
Hjallakirkju
NÆSTKOMANDI sunnudag verður
lofgjörðarguðsþjónusta í Hjalla-
kirkju, Kópavogi, kl. 11. Slíkar guðs-
þjónustur verða að jafnaði einu sinni
í mánuði fram að jólum, en í þeim er
mikil áhesla lögð á lofgjörð til Drott-
ins í söng og orði. Kór Snælands-
skóla syngur og leiðir safnaðarsöng
undir stjórn Heiðrúnar Hákonar-
dóttur, og Lóa Björk Jóelsdóttir
leikur undir á píanó. Fólk er hvatt til
að mæta í kirkjuna og lofa Guð í tón-
um og tali.
Fræðslu-
morgnar í
Hallgrímskirkju
Á MORGUN, sunnudag, kl. 10 f.h.,
hefjast að nýju fræðslumorgnar í
Hallgrímskirkju. I tilefni af þúsund
ára kristni í landinu verður yfirski’ift-
in á haustmisseri: Þættir úr þúsund
ára sögu. Ámi Bergmann rithöfund-
ur mun fyrstur ríða á veðið og flytja
fyrirlestur um Þorvald víðförla, sem
fyrstur boðaði löndum sínum kristni
að talið er. Næstkomandi sunnudag,
10. október, mun dr. Hjalti Hugason,
prófessor^ flytja erindi um upphaf
kristni á íslandi og sjálfa kristnitök-
una. Fræðslumorgnarnir eru öllum
opnir. Að lokinni messu á sunnudag-
inn ætla kvenfélagskonur að gefa
kirkjugestum kost á að kaupa sér
súpu og brauð, en þær eru nú að láta
gera skírnarfont í kirkjuna.
Meðgöngumessa
Dómkirkjunnar
KIRKJAN á að vera heimili. Kirkjan
á að vera griðastaður. Kirkjan á að
vera staður þar sem þú getur sest
niður og andvarpað í bæn um allt það
sem hvílir á sálinni. I kirkjunni á
maður að hafa full réttindi.
Þess vegna verður haldin með-
göngumessea í Fríkirkjunni í
Reykjavík sunnudaginn 3. október kl.
20.30. Prestarnir Jóna Hrönn Bolla-
dóttir og Irma Sjöfn Óskarsdóttir,
Jóna ásamt Þórdísi K. Ágústsdóttur
ljósmóður, Rannveigu Sigurbjörns-
dóttur hjúkrunarfræðingi og Herdísi
Finnbogadóttur líffræðingi. Birna
Gerður Jónsdóttir ljósmóðir prédik-
ar. Tónlist er í höndum Gróu Hreins-
dóttur og Önnu Sigríðar Helgadótt-
ur. Fyrirbæn verður fyrir foreldrum
og ófæddum börnum.
Allir eru velkomnir í Fríkirkjuna
af þessu tilefni og verðandi foreldrar
alveg sérstaklega.
Jóna Hrönn Bolladóttir.
Hjálpræðisherinn. Kl. 13 laugar-
dagsskóli fyrir krakka.
Safnaðarheimilið í Sandgerði.
Kirkjuskólinn kl. 11.
Útskálakirkja. Kirkjuskólinn kl.
13.30.
Hvammstangakirkja. Sunnudaga-
skóli kl. 11.
KEFAS, Dalsvegi 24. Samkoma
laugardag kl. 14. Ræðumaður Björg
R. Pálsdóttir. Allir hjartanlega vel-
komnir. Þriðjud: Bænastund og
brauðsbrotning kl. 20.30. Miðvikud.:
Samverustund unglinga kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Akraneskirkja. Kirkjuskóli laugar-
dag kl. 11. TTT-starf (10-12 ára) kl.
13. Stjórnandi Elín Jóhannsdóttir.
Unglingakórinn: Æfing í safnaðar-
heimilinu Vinaminni kl. 14. Stjórn-
andi Hannes Baldursson. Sóknar-
prestur.
Lagersala Fjölva
Smiðjuvegi 2 (bak við Bónus) giJg
í dag hefst rýmingarútsala á bókalager
Fjölva, Smiöjuvegi 2, Kópavogi.
Hundruð titla á hreint ótrúlega lágu verði.
Fjölbreytt úrval bóka og bókapakka og
dregnar fram bækur sem ekki hafa sést í
^ . *jr | mörg ár.
Þetta er algjör nýjung, þar sem fólk getur
komið og gengið um langa ganga með
himinháa bókastafla á báðar hliðar og
skoðað og grúskað að vild. Ævintýraland
fyrir börn og fullorðna.
Verið öll velkomin og takið þátt í
Bókaveisíu sem er engu lík!
V
x ^
Opnunartímar
Laugardaga: 10:00 - 17:00
Sunnudaga: 12:00 - 17:00
Hægt er að panta allan sólarhringinn
á vefnum: http://here.is/fjolvi
Stóra Lagerútsala Fjölva veröur opin nokkr-
ar næstu helgar. Síml Fjölva er 568-8433